Þjóðviljinn - 11.02.1983, Side 3
Föstudagur 11. febrúar 1983 ÞJÓÐVlLJINN - SÍÐA 3
Myndbirtingar
af handtökum
í DV_______________
„Verið að
veitast
að æru
minnr
segir Einar Þór
Agnarsson sem
birt var af
handtökumynd
„Mér brá ónotalega við þegar ég
sá þessa mynd af mér í Dagblaðinu
á baksíðu. Það voru kunningjar
mínir sem sögðu mér af þessu. Ég
er auðþekktur á þessari mynd af
kunningjum, vinum og öðrum sem
til mín þekkja, þó að búið sé að
teikna eitthvert strik yfir augun á
mér“, sagði Einar Þór Agnarsson
ungur Reykvíkingur þegar hann
kom að máli við Þjóðviljann í gær.
Dagblaðið-Vísir birtir á baksíðu
í gærdag mynd af ungum pilti sem
er verið að færa til yfirheyrslu hjá
lögreglunni. „Fjöldahandtökur"
segir í fyrirsögn og segir síðar í
fréttinni að flestum þeirra hand-
teknu hafi verið sleppt úr haldi.
„Ég sætti mig alls ekki við mynd-
birtingu sem þessa. Það er verið að
veitast að æru minni á mjög svo
opinskáan hátt, og þetta er ekki í
fyrsta sinn sem umrætt blað leggst
jafn lúalega og í þetta sinn. Reynar
voru þeir enn lúalegri í fyrradag,
þegar þeir birtu forsíðumynd af
handtöku smábarns.
Einar sagðist hafa haft samband
við fréttastjóra DV, en honum
hefði ekkert fundist athugavert við
þessa myndbirtingu blaðsins.
„Það er ekki beint skemmtilegt að
lenda í svona löguðu, og reyndar
get ég ekki brugðist við þessari árás
á mannorð mitt á annan hátt en að
kæra þessa myndbirtingu fyrir
siðareglunefnd blaðamanna, sem
ég mun gera“, sagði Einar.
Sleppt strax
„Einari Þór var sleppt úr haldi
eftir frumyfirheyrslu og ekki talin
ástæða til frekari yfirheyrslna yfir
honum, vegna þessarar rannsókn-
ar“, sagði Arnar Guðmundsson
deildarstjóri Rannsóknarlögreglu
ríkisins í gær.
Umrætt mál varðar innbrot í
Borgarapótek og var fjöldi ung-
linga handtekinn vegna þessarar
rannsóknar ífyrrakvöld, en öllum
sleppt aftur nema fjórum unglings-
piltum sem enn eru í haldi.
-«g-
í gær voru afhent menningarverðlaun Dagblaðsins og Vísis, og eru þau
að þessu sinni glermunir eftir Sigrúnu Ó. Einarsdóttur og Sören Larscn.
Verðlaunin eru fyrir afrek unnin í sex listgreinum á liðnu ári. Myndin
sýnir verðlaunahafana frá vinstri: Guðmundur Jónsson (tónlistarverðlaun
fyrir hlutverk í Silkitrommunni eftir Atla Heimi Sveinsson), Helgi Þorgils
Friðjónsson (myndlist), Bríet Héðinsdóttir (fyrir leikgerð að Jómfrú
Ragnheiði eftir Guðm. Kamban), Þuríður Baxter útgáfustjóri (tók við
bókmenntaverðlaunum Guðbergs Bergssonar), Erlendur Sveinsson (fyrir
uPPbyggingu Kvikmyndasafns Islands) og Pétur Ingólfsson (byggingarlist
- fyrir hönnun brúar yfir Svarfaðardalsá).
Keldnasamningurinn er allur með endemum
Davíð eyðilagði
sammngsstöðiiiia
„Upphaf þessara samninga, kosningaloforð Sjálfstæð-
ismanna, pukrið við samningagerðina og niðurstaða
þessara samninga er allt með endemum,“ segir í bókun
sem borgarfuiltrúar Alþýðubandalagsins við afgreiðslu
Keldnasamningsins í borgarstjórn í gærkvöldi.
Bókunin er svohljóðandi:
Borgarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsins greiða atkvæði á móti þess-
um samningi af eftirtöldum
ástæðum:
1. Með þessum samningi er við-
urkennt af borgaryfirvöldum að
ríkið skuli um aldur og ævi hafa
eignarhald á 155 hekturum lands á
austursvæðum borgarinnar eða
jafn miklu landi og þeir eiga fyrir
samningsgerðina.
2. Reykjavíkurborg hefur ætíð
reist kröfur sínar á hendur ríkinu á
þeim grundvelli að óverjandi væri
að ríkisstofnanir héldu, á fram-
tíðarbyggingasvæðum borgarinn-
ar, landi sem er viðlíka stórt og allt
borgarlandið vestan Suðurgötu,
norðan Hringbrautar. Allar kröfur
borgarinnar hafa verið um að þetta
land minnki verulega.
3. Með fljótfærnislegum kosn-
ingaloforðum sínum eyðilagði
Sjálfstæðisflokkurinn alla samn-
ingsstöðu borgarinnar þar sem
mótaðilinn vissi að öllu yrði til
fórnað til að ná einhverjum samn-
ingum eins og raun hefur orðið á.
4. Þótt land undir íbúðabyggð sé
nú um 14,5 hekturum stærra úr
landi Keldna en Aðalskipulag frá
1982 gerir ráð fyrir, eða sem svarar
aukningu í kringum 100 íbúðir, þá
sannar þessi samningur svo ótví-
rætt er, að Aðalskipulag frá 1977
var óframkvæmanlegt að því er
varðaði framtíðarbyggð í landi
Keldna.
Að þessum samningi hefur verið
illa staðið af hálfu samningamanna
borgarstjóra. Minnihlutanum í
borgarstjórn var markvisst haldið
frá upplýsingum. Honum var neit-
að um aðild að samninganefndinni
og þau gögn sem þar voru lögð
fram, voru af borgarstjóra lýst trún
aðarmál, jafnt þótt auðvelt væri
að afla þeirra sömu gagna frá
menntamálaráðuneyti.
Upphaf þessara samninga, kosn-
ingaloforð Sjálfstæðismanna,
pukrið við samningagerðina og
niðurstaða þessara samninga er allt
með endemum.
Samvinnuferðir — Landsýn:
Sumarhús í Hollandi
— er meðal nýjunga sem ferðaskrifstofan
býður uppá
„Við höldum uppi merkinu frá því
í fyrra og bjóðum viðskiptavinum
Samvinnuferða & Landsýnar sama
verð um allt land. Enn fremur höf-
um við bætt við ýmsum valkostum
og skal þar fyrst nefna að nú getur
fólk tekið á leigu sumarhús í Hol-
landi. Þetta kemur í kjölfar gífur-
legrar eftirspurnar eftir sumar-
húsum sem við vorum með í Dan-
mörku á síðasta ári. Þá var uppselt
í sumarhúsin þegar stutt var liðið á
mars,“ sagði Éysteinn Helgason hjá
Samvinnuferðum á fundi með
blaðamönnum.
Ferðabæklingur fyrirtækisins
sem unninn er af Auglýsingaþjón-
ustunni er stór að vöxtum, 36 síður,
og geymir margvíslegar upplýsing-
ar um ferðir Samvinnuferða &
Landsýnar.
Það kom fram í máli Eysteins að
á síðustu 2-3 árum hefur markaðs-
hlutdeild Samvinnuferða & Land-
sýnar aukist hröðum skrefum.
Astæðurnar taldi Eysteinn að
mætti rekja til „tilboðsins" til
landsbyggðarfólks, þar sem því eru
boðin sömu kjör og fólki á höfuð-
borgarsvæðinu, þ.e. að fljúga
innanlands án aukagjalds.
Eysteinn sagði, að Samvinnu-
ferðir & Landsýn myndu reyna að
koma til móts við versnandi
kaupgetu fólks með því að bjóða
hagstæð greiðslukjör sem meðal
annars væru í formi svokallaðrar
SL-ferðaveltu.
Áfangastaðir verða hinir sömu
og í fyrra, að sumarhúsum í Hol-
Helgi Jóhannsson og Eysteinn Helgason hjá Samvinnuferðum-
Landsýn og Gunnar Steinn Pálsson Auglýsingaþjónustunni með ferða-
bæklinginn á milli sín. Ljósm.: -Atli.
landi viðbættum. Þannig verða
ferðir til sólarstranda á Rimini,
Portoroz, Sochi við Svartahaf,
Grikkland og víðar. Þá verður bætt
við ferðum til meginlands Evrópu,
til Sviss, V-Þýskalands og svo til
Norðurlanda. Einnig er boðið
uppá ferðir til Kína, Bandaríkj-
anna, Kanada, Frakklands með
viðkomu á fjölmörgum stöðum í
hverju landi.
Það kom fram í máli Eysteins að
þau stéttarfélög sem ekki njóta af-
sláttarferða hjá Samvinnuferðum
& Landsýn eru nú teljandi á fingr-
um annarrar handar.
Eysteinn sagði að það væri ekk-
ert launungarmál að heildarvelta
fyrirtækisins væri nú orðin meiri en
helsta keppinautarins, Útsýnar.
-hól