Þjóðviljinn - 19.03.1983, Side 11
- Starfið sjálft var kannski
ekki með öllu ókunnugt, því
Frímann faðir minn og Björgvin
Sigurðsson bróðir hans höfðu
báðir gegnt því áður. Hins vegar
kom mér á óvart hvað pólitísk
skoðun manna getur skipt miklu
við afgreiðslu mála. Auðvitað
vilja allir vinna að því sem þeir
telja sínu byggðarlagi fyrir bestu,
en það hefur komið mér á óvart
þegar hagsmunir þorpsins víkja
en pólitíkin ræður öllu.
Hér var fyrir þegar við tókum
við, dugmikill sveitarstjóri Einar
Sveinbjörnsson. Það var óneitan-
lega mikill styrkur fyrir okkur
sem komum ný inn í myndina.
- Hvernig líst þér á fram-
haldið?
- Við höfum þrjú ár til viðbót-
ar og það er heilmikið hægt að
gera á þeim tíma.
Hrædd um að
missa togarann
- Það búa núna hérna á
Stokkseyri um 560 manns en sú
tala hefur staðið nokkurnveginn í
stað á síðustu árum. Menn hafa
komið og farið. Alltaf einhver
hreyfing á fólki. Unga fólkið hef- -
ur staðið við og nú eru fleiri
íbúðir í byggingu en verið hefur á
umliðnum árum.
í haust var í fyrsta skipti í
langan tíma stöðug atvinna í
frystihúsinu, því togarinn okkar
Bjarni Herjólfsson sem við
eigum með Eyrbekkingum og
Selfossi sigldi ekki með aflann.
Rekstrarstaða togarans hefur
hins vegar verið mjög erfið, og
við erum satt að segja ansi hrædd
um að missa hann. Selfyssingar
eiga lítinn hlut í þessum togara en|
þeir mættu að ósekju koma meirai
inn í dæmið. Það er stór hópur
Selfyssinga sem vinnur við
vinnslu aflans hér á Stokkseyri.
Þetta eru ekki nein
sérstök kvennamál
- Hvað finnst þér um kyn-
greind sérframboð?
- Ég er algerlega mótfallin
þeim. Ég tel að konur nái alls
ekki neitt frekar fram „sínum
málurn" sem þær vilja sumar
kalla, með þessum sérframboð-
um. Þessi framboð hafa kannski
orðið til að ýta við þeim flokkum
sem eru fyrir í landinu og komið
þar á virkara jafnrétti, en að
menn nái einhverjum frekari ár-
angri með slíkum framboðum tel
ég alls ekki vera.
- Hvað um þig sjálfa, var það
ekki erfið ákvörðun að bjóða sig
fram í kosningaslaginn?
- Vissulega er þetta erfið ák-
vörðun, þar sem við búum í sjá-
varplássum. Okkar menn eru á
sjó meira og minna og heimilis-
reksturinn er á okkar herðum.
Við komumst því lítið frá nema ef
við njótum aðstoðar ömmu og afa
eins og ég geri, án þeirra hefði
þetta verið óframkvæmanlegt.
Aðeins fundið
smjörþefinn
- En þú hefur látið slag standa.
Hvernig líst þér á framhaldið?
- Þetta verður erfið kosninga-
barátta. Við þurfum vissulega að
taka á öllu því sem við eigum til,
ekki síst í þessu kjördæmi þar sem
íhaldið hefur hafnað manni úr
kjördæminu og kallað á „sterka
manninn" að sunnan. Það hlýtur
þó að styrkja stöðu okkar vinstri
manna að fá eins dæmalaust
plagg upp í hendurnar svona
stuttu fyrir kosningar og stefnu-
skrá Verslunarráðs Sjálfstæðis-
flokksins er. Ef fólki er sýnt fram
á hvað þar er að finna, tillögur
sem Reykvíkingar hafa aðeins
fengið að finna smjörþefinn af á
síðustu mánuðum, þá get ég ekki
á nokkurn hátt ímyndað mér að
verkafólk hópi sig um þenrian
flokk. Menn verða að gera sér
það alveg ljóst að ef Sjálfstæðis-
menn verða leiddir upp í valda-
stólana eftir kosningar, þá eru líf-
dagar útgerðar hér og í öðrum
smærri sjávarplássum sem eru að
berjast í bökkum, brátt taldir.
-lg-
Helgin 19.-20. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Sýning
Jóhönnu
Bogadóttur
í kjallara
Norrœna
hússins
Babelsturninn í senn. Fyrst og
fremst er hann þó yfirþyrmandi
tákn, fangelsið sem hefst á loft og
springur. Er það ekki hamingju-
höfnin eða hjónabandssælan?
Hvað sem öðru líður virðast turn-
klukkurnar vera tákn kirkju-
legrar athafnar og dósirnar sem
hanga í spottum eru vart annað
en þær sem bundnar eru við bíla
nýgiftra og glamra þegar ekið er
af stað. Fiskurinn á færinu er
einnig ljóslifandi tákn festa.
Tristan og ísold eru enn eitt dæm-
ið um erfiðleika hjónabandssæl-
unnar, hin eilífu goðtákn ástar í
meinum.
En það væri of einfeldnislegt
að tengja slík tákn of bókstaflega
við hjúskapinn. Til er margvís-
legur hjúskapur og menn binda
trúss sitt við margt fleira en aðra
menn. Því verður að skoða þessi
tákn hjónabandsins í víðara sam-
hengi og tengja þau við lífið
sjálft, vonir og ótta, hamingju og
harm. Og vissulega er táknmál
Jóhönnu byggt á myndtáknum
allra tíma og allra manna. Um
það bera mínótárárnir og völund-
arhúsið vitni.
Turnar og
völundarhús
hefðar þeirrar sem hún byggir á,
aftur til franska táknrænumálar-
ans Odilon Redon. Þessi sérstæði
og furðulegi listamaður sem
spyrti saman impressioníska
tækni og táknrænt innihald, var
einnig afburða grafíker og nokk-
urs konar gullgerðarmaður á því
sviði. Mér dettur Redon í hug
vegna þess hve impressionískar
myndir Jóhönnu eru. Myndir
hennar, hvort heldur eru málverk
eður grafíkmyndir og teikningar
byggja á andstæðum ljóss og
skugga ásamt blæbrigðakenndri
meðhöndlun lita og línu.
Þetta gerir myndir hennar loft-
kenndar og flæðandi og er það í
fullu samræmi við þann kraftbirt-
ingaranda sem hvílir yfir öllum
þessum verkum. Stíllinn fylgir
því innihaldinu fullkomlega
þannig að aðferð og táknmál
helst í hendur. Líkt og flestir
symbólskir listamenn leggur Jó-
hanna mesta áherslu. á teikning-
una, enda hentar grafíkin henni
vel. Teikningin er einnig undir-
staða málverkanna, jafnrétthá
litnum, enda eru yrkisefni Jó-
hönnu þau sömu, hvort heldur
hún færir þau á léreftið með
pensli eða vinnur þau sem svart-
list á pappír.
En hvað er þesi turn? Táknið
er margrætt eins og sést vel þegar
það er rakið frá mynd til myndar.
Merking hans er bæði andleg og
kynferðisleg, draumurinn um
upphafningu, fílabeinsturn og
Turnmyndir og fieira heitir
sýning Jóhönnu Bogadóttur í
Norræna húsinu. Það sýnir hún
hvorki meira né minna en 66
verk, olíumyndir, grafik og
teikningar. Það sem fyrst vekur
athygli áhorfanda er áhersla sú
sem Jóhanna gefur afmörkuðu
myndefni sínu. Segja má að obb-
inn af verkunum snúist um eitt og
sama þemað, turninn. Það er sex-
strendur turn með voldugu hvolf-
þaki og turnlukt, nokkurs konar
viti en fyrst og fremst svífandi
fangelsi því rimlar eru fyrir
gluggum. Undan þakskegginu og
út um gluggana teygir sig strítt
hár eins og feyskin bergflétta og
bjöllur eða klukkur hanga í bandi
neðan úr turninum. Stundum
hanga einnig tómar niðursuðu-
dósir, skór eða fiskar.
Þetta myndefni er þungamiðja
táknrænnar myndsköpunar Jó-
hönnu. Hún er symbólisti fyrst og
fremst og má rekja rætur mynd-
Frœðslumið stöðin
Miðgarður
Námskeið
um helgina
| gestalt-
sálarfræði
Dr. Michael Krigsfield sem er
þekktur fyrir að vinna með
aðferðir úr gestalt-sálfræðinni eins
og þær voru fyrst scttar fram af
höfundi hennar Fritz Perls heldur
um helgina námskeið í þessum
fræðum í fræðslumiðstöðinni
Miðgarði Bárugötu 11.
Á þessu námskeiði mun Krigs-
field leggja áherslu á það hvernig
við upplifum okkur hér og nú og
benda á gloppur í skynjun okkar á
sjálfum okkar. Námskeiðið leggur
jafnframt áherslu á sjálfsábyrgð en
það er grundvallarhugsun í gestalt-
sálfræðinni. í stað þess að varpa
ábyrgðinni á aðra og láta þjóðfé-:
lagið, foreldra eða maka sæta
ábyrgð vill gestalt-sálfræðin efla
sjálfsábyrgð einstaklingsins og
gera honum þannig kleift að verða
gerandi í eigin lífi og skapa þann
raunveruleika sem hann vill búa
við.
Námskeiðið er öllum opið. Nán-
ari upplýsingar og skráning er í
Miðgarði Bárugötu 11 sími: 12980.
Aðalfundur
KÍM
Aðalfundur Kínversk-íslenska
menningarfélgsins verður haldinn
mánudaginn 21. mars n.k. að Hótel
Esju, 2. hæð og hefst kl. 20.30.
Á dagskrá verða venjuleg aðal-
fundarstörf. Þá kemur Haukur
Helgason, skólastjóri, í heimsókn
ásamt fleiri gestum og greinir frá
söngför kórs Öldutúnsskóla til
Kína síðastliðið sumar og sýnd
verður nýleg, kínversk kvikmynd
um Hua-fjall, en það er eitt af 5
frægustu fjöllum þar í landi.
-
Hvenær
byrjaðir mm
Þú# A
u^2_/yy/
TOLVUSYNING
í Tónabæ
tilvalið tækifæri til að kynna sér þann tölvubúnað sem
Sýningin verður opin:
iaugardag 13 - 22
sunnudag 13 - 22
Félag tölvunarfræðinema.
.
1i1iiiíé1ISi