Þjóðviljinn - 11.02.1983, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 11.02.1983, Qupperneq 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 11. febrúar 1983 Kosningabaráttan í Þýskalandi: Jafnaðarmenn sækja á Samkvæmt nýjustu skoðana- könnunum í Þýskalandi hefur fylgi Jafnaðarmanna aukist jafnt og þétt frá því ríkisstjórn þeirra undir for- ystu Helmut Schmidts lét af völd- um. f byrjun febrúar sýndu ^skoðanakannanir 43,2% fylgi Jafn- aðarmanna, en sömu kannanir höfðu sýnt 27,5% fylgi fyrir hálfu ári. Á sama tíma hafði kosninga- fylgi kristilegra (CDU/CSU)' hrapað úr 54% niður í 47,5%. Þessi snöggu umskipti eru fyrst og fremst þökk- uð þeirri nýju ímynd sem Hans- Jochen Vogel, kanslaraefni jafn- aðarmanna hefur skapað flokkn- um, auk þess sem andstaða al- mennings gegn því að settar verði upp 102 Pershing-2 eldflaugar í Þýskalandi í lok þessa árs er talin skipta miklu máli. Þegar Helmut Schmidt lét af völdum töldu flestir aö það myndi taka Jafnaðarmannaflokkinn nokkur ár í stjórnarandstöðu áður en hann endurheimti fyrri stöðu á ný. Nú virðist sá möguleiki hins vegar vera fyllilega fyrir hendi, að Hans-Jochen Vogel verði næsti kanslari Vestur-Þýskalands eftir kosningarnar 6 mars næstkomandi. Þótt vart sé hægt að tala um afger- andi stefnubeytingu hjá Jafnaðar- mönnum á síðastliðnu hálfu ári, þá hefur áherslumunur verið veru- legur í málflutningi Vogels og Schmidts, og þar sem um stefnu- breytingu hefur verið að ræða hef- ur hún verið til vinstri. Breyttar áherslur Þetta kemur gleggst fram í mál- flutningi Vogels og Jafnaðarmann- aflokksins varðandi afvopnun og fyrirhugaðar Pershing-eldflaugar. A valdatíma Schmidts var flokkur- inn klofinn í afstöðu sinni til þessa máls. Schmidt studdi fullum hálsi hina tvíhliða ákvörðun Nato og hafði ekki tilburði í frammi til að knýja Bandaríkjastjórn til meiri samkomulagsvilja í viðræðunum í Genf. Vogel hefur tekið mun virk- ari afstöðu til þessara mála, sem hann undirstrikaði m.a. með hin- um vel heppnuðu ferðum sínum til Washington og Moskvu. Vogel hefur sagt að þótt endanlega kunni svo að fara, að Þjóðverjar neyðist til að taka við hinum bandarísku eldflaugum, þá muni hann gera allt sem í sínu valdi slendur til þess að þess verði ekki þörf. í nýlegu við- tali við bandaríska vikuritið Time segir Vogel urn samninga- viðræðurnar í Genf: „Mönnum hœttir til að sjást yfir að Sovétríkin áttu upphafið aðþess- um vanda þegarþau komufyrir SS- 20 eldflaugum sínum. Nú höfum við þá stöðu að báðir aðilar verða að gefa eftir til að samkomulag náist. Tilboð Andropovs (um að tak- marka SS-20 eldflaugarnar við fjölda slíkra vopna í Bretlandi og Frakklandi gegn því að ekki verði komið fyrir Pershing- og stýri- flaugum í Evrópu) var jákvætt. Rússar hafa gefið eftir - en þó ekki nœgjanlega - en þeir hafa engu að síður opnað leið sína til samkomu- lags. Pað er okkar skoðun að Bandaríkin eigi nú að gera gagntil- boð, að þau hreyfi sig líka í átt til samkomulags. “ Engar eldflaugar Annars staðar hefur Vogel sagt, að á meðan Kohl biðji kjósendur um umboð til þess að fá að setja upp Pershing-eldflaugarnar, þá biðji hann um umboð kjósenda til þess að koma í veg fyrir að svo verði. Vikuritið Time hefur það eftir Karsten Voigt, sérfræðingi Vogels Hans-Jochen Vogel, kanslaraefni Jafnaðarmanna, við vinnu sína í lestarklefa á kosningaferðalagi. í varnarmálum, að andstæðingum eldflauganna í Jafnaðarmanna- flokknum hafi bæði fjölgað og af- staða þeirra sé nú afdráttarlausari en áður. „Þeir eru ekki að velta fyrir sér muninum á hinni tvíhliða ákvörðun Nato og ýmsum milli- lausnum, þeir hafna einfaldlega eldflaugunum. Möguleikinn á því að við munum hafna eldflaugunum er ekki bara hótun. Aðstæður geta leitt okkur til þess í raun.“ Af þessu sést, að þótt Jafnaðar- mannaflokkurinn hafi ekki form- lega hafnað „núll-lausninni“ svo- kölluðu, þá hefur hann tekið sjálf- stæða afstöðu til málsins og gefið í skyn að Þjóðverjar muni ekki standa við hina tvíhliða ákvörðun Nato. Með þessu hefur flokkurinn unnið tvennt - aukið fylgi sitt innan lands og þrýst mjög á Bandaríkja- stjórn um aukinn samningsvilja í viðræðunum í Genf. Sjónarmið umhverfisverndar Önnur áherslubreyting á mál- flutningi Jafnaðarmanna varðar af- stöðu þeirra til hinna fjölmörgu málefna sem fylgismenn umhverf- isverndarmanna hafa sett á oddinn.^Það var túlkað sem við- horfsbreyting þegar Vogel réði dr. Meyer-Abich, þekktan eðlisfræði- prófessor og andstæðing byggingar kjarnorkuvera í sína þjónustu sem ráðgjafa um orkumál. Vogel fékk því framgengt þrátt fyrir harða andstöðu innan flokksins, að í kosningastefnuskrána var tekin sú stefna, að leggja verði niður kjarn- orkuver í Þýskalandi við lok þessa áratugar verði ekki tilkomin nein örugg lausn á losun geislavirks úr- gangs innanlands eða erlendis. Þá hafa Jafnaðarmenn tekið afstöðu gegn byggingu fyrirhugaðs skipa- skurðar á milli Main og Dónár, sem talinn er eiga eftir að valda miklum náttúruspjöllum. Mayer- Abich er þekktur stuðningsmaður þess að meiri áhersla verði lögð á nýtingu sólarorkunnar og að orku- vinnslunni verið dreift á smærri einingar. f samræmi við þessa skoðun ráðgjafans hefur Vogel ný- lega sagt, að þeim fjármunum sem nú væri varið til rannsókna vegna byggingar kjarnorkuvera væri betur varið til þess að kanna hvernig væri með áhrifaríkustum hætti hægt að koma í veg fyrir „súra regnið" sem hefur valdið ómældum skaða á jarðvegi, gróðri og dýralífi á meginlandinu á undanförnum árum. Vogel vill meirihluta Þessi nýja áhersla sem Jafn- aðarmannaflokkurinn hefur lagt á Wirbrauchen EureBomben nieht. \ I Afstaðan til vígbúnaðarkapp- hlaupsins skiptir mestu máli í kosn- ingunum til sambandsþingsins. Þetta er límmiði þýsku friðarhreyf- ingarinnar. ýmis hugðarefni náttúruverndar- manna hefur augsýnilega haft áhrif á afstöðu kjósenda. Samkvæmt síð- ustu skoðanakönnun hefur fylgi þeirra hrapað úr um það bil 9% í september niður í urn það bil 5% í byrjun febrúar. Ymsir fréttaskýrendur telja, að þótt baráttumálum náttúruvernd- arsinna hafi verið gert hærra undir höfði fyrir þessar kosningar en áður, þá muni andstaðan gegn þeim vaxa innan flokksins, komist hann til valda, því kröfur náttúru- verndarmanna stangist um of á við kröfur verkalýðshreyfingarinnar sem telja að atvinnuleysisvandinn eigi að hafa forgang fram yfir um- hverfisverndarsjónarmið. Græningjarnir svokölluðu, flokkur umhverfisverndarmanna, hefur lýst því yfir, að hann sé reiðu- búinn að veita ríkisstjórn brautar- gengi, komist hann í oddastöðu á þingi. Slíkt brautargengi yrði þó bundið skilyrðum, sem Jafnaðar- menn gætu átt erfitt með að ganga að: þeir yrðu að leggja bann við notkun kjarnorku til orkufram- leiðslu og banna staðsetningu nýrra kjarnorkueldflauga á vestur- þýsku landi. Það er því von Jafnaðarmanna, að „græningjarnir" nái ekki til- skildum 5% atkvæða í kosningum 6. mars n.k., og Hans-Jochen Vog- el hefur sagt að markmið þeirra sé að ná hreinum meirihluta á sam- bandsþinginu í Bonn. - ólg./Time, Spiegel Sigla fram hjá Moskvu og Peking: Sérstaða og sjálfstæði japanskra kommúnista Kommunistailokkur Japans er talinn einhver best skipulagði og um leið sjálfstæðasti kommúnista- flokkur í kapítalískum heimi. Hann hefur séð sig neyddan til að reka bæði sovétvini og kínavini úr sínum röðum og hefur það orð á sér að honum verði ekki niútað - en það er gott lof í Japan. Flokkurinn hef- ur um 10% atkvæða, sex miljónir manna greiða honum atkvæði. Meðlimir eru um hálf miljón. Kommúnistaflokkur Japans er þriðji stærsti flokkur landsins og á fylgi sitt einkum í stórborgunum. Stærsti flokkurinn og sá sem hefur farið með völd síðan stríðinu lauk er Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn, borgaralegur flokkur, sem fékk í síðustu kosningum tæp 48% at- kvæða. Næstur er sósíalistaflokk- urinn sem hefur nú rösklega 19% atkvæða. Erfið saga Kommúnistaflokkurinn á sér að baki um margt erfiða sögu. Á dög- um herforingjaalræðis og útþenslu- stefnu var hann bannaður og of- sóttur - núverandi foringi flokks- ins, Mijamoto, sat þá tólf ár í fang- elsi. En sú ofsóknarsaga þýðir líka, að flokkurinn var hinn eini í landinu sem ekki þurfti að skipta urn nafn eftir stríð vegna næsta vaf- asamrar fortíðar á mektardögum herstjóranna. Fyrst eftir stríð fékk flokkurinn byr undir vængi eins og svo margir vinstri flokkar. En Kóreustríðið, kalt stríð og ofsóknir bæði iðju- hölda, sem beittu kommúnista atvinnuofsóknum, og bandarískra hernámsyfirvalda, léku flokkinn grátt. Ekki bætti það úr skák, að ríkjandi flokkar Sovétríkjanna og Kína reyndu þá þegar að toga flokkinn á sitt band sem mest þeir máttu. 1952 hafði flokkurinn misst öll sín þingsæti og hafði innan við tvö prósent atkvæða. Brottrekstrar Á sjötta áratugnum hófst svo uppbyggingarstarf, sem að veru- legu leyti er fært Mijamoto til tekna. Bæði Kínverjar og Sovét- menn höfðu þá komið sér upp sín- um „deildum" í flokknum og um 1960 var hart deilt um afstöðu til þessarra risa tveggja. Árið 1964 voru svo sovétsinnar reknir úr flokknum og tveim árum síðar fóru kínavinir sömu leið. { byrjun þess áratugar var fylgi flokksins um 3%, en 1969 var það komið upp í tæp- lega sjö prósent og hefur vaxið síð- an. Sovétvinir hafa með sér samtök og gefa út blað með sovéskri aðstoð, en þeir eru of fáir til að taka þátt í kósningum. Svo er að sjá, að erlend ríki hafi gefist upp við að reyna að fjarstýra stefnu japanskra kommúnista. Flokkurinn er nú í þeirri sérkenni- legu stöðu, að Kínverjar, sovét- menn og Norður-Kóreumenn hafa allir komið sér upp „sínum mönnum" í Sósíallistaflokknum og styðja þá með fjármunum. En þessi ríki og ráðandi flokkar þeirra eiga svo bara „kórrétt“ samskipti við Kommúnistaflokkinn, eins og það heitir á diplómatamáli. Að því er varðar Sovétríkin, þá hafa japanskir kommúnistar sett fram eindregnari kröfur en hinn stóri ríkisstjórnarflokkur um að Japanir endurheimti syðstu Kúril- eyjarnar, sem féllu í hlut Sovét- manna í lok heimsstyrjaldarinnar' síðari. Og að því er Kína varðar, þá var japanski kommúnistaflokkur- inn lýstur einn af helstu óvinum Kína meðan á stoð menningarbylt- ingunni og hefur flokkurinn ekki séð ástæðu til að taka upp vinskap við Pekingmenn aftur. Starf og stefnumál Flokkurinn er talinn allvel fjáður, enda greiða 480 þúsund meðlimir hans um eitt prósent af tekjum sínum til flokksins. Dag- blað hans, Akahata, kemur út í 600 þúsund eintökum og skilar hagn- aði. Flokkurinn er stundum kallaður „góði og notalegi kommúnista- flokkurinn". Foringjarnireru bros- nrildir og ekki stóryrtir. Þjóðernis- 11 ii 11 iii mtBmmmKasmmrsatt^mKssisíaaemxiusaaessxiBsma Mijamoto er annar frá hægri. Brosmildir flokksforingjar - stefna er mjög rík í flokknum - til dæmis að taka hafa plakatteiknarar flokksins jafnan lag á því að nota fjallið Fuji, heilagt þjóðartákn, í myndum sínum. Það sem mestan svip setur á málfutning flokksins er baráttan gegn bandarískum her- stöðvum, endurhervæðingu Jap- ans, yfirgangi japansks stór- auðvalds í öðrum Asíulöndum og svo barátta fyrir japönsku velferð- arríki. Það er flokknum mikill styrkur, að hann er talinn mjög „hreinn“ af þeirri fjármálaspillingu, sem hrjáir svo til öll pólitísk samtök önnur. Þá er flokkurinn vinveitari konum en allir aðrir japanskir flokkar - um þriðjungur þingmanna hans eru konur og þar með eru líka upp tald- ar svotil allar konur sem á þingi sitja í Japan. Bandamenn Flokkurinn hefur hafnað „alræði öreiganna“, strikaði það út af stefnuskrá sinni fyrir tólf árum. Hann berst fyrir samsteypustjórn vinstriflokka. Snemma á síðast- liðnum áratug stjórnaði flokkurinn allmörgum stórborgum í samvinnu við sósíalista, en það bandalag rofnaði á því, að sósíalistar ótt- uðust að „rauða hættan“ mundi fæia miðjukjósendur ýmsa frá þeim og til hægri. Á síðustu árum hefur meðlimum flokksins fjölgað, en fylgið hefur nokkuð staðið í stað. Sjálfstæð afstaða flokksins gagn- vart Kína og Sovétríkjunum hefur ekki komið í veg fyrir það að öflug- um hatursáróðri er haldið uppi gegn japönskum kommúnistum. Á hverjum degi aka áróðursbílar hægrisinna framhjá bækistöðvum flokksins og frá þeim er æpt í hátal- ara: Niður með kommúnismann - Drepum Mijamoto... (áb byggði á Ny tid)

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.