Þjóðviljinn - 11.02.1983, Page 1
Föstudagur 11. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Leiklist
Myndlist
Tónlist
Kvikmyndir
Skemmtanir
Féiagsiíf o.fi.
Leikbrúðuland
sýnir á
sunnudaginn
Þrjár
þjóð-
sögur
Sýningar Leikbrúðulands á
„Þrem þjóðsögum" hefjast að
nýju á sunnudaginn. Sýnt er að
Fríkirkjuvegi 11 og hefst
sýningin kl. 15.00.
Þjóðsögurnar sem sýndar verða
eru: „Gípa“, saga um stelpu sem
étur allt milli himins og jarðar.
„Umskiptingurinn“, þjóðsagan
þekkta um átján barna föður í álf-
heimum, og „Púkablístran“, sö^ir
af Sæmundi fróða.
Það þarf ekki að taka fram að
sýningar Leikbrúðulands eru fyrir
alla fjölskylduna.
í Leikbrúðulandi eru Helga Steff-
ensen, Hallveig Thorlacius, Erna
Guðmarsdóttir og Bryndís Gunn-
arsdóttir. Leikstjóri sýningarinnar
er Þórhallur Sigurðsson, en margir
þekktir leikarar ljá brúðunum
raddir.
Sala aðgöngumiða hjá
Leikbrúðulandi hefst kl. 13 á
sunnudag, en miðapantanir eru í
síma 15937.
Úr sýningu Leikbrúðulands á
þjóðsögunni um 18 barna föður
í álfheimum.
Vinátta bréfbera og
,brjálaðs” snillings
Bréfberinn Joseph Koulin var
ósköp venjulegur póstur, sem bjó í
Arles í Suður Frakklandi í lok síð-
ustu aldar. Þetta var hlýr og gam-
ansamur náungi, vinsæll í sínum
heimabæ og gerði öllum gott. Það
var einmitt einstakri skapgerð hans
að þakka að hann átti síðar eftir að
verða ódauðlegur í listasögu
heimsins. Því hollenski listmálar-
inn Vincent van Gogh fluttist í
þorpið Arles árið 1888 til að mála í
birtunni og litadýrðinni við
Miðjarðarhafið. Þar langaði hann
til að stofna sambýli myndlistar-
manna og fékk vin sinn Gauguin
síðar til sín í því skyni. En bæjarbú-
ar í Arles litu þennan einkennilega
listmálara hornauga og vildu sem
allra minnst fyrir hann gera. Nema
bréfberinn Roulin. Hann og kona
hans gengu Van Gogh nánast í for-
eldrastað, hjálpuðu honum um
ýmsar nauðþurftir, studdu hann
þegar geðheilsan brást honum og
síðast en ekki síst - þau sátu fyrir
hjá honum ásamt börnum sínum,
en fyrirsætur voru það sem list-
málarann skorti mest. Leikritið
fjallar að miklu leyti um vináttu
þessa tveggja ólíku manna og jafn-
framt tvö síðust ár Van Goghs, árin
sem snilligáfa hans blómstraði eins
og ódauðleg málverk hans bera
vitni um.
Það er Þráinn Karlsson sem
leikur bréfberann og Sunna Borg
madame Roulin konu hans. Viðar
Eggertsson leikur listmálarann
Vincent van Gogh og Theodór Júl-
íusson vin hans Gauguin. Bæjar-
búar í Arles eru litríkar persónur,
einkum gleðikonan Gaby, sem
Ragnheiður Tryggvadóttir leikur,
en það var Gaby sem fékk með
Vinirnir ræðast við:
Viðar Eggertsson og Þráinn
Karlsson í hlutverkum Van Goghs
og bréfberans í Arles.
frægarí jólagjöfum sögunnar, af-
skorið eyra frá Van Gogh.
í tengslum við leiksýninguna var
opnuð myndlistarsýningin „Fólk“,
samsýning 13 myndlistarmanna á
Akureyri. Á sýningunni eru olíu-
málverk, krítarteikningar, vatnslita-
myndir og grafík og verður hún í
fordyri og göngum leikhússins.
Sýningin er opin frá kl. 19.30 alla
daga sem leikið er. Þeir sem sýna
eru: Aðalsteinn Vestmann, Anna
Torfadóttir, Einar E. Helgason,
Guðmundur Armann, Guðmund-
ur Oddur, Haraldur Ingi Haralds-
son, Helgi Vilberg, Lýður Sigurðs-
son, Ólafur H. Torfason, ÓIi G. Jó-
hannsson, Ragnar Lár, Sigurður
Aðalsteinsson og Örn Ingi.
Næstu sýningar eru í kvöld,
föstudagskvöld, og sunnudags-
kvöld.
Leikfélag
Akureyrar
Um síöustu helgi frumsýndi
Leikfélag Akureyrar leikrit
Ernst Bruun Olsen Bréfberann
frá Arles í þýðingu Úlfs
Hjörvars. Leikstjórinn Haukur
Gunnarsson og leikmynda-
hönnuöurinn Svein Lund-
Roland koma báöir frá Noregi
til þessa verks, en „Bréfberinn"
hefur verið sýndir í tugum
leikhúsa á öllum Norðurlöndum
síðan hann var frumsýndur í
Árósum 1975.
Réttarhöld í Gamla bíói á sunnudag
Samtökin Líf & land hafa
ákveðið að efna til almenns
fundaríGamlabíóií
Reykjavík á sunnudaginn
kemur, þarsem almenningi
verður gefinn kostur á að
kynnast rökum með og á móti
fullum jöfnuði atkvæðisréttar.
Fundurinn verður í formi rétt-
arhalda, þar sem röksemdir
verða kynntar af tveimur hæsta-
réttarlögmönnum, og munu þeir
sækja og verja málið frá báðum Kviðdómur er valinn með
hliðum. Að málflutningi þeirra aðstoð Reiknistofu Háskólans úr
ioknum mun 12 manna kviðdóm- dreifbýli og þéttbýli. Spurningin
ur kveða upp úrskurð sinn og sem lögð verður fyrir kviðdóm-
verða úrslit tilkynnt í lok fund- inn er svofelld: „Telur dómurinn
arins. að atkvæði allra kjósenda skuli
Réttarhöldin hefjast í Gamla Vega jafnt í alþingiskosningum,
bíói kl. 13.15. Dómsforseti verð- án tillits til búsetu?"
ur Gunnar G. Schram prófessor,
lögmaður sem ver núverandi Lögmenn mega kaila hvorfyrir
fyrirkomulag, Jón Edwald Ragn- sig þrjú vitm fynr réttinn, en alls
arsson hrl. og lögmaður, sem hafa þeir tvær klukkustundir
sækir málið til fulls jöfnuðar at- hvort til málflutnings. Réttar-
kvæða, Jón Steinar Gunnlaugs- höldin eru öllum opin.
son hrl. -Jg.
Rcttað verður um jöfnun atkvæðisréttar í Gamla bíói á sunnudag.