Þjóðviljinn - 11.02.1983, Qupperneq 3
Föstudagur 11. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
um helgina
Plútó á Mokka
Listamaðurinn Plútó, öðru nafni Benedikt Björnsson, sýnir um þessar
mundir vatnslitamyndir og olíumálverk á Mokkakaffi við Skólavörðustíg.
Þetta er fyrsta einkasýning Plútós, en síðastliðin tvö ár hefur hann
eingöngu helgað sig skipulegu myndlistarnámi, en fengist við að mála frá
því árið 1965.
Á sýningunni eru 23 myndir, en hún stendur til loka febrúar.
Úr Sölku Völku: Salka (Guðrún Gísiadóttir) og Steinþór (Þorsteinn Gunn-
arsson) eiga orðaskipti.
Valka Halldórs Laxness á sviðinu í Stefáns Baldurssonar og Porsteins
Iðnó, en hún birtist þar í leikgerð Gunnarssonar.
Ein mynda Tékkans Gudernc í
Skruggubúð
Ásgrímssafn Árleg skólasýning
safnsins stendur nú yfir.
Heimsóknartíma þarf að panta
með fyrirvara hjá Sólveigu Ge-
orgsdóttur í síma 28544 á mánu-
dögurn frá kl. 13.30 - 16.00.
Úr uppfærslu Leikfélags Vestmannaeyja á gamanleiknum „Er á
meðan er“.
fólk svart á hörund.
Leikfélagið hefur fengið góða
dóma í heimabyggð sinni fyrir
flutning verksins og er ekki að efa
að þeim takist einnig vel upp í Kópá
vogi um helgina.
r
Danssmiöja Islenska dansflokksins
Síðasta sýning í kvöld
í kvöld er síðasta sýning íslenska
dansflokksins að þessu sinni á
Danssmiðjunni, sem inniheldur
fjóra nýja íslenska balletta, en
dansarnir voru sérstaklega samdir
fyrir flokkinn af Nönnu Olafs-
dóttur, Ingibjörgu Björnsdóttur og
meðlimum flokksins.
Sýningin hefur hlotið góðar við-
tökur og lofsamlega dóma. Dans-
smiðjan hefst á klassískum dans-
brigðum við tónlist eftir Elgan,
Katsjaturjan og Síbelíus. Þá tekur
við fjörugur ballett Ingibjargar
sem nefnist 20 mínútna seinkun og
er við tónlist eftir Gunnar Reyni
Sveinsson. Næst er ballett sem
nefnist „Hvar?“ og er saminn af
dönsurunum sjálfum við tónlist
Þóris Baldurssonar. Að lokum er
ballett Nönnu við tónlist Leifs Þór-
arinssonar og heitir „Largo y
Largo“
Guðrún Svava Svavarsdóttir
gerði búninga og sviðsmyndir, og
lýsingu annast Ingvar Björnsson.
Þá má geta þess, að 12 börn úr
Listdansskóla Þjóðleikhússins
koma fram í sýningunni.
Fœreysk grafik í Garöabæ
Nú stendur yfir í Bæjarbókasafni
Garðabæjar færeysk graflksýning.
Hótel Loftleiðir
Myndirnar á sýningunni eru eftir
Færeyinginn Amariel Norðoy frá
Klakksvík.
Sýning þessi mun standa næstu
vikur.
Verðlaunamynd
í MÍR-salnum
Síldarveisla
í samvinnu við íslensk matvæli
býður Hótel Loftleiðir til síldar-
veislu dagana 11. febrúar til 20. fe-
brúar í Blómasal hótelsins. Á
hverju kvöldi verður mikið úrval af
síldar- og fiskréttum á boðstólum
og hafa gestir úr liðlega 30 tegund-
um að velja að ógleymdum salötum
og ídýfum.
Meðal nýjunga sem kynntar
verða má nefna innbakað laapaté
og hörpudiskapaté. Þarna gefst
einnig tækifæri til að smakka
reyktan oggrafinn karfa, svo nokk-
uð sé nefnt.
Félag harmonikkuunnenda
senda fulltrúa sína á staðinn annað
kvöld og sunnudagskvöld, og sjá
þeir urn að skapa réttu síldar-
stemmninguna.
Þess má geta í lokin að þátttaka í
síldarveislunni kostar 195 krónur á
mann.
Esk- og
R eyðfirðingafélagið
Árshátíð
Árshátíð Eskfirðinga- og
Reyðfirðingafélagsins verður hald-
in í kvöld, og hefst með borðhaldi í
Lækjarhvammi, Hótel Sögu, kl.
20.00.
Taflfélag
Seltjarnarness
Meistaramót Taflfélags
Seltjarnarness hefst á morgun,
laugardag 12. febrúar kl. 14.00.
Teflt verður í 2 riðlum. Sigurvegar-
arnir fá veglega vinninga, og enn
fremur verða veitt fegurðar-
verðlaun.
Teflt verður á þriðjudögum og
fimmtudögum kl. 19.30 og á
laugardögum kl. 14.00. Öll starf-
semin hjá Taflfélagi Seltjarnarness
fer fram í Valhúsaskóla.
-óg
„Seigla”
Fræg sovésk verðlauna-
kvikmynd „Seigla“ verður sýnd í
MÍR-salnum, Lindargötu 48, nk.
sunnudag kl. 16. Leikstjóri er Lar-
isa Shcpitko, en með aðalhlutverk-
in fara Boris Plotnikov, Vladimir
Gostukhin og Anatolí Solonitsin.
Sagan sem myndin byggir á ger-
ist að baki vígstöðvanna í Hvíta-
rússlandi veturinn 1942.' Hópur
skæruliða og fjölskyldur þeirra
leita skjóls í skógi, úrvinda af
þreytu, vosbúð og matarskorti.
Tveir úr hópnum eru sendir af stað
til fæðuöflunar, Rybák sem er marg
reyndur og harðskeyttur skærul-
iði, og Sotnikov, liðsforingi úr so-
véska hernuni sem orðið hefur við-
skila við herdeild sína og gengið til
liðs við skæruliðasveitirnarað baki
víglínunnar. Sotnikoversjúkur, en
reynir samt að fylgja Rybak eftir.
Þeir félagar leita skjóls í afskekktu
húsi, en eru handteknir af
Þjóðverjum, yfirheyrðir og pynt-
aðir. Því er síðan lýst hvernig sögu-
hetjurnar bregðast misjafnlega
við.
Aðgangur að MÍR-salnum er
■ ókeypis og öllum heimill.
Útivist
um helgina:
Gullfoss í
klakaböndum
A sunnudaginn ætlar Útivist að
fara að Gullfossi til að skoða foss-
inn íklæddan ísbrynju vetrarins.
Ferðin er fyrir unga sem aldna,
engin löng ganga, hcldur staldrað
við og notið fegurðar fossins og
komið við hjá Gcysi á heimleiðinni.
Fararstjóri verður Þorleifur Guð-
mundsson, en lagt er af stað frá
Umferðarmiðstöðinni kl. 10 árdcg-
is.
Tvær ferðir verða farnar kl.
13.00. Gönguferð um Álfsnes
undir fararstjórn Steingríms Gauts
Kristjánssonar. Einnig verður far-
in skíðaferð frá afleggjaranum í
Skálafell á Mosfellsheiði að Borg-
arhólum og aftur til baka.
Ásmundarsalur Um helgina lýkur
sýningu Ingvars Þorvaldssonar
á 35 vatnsiitamyndum. Sýning-
in er opin frá kl. 14 - 22.
Djúpið Þar stendur yfir sýning á
veggspjöldum eftir þekkta er-
lenda listamenn og eru þau öll
til sölu.
Gallcrí Austurstræti 8 Santsýning á
grafík og teikningum eftir Pétur
Stefánsson, Kristberg Péturs-
son, Hauk Friðjónsson og
Hörpu Björnsdóttur.
Gallerí Lækjartorg Tvíbura-
bræðurnir Haukur og Hörður
eru þar með grafíksýningu sem
spannar vinnu þeirra í þeirri
listgrein sl. 6 ár. Opið 14 -22.
Síðasta sýningarhelgi.
Hringbraut 119 Guliströndin
andar. Frjáls og óháð sýning
ungra listamanna senr tekur til
allra listgreina. Nýja málverkið
á þó vinninginn.
Kjarvalsstaðir Önnur stór sýning
ungra myndlislarmanna. Alls
sýna 58 listamenn hátt á annað
hundrað verk. Opið um helgina
frá 14 - 22. Tónleikar á
mánudags- og þriðjudagskvöld.
Listasafn Einars Jónssonar Högg-
myndir Einars til sýnis sunnu-
daga og miðvikudaga frá 13.30
- 16.
Listasafn íslands íslensk og dönsk
grafíksýning og nokkur oliu-
málverk sem safninu hefur
skotnast nýverið. Opið um
nýjurn málverkum unnuni með
Listmunahúsið Magnús Kjartans-
son með sýningu á fjölmörgum
nýjum málverkum unnum með
vatnsþekju akrtllitum og ljós-
myndatækni, auk nokkura
rauðleirsskúlptúra úr Búðar-
dalsleirnum. Opið frá 14 - 18
um helgina og 10- 18 aðra daga
en mánudaga.
Norræna húsið Ljósmyndasýning
áhugaljósmyndara í sýningar-
salnum. Síðasta sýningarhelgi.
Opið frá 14 - 17. f anddyrinu
sýnir Brian Pilkinton trölla-
myndir sem myndskreyttu nýju
Gilitruttbókina.
Skruggubúð Suðurgötu 3 Grafík-
myndir eftir tékkneska súreal-
istann Ladislav Guderne.
Þjóðminjasafnið Frá eldaskála til
burstabæjar. Þróunarsaga ís-
lenska torfbæjarins. Opið um
helgina frá 13.30 - 16.00. Síð-
asta sýningarhelgi.