Þjóðviljinn - 11.02.1983, Side 2
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 11. febrúar 1983
Tónleikar til styrktar
íslensku óperunni
Judith
Bauden
syngur
við
undirleik
eiginmanns
síns
Hjónin Judith Bauden og Marc Tardue.
um helgina
Bandaríska sópransöngkonan
Judith Bauden og eiginmaður
hennar píanóleikarinn Marc Tar-
due halda tónleika í Gamla bíói á
sunnudag kl. 17.00 og rennur allur
ágóði tónleikanna til styrktar
Ópcrunni.
A efnisskránni eru eingöngu
verk bandarískra tónskálda m.a.
„The Knoxville Summer of 1915“
eftir Samuel Barber og aríur og
söngvar eftir Menotti, Hageman,
Victor Herbert, Foster og Nilos.
Judith Bauden stundaði söng-
nám í Peabody Conservatory of
Music í Baltimore og útskrifaðist
þaðan 1977. Hún hefur síðan sung-
ið reglulega hlutverk í óperum, ór-
atóríum og með sinfóníuhljóm-
sveitum í Bandaríkjunum, auk
fjölmargra eipsöngstónleika.
Eiginmaður hennar, Marc Tar-
due, hefur dvalist hérlendis frá því í
haust, en hann stjórnar uppfærslu á
sýningum íslensku óperunnar á
Töfraflautunni.
Aðgöngumiðar að tónleikum
þessum fást í Gamla bíói.
Rúnar Þór Pétursson, einn af 3.
hæðinni.
3. hœðin
í Festi
Hljómsveitin 3. hæðin Ieikur
fyrir dansi í kvöld og annað kvöld
(Iaugardag) í Festi í Grindavík. 3.
hæðin brá sér inn í stúdíó Nema
fyrir skömmu og tók upp 4 lög fyrir
hljómplötu. Mun hún væntanleg
innan skamms. I 3. hæðinni eru
Rúnar Þór, gítar og söngur, Þórar-
inn, hljómborð, Jakob á bassa og 1
Birgir á trommur.
Gerður Gunnarsdóttir
fiðluleikari
Lokaprófs-
tónleikar
á Kjarvals-
stöðum
Á þriðjudagskvöldið kemur
þreytir Gerður Gunnarsdóttir lok-
aprófstónleika frá Tónskóla Sigur-
sveins D. Kristinssonar á Kjarvals-
stöðum.
Gerður hóf nám í Tónskólanum
5 ára gömul og 7 ára að læra á fiðlu
hjá Jakobi Hallgrímssyni. Aðrir
kennarar hennar hafa verið þeir
Sigursveinn D. Kristinsson, Sólrún
Garðarsdóttir, Victor Pechar,
Anna Rögnvaldsdóttir og síðast
Michael Shelton.
Á efnisskrá tónleikanna á Kjar-
valsstöðum sem hefjast kl. 20.30
verða verk eftir J.S. Bach, Karol
Szymanowski og L.v. Beethoven.
Undirleikari er Snorri Sigfús Birg-
isson. Aðgangur er ókeypis og eru
allir velkomnir.
Gerður og Snorri Sigfús.
ÞREK
Ný danshljómsveit hefur tekið til
starfa í Reykjavík. Nafn
hljómsveitarinnar er Þrek.
Hljómsveitina skipa: Halldór
Erlendsson gítarleikari, Kristján
Óskarsson hljómborðsleikari,
Þórður Bogason söngvari, Gústaf
Guðmundsson ásláttarleikari, og
Þórður Guðmundsson bassa-
leikari.
Hljómsveitin Þrek sérhæfir sig í
fjörugri dansmúsík, lagavalið sam-
anstendur af vinsælum danslögum
og frumsömdum stuðlögum. Bók-
anir eru teknar í símum 79141
Kristján og 10856 Þórður.
Leikfélagið
Fjórar
sýningar
verða um
helgina
Franski gamanleikurinn Forseta-
heimsóknin er á fjölunum í Iðnó í
kvöld. Annað kvöld verður Skiln-
aður Kjartans Ragnarssonar sýnd-
ur í uppfærslu höfundar. Þetta leik-
rit hefur hlotið mikla athygli og
umtal, auk þess sem leikmyndin er
allsérstök, þar sem leikið er í
áhorfendasalnum, en áhorfendur
sitja á fjóra vegu í kring.
í Austurbæjarbíói verður
miðnætursýning á Hassinu hennar
mömmu eftir Dario Fo á laugar-
dagskvöld, en þessi gamanleikur
hefur verið sýndur fyrir fullu húsi
frá því í haust.
Á sunnudagskvöld verður Salka
Leikfélag
Vestmannaeyja
sýnir gamanleik
í Kópavogsbíói
„Er á
meðan er”
Félagar úr Lcikfélagi Vestmanna-
eyja eru komnir upp á fastalandið
og ætla að sýna höfuðborgarbúum
gamanleikinn „Er á meðan er“ eftir
þá félagana Kaufman og Hart í
Kópavogsleikhúsinu um helgina.
Sýningarnar verða í kvöld og ann-
að kvöld.
Þessi sívinsæli gamanleikur ger-
ist í kreppunni miklu fyrir hálfri öld
í New York. Þar eigast m.a. við
rússneskar stórhertogaynjur, for-
drukknar leikkonur, greifi,
konfektframleiðandi og þjónustu-
Þjóðleikhúsið
Allt
uppselt
á
Línu
Langsokk
Lína langsokkur nýtur alltaf jafn
mikilla vinsælda jafnt meðal
barna, unglinga sem fullorðinna,
og verða hvorki fleiri né færri en
þrjár sýningar á Línu um helgina.
Uppselt er á þær allar.
Annað kvöld verður á stóra
sviðinu leikgerð Bríetar Héðins-
dóttur á Jómfrú Ragnheiði Kamb-
ans en þessi sýning hefur hlotið
mikla athygli.
Verðlaunaleikritið Tvíleikur
eftir Tom Kempinski er nú á loka-
sprettinum á Litla sviðinu, aðeins
tvær sýningar eftir auk sýningar á
sunnudagskvöld kl.20.30.
Súkkulaði handa Silju eftir Nínu
Björk gengur alltaf fyrir fullu húsi í
kjallaranum og er næsta sýning á
þriðjudagskvöld.