Þjóðviljinn - 11.02.1983, Page 16

Þjóðviljinn - 11.02.1983, Page 16
UODVHHNN Föstudagur 11. febrúar 1983 Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum sínum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527. umbrot 81285. Ijósmvndir 81257. Aðalsími Kvöldsími Helgarsíml afgreiðslu 81663 Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 Ágreiningur í vísitölumálinu: Ekki fallist á tillögur okkar sem miða að því að hægja á verð- bólgunni án þess að það bitni á launafólki, segir Þröstur Ólafsson „Ásakanir stjórnmálamanna í fjölmiðlum um að Al- þýðubandalagið sé á móti lausn þessa máls eru auðvitað fráleitar. Við höfum lagt fram tillögur í vísitölunefnd og ríkisstjórn sem miða að því að hægt verði á verðbólgu- hraðanum án þess að það bitni á iaunafólki. Á þetta hafa samstarfsaðilar okkar í ríkisstjórn ekki getað fall- ist“, sagði Þröstur Ólafsson aðstoðarmaður fjármála- ráðherra og einn þriggja fulltrúa í vísitölunefnd. Hœkkunarbeiðn i Ríkisútvarpsins Áfnota- gjaldið Í 1.176 Sama hjá Videosón Ríkisútvarpið hefur sótt um hækkun á afnotagjaldi sjónvarps og útvarps, og ef gjaldskrárnefnd samþykkir hækkunarbeiðnirnar munu notendur sjónvarps og út- varps greiða kr. 1.176 fyrir tækin fyrstu 6 mánuði ársins. Nefndin j hefur hins vegar ekki komið saman enn. Afnotagjaldið var kr. 846 fyrir seinni helming ársins 1982 fyrir lit- tæki og hljóðvarp, en mun skv. til- lögunni hækka í 1.176 kr., en í kr. 932 hafi menn tæki'í sauðalitunum. Hörður Vilhjálmsson, fjármála- stjóri Ríkisútvarpsins, sagði í sam- tali við blaðið, að sótt yrði um mun meiri hækkun fyrir auglýsingar, eða u.þ.b. 85 prósent. Þess má geta, að notendur Víde- ósóns greiða nú kr. 185 á mánuði og sé miðað við óbreytt verð næstu fimm mánuði verður afnotagjaldið því 1.110 kr. fyrir 6 mánuði, eða i hérumbil það sama og afnotagjald Ríkisútvarpsins. Þjónustan er hins vegar öllu minni. -ast Ágreiningurinn er einkum tvenns konar. Annarsvegar er hann um það hvenær nýtt vísitölu- kerfi eigi að taka gildi. Alþýðu- bandalagið hefur krafist þess að það verði ekki fyrr en 1. júlí í sum- ar, þ.e. að vísitölubætur verði greiddar með venjulegum hætti nú 1. mars. Hins vegar greinir menn svo á um frádráttarlið við út- reikning vísitölunnar. Meirihluti vísitölunefndar vildi bæta orku- verðinu við frádráttarliðina tvo sem fyrir eru þegar framfærsluvísi- talan er reiknuð út. „í minnihlutaáliti mínu í vísitölu- nefndinni lagði ég hins vegar til að samið yrði við verkalýðshreyfingu og atvinnurekendur um fastan frá- drátt. Tillögur meirihluta vísitöl- unefndar sem nú liggja fyrir ríkis- stjórn ganga sumsé út á að lengja verðbótatímabilin strax þannig að verðbætur á laun komi ekki fyrr en I. apríl nk. og auk þess verði aukið við frádráttarliðina sem fyrir eru þannig að þeir vegi 13.5-14% í stað II. 5% eins og nú er“, sagði Þröstur Ólafsson ennfremur. „Við teljum að almenningur í landinu hafi tekið á sig nægar byrðar með efnahagsúrræðunum 1. desember sl. og að ekki sé á bætandi nú. Þá er einnig augljóst mál að Alþingi er óstarfhæft nú og litlar sem engar líkur til að frum- varp um nýtt vísitölukerfi fengist rætt hvað þá afgreitt á þessu þingi. Því held ég að áhugi samstarfs- manna okkar í ríkisstjórn stafi meira af því að þeir telji þetta mál styrkja stöðu þeirra áróðurslega en að þeir hafi með því áhuga á að leysa þann gífurlega efnahags- vanda sem nú er við að etja“, sagði Þröstur Ólafsson að lokum. Lyftumálið í borgarstjórn: Dýra lyftan var keypt Borgarstjórn samþykkti í gærkvöldi að kaupa stólalyftu af Doppelmayer gerð í Bláfjöllin með 13 atkvæðum gegn 4. Með voru allir borgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins nema Albert Guðmundsson, svo og Sigurjón Pétursson. Á móti voru fulltrú- ar Kvennaframboðsins, Albert og Álfheiður Ingadóttir. Fyrr á fundinum hafði verið felld tillaga frá fulltrúum Kvennaframboðs um að hætt skyldi við kaupin á nýrri lyftu í Bláfjöll. Bentu tillögumenn á að á fjárhagsáætlun 1983 er ætl- að 7 miljónum króna til lyftu - kaupanna,en kostnaður verður a.m.k. 11,4 miljónir. Fjár- veitingin nægir því aðeins fyrir lyftuhúsi og 20% kaupverðs. 80% af kaupverði verður að fá 'að láni og þar með binda fé í fjárhagsáætlun 1984. Þar sem mörg verkefni bíða borgarsjóðs á sviði félags- og heilbrigðis- mála væri ekki verjandi að kaupa 8. skíðalyftuna í Bláfjöll. -ÁI Ávaxtakassar Rauða krossins njóta mikilla vinsælda. Þeir ásamt annarri tegund spilakassa samtakanna eru háðir eftirliti og afla um 90% af tekjum Rauða kross íslands. Ljósm. Atli. Spilakassar Rauða krossins undir ströngu eftirliti: Leikspilin í sam- keppni við okkur segir Jón Ásgeirsson framkvæmdastjóri Rauða kross íslands „Okkur er engin launung á því að þessi leikspil sem fólk borgar fyrir að fá að spreyta sig á, eru í sam- keppni við spilakassa Rauða kross íslands, sem hafa verið starfræktir frá því 1972 og afla um 90% tekna okkar“, sagði Jón Ásgeirsson fram- kvæmdastjóri Rauða kross íslands í samtali við Þjóðviljann. „Mér skilst að ekkert eftirlit sé með þessum spilum sem spretta nú upp eins og gorkúlur á haug og verði ekkert að gert er einsýnt að Rauði kross íslands verður fyrir til- finnanlegu tjóni af þessum sök- um“, sagði Jón ennfremur. Sá meginmunur er á spilakössum Rauða krossins og vídeó leikspil- unum sem nú spretta upp að hvað þau síðarnefndu áhrærir er engin vinningsvon. Hins vegar eiga þeir sem spreyta sig á kössum Rauða krossins von um vinning. „Fyrstu kassamir á okkar vegum komu árið 1972 og síðan höfum við verið að byggja upp þetta fjáröfl- unarkerfi okkar og farið í einu og öllu að lögum í þeim efnum. Okkar kassar eru háðir ströngu eftirliti frá dómsmálaráðuneytinu og okkar afstaða er sú að rekstur þessara spila sem nú eru að spretta upp sé ekki það sem við-teljum æskilegt að fást við. Það væri líka fróðlegt að fá að vita hvort hagnaðurinn af þess- um spilum er talínn fram til skatts og hversu mikill hann er“, sagði Jón Ásgeirsson hjá Rauða krossin- um að síðustu. -v. Leiktæki spretta upp í söluturnum og víðar Ekki háð leyfi frá yfirvöldum „Nei, það þarf ekki leyfi sam- kvæmt ákvæðum Lögreglusam- þykktarinnar fyrir svona lciktækj- um nema til standi að reka fyrir- tæki þar sem þessi tæki falla undir meginhluta starfseminnar. En ef um er að ræða t.d. eitt eða tvö svona leiktæki þarf ekki að sækja rekstrarleyfið til lögreglustjórans“, sagði William Möller fulltrúi hjá lögreglustjóranum í Reykjavík. Það hefur ekki farið framhjá neinum sem á erindi inn í biðstöðvar, bílasölur eða sölu- tuma, svo eitthvað sé nefnt, að leik- tæki hvers konar eru þar að verða æði algeng. Á sumum stöðum, þar sem örtröð er mikil eru tækin fleiri en eitt og fleiri en tvö og hópast fólk á öllum aldri í kassana þar sem skildar eru eftir stórar fjárhæðir. Kostar hvert „geim“ á bilinu 10 til 15 krónur. „Það er verið að athuga þessi mál hér hjá lögreglustjóra, og þess má geta að það eru aðeins tvö ár síðan þessi tæki voru leyfisskyld þegar um atvinnustarfsemi var að ræða. Þess má einnig geta að þegar rekst- urinn hefur verið leyfisskyldur, t.d. á knattborðsstofum og þess háttar þar sem spilin eða leiktækin eru aðalstarfsemin, hafa viðkom- andi sveitarfélög verið afar treg til að veita leyfi vegna ónæðis sem slíkri starfsemi getur fylgt“, sagði William Möller að lokum. -v.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.