Þjóðviljinn - 11.02.1983, Page 1

Þjóðviljinn - 11.02.1983, Page 1
DJÚÐVIUINN Jafnaðarmenn sækja á í kosningabaráttunni í V-Þýskalandi. Sjá 8 febrúar 1983 föstudagur 34. tölublað 48. árgangur Fæddist i sjúkrabíl Barn fæddist í sjúkrabíl í gær- morgun á miili Hvolsvallar og Hellu. Barnið var drengur, 11 merkur röskar. Á Hellu tók læknir á móti mæðginunum og skildi á milli en síðan héldu þau áfram á sjúkrahús- ið á Selfossi og heilsast vel. Móðirinn er 17 ára, Halla Bjarn- adóttir frá Bakkakoti í Rangárvall- ahreppi. -ráa. Miðstjórn fjallar um kjördæma- málið Kjördæmamáiið verður tekið til umfjöllunar á fundi miðstjórnar Aiþýðubandaiagsins sem hefst í kvöid kl. 20.00 í Sóknarsalnum, Freyjugötu 22. Kjördæmamálið sem nú er á lok- astigi viðræðna á milli stjórnmál- aflokkanna fjögurra verður til kynningar og umfjöllunar á fundi miðstjórnar Alþýðubandalagsins sem hefst í kvöld. Þess skal og getið að miðstjórn Framsóknarflokksins mun móta afstöðu flokks síns til málsins nú um helgina. -óg Spámenn í föðurlandi. Forsætisráðherra og aðstoðarmaður hans, Jón Ormur Halldórsson, ræða stöðuna. Ljósm. atli. Ganga þvert á eigin fyrirmæli „Sumir samstarfsaðiljar okkar hafa alltaf ætlað sér um of”, segir Ragnar Arnalds „Sumir samsarfsaðiljar okkar að ríkisstjórninni hafa alla tíð ætlað sér að gera svo stórtækar breytingar á verðbótakerfínu, og hafa haldið svo fast við það, að nú eru horfur á því að niðurstaðan verði sú, að engin breyting verði gerð á því,“ sagði Ragnar Arnalds fjármálaráðherra í gær eftir fund ríkisstjórnarinnar, þar sem ákvörðun um nýjan vísitölugrundvöll og umfjöllun um breyttan útreikning verðbóta var frestað. „Við höfum ótal sinnum sagt að á sumar hugmyndir þeirra myndum við aldrei fallast.“ Miðstjórn ASÍ minnir á, að í samningum á sl. sumri hafi ASÍ lýst sig reiðubúið að semja um að nýr vísitölugrundvöllur yrði tekinn upp, en á því hafi strandað að atvinnurekendur hafi hafnað nýja grunninum og krafist nýrra frá- dráttarliða við verðbót- aútreikning. ASÍ hefur ávallt verið reiðubúið til þess að ræða nýtt viðmiðunar- kerfi launa, segir miðstjórnin, að því tilskildu að það miðist við að tryggja kaupmátt ekki síður en nú- verandi kerfi. Svonefnd vísitölu- nefnd átti að hafa þetta að megin- markmiði samkvæmt erindisbréfi og sérstakri yfirlýsingu ríkisstjórn- arinnar. „Yfirlýsingar einstakra valds- manna að undanförnu ganga þvert á ofangreind sjónarmið“, segir miðstjórn ASÍ. „Krafist er aukinn- ar verðbótaskerðingar með nýjum frádráttarliðum og lengingu verð- bótatímabila. Miðstjórn ASÍ for- dæmir þessi viðhorf.“ Einnig er minnt á að verkafólk hafi orðið að þola verulega kjaraskerðingu frá því í desember til viðbótar al- mennri tekjurýrnun 1982, en ekk- ert hafi bólað á efnahagsaðgerðum stjórnvalda á öðrum sviðum. -ekh Keldnamálið afgreitt í gær: Mikill áereinineur o o „Með þessum samningi hcfur borg- in fallið frá því markmiði sínu að sækja land í grcipar ríkisins á Austur- svæðum. hað hefur hingað til verið talið óeðlilegt að ríkið héldi yfir 150 hekturum lands innan borgarmark- anna a góðti byggingariandi en með þessum samningi er því afhent allt það svæði um aldur og cilífð og mcira til,“ sagði Sigurjón Pétursson m.a. í borg- arstjórn í gær þcgar Keldnasamning- urinn var afgrciddur. Eftir meira en sex klukkustunda langar umræður var samningurinn samþykktur eð 12 atkvæðum Sjálf- stæðisflokksins. Enginn fulltrúi minnihlutans treysti sér tii að sam- þykkja hann; þvert á móti lýstu þeir allir þeirri skoðun að hann væri mjög óhagkvæmur fyrir Reykjavtkurborg. Fulltrúar Framsóknarílokksins sátu þó hjá og bókuðu þakklæti til menntamálaráðherra fyrir að hafa brugðist skjótt viö, cn aðrir fulltrúar minnihlutans greiddu atkvæði gegn samningnum. Í umræðum var borgarstjóri harð- iegá gagnrýndut fyrir að hafa gengið að öllum íandakröfum ríkisins. 170 hckturum á Austursvæðum og 39 hekturum í Vesturbæ vegna þarfa Háskóla íslands. Innan Háskólalóðar lcndir m.a. 4ra hektara svæði sem er á náttúruminjaskrá enda mikilvægt varpland tjarnarfuglanna. Bent var á að borgarstjóri hcfði í upphafi skapað sér ákaflega þrönga samningsstöðu og með fljótfærnis- legum kosningaloforöum þröngvað sjálfum sér í þá stöðu að vcrða að semja, hvað sem það kostaði og það fijótt. t>að var álit minnihlutans að öllu hefði verið fórnað vegna stundar- ávinnings í landi sem rúma mun um 100 lóöir og pólitísks mannorðs borg- arstjóra. Þá var Sjálfstæðisflokkurinn harð- lega gagnrýndur fyrir öll vinnubrögð í málinu, en hann útilokaði frá upphafi minnihlutann frá því að fylgjast mcð samningaviöræðunum. Sjá bókun Alþýðubandalagsins með mótatkvæðunum á bls. 3. -ÁI Mikill fjöldi ofbeldismynda er í umferð á myndbandaleigum í Reykjavík. Þjóðviijafólk skoðaði nokkrar þeirra og segir frá þeim leiðangri. Um tvö þúsund manns hafa heimsótt listahátíðina „Gullströndin andar“, sem fram fer þessa dagana að Hringbraut 119.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.