Þjóðviljinn - 12.01.1983, Síða 1
MOÐMUINN
27 miljónum króna
er varið til upp-
byggingar dagvistar-
heimila á fjárlögum
í ár, - 90% hækkun
frá fyrra ári. Hér
kvcður við annan
tón en kreppu-
tóninn.
Sjá bak.
janúar 1983
miðvikudagur
48. árgangur
8. tölublað
Hámark ofbeldisöldunnar inn á íslenskar videóleigur
Alvöru morð og nauðgun
aus
„Cannibal Holocaust”, sem gerð hefur verið upptæk erlendis, til leigu í Kópavogi
Kvikmyndin „Cannibal Holoc-
aust“, þar sem grunur leikur á að
fest sé á filmu raunverulegt morð,
er í umferð í videóleigum hér á
landi, eins og grunur lék á. Blaða-
maður Þjóðviljans fékk myndina
leigða í Vidcólcigunni ÍS-VIDEÓ í
Kópavogi í gær.
Myndin er leigð út með áfastri
blaðaúrklippu þar sem fram kemur
sú fullyrðing „að índíánakona sé í
rauninni drepin á meðan á mynda-
tökunni stendur. Henni sé mis-
þyrmt og síðan drepin með steini.“
Umrædd mynd hefur valdið
miklu umróti víða í Evrópu. í Sví-
þjóð og Noregi hefur verið lagt
bann á hana og lögregla freistaði
þess að gera hana upptæka. Fyrir
utan gífurlegt ofbeldi, raunveru-
legar nauðganir og mannakjötsát
sýnir myndin hvar indíánakona er
drepin, og hefur sænskur blaða-
maður sem ferðast hefur mikið um
Suður-Ameríku staðhæft að konan
hafi verið drepin fyrir framan
myndatökuvélina. Grunurinn um
raunverulegt morð kviknaði upp-
haflega í New York, þar sem vinur
eins „leikandans" í myndinni taldi
sig þekkja andlit stúlku sem horfið
hafði sporlaust eftir kvikmynda-
leiðangur í frumskógum Suður-
Ameríku.
IS-Vídeó sem leigir myndina út
er til húsa í fjölsóttri verslunarmið-
stöð í Kópavogi, Kaupgarði. Er
hún í sambýli við sjoppu sem ann-
ast afgreiðsluna, en að öðru leyti
sjálfstætt fyrirtæki. Kvikmyndin
bandaríska, „Cannibal Holoc-
aust“, er því seld á markaði hér
sem hver annar sjoppuvarningur.
-hól/ekh.
Þjóðviljinn hefur ákveðið að kæra
dreifíngu „Cannibal Holocaust“ til
embættis saksóknara ríkisins.
Betamax
? * ■, jÍB /fS
Blaðamaður Þjóðviljans í videóleigunni „Ís-vídeó“ í gær með spóluna af
fylgir með spólukassanum til útskýringar og auglýsingar, cins og getið er
„Cannibal Holocaust".
um í fréttinni. Ljósm.
Til hægri á myndinni má sjá blaðaúrklippuna sem
eik.
Heilbrigðismálog Sjálfstæðisflokkur:
Ekkert aðhafst
á þessu ári!
Sjálfstæðisflokkurinn felldi s.l. fímmtudag tillögur
frá Öddu Báru Sigfúsdóttur um að hinn 1. maí n.k.
verði gamla númerakerfið lagt niður og tekið upp kerfi
heilsugæslustöðva í Reykjavík. Var síðan samþykkt að
taka hið nýja kerfi upp 1. janúar 1984.
Þessi samþykkt er gjörsamlega marklaus, sagði
Adda Bára. í henni felst það eitt að ekkert verður
aðhafst á þessu ári, þrátt fyrir rúmlega 12 miljón króna
framlag frá ríkinu, sem óskað var eftir m.a. í þessu
skyni. Dagsetningar á árinu 1984 eru auðvitað háðar
fjárhagsáætlun þess árs, sem enginn hefur ennþá séð.
Tækifærið til þess að breyta kerfinu var við afgreiðslu
fjárhagsáætlunar 1983 en þar vantaði viljann.
Þegar fjárhagsáætlun var lögð fram í desember var
öllum beiðnum heilbrigðisráðs um rekstur nýrra heilsu-
gæslustöðva hafnað. Við síðari umræðu var komin inn
tillaga um rekstrarfé til einnar stöðvar af þremur; í
gömlu Heilsuverndarstöðina við Barónstíg. Er það allt
og sumt sem gert verður í heilsugæslumálum á þessu ári
í Reykjavík. -ÁI
SjálO
MIMVmV OP VKHI AOMHS
Dií.dul.ir u* I «M.I
EMPLOYMENT IN ICELAND
PRACTICAL INFORMATION
for Forcipn Nationals.
„Greinileg þörf er á
að endurskoða lögin
um atvinnuréttindi
útlcndinga í Ijósi
deilna Kanada-
mannanna á Djúpa-
vogi“, segir Arn-
mundur Backman
lögfræðingur.
íslenskir húsgagna
framleiðendur
verða að leggja stór-
aukna áherslu á
vöruþróun og
markaðsmál ef
iðnaðurinn á að
geta unnið sig út úr
erfiðleikunum.
Margföldun innflutnings
einingarhúsa s.l. 2 ár:
Innflutningur
hefur 5-faldast
392 tonn flutt inn allt árið 1980,
en stefnir í 2200 tonn á s.l. ári
Innflutningur tilhöggvinna einingahúsa til Islands
hefur margfaldast á síðustu árum. Árið 1978 voru flutt
inn í landið 337.1 tonn af þessum varningi, 1980 voru
flutt 392.6 tonn en fyrstu 9 mánuði s.l. árs voru flutt inn
1.767 tonn. Er þvi utlit f;
tilbúnum einingahúsum á
Verömæti innfluttra eininga-
húsa hefur að sjálfsögðu marg-
faldast. Árið 1978 fluttum við
inn einingahús fyrir tæplega 1.5
miljón króna, árið 1980 nam
þessi innflutningur 2.8 miljón-
um króna og fram til septemb-
erloka árið 1982 höfðu verið
flutt inn einingahús fyrir hvorki
meira né minna en 24.6 miljón-
ir króna. Þessar tölur eru
miðaðar við verðlag hvers árs.
1978 var 8% tollur á innflutt-
um einingahúsum frá löndum
ir 5-földun mnflutnings a
aðeins tveimur árum!
Efnahagsbandalagsins og
EFTA, en þaðan flytjum við
svo til öilInnflutt hús. í maí það
ár var auk þess lagt á 3% jöfn-
unargjald sem enn er til staðar.
1979 lækkaði tollurinn niður í
4% og hvarf alveg árið 1980.
Auk jöfnunargjaldsins var lagt
á sérstakt 3% aðlögunargjald
sem gilti frá 1. júlí 1979 til árs-
loka 1980. Þá hefur 12% jöfn-
unarálag verið á þessum inn-
flutningi síðan 1. janúar 1982.
-v.