Þjóðviljinn - 12.01.1983, Page 7

Þjóðviljinn - 12.01.1983, Page 7
Miðvikudagur 12. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 Flótti 3ja kanadískra verkamanna frá Djúpavogi: .Aðalatriðið þessu máli nú tel ég vera það að samkvæmt lögum sem tóku gildi í apríl á síðasta ári, ber atvinnurekanda skilyrðislaust að útvega atvinnuleyfí fyrir þá út- lendinga sem hingað eru ráðnir til starfa. Fram- kvæmdastjóri Búlands- tinds á Djúpavogi hefur ekki farið eftir þessu ótví- ræða lagaákvæði og þess vegna er þessari deilu á Djúpavogi engan veginn lokið“, sagði Arnmundur Backman lögfræðingur kanadísku stúlknanna sem hafa yfirgef 5 Djúpavog. Hann var einnig formaður nefndar sem Svavar Gests- son félagsmálaráðherra skipaði til að semja lög um atvinnuréttindi útlendinga og tóku gildi sl. vor eins og áður sagði. í upplýsingabæklingi sem vinnumáladeild félagsmálaráðu- neytisins gaf út í nóvember sl. eru allar helstu upplýsingar fyrir þá ríkisborgra erlenda sem hafa hug á að ráða sig til starfa hér á landi. I lögum nr. 26/1982 um atvinnurétt- indi útlendinga, er ákvæði þess efn- is að vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins beri að út- búa og dreifa skriflegum upp- lýsingum þar sem greini frá réglum um dvalarleyfi og atvinnuleyfi, al- mennum launakjörum, vinnutíma,, sköttum og opinberum gjöldum og öðru sem snertir útlendinga er hyg- gjast leita eftir atvinnu hér á landi. Endurskoða þarf lögin í þessum kynningarbæklingi, sem bæði er prentaður á íslensku og ensku, eru ákvæði um að félags- málaráðuneytið beri að fylgjast með starfskjörum útlendinga og framkvæmd ráðningarsamnings þeirra og eigi að undirbúa almenna stefnumörkum varðandi ráðningu á erlendu starfsfólki til íslands. Við spurðum Arnmund Backman lög- fræðing og formann nefndarinnar sem átti að tryggja réttindi útlends verkafólks, hvers vegna mál eins og það á Djúpavogi hefði komið upp? „Það sem í raun hefur gerst er það að atvinnurekandinn lætur Tvær kanadísku stúlknanna fjögurra sem hættu vinnu hjá Búlandstindi á Djúpavogi þar sem þær töldu á sér brotið. Kim Orvis og Norma Thomas. Ljósm. eik. „Andi laganna þverbrotinn” segir Arnmundur Backman lögfræðingur og telur einsýnt að endurskoða verði lögin um atvinnuréttindi útlendinga kanadíska verkafólkið starfa svo mánuðum skiptir á bráðabirgðaat- vinnuleyfi þrátt fyrir að lögin kveða á um að fullnaðaratvinnu- leyfi verði að liggja fyrir að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. I OONDIHONS ANO iERMS OF ACREUŒNii öulands iindur H,F. shall hereafter he known ts the (conyany of first part) this agreement and the Job applicant to that company for naraely employment in ‘Iceland as set out in advertiaed Job application in the Interlake Spectator of Stonewall and dated July 30th, 1982, Shall be hereafter known as second part of applicant to this agreement. This agreemeni is as folldwsi l). The company shall provide funds for passage of the applicant from Winnipei’, Manitoba, Canada to oite of the corapany at Dáupivogur, Iceland, on cöndition that the value of auch passage be retumed to the company in eight equal payments which will be deducted from the pay cheque of the applicant, the first such deduction to be made from the first pay cheque received from the conpany cnd consiqutively untill the eighth payment has been made. At *he end of nine months an ! one week of employment by the applicant with the co. ^Æny of this pgreement the applicant sholl be entitled to his or her pacsage from the site of the company to Winnipeg, Manitoba, Canada. The applicant shall receive his or her salary as followsi xhe first payment of wages shall be at the end of the ll»th day of employment and at the end of each week thereafter. The company reaerves the right to withold the first weeks wages untill the termination of employment at which time all monies legally due the applicant ehall be paid to the applicant. Any deviation of this agreement can only be made by negotiation between the company and the applicant. I /V&cSthe undersigned do hereby understund the terms and conditions of this agreement and will abide by all said terms- and conditons of this agreement. þessu tiltekna máli er fyrst reynt á þessi nýju lög og mér sýnist ein- boðið að kalla verði nefndina, sem samdi lögin, saman aftur í ijósi þess að lögin hafa ekki reynst nógu haldmikil. Það verður greinilega að búa betur um hnútana og ég mun fara þess á leit við félagsmál- aráðherra að lögin verði endur- skoðuð í ljósi Djúpavogsmálsins." „Hitt vil ég svo taka fram sem lögmaður kanadísku stúlknanna að ég er ekki að bera atvinnurek- andanum það á brýn að hann hafi brotið ráðningarsamninginn. Það mál er enn í athugun", sagði Arn- mundur Backman ennfremur. 5 meginskilyrði En hvaða skilyrði þarf að upp- fylla til að atvinnuleyfi fáist fyrir útlent verkafólk? Arnmundur Backman svarar þessu: „Það skal tekið fram að félagsmálaráðherra veitir atvinn- urekandanunt atvinnuleyfið fyrir þá útlendinga sem hann ræður til starfa. Skilyrðin eru því eins og segir í lögum: 1. Að fyrir liggi umsögn stéttarfé- lags á viðkomandi stað urn hvort nauðsyn sé á þessu vinnu- afli. 2. Að fyrir liggi undirritaður ráðningarsamningur til á- kveðins tíma ellegar verkefnis, sem ótvírætt tryggi erlendum starfsmanni laun og önnur starfskjör til jafns við heima- menn, ásamt tilvísun tii þess kjarasamnings sem um starfið gildir. Þá skulu í ráðningar- samningi vera ákvæði um flutn- ing viðkomandi frá íslandi að starfstíma loknum og einnig um greiðslur ferðakostnaðar og heimflutnings í veikindum eða við óvænt ráðningarslit. Þá skal einnig tilgreint í ráðningars- amningi hvernig fæði og hús- næði er háttað. 3. í ráðningarsamningi skal vera ákvæði um að viðkomandi starfsmaður hafi kynnt sér þær upplýsingar sent í sérstökum bæklingi félagsmálaráðuneytis- ins eru, en þar er átt við reglur um dvalarleyfi, almenn launa- kjör, vinnutíma, aðbúnað við vinnuna, sköttum og opinber- um gjöldum, rétti til yfirfærslu fjármuna, og um önnur réttindi og skyldur sem erlent starfsfólk tekst á hendur. í lögunum er skýrt kveðið á um að atvinnur- ekanda eða umboðsmanni hans beri skylda til að rækja þessa upplýsingaskyldu með framan- greindum hætti. 4. Vottorð viðkomandi yfirvalda þarf að liggja fyrir um að atvinnurekandinn hafi hæfilegt húsnæði fyrir erlendan starfs- mann meðan ráðningarsamn- ingur er í gildi. 5. Heilbrigðisvottorð þarf að liggja fyrir vegna viðkomandi starfsmanns ásamt yfirlýsingu um síðasta dvalarstað hans áður en komið var til landsins. Það skal tekið frarn að þegar félagsmálaráðuneytið veitir bráðabirgðaatvinnuleyfi gilda ekki ákvæði liðar 2, 3, 5, og 6, en fullnaðaratvinnuleyfi má hins veg- ar ekki veita nema öllum skilyrðum sé fullnægt að viðbættu því að fyrir liggi innlent heilbrigðisvottorð." En hefði ekki mátt kveða sterkar að orði í lögunum um það hvenær atvinnurckanda bæri að afla sér fullnaðaratvinnuleyfis? „Jú, það virðist vera að menn geti hagnýtt sér að ekki er skýrt kveðið á um tímamörk í því sam- bandi. Hins vegar er enginn vafi á því að lögn eru hugsuð þannig að atvinnurekendur geti fengið bráðabirgðaatvinnuleyfi fyrir ótil- tekinn fjölda starfsmanna, en um leið og það liggur fyrir hversu marga starfsmenn er unt að ræða og þeir komnir til landsins, ber við- komandi fyrirtæki auðvitað skil- yrðislaust að afla sér fullnaðar- atvinnuleyfis strax. Það hefur semsé ekki verið gert í þessu til- viki.“ Ýmsu áfátt „Andi laganna er ótvírætt sá að tryggja að hinurn erlenda starfs- manni sé ljóst út í hvað hann er að ganga. Atvinnurekandanum ber undantekningarlaust að sjá til þess að starfsmaðurinn hafi fengið allar þessar upplýsingar og þurfi ekki að ganga að því gruflandi hvaða rétt- indi hann hefur. Það er greinilegt að við ráðningu starfsmannanna til Djúpavogs hefur ekki verið frá öllu tryggilega gengið og þess vegna tel ég sem lögmaður að ástæða sé til að fara ofan í málið til að leytast við að rétta hlut þeirra starfsmanna sem lögðu niður vinnu þar fyrir jólin“, sagði Arnmundur Backman lög- fræðingur að síðustu. - V. Samkomulagsskilmálar Samkvæmt fullyrðingu einnar kanadísku stúlknanna sem hvarf frá starfi á Djúpavogi, Söndru Nel- son, undirrituðu kanadísku verka- mennirnir aðeins tvö plögg þegar þeir voru ráðnir til Djúpavogs. Annars vegar samkomulags- skilmála þá sem hér er birt Ijósrit af og svo venjulega umsókn um atvinnuleyfi. í ofangreindum samkomulags- skilmálum, sem Sandra Nelson undirritaði, segir þetta: „Fyrirtækið leggur frant fé til ferðar verkafólksins frá Winnipeg í Kanada til Djúpavogs, með þeim skilyrðum að andviröi ferðarinnar skuíi endurgreitt með 8 jöfnum af- borgunum, í fyrsta skipti með fyrstu launagreiðslu og síðan með hverri launagreiðslu þar til skuldin er að fullu greidd. Að loknum 9 mánuðum og einni viku betur, mun viðkomandi starf- smaður eiga rétt á fargjaldi frá Djúpavogi til Winnipeg í Kanada. Laun viðkomandi skulu greidd með þessum hætti: Fyrsta launagreiðsla skal af hendi reidd eftir 14 daga starf og síðan skulu laun greidd á viku fresti. Fyrirtækið áskilur sér rétt til að halda eftir fyrstu vikulaununum þar til ráðningarsamningurinn er út runninn en þá skulu gerð fullnaðar- skil við viðkomandi starfsmann. Sérhver frávik frá þessu sam- komulag eru einungis möguleg með samkomulagi beggja aðila. Ég, Sandra Nelson hef gert mér grein fyrir innihaldi þessa samnings og lofa að hlýta öllum ákvæðum hans.“ Þetta er plaggið sem kanadísku stúlkurnar þrjár hafa undirritað ásamt félögum sínum og er undir- ritað auk þeirra af Garðari Garðarssyni „umboðsmanni fyrir- tækisins". - v.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.