Þjóðviljinn - 11.02.1983, Síða 11

Þjóðviljinn - 11.02.1983, Síða 11
Paul Sturrock Vfflja flelri Skota West Ham er á höttunum á eftir tveimur skoskum landsliðs- mönnum hjá Dundee United til að styrkja stöðu liðsins í l.deild ensku knattspyrnunnar. Þeir eru varn- armaðurinn snjalli, David Narey, sem skoraði markið glæsilega gegn Brasilíu á Spáni sl. sumar, og sókn- armaðurinn Paul Sturrock. West Ham hefur gengið afleit- lega að undanförnu eftir góða byrj- un í 1. deildinni og þarf að halda vei á spilunum til að ná Evrópusæti. Félagið hefur góða reynslu af skoskum leikmönnum síðustu árin, Rey Stewart er burðarás í varnar- leik liðsins og Sandy Clark, sem kom frá Airdrie í sumar, hefur reynst drjúgur markaskorari í vetur. -VS Loks vann luventus Knattspyrnustórveldið ítalska, Juventus, vann í fyrrakvöld sinn fyrsta sigur í tvo mánuði. Hann var þó naumur, 1:0, gegn 2. deildarlið- inu Bari í bikarkeppninni. Frakk- inn Michel Platini skoraði sigur- markið úr vítaspyrnu en stórstirnið Paolo Rossi og Zbigniew Boniek léku ekki með Juventus. Leikir helgarinnar í spænsku knattspyrnunni voru færðir fram, vegna landsleiks Spánverja og Hollendinga í Evrópukeppninni í næstu viku, og voru leiknir í fyrra- kvöld. Prjú efstu liðin unnu öll Barcelona vann Malaga 2:1, Real Madrid sigraði Gijon 1:0 og Atlet- ico Bilbao vann Espanol 5:2, og þau eru því áfram jöfn og efst með 35 stig hvert. - VS Unglinga- mótið i fimleikum Unglingameistaramót íslands í fimleikum verður haldið í Laugar- dalshöll dagana 12. og 13. febrúar. Mótið hefst kl. 14.15 á laugardag og kl. 14 á sunnudag. Keppendur koma frá fimm félögum, 68 stúlkur og 29 piltar. Keppt verður um unglingameist- aratítil í hverjum aldursflokki fyrri daginn en sex bestu á hverju áhaldi síðari daginn. Aldur keppenda er 16 ár og yngri. I Vegna mistaka féll í- • Iþróttasíðan í blaðinu í I gær niður en hér til | vinstri kemur hún , • óbreytt eins og gert var l I ráð fyrir henni í fyrra- I 5 kvotó. -ve * Föstudagur íl. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15 íþróttir Umsjón: Viðir Sigurðsson „Feginn þegar Kefl- víkingar hægðu á” Valsmenn hafa náð fjögurra stiga forystu eftir nauman sigur í Keflavík „Við spiluðum góða vörn í þess- um leik og það dugði. Keflvíkingar eru góðir, og bestir þegar þeir keyra á fullum hraða. Eg var því feginn þegar þeir hægðu á sér og ætluðu að halda forystunni," sagði Tim Dwyer Valsmaður í samtali við Þjóðviljann eftir að hann og félagar hans höfðu sigrað Keflvíkinga 88:87 í Keflavík í gærkvöldi. Þar með hafa Valsmenn náð fjögurra stiga forskoti í úrvalsdcildinni í körfuknattleik og standa vel að vígi. Þetta var fyrsta tap Keflvík- inga í deildaleik í hinu veglega í- þróttahúsi þeirra og fyrsta tapið á heimaleik í þrjú ár. Spennan undir lokin var gífur- leg. Brad Miley minnkaði muninn í 88:87, 48 sekúndum fyrir leikslok, og Valsmenn misstu knöttinn þeg- ar 18 sekúndur voru eftir. Axel Nikulásson reyndi körfuskot, hitti ekki en Þorsteinn Bjarnason náði frákastinu og skaut en Dwyer gerði sér lítið fyrir og varði skot hans, tveimur sekúndum fyrir leikslok. Naumt en kærkomið hjá Vals- mönnum og þeir stigu stríðsdans í leikslok. Liðin voru yfir til skiptis framan af en síðan sigu Keflvíkingar fram- úr og voru yfir í hálfleik 52:44. Val- ur skoraði fyrstu sex stigin í síðari hálfleik, ÍBK næstu níu, en þá fór að draga saman og Valur komst yfir 70:69. Liðin höfðu forystuna á víxl eftir það en Valsmenn reyndust sterkari í lokin. Kristján Ágústsson var yfir- burðamaður hjá Val í fyrri hálfleik, áræðinn og kraftmikill. Þá gerði hann 18 stig en Dwyer tók við aðal- hlutverkinu í síðari hálfleik og lék mjög vel, einkum í vörninni. Heildin var göð en Valsmenn not- uðu aðeins sex menn, sem og Kefl- víkingar, og innáskiptingar í leiknum í lágmarki. Dwyer skoraði 24 stig, Kristján 20, Ríkharður 17, Jón 14 og Torfi 13 stig. Veikleiki Keflvíkinga felst í því að þeir hægja alltaf á þegar þeir ná forystu og það reyndist þeim dýr- keypt í gærkvöldi. Þegar þeir eru undir, setja þeir allt á fullt og eru óviðráðanlegir. Vantar meira jafn- vægi í leikinn í heild. Þorsteinn átti mjög góðan leik og skoraði 24 stig, Jón Kr. gerði 18, Axel og Miley 16 hvor en þeir þrír léku allir vel, Björn Víkingur skoraði 11 stig og Óskar tvö. Jón Otti Ólafsson og Sigurður Valur Halldórsson dæmdu vel. - gms Baráttan færði KR langþráðan sigur Þar kom að því að KR ynni leik. Eftir sjö töp í röð sýndi Vesturbæj- arliðið gífurlcga baráttu gegn frá- farandi meisturum Njarðvíkur í gærkvöldi í Hagaskólanum og sigr- aði verðskuldað 88:86. KR-ingar héldu knettinum síðustu 73 sekúnd- urnar og áhugalausir Njarðvíking- ar urðu að sætta sig við tap. Leikurinn var mjög jafn allan tímann, mestu munaði í upphafi, 20:12 fyrir KR. Þrátt fyrir þann mun hafði Stewart Johnson brennt af fyrstu sjö skotunum sínum en Þorsteinn Gunnarsson og Jón Sig- urðsson voru nú í aðalhlutverkum. Hittnin lagaðist með áttunda skotinu hjá Johnson en leikurinn jafnaðist aftur og KR leiddi naum- lega í hálfleik, 45:43. f síðari hálf- leik héldu KR-ingar síðan foryst- unni þótt oft munaði mjöu og með sigrinum eru þeir komnir upp að hlið Fram á botni deildarinnar. Meistarar Njarðvíkur eru meira að segja skammt undan. , Jón, Þorsteinn og Johnson voru bestir hjá KR og þar er nú Garðar Jóhannsson aftur mættur til leiks. Æfingarlítill nú en gæti reynst liðinu dýrmætur í lokaleikjunum. Johnson skoraði 34 stig, Jón 16, Þorsteinn 12, Garðar 8, Birgir 8, Kristján 4, Stefán 4 og Páll tvö. Njarðvíkingar sýndu lítinn lit, nema helst Bill Kottermann og Árni Lárusson. Gunnar Þorvarð- arson tók góða rispu í síðari hálf- leik, en Valur Ingimundarson skoraði einungis af „gömlum" vana. Kottermann gerði 29 stig, Valur 16, Gunnar 14, Árni 9, Sturla 6, Júlíus 6, Ástþór 2, Eyjólf- ur 2 og Ingimar 2. Ingvar Kristinsson og Jóhann G. Björnsson þurfa báðir að fá að dæma með reyndari dómurum en þeir sluppu þokkalega frá sínu. - VS Staðan: Valur 15 12 3 1366-1207 24 Keflavík. 15 10 5 1249-1236 20 Njarðvík 15 7 8 1225-1246 14 ÍR 15 6 9 1155-1198 12 Fram 15 5 10 1317-1332 10 KR 15 5 10 1266-1359 10 Hell umferð hjá yngra körfu- knattleiksfólki um helgina Jón Sigurðsson skorar gegn Njarðvík í gærkvöldi en kraftur hans og lcikreynsla áttu stóran þátt i óvæntum sigri KR-inga. - Mynd: - eik. Nú um helgina verður umferð hjá yngri flokkunum í körfuknatt- leik. 5. flokkur karla keppir í Borg- arnesi og Keflavík, 4. flokkur karla í Njarðvík, Sandgerði og Árbæjar- skóla, 3. flokkur kvenna í Árbæjar- skóla, 2. flokkur karla í Hagaskóla og 2. flokkur kvenna í Haukahús- inu Hafnarfirði. Þetta er síðasta umferðin hjá yngri flokkunum en efstu liðin í riðlunum keppa innbyrðis 12.-13. mars í Keflavík. Staðan í flokkunum er talsvert óljós því að ekki hafa allar leikskýrslur borist til K. K. í. í 2. flokki karla eftir tvær um- ferðir eru Haukar efstir með 22 stig, síðan koma Valur með 18, í. R. og K. R. með 14, U. M. F. N. með8, Fram með6, ogí. A. meðO. í 3. flokki karla, A riðli, eftir eina umferð, er K. R. efst með 10 stig, U. M. F. N. með 8, í. A. með 6, Snæfell með 4 og K. F. í. og Fram með 0. í B-riðli eftir tvær umferðir eru í. K. og Haukar efst með 16 stig. síðan í. B. K. með 16 stig, síðan I. B. K. með 14, Valur með 6, Þór með 4 og Tindastóll með 0. í 4. flokki karla, A-riðli, er eftir einaumferðU. M. F. N. efst með8 stig, síðan koma í. R. með 6, • Haukar með 4, Þór með 2 og að lokum Tindastóll með ekkert stig. í B-riðli eru Fram og Reynir efst með 10 stig eftir tvær umferðir og síðan reka U. B. K. og Valur rest- ina með 2 stig. í C-riðli er Í.B.K. efst eftir eina umferð með 6 stig, en síðan koma U. M. F. G. ineð 4, K. R. með 2 og U. M. F. S. með 0. í 5. flokki karla, A-riðli, er í. R. efst eftirtvær umferðir með 33 stig, síðan koma U. M. F. S. með 9, Fram með 7 og U. B. K. með 2. í B-riðli eftir eina umferð eru Haukar og í. B. K.a efst og jöfn með 13 stig, síðan koma Valur með 11, Reynir með 7 og í. B. K. b rekur lestina með 4 stig. f 2. flokki kvenna, eftir tvær um- ferðir, er U. M. F. N. efst með 22 stig, síðan koma í. R. með 20 Haukar með 18, K. R. með 12, U. M. F. S. með ekkert stig. í 3. flokki kvenna eru Haukar efstir, eftir eina umferð, með 6 stig en síðan koma í. B. K. með 4, U. M. F. S. með 2 og í. R. rekur lest- ina með ekkert stig. Allir leikirnir byrja kl. 9 báða dagana og fólk er hvatt til þess að mæta og hvetja unga fólkið til dáða. - RJS Bikarkeppni SKÍ á ísafirði um helgina: Utanfarar mættír til leiks Bikarkeppni Skíðsabambands íslands heldur áfram með þorram- ótinu á ísafirði um helgina, en það er bikarmót í alpagreinum og göngu. Keppt verður á Seljalands- dai og er Hafsteinn Sigurðsson lcik- stjóri í alpagreinum en Sigurður Gunnarsson í göngu. Þeir keppend- ur sem verið hafa við keppni er- lendis eru nú mættir til leiks og má því búast við harðri kcppni. Árni Þór Árnason, G«ðmu«dur Jóhannsson, Daníel Hilmarsson og Ólafur Harðarson hafa allir dvalið um mánaðartíma við æfingar og keppni í Austurríki og á Ítalíu. Árni Þór og Guðmundur tóku þátt í keppni í heimsbikarnum í svigi í Kitsbúhel í Austurríki um mánaða- mótin, Árni Þór féll en Guðmund- ur varð nr. 38, góður árangur þar sem hann var með rásnúmer 90. Fleira íslenskt skíðafólk hefur dvalið erlendis lengri eða skemmri tíma í vetur og t.d. eru göngu- mennirnir Einar Óiafsson og Ing- ólfur Jónsson stuttu komnir heim frá Vestur-Þýskalandi. Þár tóku þeir m.a. þátt í heimsbikarkeppni þar sem allir-frægustu göngumenn heims voru meðal þátttakenda. Tinna Traustadóttir og Guðrún Magnúsdóttir voru í Svíþjóð í des- ember og á sama tíma dvöldu þær Nanna Leifsdóttir og Ásta Ás- mundsdóttir í Austurríki. Ferðir þessar eru nauðsynlegar því kepp- nisfólki á skíðum sem vill ná veru- legum árangri í íþrótt sinni því hér heima er tíðarfar afar rysjótt eins og við þekkjum öll og undir hælinn lagt hvort og hvenær hægt er að stunda þann fjölda æfinga sem nauðsynlegur er. Skíðafólið þarf að standa undir mest öllum kostn- aði sjálft, skíðasambandið er illa í stakk búið fjárhagslega til að veita nægilegan stuðning, og meðan þannig er ástatt, eða þangað til fjársterkari aðilar grípa inní, ge- tum við litlar kröfur gert til okkar fremsta skíðafólks um að það nái verulegum árangri á alþjóðiegum vettvangi. -VS

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.