Þjóðviljinn - 12.01.1983, Side 5
Miðvikudagur 12. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Rogers vekur reiði í
Finnlandi
Bernard Rogers yfírmaður herafla Nato í Evrópu segir
í nýbyrjuðu viðtali að hann dragi í efa að Finnland sé
reiðubúið að verja hlutleysi sitt á svipaðan hátt og Sví-
þjóð eða Sviss.
Viðtal þetta, sem hann átti við dagblaðið Helsingin
Sanomat, hefur vakið mikinn úlfaþyt í Finnlandi, og
hefur ummælum Rogers verið harðlega mótmælt af
fínnska utanríkis- og varnarmálaráðuneytunum.
Bernard Rogers yfirmaður herafla Nato hefur valdið úlfaþyt í Finnlandi
með því að draga hlutleysisvilja Finna í efa.
f viðtalinu sagði Rogers að hann
drægi í efa að Finnar væru reiðu-
búnir að verja hlutleysi sitt ef So-
vétríkin reyndu að ráðst á stöðvar
Nato í Noregi í gegnum Finnland.
Yfirmaður finnska hersins,
Lauri Sutela hershöfðingi, sagði að
það væri ekki nýtt að reynt væri að
skapa efasemdir um hlutleysi
Finna, það væri tilraun til að færa
rök fyrir hina meintu „finlandsiser-
ingu“.
Hershöfðinginn sagði að Rogers
þekkti greinilega ekki til sögu
Finnlands og samskipta þeirra við
nágranna sína. Hann sagði að það
yrði greinilega erfitt að sannfæra
Rogers um kosti þess að skapa
kjarnorkuvopnalaust svæði á
Norðurlöndum.
Rogers boðaði aukinn vígbúnað
og sagði að Evrópuríkin yrðu að
verja meira fé til varnarmála, jafn-
vel þótt það kæmi niður á félags-
legri þjónustu.
Dregur
hlutleysi
Flnna í efa
Bæði Per Stenbáck utanríkisráð-
herra og Juhani Saukkonen varn-
armálaráðherra vísuðu efasemdum
Rogers á bug og sögðu jafnframt
að þeir hefðu enga ástæðu til að
ætla að Sovétríkin yrðu fyrst til að
ógna hlutleysi Finnlands með hern-
aðaríhlutun.
Bernard Rogers beindi einnig
varnaðarorðum til friðarhreyfing-
anna á Vesturlöndum, sem hann
taldi gegna varhugaverðu hlut-
verki. Hann minnti friðarhreyfing-
arnar á að kjarnorkuvopn verði
ekki afnumin með slagorðum held-
ur með samningum á ntilli þar til
kjörinna stjórnvalda.
Sænska blaðið Dagens Nyheter
gerir viðtalið við Rogers að umtals-
efni í leiðara s.l. miðvikudag og
segir þar að steinrunnar hugmyndir
Bernards Rogers séu vart til þess
fallnar að opna vitsmunalega um-
ræðu um hlutleysisstefnu Finna.
Síðan segir blaðið: Finnar hafa
eftir tvær blóðugar styrjaldir við
Sovétríkin gert við þau vináttu og
samvinnusáttmála um leið og þeir
hafa sett sér að viðhalda hlutieysi.
Það er erfitt að skilja hvaða ávinn-
ing Rogers geti talið sig hafa af því
sem fulltrúi Nato að gefa það fyrir-
fram í skyn að Finnar séu þess
ekki fullfærir að standa vörð um
hlutleysi sitt vegna samningsins við
Sovétríkin. Slíkra yfirlýsinga væri
frekar að vænta frá sovéskum
herforingja, sem sjálfsagt mundi
vilja tryggja sér finnska fylgispekt
ef til átaka kæmi, á milli valda-
blokkanna.
Rogers virðist greinilega óska
þess að Finnar komi fram eins og
samningur þeirra við Sovétríkin
væri ekki fyrir hendi. Umræða sem
er svo gjörsneydd sögulegri innsýn
er ekki vænleg til þess að eiga upp á
pallborðið í Finnlandi og hið per-
sónulega andsvar finnska hers-
höfðingjans ætti að verða Rogers
til umhugsunar.
Síðan heldur leiðarinn áfram:
Grandvarari menn en Rogers her-
foringi hafa lagt sig fram að undir-
strika framlag Finnlands til jafnvægis
og slökunar í Evrópu. Þegar yfir-
niaður herafla Nato dregur hlut-
leysi Finnlands í efa í krafti emb-
ættis síns gerir hann Finnum hlut-
leysið erfiðara - gagnstætt hags-
munum Atlantshafsbandalagsins
sjálfs.
Því má að lokum bæta við, að því
yrði væntanlega ekki vel tekið,
hvorki í Finnlandi né annars staðar
ef yfirmaður heratla Varsjárband-
alagsins gæfi frá sér hliðstæðar
yfirlýsingar, þar sem vilji og geta
Finna til að standa við hlutleysi sitt
væru dregin í efa.
Þá er þessi umræða ekki síður
forvitnileg í ljósi þess að hér á ís-
landi heíur Morgunblaðið um ára-
bil hamrað á því að Finnland væri
ekki sjáifstætt ríki og að „finn-
landsísering" væri það hlutskipti
sem herstöðvaandstæðingar hér á
landi ætluðu íslandi.
Kirkja og
kúgun í Mið-
Ameríku
Ríkisstjórn Rios Montt í Guatemala er talin hafa látið
taka um 10 þúsund óbreytta borgara af lífí frá því hún
kom til valda í marsmanu
skýrslu sem Council on
Washington.
í þessari árlegu skýrslu ráðsins
um mannréttindi í Rómönsku
Ameríku kemur fram að ástand
mannréttinda í álfunni sé bág-
bornast í Guatemala og E1 Salva-
dor, en tala fallinna óbreyttra
borgara í báðum ríkjunum nemur
15-20 þúsundum á síðasta ári að
mati ráðsins, og er þetta í fyrsta
skipti í langan tíma sem stjórn-
völd Guatemala fara fram úr
stjórnvöldum í E1 Salvador í af-
tökum á óbreyttum borgurum. í
skýrslunni segir að „fleiri sak-
lausir borgarar hafi verið teknir
af lífi í þessum tveim löndum en í
hinum löndunum í álfunni
samanlagðri."
í skýrslunni segir að mannrétt-
indasamtök hafi komist að þeirri
niðurstöðu, að fjögurra ára vald-
atíma Lucas Garcia, sem var
fyrirrennari Rios Montt, hafi um
20 þúsund óbreyttir borgarar ver-
ið teknir af lífi og þótt flestir hafi
álitið að ástandið gæti ekki annað
en batnað við valdaskiptin, þá
hafi hið gagnstæða komið í ljós. í
skýrslunni eru ummæli Ronalds
Reagan nýverið, þess efnis að
ástand mannréttinda væri nú
betra í Guatemala en áður, gagn-
rýnd mjög.
Að mati ráðsins hafa á milli 6
og 9 þúsund óbreyttir borgarar
verið teknir af lífi af dauðasveit-
um hægri manna í E1 Salvador á
11982 segir í nýbirtn árlegri
Hemispheric Affairs gaf út í
árinu, en þær njóta stuðnings
herstjórnarinnar. Ráðið telur að
um 1000 óbreyttir borgarar hafi
fallið fyrir vinstri sinnuðum
skæruliðum.
Páfinn til Guatemala
Tilkynnt hefur verið, að Jó-
hannes Páll II páfi muni
heimsækja E1 Salvador og Guate-
mala í mars n.k. Þar mun hann
mæta mörgum vandamálum og
margir munu þar gera tilkall til
verndar hans og stuðnings.
Meðal þeirra verður þó ekki
Efrain Rios Montt, því hann er
mótmælandi einn af 1,5 milljón-
um slíkum í Guatemala eða um
fjórðungi þjóðarinnar. Mótmæl-
endur hafa stundað trúboð í Gu-
atemala í u.þ.b. eina öld um
þessar mundir, og eru mótmæl-
endur þar flestir af hvítasunnu-
söfnuði aðventistasöfnuði og
baptistar. Trúboð þetta hefur
náð bestum árangri meðal lág-
stéttanna, og er meðal mótmæl-
endanna lögð rík áhersla á
strangt uppeldi, hlýðni við yfir-
boða og yfirvöld og að menn leggi
hart að sér við vinnu og nám.
„Kirkja orðsins“
Átökin í Guatemala eru ekki
trúarlegs eðlis, en trúarbrögð
setja engu að síður svip sinn á
þau. Andstæðingar herforingja-
Efrain Rios Montt forseti Guatemala og þríeyki hans. Mannréttindasamtök hafa komist að þeirri
niðurstöðu, að hann hafi nú tekið forystuna í brotum á mannréttindum í Rómönsku Ameríku,
enda þótt hann geti nú hampað syndakvittun og hernaðaraðstoð frá Ronald Reagan.
stjómar Montts sækja sér gjarnan
hald og traust í þeirri hreyfingu
sem breiðst hefur út um kaþólsku
kirkjuna í Rómönsku Ameríku
fyrst og fremst og kölluð hefur
verið guðfræði frelsisins.
Að sögn fréttaritara The Guar-
dian var Rios Montt hershöfðingi
skýrður til nýrrar trúar fyrir 4
árum. Söfnuðurinn sem hann til-
heyrir er lítill ofsatrúarsöfnuður
sem kallar sig „Kirkju orðsins"
og á rætur sínar í Norður-
Kaliforníu í Bandaríkjunum.
Bróðir Rios Montt er hins vegar
einn af leiðandi kaþólskum bisk-
upum í Guatemala. Þótt Montt
sé fyrsti ekki kaþólski forsetinn í
Guatemala, þá hefur oft áður
kastast í kekki á milli ríkisins og
kaþólsku kirkjunnar í landinu
fyrir áhrif hinnar nýju kaþólsku
guðfræði. Nú erþessi ágreiningur
hins vegar orðinn að opnu stríði.
Margir prestar hafa unnið að því
að skipuleggja samtök bænda og
sögur fara einnig af prestum sem
hafa gengið til liðs við skæruliða.
Svör hersins hafa verið að drepa
fjölmarga presta í landinu.
Þegar Ronald Reagan kom til
Guatemala í byrjun síðasta mán-
aðar átti hann fund með Montt,
og virtist fara vel á með þeim. Að
fundinum loknum tilkynnti hann
að Bandaríkin myndu aflétta
vopnasölubanni til Guatemala og
veita ríkisstjórn Montts hern-
aðaraðstoð, sem Carter hafði
skrúfað fyrir vegna brota á mann-
réttindum í landinu. Þess verður
væntanlega krafist af páfanum,
þegar hann kemur til Guatemala
að hann geri upp hug sinn um
þessi mál. f E1 Salvador verður
hann vafalaust minntur á for-
dæmi Romeros erkibiskups sem
myrtur var fyrir altafi dómkirkj-
unnar vegna stuðnings síns við fá-
tæka bændur.
Jóhannes Páll páfi hefur til
þessa ekki tekið ótvíræða afstöðu
til frelsishreyfinga kaþólíka í
Rómönsku Ameríku, en hann
hefur hins vegar veitt biskupnum
í Managua í Nicaragua siðferði-
legan stuðning í andstöðu hans
við stjórn Sandinista. Hver sem
afstaða páfans verður á andan-
um, þá hefur hið pólitsíka ástand
í Rómönsku Ameríku leitt til sið-
ferðilegrar kreppu innan kirkj-
unnar.
Þess má að lokum geta, að í
fyrradag gáfu ríkisstjórnir Mex-
íkó, Venezuela og Kólumbíu út
yfirlýsingu, þar sem afskipti og
íhlutun erlendra ríkja í málefni
Mið-Amríku voru fordæmd, sem
og sú kenning Bandaríkjastjórn-
ar að ástandið í þessum heims-
hluta starfi af sovésk-kúbönsku
samsæri. Væntanlega á þessi yfir-
lýsing eftir að skrepa þær hug-
myndafræðilegu deilur sem risið
hafa innan kirkjunnar og stjórn-
málaflokka um málefni Mið-
Ameríku. ólg.