Þjóðviljinn - 19.03.1983, Síða 15
Helgin 19.-20. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
nýlistasafhið
.
Nýlistasafnið
Sýnishorn af bókaverkaeign Nýlistasafnsins
hafa verið tíðir þátttakendur á al-
þjóðlegum sýningum og aflað sér
og safninu margra góðra sam-
banda.
Nú eru uppi raddir um að efna til
meira samstarfs við erlendar lista-
stofnanir og fylgja þá eftir þeirri
kynningu á íslenskri list og Nýlist-
asafninu sem hafin er á þeim vett-
vangi.
Erlendar gjafir
til þjóðarinnar
Erlendir listamenn hafa frá upp-
hafi verið mjög hlynntir Nýlista-
safninu, þeir hafa gefið til safnsins
dýrmæt listaverk (heilu sýningarn-
ar), stuðlað að góðum samskiptum
og auglýst starfsemina á mjög já-
kvæðan hátt. Þeir hafa sóst eftir því
að gerast félagsmenn, svo sem
heimilt er samkvæmt skipulagsskrá
safnsins.
Þegar svo er komið að útlending-
ar sækjast eftir þátttöku í íslensku
myndlistarlífi, þá hlýtur það að
leiða til síaukinna umsvifa og per-
sónulegra samband. Að baki þessu
hlýtur að liggja eitthvað annað og
meira heldur en samúð með fá-
tækri þjóð og góðum vinum í list-
inni, kannski sjá þeir vaxtarbrodd
sem borinn er fram undir merki
víðsýni og frjálslyndis, sem oft hef-
ur fallið í skuggann erlendis fyrir
hagsýni markaðsaflanna og þröng-
an klíkuskap. í litlu samfélagi er oft
auðveldara að byggja upp mark-
visst starf, einhvers konar miðstöð
tilrauna og framúrstefnu, - og er
reyndar aðstaða til þess á íslandi
nú um stundir, og þess vegna mikil-
vægt að glutra ekki tækifærinu nið-
ur. íslendingar eru nefnilega ekki
lengur aðeins þiggjendur í myndlist
heldur virkir þátttakendur í frum-
legri nýsköpun, - og hafa verið um
nokkurt skeið.
Framtíð listar
og safns
Það er ekki nokkur vafi á því að
með stofnun Nýlistasafnsins varð
veruleg breyting til batnaðar í sam-
skiptum myndlistarmanna inn-
byrðis, þeir fylktu sér um ákveðna
hugsjón sem spannar tvo áratugi í
myndlistarsögu þjóðarinnar, og
beinist í tvær höfuðáttir: Að því
sem liðið er og þarfnast alúðlegrar
umfjöllunar, og að framtíð listar-
innar með öllu því brambolti sem
henni fylgir. I framhaldi af þessu
má geta þess að hinir 60 félags-
menn í Nýlistasafninu koma frá öll-
um myndlistarfélögunum, og segir
það ekki svo lítið um samstarfsvilj-
ann. Það ætti því öllum að vera
ljóst að Nýlistasafnið er ekki hæli
fýrir einangraðar hugmyndir eða
eina stefnu f myndlist, markmið
safnsins eru í fullu gildi og eiga að
geta enst út öldina að minnsta
kosti.
Fram að þessu hafa fáir einstak-
lingar sinnt starfsemi safnsins, og
þá í stopulum tómstundum, en nú
færist það sífellt meira í vöxt að
ákveðnir hópar innan félagsins taki
að sér verkefni, og er sýningin á
verkum Dieters Roth fagurt dæmi
um samvinnu margra hæfra
manna.
Þau eru óteljandi verkefnin sem
Nýlistasafnið þarf að vinna í náinni
framtíð, í fyrsta lagi þarf að fylla
upp í eyður í listaverkaeigninni, í
öðru lagi þarf að hefja markvissa
kynningu á stefnum og tímabilum
og í þriðja lagi þarf að koma skipu-
lagi á allar heimildir um listræna
starfsemi og efna til útgáfu á ýms-
um þáttum hennar, t.d. með bóka-
flokki, litskyggnuröðum, mynd-
böndum og ljósmyndum. Þá væri
æskilegt að gefa út vandað tímarit
með fræðilegri umfjöllun um
myndlist.
Þegar litið er til þessara verk-
efna, þá vaknar sú spurning hvern-
ig megi fjármagna þær á sem
auðveldastan hátt. Opinberir aðilj-
ar hafa verið tregir til að láta fé af
hendi rakna til safnsins, og er þess
vegna vart treystandi á stuðning
þaðan nema alger hugarfars-
breyting komi til. En með fjölgun á
félagatali Nýlistasafnsins ætti að
skapast svigrúm til að skipta verk-
efnum á milli manna, þannig að
meiri hraði komist á framkvæmd-
irnar. Með því móti ætti hugsjónin
að lifa meðal listamannanna
sjálfra, í stað þess kannski að daga
uppi á stofnun sem hefði fjármagn
frá ríki og borg og væri þess vegna
illa sjálfstæð. En hvað sem öllum
vangaveltum líður, þá er augljóst
að Nýlistasafnið hefur haslað sér
völl sem frumiegt og skapandi
fyrirtæki, - hið eina og sanna nú-
tíma listasafn á Islandi.
Tónleikar
í Norræna
Á mánudagskvöldið halda þau
Alexander Marks fiðluleikari, Sar-
ah Boulton Smith lágfiðluleikari,
og Anna Norman píanóleikari tón-
leika í Norræna húsinu kl. 20.00,
Á efnisskrá verður m.a. sonata
fyrir fiðlu og lágfiðlu eftir Milhavd,
sonata fyrir fiðlu og píanó eftir De-
bussy og tríó fyrir fiðlu, lágfiðlu og
píanó k. 498 eftir Mozart.
Ktafla í Hrísey
sýnir:
Blessað
Leikklúbburinn Krafla í Hrísey
hefur að undanförnu sýnt leikrit
Kjartans Ragnarssonar „Blessað
barnalán".
Leikstjóri Kjartan Bjargmunds-
son. Leikritið hefur þegar verið
sýnt sjö sinnum í Hrísey við dæma-
fáa aðsókn og undirtektir, og hafa
sýningar verið allvel sóttar úr
landi.
Um síðustu helgi hélt svo:
leikhópurinn með varðskipinu Ægi
til Grímseyjar og sýndi þar í sam- i
komuhúsinu Múla, aðsókn var
mjög góð. Grímseyingar á öllum
aldri sóttu leikinn og var yngsti
áhorfandinn 3ja mánaða.
Næsta sýning verður um þessa
helgi í samkomuhúsinu Sæborg í
Hrísey. Sýningin verður á sunnu-
daginn 20. mars kl. 21.00, miða-
pantanir eru í síma 61718.
Ferðir milli lands og eyjar með
Hríseyjarferjunni Sævari eru frá
Litla-Arskógssandi kl. 20.30 og frá
Hrísey eftir sýninguna kl. 23.30
Fræðslufundur
Landfræðifélagsins
Skaftár-
eldar
1783-1784
Fræðslufundur Landfræðifé-
lagsins sem vera átti 7. mars 1983,
verður haldinn 21. mars kl. 20:30 í
Árnagarði við Suðurgötu.
Theódór Theódórsson mun fjalla'
um: Skaftárelda árin 1783-1784.
Byggð og búseturöskun í Vestur—
Skaftafellssýslu austan Mýrdals-
sands.
Fyrir Skaftárelda, árið 1783,
voru byggð 116 býli í „Sveilunum
milli Sanda“, þar af 20 hjáleigur.
íbúar það árið voru um 1300
talsins.
Árið eftir, síðsumars 1784, voru
aðeins 55 býli í ábúð, þar af 6 hjá-
leigur. íbúum hafði fækkað niður í
um 520 manns, um 780 manns
höfðu dáið eða flutt brott. íbúum
hafði fækkað enn frekar árið 1785,
eða niður í um 480. Alls eyði-
lögðust 55 býli í eitt ár eða lengur,
Íiar af 21 býli í 10 ár eða lengur.
veruhús á 19 jörðum fóru undir
hraun, 15 þeirra byggðust á ný.
Gjóska lagði sjö bæi í eyði um
lengri eða skemmri tíma í austan-
verðu héraðinu.
YFIRKJÖRSTJORN
í SUÐURLANDS-
KJÖRDÆMI
TILKYNNIR:
Framboðsfrestur vegna Alþingiskosninga 23. apríl
n.k. rennur út þriðjudaginn 22. mars n.k.
Framboðslistum ásamt samþykki frambjóðenda og
listum með tilskildum fjölda meðmælenda ber að skila
til formanns yfirkjörstjórnar, Kristjáns Torfasonar,
bæjarfógeta í Vestmannaeyjum fyrir kl. 24.00 þann
dag. Einnig má skila framboðum til Páls Hallgríms-
sonar, fyrrverandi sýslumanns í Árnesþingi, Selfossi,
fyrir lok framboðsfrests.
Framboðslistar verða úrskurðaðir á fundi yfirkjör-
stjórnar, sem haldinn verður á skrifstofu sýslumanns-
ins í Árnesþingi að Hörðuvöllum 1, Selfossi, miðviku-
daginn 23. mars n.k., kl. 14.00.
YFIRKJÖRSTJÓRNIN í
SUÐURLANDSKJÖRDÆMI
Kristján Torfason
Páll Hallgrímsson Jakob Havsteen
Hjalti Þorvarðarson Vigfús Jónsson
Lóðaúthlutun vj
Úthlutaö verður lóöum í Kópavogi eins og hér
segir:
1. Lóðum undir 11 raðhús með iðnaðar-
aðstöðu í kjallara við Laufbrekku, áður
Auðbrekku í Kópavogi. Aðkoma að
kjallara er frá Dalbrekku.
2. Lóðum undir 2 einbýlishús við Álfa-
tún.
»
Umsóknareyðublöö og úthlutunar- og skipu-
lagsskilmálar liggja frammi á Bæjarskrifstof-
unni í Kópavogi, Fannborg 2. Umsóknum
skal skila á sama staö fyrir kl. 12 á hádegi
þriðjudaginn 12. apríl n.k.
Bæjarverkfræðingur.
RIKISSPITALARNIR
lausar stöður
LANDSPITALINN
AÐSTOÐARLÆKNIR óskast á lyflækningadeild
frá 15. júní n.k. til 6 mánaða með möguleika á
framlengingu. Starfið skiptist að jöfnu milli blóðskil-
unardeildar og göngudeildar sykursjúkra. Um-
sóknir er greini nám og fyrri störf sendist Skrifstofu
ríkisspítalanna fyrir 2. maí n.k.
Upplýsingar veita yfirlæknar lyflækningadeildar í
síma 29000.
AÐSTOÐARLÆKNIR óskast við handlækninga-
deild til eins árs frá 15. apríl og 15. júní n.k. Um-
sóknir er greini menntun og fyrri störf sendist Skrif-
stofu ríkisspítalanna fyrir 8. apríl n.k.
Upplýsingar veita yfirlæknar handlækningadeildar
í síma 29000.
SJÚKRALIÐAR óskast í fullt starf og í hlutastarf
við öldrunarlækningadeild Landspítalans að Há-
túni 10B. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í
síma 29000.
GEÐDEILDIR RIKISSPITALA
HJÚKRUNARFRAMKVÆMDASTJÓRI óskast
við geðdeildir ríkisspítala í fullt starf til afleysinga
fram að n.k. áramótum.
Umsóknir er greini nám og fyrri störf sendist Skrif-
stofu ríkisspítala fyrir 7. apríl n.k.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 38160.
KÓPAVOGSHÆLI
STARFSMENN óskast til ræstinga við Kópavogs-
hæli.
Upplýsingar veitir ræstingastjóri í síma 41500.
RÍKISSPÍTALAR
Reykjavík, 20. mars 1983.