Þjóðviljinn - 12.01.1983, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 12.01.1983, Qupperneq 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 12. janúar 1983 síöan Illa merkt óskila- kind Hjá hreppstjóranum á Völlum í Seyluhreppi í Skagafjarðar- sýslu, var síðast þegar við hér á 2. síðunni vissum, kind í óskilum. Ærin er hvít, hyrnd, þriggja til fjögurra vetra. Það sem er verra, er að yfirmarkið á hægra eyra er alls ekki nógu glöggt. Mönnum sýnistþað annað hvort vera sneitt framan, blaðstíft framan eða sýlt, í það minnsta er mjög lítill biti framan. Markið á vinstra eyra er hins vegar mun gleggra, þ.e.a.s. sýlt. Til frekari upplýsinga má geta þess að ærin er með rautt plast- band á hægra horni, ef einhver í Skagafirði er nær. Skák Karpov að tafli - 79 Karpov komst einn í efsta sætið í Lenin- grad þegar hann sigraði Rukavina í 14. um- ferð á meðan Kortsnoj gerði jafntefli við Smejkal. Staðan þvi þessi: 1. Karpov 11 v. 2. Kortsnoj 10’/2 v. 3. Byrne 9V2 v. 4. Smejkal 9 v. 5. Larsen 8V2 v. 115. umferð komst Karpov ekkert áleiðis gegn Radulov og varð að sætta sig við jafntefli á meðan Kortsnoj komst upp við hliðína á honum með því að sigra Torre. I þessari umferð vann Byrne Larsen og tveim umferðum fyrir lok mótsins var hann i 3. sæti aðeins '/2 vinningi á eftir K-unum tveimur. í 16. umferð réðust úrslitin í raun. Kort- snoj vann Estevez, Byrne vann Cuellar og Karopv gerði möguleika Smejkal að engu með því að sigra hann í löngu og ströngu endatafli: wrrm m „........ ím m P f!§ i§t H! Smejkal - Karpov Þessi skák þeirra félaga var án efa ein sú tilþrilamesta i mótinu. Smejkal fékk öflugt frumkvæði út úr byrjuninni en skilaði því öllu til baka í tímahraki. Karpov náði örlitlu frumkvæði og tókst að nudda vinn- ingnum í land: 68. ..Kg4 69. Kd5 h4 70. e5 h3 71. Bxh3 Kxh3 72. e6 Bc5l! - Hvítur gafst upp. - Fyrir síðustu umferö var staðan þessi: 1. - 2. Karpov og Kortsnoj 12'/2 vinning. 3. Byrne 12vinninga4. Smejkal 10V2V. 5.-6. Larsen og Húbner 10 v. Peningaflóð í tennisíþróttinni 1.000.000.000 — einn miljarður ísl. var greiddur í verðlaun á tennismótum á síðasta ári ónir krónur íslenskar. Þar af var veitt í peningaverðlaun samtals 4 miljónum króna. Þegar menn velta þessum svim- andi tölum fyrir ser og athuga í leiðinni, að á síðasta ári er talið að ekki minna en 1000.000.000- einum miljarði króna hafi verið veitt í peningaverðlaun í tennis- íþróttinni og að tennisleikarar hafi þar fyrir utan þegið um 50 miljónir ísl. í auglýsingatekjur. (Sem dæmi um slíkt má nefna að John McEnro sá bandaríski þigg- ur aðeins 15 miljónir íslenskar á 10 miljónir tennisspaða á ári hverju. Meðan áhugi almennings fyrir íþróttinni er þetta mikill þá munu verðlaunafjárhæðir á tenn- ismótum fara stighækkandi. Frá Bessa- stööum til Reykja- víkur Við gátum þess nýlega hér á síðunni að tvö mál hafi borið hæst hjá embættismannanefndinni ár- ið 1839. Annað var samning kosningalaga, sem breyttist í bænaskrá um þinghald á íslandi og áður hefur verið greint frá. Hitt var hvort flytja ætti skólann frá Bessastöðum og til Reykjavík- ur og gera þá jafnframt ýmsar breytingar á skólahaldinu. Nefndin var mjög skipt í af- stöðu sinni til þessa máls. Bar- denfleth stiptamaður, Þórður dómstjóri, Stefán Gunnlaugs- son, landfógeti og Páll Melsted, sýslumaður vildu flytja skólann en Steingrímur biskup, Árni stiptprófastur og amtmennirnir, Bjarni Thorarensson og Bjarni Thorsteinsson og sýslumennirn- ir, B.A./Blöndal og Jón Jónsson voru apdvígir flutningnum. Niðtírstaðan var sú, að hvorum nefndarhlutanum uni sig var falið að semja álitsskjal til danska skólaráðsins. Kom það í hlut stiptamtmanns að rökstyðja álit flutningsmanna en Bjarna Thor- steinssonar álit þeirra, sem vildu hafa skólann áfram á Bessa- stöðum. Ofaná varð, eins og allir vita, að flytja skólann til Reykjavíkur þótt á því yrði nokkur bið þar sem húsnæði var ekki fyrir hendi. -mhg Gætum tungunnar >etta er kannski ekki hraðskreyðasta hjól scm fundið hefur verið upp, en það er óneitanlega mikill kostur að >eta stytt sér leið yfir allar vatnshindranir eða jafnvel siglt á heimshöfunum, eins og þessi farkostur býður jppá. Annars er myndin af uppfinningamanninum sjálfum, austurrískum að uppruna sem siglir stoltur á íljólhestafleyinu sínu á Genfarvatni. hvors annars. Rétt væri: Þeir komu hvor í ar ars stað. Því hærri peningaverðlaun sem veitt eru í stórmótum atvinnu- tennisleikara, þeim mun meiri auglýsingu fá stórfyrirtækin sem standa fyrir mótunum. Salan eykst í réttu hlutfalli við auglýs- ingarnar sem aftur þýðir að enn hærri upphæðir renna til sigur- vegaranna á tennismótunum. Þetta hljómar sem lygasaga, en er alls ekki. Peningaflóðið sem fylgir tenn- isíþróttinni hefur löngum vakið furðu margra. Sem dæmi má nefna Evrópska meistaramótið sem haldið var í Antwerpen seint á síðasta ári, sem stórfyrirtækið ProServe stóð fyrir. Þangað var boðið öllum sigurvegurum tennis- móta það árið og Björn Borg þeim sænska að auki, þar sem tal- ið var fullvíst að þátttaka hans myndi hafa mikið auglýsingagildi fyrir þá sem stóðu að fyrirtækinu. 15 miljónir fyrir réttan tennis- spaða Kostnaðurinn við mótshaldið var hvorki meiri né minni en 700.000 dollarar, eða um 14 milj- Björn Borg er dæmi um gangandi auglýsingu og því er hann eftir- sóttur keppnismaður af skipu- leggjendum stóru tennismótanna. ári hverju fyrir að spila með Dunlop spaða) er ekki að undra þótt mörgum verði bumbult, en aðrir reyni að leita skýringa á þessum risafjárhæðum. Stóreignarmennirnir sem standa fyrir öllu saman til að aug- lýsa vöru sína segja að auglýsing- akostnaðurinn skili sér til baka og meira en það með stóraukinni sölu. Nefnd eru dæmi um hvernig ákveðin tegund að tennis- spöðum, svitaböndum og jafnvel bíltegundum hefur rokið upp úr öllu valdi, og skýringuna segja þessir menn vera að finna í því auglýsingagildi sem tennismótin eru. Sjónvarpað er beint frá stærstu mótunum alla keppnina, og stórar fúlgur fást fyrir sýning- arréttinn sem seldur er víða um heim. Á meðan 24 miljónir manna í Bandaríkjunum einum spila tennis, er markaður þar fyrir 8- Finnst enginn franski Jónas? Frakkar virðast vera á alvar- legum villigötum í landbún- aðarmálunum. Líklega hafa þeir engan Dagblaðs-Jónas sér til ráðuneytis. Sem dæmi um fjarstæðukennd- ar tiltektir^Fransmanna í þess- um efnum má nefna, að á sl. ári tvöfölduðu þeir fjárstuðning sinn við unga nýbýlinga. Frá miðju ári var þessi aðstoð veitt öllum bændum en áður hafði hún aðeins náð til þeirra, sem byggðu hin harðbýlli héruð. Að sögn Freys er veittur grunnstyrkur, sem nemur 93 þús. ísl. kr.,en til bænda í harðbýlli héruðum og á þróunarsvæðum nemur fram- lagið 190 þús. ísl. kr..I fjallahér- uðunum getur heildarframlagið Frá vínekrum í Beaune í Frakklandi. komist upp í 210 þús. ísl. kr..í góðsveitum getur það hinsvegar orðið hæst 125 þús. kr..Annars fer grunnstyrkurinn eftir ýmsu svo sem fagmenntun, búgreinum og hugsaniegum aukabú- greinum. Tvennt vakir fyrir Frökkum með þessum aðgerðum. í fyrsta lagi vilja þeir stuðla að endurnýjun ' bændastéttarinnar og í annan stað vinna gegn atvinnuleysi. En hér á íslandi tala menn, sem taka sjálfa sig alvar- lega þótt engir aðrir geri það, um að leggja niður búskap og setja bændur á atvinnuleysisbætur. -mhg

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.