Þjóðviljinn - 12.01.1983, Side 10

Þjóðviljinn - 12.01.1983, Side 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Migvikudagur 12. janúar 1983 Meirihluti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur ákvað s.l. fimmtudag að hundsa nýju lögin um málefni aldraðra og þá 13 miljón króna fjárveitingu sem þau tryggja borgarsjóði og krafa hafði verið gerð um m.a. til að borgin gæti tekið upp nýtt hcilsugæslukerfi á þessu ári. Var tiliögu Öddu Báru Sigfúsdóttur um að númerakerfi sjúkrasamlagslækna yrði lagt niður og kerfi heilsugæslustöðva tekið upp 1. maí 1983 felld á borg- arstjórnarfundinum og síðan sam- þykkt að nýja kerfið tæki við 1. janúar 1984. Engin grein var þó gerð fyrir fjármögnun þess. Arbæingar eru meðal þeirra fáu Reykvíkinga sem njóta fullkominnar heilsugæsluþjónustu i sínu hverfi. Ljós. - eik. Dýrmætum árangrí teflt í tvisynu Markleysa að ákveða dagsetningu án þess að veita fé til breytingarinn- ar, sagði Adda Bára Sigfúsdóttir. Kaflar úr ræðu Öddu Báru Sigfúsdóttur við umræður um heilsugæslu í borgarstjórn Reykjavíkur Adda Bára Sigfúsdóttir sagöi aö tillaga Sjálfstæöisflokksins, sem fyrst var lögö fram í heilbrigðisráði 3. janúar s.l. fæli þaö eitt í sér að nýju heilsugæslukerfi væri frestaö á þessu ári. Síðan sagði hún: „Ég ætla ekki aö halda því fram að af- greiðsla heilbrigöisráðs á tillögu minni um 1. maí hafi komið mér á óvart hinn 3. janúar 1983, en hún hefði komið mér mjög á óvart aðeins mánuði fyrr. Þá hefði ég aldrei getað látið mér detta í hug að það ríkti svo ótrúlegur vesaldómur í forystuliði Sjálfstæðisflokksins í heilbrigðismálum að hann léti svo marklausa tillögu frá sér fara, núna þegar við áttum fullan kost á því að koma á langþráðum endurbótum á heilbrigðisþjónustu utan sjúkra- húsa viö afgreiðslu þessarar fjár- hagsáætlunar. Engin rök Og hver eru svo rökin? Það er sagt að samningur við númera- lækna sjúkrasamlagsins renni ekkí út fyrr en 31. desember n.k. Þessi samningur er uppsegjanlegur með þriggja mánaða fyrirvara og það var lögð á það rík áhersla þegar hann var geröur að hann yrði ekki til að hindra það að nýtt kerfi yrði tekið upp. Þetta er því engin rök. Það er talað um að óvíst sé hve- nær peningar vegna laga um mál- efni aldraðra komi til borgarsjóðs. Lögin hafa þegar tekið gildi og þar stendur ótvírætt aö ríkið skuli bera 35% kostnaðar við heimaþjónustu frá 1. jan. 1983. i hverju eróvissan fólgin? Embættismenn borgarinn- ar virðast hafa fengið það verkefni að leita með logandi Ijósi að ein- hverju neikvæðu, einhverjum vandræðum í kringum þessar greiðsiur. Þeir hafa sem sagt fundið það út að það sé ekki alveg víst í hvaða mánuði þessar greiðslur frá ríkinu muni falla. Forstjóri sjúkra- samlagsins hefur þó lýst því yfir að þetta sé vandkvæðalaust og mjög eðlilegt að greiða þetta með upp- gjöri á þriggja mánaða fresti eins og jafnan hefur verið í samskiptum af þessu tagi. Þetta eru því heldur engin rök. Heilt ár í kynningu... I heilbrigðisráði voru megin- skýrslur hins vegar ekki þessar, heldur hitt að ekki veitti af heilu ári til að útskýra þessar breytingar all- ar fyrir Reykvíkingum. Halda Sjálfstæðismenn að Reykvíkingar séu aular upp til hópa? Ég held að það þurfi ekki meira en fjóra mán- uði til þess að koma jafn einföldum staðreyndum og hér um ræðir á framfæri við borgarbúa. Það sem almenningur óttast er að menn verði að leita til heilsu- gæslustöðvar og megi ekki vera áfram hjá sínum gamla og góða heimilislækni eftir að nýja kerfinu hefur verið komið á. Sá ótti er ekki ástæðulaus, þar sem fólki verður ekki gert að breyta einu eða neinu sem það ekki vill. Hins vegar hefur þetta atriði ekki verið kynnt nægi- lega vel, það skal játað, en fjórir mánuðir eru kappnógur tími til þess. ...en ekkert fé til kynningarinnar Það má t.d. gera með einföldum upplýsingabæklingi, en þegar full- trúi Kvennaframboðs í heilbrigðis- ráði spurði vegna þessara umræðna um upplýsingastarfsemi, hvort ekki væri þá áætlað fé til upplýsinga- herferðar, var því svarað neitandi! Þess þyrfti nú væntanlega ekki með; við gætum skrifað greinar og kynnt þetta á þann hátt. Það er því sýndarmennskan einber og hreinn undansláttur að heilt ár þurfi til þess að upplýsa Reykvíkinga um þessi mál. Aðriróttast um sérhæfðabarna- og mæðravernd, sagði Adda enn- fremur, og það skal játað að ungir og metnaðarfullir heilsugæslu- læknar hafa gefið tilefni til þess ótta. Heilbrigðisráð 1978-1982 var sammála um að viðhalda hinu ágæta kerfi heilsuverndar undir yfirstjórn barnalækna og kvensjúk- dómalækna í stað þess að flytja það allt inn á heilsugæslustöðvar, en ég verð að játa að ég er ekki viss um að núverandi meirihluta í heilbrigðisráði sé treystandi í þessu máli. Þetta hefur hins vegar ekkert með tímasetningu breytingarinnar að gera, þetta er spurning um það hvort heilbrigðisráð vill tryggja að barna- og mæðraverndin verði ekki lakari en hún hefur verið. Það er enginn vandi að tryggja það, en þarna er um að ræða deilumál á milli mismunandi stétta lækna. Mörgum hindrunum rutt úr vegi Þetta mál hefur átt langan aðdraganda, sagði Adda, og það hafa verið mjög margar hindranir í veginum fyrir því að við gætum tekiö upp hið nýja kerfi heilsu- gæslu. Læknar voru áhugamenn og frumkvöðlar að hinu nýja skipulagi en ótti um lakari fjárhagsaflcomu tók að gera þar vart við sig þegar beytingarnar komust alvarlega á dagskrá. Við gerðum okkur ljóst í heilbrigðisráði að lengra yrði ekki komist í uppbyggingu heilsugæsl- ustöðva nema heildarsamningar næðust við lækna um kaup þeirra og kjör svo og rekstur heilsugæsl- ustöðvanna. Því var á árinu 1981 sett niður nefnd sem fulltrúar heilbrigðisráðuneytis, læknafélag- anna, sjúkrasamlags, fjármála- ráðuneytis og heilbrigðisráðs áttu aðild að. Nefnin skilaði ýtarlegu áliti og um það náðist fullt sam- komulag sem allir aðilar að fram- kvæmdinni hafa lagt blessun sína yfir. Þetta er sá árangur sem nú er teflt í tvísýnu með tillögu Sjálfstæð- isflokksins. Eini vandinn sem eftir stóð var kostnaðurinn við breytinguna. Nefndin benti á að þar þyrfti til að koma jöfnuður milli ríkis og borgar þar sem kostnaður borgar- innar vex við nýja kerfið en kostn- aður ríkisins minnkar. Fljótlega kom til álita að þátttaka ríkisins f kostnaði við heimilishjálp væri það sem best gæti þjónað í þessum til- gangi. Ríkið hafði áður tekið þátt í kostnaði við heimilishjálp en það var hins vegar afnumið á einhverju afturhaldstímabilinu í landsstjórn- inni. Keyrt út af Borgarstjórn samþykkti í fjár- hagsáætlun sinni fyrir árið 1982 að .fara í þessa breytingu á heilsugæslu utan sjúkrahúsa og verja til þess nokkru fé að því tilskildu að ríkið kæmi á móti. Og það gerðist með samþykkt laga um málefni aldr- aðra nú fyrir jólin og málið hefði verið í höfn, ef núverandi borgar- stjóri hefði ekki fengið einhverja óskiljanlega glýju í augun og keyrt út af með alla borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins innanborðs. í nóvember s.l. gerði heilbrigðis- ráð samþykkt í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar, einmitt um þetta mál. Þar segir: „Heilbrigðisráð lítur svo á að áfram sé stefnt að kerfisbreytingu heimilislækninga og heilsuverndar í samræmi við lög um heilbrigðisþjónustu. Heilbrigðisráð telur nauðsynlegt að ríkissjóður komi til móts við þann viðbótarkostnað sem af breytingunni leiðir fyrir borgar- sjóð. Samþykkt frumvarps til laga um málefni aldraðra myndi koma að nokkru leyti til móts við kostn- aðarauka borgarsjóðs. Jafnframt bendir ráðið á að eðlilegt er að rík- ið greiddi helming kostnaðar við rekstur skrifstofu borgarlæknis." í ræðu borgarstjóra við fram- lagningu fjárhagsáætlunar í desem- ber kveður við nokkuð annan tón. Þar eru einfaldlega strikaðar út all- ar tillögur heilbrigðisráðs um rekstur á nýjum heilsugæslustöðv- um í borginni og sagt að allt sé þetta nú í óvissu þar sem óvíst þyki að frumvarp um málefni aldraðra nái fram að ganga, sagði Adda. Af tóninum má ráða að ekki sé beinlínis verið að óska eftir því að frumvarpið verði samþykkt og bent á að félagsmálaráð sé á móti því. En svo kom að því að frumvarp- ið var samþykkt. Heilbrigðisráð var á fundi 20. desember og þar vakti ég máls á því að nú væru kom- in lög sem tryggðu þátttöku ríkisins í kostnaði við kerfisbreytinguna. í framhaldi af því var ákveðið að dagsetning hennar yrði á dagskrá á næsta fundi ráðsins og borgarlækni var falið að gera kostnaðaráætlun ásamt tillögu um dagsetningu. Jafnframt var í tengslum við það ákveðið að segja upp samningum við lækna í Læknamiðstöðinni í Domus Medica og eru þeir lausir 1. apríl. Það var og fastmælum bund- ið að halda aukafund í ráðinu 3. janúar ef síðari umræða um fjár- hagsáætlun færi fram þann 6. janúar. Að morgni gamlársdags er mér st'ðan tjáð af formanni heilbrigðis- ráðs að eiginlega væri ekki þörf á aukafundi, hún myndi sjálf leggja fram tillögu um hvaða dag ætti að skipta um kerfi. Það er leiðinlegt að rífast við gott fólk á gamlársdag, en undrandi varð ég, þegar ég varð þess áskynja að tillaga hennar var ekki um neinn dag á árinu 1983 heldur 1, janúar 1984! Tækifærið er hér og nú Það er ákaflega auðvelt þegar líður að áramótum að segja því miður, fjárhagurinn er svo slæmur að borgin getur ekki farið að veita féíþettanúna. Og mikið rétt, hann verður vafalaust slæmur ef svo heldur fram sem horfir með þessa fjárhagsáætlun 1983. En það dugir ekki að segja: á þar næsta ári. Þá eru nefnilega ekki að koma neinir nýir peningar inn. Tækifærið er nefnilega hér og nú og það hefði ég haldið að forystulið Sjálfstæðis- flokksins í heilbrigðisráði myndi skilja. Tækifærið er þegar við fáum þessa peninga frá ríkinu en ekki einhvern tímann eftir að borgar- sjóður hefur haft þá í veltu sinni mánuðum saman! Ég er hrædd um að það muni reynast erfitt að draga þá þaðan aftur. En, - það er auðvitað fjarska- lega notalegt fyrir borgarstjóra að fá þessar tekjur á árinu 1983 utan fjárhagsáætlunar og nota þær þar sem göt myndast og götin verða vafalaust mörg. En þetta er ekki það siðgæði sem ég er vön að sýnt sé í viðskiptum borgar og ríkis. Borgin gerði ákveðna kröfu á hendur ríkinu, ríkið uppfyllti kröf- una og þá er sagt: við ætlum ekki að taka mark á þessu, við þurfum ekki að framkvæma það sem til stóð þó ríkið hafi uppfyllt kröfu okkar! Og mikið rétt, - þeir sem sömdu lögin um málefni aldraðra höfðu ekki það hugmyndaflug að láta sér detta í hug að borgarstjórn brygðist svona við. Til að bregðast svona við lögum um málefni aldraðra þarf sérstaka tegund af innræti hjá þorgarstjóra, sem hér ræður ferðinni, allt aðra tegund af innræti en ég þekki hjá fyrrverandi borgarstjórum svo langt aftur sem ég þekki röð þeirra mætu manna, sagði Adda Bára að lokum. _*i

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.