Þjóðviljinn - 11.02.1983, Side 9

Þjóðviljinn - 11.02.1983, Side 9
Föstudagur 11. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 búsýslan Kart- öflu- súpa Þetta er kraftmikil og saðsöm súpa - ágæt í vetrarkuldanum. Hún er fullkomin máltíð með brauði og osti. I hana þarf þetta: 3-4 kartöflur 1 gulrót 1 laukur I vatn 1 msk kjötkraftur 'h I mjólk salt, pipar 1 msk söxuð steinselja Flysjið kartöflurnar og gulrót- ina, rífið lauk og kartöflur á grófu rifjárni og skerið gulrótina í litla teninga. Sjóðið þetta í vatn- inu í 15-20 mínútur. Heilið þá mjólkinni útí og látið suðuna koma upp. Kryddið og bætið steinseljunni útí. Ný flokkun á kartöflum Eftirfarandi afbrigði af kartöfl- um eru tekin með í -úrvalsflokk, 1. flokk ög perlukartöflur: Rauðar íslenskar, Gullauga, Helga, Mandla og Bintje. í alla flokka má taka önnur afbrigði ef þau eru talin til þess hæf, að dómi jarðræktarnefndar Tilraunaráðs landbúnaðarins. Undirmálskart- öflur mega ekki vera meira en 3% úr hverjum flokki við endurtekna hörpun á netstigi. Úrvalsflokkur: Stærð 35 mm til 50 mm. Útlit: Heilbrigðar, bragðgóðar, hýðið að mestu, kartöflumar því næst lausar við óhreinindi, vel útlítandi. Stöngulsýki og frost- skaði er útilokað í þessum flokki. 1. flokkur: Stærð: 35 mm til 50 mm. Útlit: Heilbrigðar og gallalitlar. 2. flokkur: Stærð: 30 mm og þar yfir. Útlit: Kartöflurnar skulu vera þurrar og vel útlítandi. Smávegis skemmdir og gallar leyfilegir. 3. flokkur: Stærð: 30 mrn og þar yfir. Útlit: Nokkrar skemmdir og gall- ar leyfilegir. Bökunarkartöflur Stærð: 50 mm og þar yfir af hnött- óttum afbrigðum en 45 mm af ílöngum. Útlit: Gallalausar að mestu, þurrar og vel útlítandi. Perlukartöflur: Kúmen- kart- öflur Þessi réttur er góð tilbreyting frá kartöflum soðnum og fer vel með flestu kjöti. Skammturinn er reiknaður handa fjórum meðal átvöglum. 12 meðalstórar kartöflur 'h msk salt 1 msk kúmenfræ 2 msk matarolía 2 msk sinjörlíki Framkvæmdaröð: 1. Setjið ofninn á 225". Flysjið kartöflurnar og skerið í ræmur. Setjið þær í eldfast fat, og saltið og stráið fræjunum yfir. Stærð: 33 mm til 35 mm. Útlit: Þurrar og vel útlítandi, gallalausar að mestu. Parísarkartöflur: Stærð: 30 mrn - 33 mm. Útlit: Þurrar og vel útlítandi, gallalausar að mestu. Rauðar íslenskar, 33 mm og stærri: Rauðar íslenskar kartöflur standast þær kröfur um útlit og gæði sem gerðar eru til 1. flokks. að öðru leyti en því að vera af stærðinni 33 mm og stærri. Þó má þungi kartaflna á bilinu 33-35 mm að stærð ekki fara yfir 15%. Neytendaumbúðir við sölu þess- ara kartaflna skulu merktar þannig: Rauðar íslenskar 33 mm og stærri. Þannig flokkaðar og merktar rauðar íslenskar kartöfl- ur skulu teljast til 1. flokks. Og það er síðasttaldi llokkur- inn, „Rauðar íslenskar, 33 i mm og stærri“, sem fólk skyldi gjalda varhuga við. Þarna eru miklu minni kartöflur taldar til fyrsta flokks,heldur en kartöflur af öðr- urn tegundum - og verðleggjast samkvæmt því. Þessar skemmtilegu myndir feng- um við lánaðar úr tímaritinu Hús- freyjunni, 30. árg. 3. tbl. en þar er að finna grein um meðferð á kartöflum. Landbúnaðarráðuneytið hefur auglýst nýtt mat og flokkun á kartöflum - og mun víst ekki af veita, segja sumir. Mat þetta er ísamræmi við tillögur samstarfsnefndar, sem landbúnaðarráðherraskipaði í ágúst sl. til þess arna, utan hvað ráðherra bjó til einn nýjan flokk sem hvergi var að finna í tillögunum, og eyðlagði þar með stærðar flokkunina að sögnfulltrúa Neytendasamtakanna í nefndinni. Neytendasamtökin hafa hvattfólktil þessað vera vel á verði í kartöflumálum - bæði að knýja á um það, að eitthvert úrval verði hér í verslunumog að Grænmetisverslun Landbúnaðarinsflýti sér að koma hinum nýju flokkum á markað Hér á eftir fara hinar nýju regl- ur um mat og flokkun á karktöfl- um. Að sögn forstjóra Grænmet- isverslunar landbúnaðarins mun nokkur tími líða þar til við getum keypt hina nýju flokka í búðum. En það skaðar ekki að hafa augun hjá sér: Kartöflur og aðra garðávexti skal ekki meta né heimila dreif- ingu á, þegar varan getur talist miður hæf til neyslu vegna alvar- legra breytinga, skemmda, óhreininda eða af öðrum ástæð- um, s.s. vegna frosta og spíru- skemmda (sbr. reglugerð nr. 250/ 1976 um dreifingu matvæla og annarra neyslu- og nauðsynja- vara o.s.fr.v). Fyrir pokaumbúðir skal sauma þétt. Merkja skal með þar til gerðum spjöldum (11x6 cm). Á spjöldin skal letra öðru megin nafn afbrigðis, stærð og send- ingardag, en hinu megin nafn og/ eða númer og heimili eiganda (innleggjanda). Kartöflur verða þar til annað verður ákveðið aðgreindar í 7 flokka: Úrvalsflokk, 1. flokk, 2. flokk, 3. flokk, bökunarkartöfl- ur, perlukartöflur, og parísark- artöflur. 2. Bræðiðsmjörlíkiðogmatar- olíuna í potti og hellið yfir kartö- flurnar. 3. Steikið í 25-30 mínútur. Snúið þeim öðru hverju þannig að þær brenni ekki við. Kartöflur mega ekki vera í birtu, þá verða þær grænar og beiskar. Séu þær i plastpokum eða hvít- um, þunnum eða illa luktum bréf- pokum, geta þær orðið grænar. Það má ekki kasta kartöflum fram og aftur. Þá merjast þær og verða svartar við suðu. Séu kartöflurnar í plastpokum þá ætti að opna pokann sem allra fyrst. Annars kemur ólykt af þeim. Þegar við litum inn hjá Grænmetisverslun landbúnaðarins reyndist þetta vera það eina kartöflukyns, sem fáanlegt er þessa dagana á þeim bæ: fyrsti og annar flokkur. Við spyrjum: hvenær fáum við að velja sjálf? (Ljósm. -eik- )

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.