Þjóðviljinn - 11.02.1983, Blaðsíða 10
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 11. febrúar 1983
íþróttir
Umsjón:
Viðir Sigurðsspn
Argen-
tínskir
með Zico!
Zico, knattspyrnusnillingurinn
brasilíski, hefur verið kjörinn
knattspyrnumaður ársins 1982 í
Suður-Ameríku, og það af argent-
ínska íþróttablaðinu El Grafico.
Diego Maradona, hinn argcntínski,
hefur undanfarin ár sigrað i þessu
kjöri en nú mátti hann sætta sig við
annað sætið, langt á eftir Zico.
Brasilíumaðurinn hlaut 381 at-
kvæði gegn 85 hjá Maradona.
Fernando Morena, leikmaður
með heimsmeisturum félagsliða,
Penarol frá Uruguay, varð í
þriðja sæti, fyrirliði Brasilíu-
manna, Socrates, fjórði og fyrirliði
Argentínumanna, Daniel Passar-
ella hlaut fimmta sætið.
- VS
Benson
tekur við
af Bond
John Benson var í gær ráðinn
framkvæmdastjóri enska knatt-
spyrnuliðsins Manchester City, í
stað John Bond sem sagði af sér í
síðustu viku. Benson hefur að
undanförnu verið atstoðarmaður
Bond, og tekur nú stöðu stjóra í
fyrsta skipti en hann er þá meðal
þeirra allra yngstu í 1. deildinni.
Benson var sjálfur varnarmaður
og hóf feril sinn einmitt hjá City í
lok sjöunda áratugsins, lék þar 44
deildarleiki en fór síðan til Torqu-
ay. Þaðan lá leiðin til Bournemo-
uth og síðan til Norwich, í samfloti
með Bond. Þaðan hélt hann aftur
til Bournemouth þar sem hann
lauk leikferli sínum og tók við
þjálfarastöðu. Aftur fór hann til
Norwich, nú sem aðstoðarmaður
Bond og kom með honum til
Manchester Citý, fyrir rúmlega
tveimur árum.
-VS
Haukar
✓
unnu IR
Annarardeildarlið Hauka úr
Hafnarfirði vann nokkuð léttan
sigur á 1. deildarliði ÍR, 30-24,
þegar liðin mættust í bikarkeppni
HSÍ í Hafnarfirði í gærkvöldi.
Haukarnir eru þar með komnir
áfram í keppninni, ásamt Aftureld-
ingu, Breiðabliki og Ármanni sem
unnu sína leiki í fyrrakvöld.
-VS
Arsenal
áfram
Arsenal tryggði sér í gærkvöldi
sæti í 5. umferð ensku bikarkeppn-
innar í knattspyrnu með því að
sigra Leeds 2-1 í þriðja leik liðanna
á Highbury í London. Arsenal
mætir Middlesborough á útivelli í
5. umferðinni.
Undirbúningur fyrir B-keppnina í fullum gangi:
Landsliðið, Ómar
Albert í Höllinni
„Stefnan hjá okkur fyrir þessa
B-keppni hefur verið sú að lands-
liðið fengi sem flesta landsleiki á
útivöllum á undirbúningstíma-
bilinu. Aður hefur verið meira um
landsleiki hér heima, þeir hafa unn-
ist og menn verið bjartsýnir fram
úr hófi þegar að stórmótum kom.
Vel heppnaðri ferð um Norður-
löndin er lokið en þetta kostar pen-
inga og ef ekki á að myndast stór
skuldahali þarf handknatt-
leikssambandið að afla sér tekna
sem nema um 6-700 þúsunda króna
á næstu vikum“, sagði Júlíus Haf-
stein, formaður HSÍ á blaða-
mannafundi í gær.
Kostnaður við Norðurlanda-
ferðina nam um 350.000 krónum
og annað eins fer í B-keppnina sem
hefst í Hollandi síðar í þessum
mánuði. Fjáröflun sambandsins er
því að fara í fullan gang og eru tvær
leiðir viðamestar, skemmtikvöld
og happdrætti.
Skemmtikvöldið ' fer 1 fram í
Laugardalshöllinni fimmtudaginn
17. febrúar. Þar mætir landsliðið
úrvalsliði sem íþróttafréttamenn
velja, Ómar Ragnarsson mætir
með sitt stjörnulið og leikur við Al-
bert Guðmundsson og „þinglið"
hans, og einnig verður leikur milli
Reykjavíkur og Reykjaness í 3.
flokki karla ásamt fleiru í léttum
dúr.
Happdrættið er þegar komið í
gang og er það nokkuð sérstakt í
Þorbergur Aðalsteinsson - allar
líkur á að hann fari með til Hol-
lands.
sinni röð. Aðeins eru útgefnir 1000
miðar sem kosta 1000 krónur hver
og mikill meirihluti þeirra er þegar
seldur, einkum fyrirtækjum. Vinn-
ingar eru 10 sólarlandaferðir að
verðmæti 20.000 hver. Miða er
hægt að panta í síma 27930 en við
hann situr enginn annar en lands-
liðsmaðurinn Bjarni Guðmunds-
son. Þá er einnig hægt að nálgast þá
á skrifstofu HSI.
Þorbergur heill
Allar líkur eru á að Þorbergur
Aðalsteinsson, Víkingi, geti leikið
með landsliðinu í Hollandi. Hann
æfir nú á fullu, sem og aðrir lands-
liðsmenn, og er óðum að ná sér
eftir meiðslin er hann hlaut í leik
Dukla Prag og Víkings í Evrópu-
keppni meistaraliða í desember.
Þetta er mikill styrkur fyrir lands-
liðið, takist Þorbergi að ná upp
sínu fyrra formi, og eykur sérstak-
lega breiddina í sóknarleiknum.
Landsliðið æfir nú daglega og að
sögn stjórnarmanna HSI eru strák-
arnir einstaklega samhentir í einu
og öllu og staðráðnir í að standa sig
þegar til Hollands kemur. For-
maðurinn varaði þó við bjartsýni
og greinilegt að hrakfrarirnar í Fra-
kklandi og þar áður í Danmörku
eru í fersku minni hjá handknatt-
•leiksforystunni sem og öðrum. í
bæði skiptin unnust góðir sigrar á
stórþjóðum hér heima áður en
haldið var utan og menn áttu von á
góðri frammistöðu liðsins. Von-
brigðin urðu því mikil þá, en réttur
lærdómur virðist hafa verið dreg-
inn af fenginni reynslu og vonandi
skilar hann sér f betri árangri í Hol-
landi nú.
-VS
Þórsarar deila á KKÍ:
„Gripið fram fyrir hendur
formanns aganefndar”!
Gylfi Kristjánsson hjá 1. deildar-
liði Þórs á Akureyri í körfuknatt-
leik hafði samband við blaðið í gær
og bað um að eftirfarandi athuga-
semd við grein um mál vegna leiks
Þórs og Hauka yrði komið á fram-
færi:
„Á laugardagsmorgun höfðum
við samband við Jón Otta Ólafsson
formann mótanefndar KKÍ og til-
kynntum honum að við kæmumst
ekki í leikinn við ÍS kl. 15.30 því
ekki yrði byrjað að fljúga frá Akur-
eyri fyrr en 13.30 og við ættum
pantað með þriðju vél. Um kvöldið
aflýsti síðan Jón Otti þeim leik
endanlega, svo og leiknum við
Hauka sem fram átti að fara kl. 14 á
sunnudag. Þá afpöntuðum við okk-
ar flugfar.
Sú hefð hefur verið í sambandi
við suðurferðir okkar Þórsara
undanfarin ár að við þyrftum ekki,
vegna ferðakostnaðar, að fara
suður fyrir einn leik, nema í bikar-
keppni. Kl. 10.45 á sunnudags-
morgun fáum við svo skeyti frá
KKI um að leikurinn skuli fara
fram kl. 14 í Hafnarfirði. Þar telj-
um við að formaður KKÍ hafi farið
inná verksvið mótanefndar, gripið
fram fyrir hendurnar á formanni
hennar sem þegar hafði aflýst
leiknum og sett leikinn á með
innan við sólarhrings fyrirvara en
það samræmist engan veginn regl-
um KKÍ“.
-VS
Fjallaríkið litla í Ölpunum, Liec-
htenstein, á skíðafólk í fremstu röð
í heiminum, þar á meðal Hanni
Wenzel sem nú er efst í heimsbik-
arkeppni kvenna.
Lúscher
fyrstur
Hinn 26 ára gamli Svisslending-
ur, Peter Lúscher, tók forystuna í
stigakeppni heimsbikarsins á
skiðum í gær er hann sigraði í stór-
svigi í Garmisch Partenkirchen í
Vestur-Þýskalandi. Hann fékk
samanlagðan tima 1:36,45 mínútur
og varð rétt á undan landa sínum,
Pirmin Zurbriggen, sem hélt uppá
tvítugsafmælið sl. föstudag. Ingem-
ar Stenmark frá Svíþjóð hafnaði i
ellefta sæti. Phil Mahre tók ekki
þátt en heldur öðru sæti í stiga-
keppninni en Zurbriggen er þriðji.
Erike Hess frá Sviss sigraði í
svigi kvenna í Maribor í Júgóslavíu
á tímanum 1:42,68 mín. Önnur
varð Hanni Wenzel frá Liechten-
stein, sem nú er efst í stigakeppni
kvenna, og í þriðja sæti varð hin 19
ára gamla Anni Kronsbichler frá
Austuríki.
-VS
Þar lágu
Það kom að því að l.deildarlið
Þróttar í blaki tapaði leik fyrir ís-
lensku liði, í fyrsta skipti í rúm tvö
ár. í fyrrakvöld mættu þeir ÍS í
Hagaskólanum og Stúdentum
tókst að knýja fram sigur, 3-2, í
jöfnum og spennandi leik sem tók
nær tvær klukkustundir.
ÍS vann fyrstu hrinuna 15-7 en
Þróttarar tvær næstu, 7-15 og 9-15.
Þá ÍS-sigur á ný, 15-5, og aftur í
langri lokahrinu, 15-10.
Staðan í l.deild:
Þróttur............12 11 1 35-10 22
ÍS.................11 9 2 29-9 18
Bjarmi..............9 4 5 12-18 8
UMSE................9 2 7 8-24 4
Vikingur...........11 0 11 10-33 0
Deildakeppnin í borðtennis:
Stúlkurnar í Erninum efstar
í síðustu viku tók A-lið Arnar-
ins forystuna f 1. deild kvenna í
borðtennis með tveimur góðum
sigrum. Fyrst lágu Víkingsstúlk-
urnar 3:0 og síðan UMSB-B, einn-
ig 3:0. Staðan í deildinni er nú
þannig:
Örninn-A...............8 7 1 23:5 14
UMSB-A.................6 5 1 16:5 10
KR.....................3 2 1 6:4 4
Víkingur...............5 1 4 3:12 2
Örninn-B...............7 0 7 2:21 0
Örninn-A sigraði b-lið KR-inga
6:2 í síðustu viku í 1. deild karla.
Staðan þar:
KR-A.................6 6 0 0 36:13 12
Örninn-A.............5 4 0 1 25:16 8
Víkingur-A...........6 4 0 2 32:18 8
KR-B.................7 1 0 6 26:36 2
UMFK-A...............6 0 0 6 0:36 0
í 2. deild karla er leikið í tveimur
riðlum og staðan þar þessi:
A-riðill
HSÞ..................8 6 1 1 43:20 13
Víkingur-B...........7 6 0 1 40:13 12
KR-C.................6 2 0 4 19:28 4
Örninn-D.............4 1 1 2 14:17 3
Víkingur-D...........7 0 0 7 4:42 0
B-riðill
Örninn-C.............4 2 2 0 22:10 6
Örninn-B.............3 1 2 0 16:12 4
Víkingur-C...........3 1 0 2 8:14 2
UMFK-B...............2 0 0 2 2:12 0
í unglingaflokki er leikið í þrem-
ur riðlum og staðan er þannig:
A—riðill
Örninn-A...............5 4 1 14:4 8
KR-C....................3 2 1 6:5 4
Víkingur-C..............2 11 3:3 2
UMSB....................1 0 1 1:3 0
UMFA-A..................3 0 3 0:9 0
B-riðill
Víkingur-A..............4 4 0 12:0 8
KR-B....................4 2 2 6:6 4
Örninn-C................4 2 2 6:6 4
UMFK-B..................4 0 4 0:12 0
C-riðill
KR-A....................4 4 0 12:4 8
HSÞ.....................5 3 2 12:9 6
Örninn-B................5 1 4 6:10 2
Víkingur-B..............2 0 2 2:6 0
Þá skulum við líta á stöðuna í
punktakeppni einstaklinga eins og
hún var um mánaðamótin.
Meistaraflokkur karla:
Tómas Guðjónsson, KR.............30
Hilmar Konráðsson, Vfkingi.......25
Tómas Sölvason, KR...................23
Bjarni Kristjánsson, UMFK............13
Guðmundur Marfusson, KR.............. 8
Kristján Jónasson, Víkingl........... 8
Meistaraflokkur kvenna:
Ragnhildur Sigurðardóttir, UMSB......18
Asta M., Urbancic, Erninum............8
Hafdís Ásgeirsdóttir, KR..............4
Kristin Njálsdóttir, UMSB.............4
1. flokkur karla:
Einar Einarsson, Víkingi.............12
Emil Páisson, KR......................9
Bergur Konráðsson, Víkingi.........5
Friðrik Berndsen. Víkingi.............5
Gunnar Birkisson, Erninum.............5
2. flokkur karla:
Sigurbjörn Bragason, KR..............24
Kjartan Briem, KR....................21
Trausti Kristjánsson, Vfkingi.......11
Bjarni Bjarnason, Víkingi.............9
Jóhann Ó. Sigurjónss. Erninum........6