Þjóðviljinn - 19.03.1983, Side 20
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 19.-20. mars 1983
dægurmál (sígiid?)
04U
Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan
Q4U kom fyrst fram á sjónarsviðið.
Miklar mannabreytingar hafa verið í
hljómsveitinni og eru aðeins Ellý og
Gunnþór eftir af þeiiri er voru í
hljómsveitinni í upphafi.
En það eru ekki aðeins mannabreytingar
sem sett hafa mark sitt á hljómsveitina.
Tónlistarleg kúvending hefur einnig átt sér
stað, hljómsveitin hefúr sagt skiMð við pönk-
gervið og tekið upp það „ný-rómantíska“.
I þessu nýja gervi sendi hljómsveitin trá sér
sína fyrstu hljómplötu nú fyrir stuttu. Ef'
þessi nýja plata er borin saman við það sem
heyra má á Rokk í Reykjavík þá kemur
þessi kúvending greinilega í ljós. Þetta er
eins og að bera saman svart og hvítt.
Eins og fyrr segir þá er þessi nýja plata í
anda „futurista" eða „nýrómantíkur“ og
verður ekki annað sagt en þeim takist að ná
þessum stíl bærilega þótt finna megi ýmsa
byrjenda-galla á plötunni. Þeim tekst ekki
að ná því „soundi" sem gjarna fylgir þessari
tegund tónlistar. Ýmsir góðir punktar eru á
plötunni og kom hún mér nokkuð á óvart
því ég átti ekki von á neinu sérstöku úr
þessari átt.
Hljóðgervillinn og trommuheilinn, sem
eru í höndum Árna, eru nokkuð áberandi í
tónlistinni. Þeir Gunnþór og Danny Poll-
ock skila sínum hlutverkum ágætlega, en sú
spretta
sem kemur mest á óvart er Ellý. Hún er hin
þokkalegasta söngkona þegar allt kemur til
alls og mun betri en ég hafði gert mér grein
fyrir.
Textarplötunnar eru svona upp og ofan,
sumt finnst mér ansi lélegt en innan um eru
þokkalegir sprettir og góðar hugmyndir
sem hefði mátt vinna betur úr.
Þeir hald’ð heimurinn sé fyrir sig
skilja ekki annað en ég um mér um mig
Haleluja þeir syngja svo um sig
vita ekki afhverju Guð hann bjó þá til.
Svo sannarlega drepast fyrir þig
hundrað milljón manns sem
þér kemur ekkert við
svo vœla allir „Ó Guð, ó gef oss frið“
En vita ekki afhverju þarf að hreinsa til.
(PLO)
Þó hugmyndin sé ágæt á bak við þennan
texta þá er framsetningin hin hörmulegasta
og hefði þurft að leggja meiri alúð við texta-
gerðina en hér er gert. Nú veit ég ekki
hvaða afstöðu Q4U hafa til texta, en svona
illa unnir textar setja dökkan blett á
plötuna.
Þessi frumraun Q4U er annars hin þokk-
alegasta og eins og minnst hefur verið á
mun betri en ég bjóst við úr þessum herbúð-
um.
jys
úr
spori
Cream á kveðjuplötu sinni árið 1969,
frægasta hljómsveit sem Clapton hefur
starfað með: bassaleikarinn Jack
Bruce, Eric Clapton og Ginger Baker
trommuleikari. Þeir sem spila með Eric
Clapton á nýju plötunni eru: gitaristinn
Ry Cooder, Albert Lee á gítar og hljóm-
borð, Roger Hawkins á trommur og
Donald „Duck“ Dun á bassa.
Lifandi tónlist
með Eric Clapton
(...bara eitt vangalag)
Clapton is God (Clapton er Guð)
var skrifað á ófáa veggi í London og
hrópað á konsertum Cream og síðar
annarra hljómsveita Erics Clapton
beggja vegna ársins 1970, og heyrist
sjálfsagt á hljómleikaferðalagi því
sem Eric Clapton er nú á í henni Am-
eríku, að kynna nýjustu plötu sína,
Money And Cigarettes. Aldrei hef ég
verið í tölu þeirra sem tilbiðja og
dýrka Eric Clapton svo gífurlega,
enda hægt að meta snilld dauðlegra
manna áður en svo langt er gengið.
Og Eric Clapton er snillingur á gítar-
inn ekki bara akróbat eins og svo
margir rokkgítaristar, heldur líka
túlkandi og undirleikari.
Á Money And Cigarettes eru 10 lög
í blúsuðum rokkstíl, eitt þeirra
(Pretty Girl) er þó það rólegt að telja
verður til vangadanslags (kjálkadans-
ur segja þeir í Færeyjum), en
hljóðfæraleikur og samspil allt á plöt-
unni er algjör kennslustund i „brtlj-
ant“ einfaldleika og sá er algjör
drumbur sem ekki langar að dansa
við þessa knýjandi, taktföstu, en lipru
músík.
Mesti „rokkarinn" á plötunni er lag
Glaptons Aint Going Down (Ég ætla
mér ekki að gefast upp/fara í skítinn)
og minnir mjög á lag Bobs Dylan All
Along The Watchtower í flutningi
Jimis Hendrix. Að vísu er Hendrix ]
nær Guðatölunni í mínum huga - og
eyrum - heldur en Clapton, var það j
m. a. s. áður en hann varð enginn... >
eða kvaddi þennan heim 1970. En
það er nú önnur saga.
Eric Clapton á líklega að baki lit- j
ríkasta feril núlifandi rokkgítarista: 1
Yardbirds,' John Mayall, Cream,
Blind Faith, Plastic Ono Band, Del-
aney, Bonnie and Friends, Derek and
The Dominos. Þá hefur hann leikið
inn á plötur með Bítlunum, Frank
Zappa, Leon Russel, Steve Stills og
ótal fleiri.
Það var á Yardbirds-árunum
(1965) sem Clapton fór að fá á sig
Guðs-nafnið og lengst mun sú dýrkun
hafa gengið á Cream-tímabilinu.
Sjálfur hefur Clapton alltaf verið lítt
gefinn fyrir að stela senunni frá
meðspilurum sínum og reynt að fela
sig í hinum og þessum Hljómsveitum,
telur sig enda músíkant fyrst og
fremst. Persónuleg vandamál hafa
einnig háð honum, og rúmum hálfum
8. áratugnum eyddi hann í að venja
sig af heróínfíkn og tókst með hjálp
nálarstunguaðferðar og góðra vina.
Tveir textanna á þessari nýju plötu
hans eru gegn alkóhól- og dópisma:
Aint Going Down og The Shape Yo-
u’re In (Astandið sem þú ert í)... og
það er á hreinu að Money And Ciga-
rettes er einfær um að koma mér í
stuð...
A.
SATT - Ýmislegt happdrœtti..
Satt hefur staðið í ströngu sl.-ár
undir forystu Jóhanns G. Jóhanns-
sonar til eflingar lifandi tónlistar.
T.d. var í samvinnu við veitingahúsa-
eigendur efnt til lifandi tónlistarhelg-
ar fyrir skömmu, og komu þá fram
hljómveitir, ein eða fleiri, á öllum
veitingahúsum borgarinnar. Mjög vel
tókst til með þetta framtak, veitinga-,
hljómlistar- og útiaðskemmtasér-
menn allir hinir ánægðustu, og ekki
dró það úr Satt-mönnum að fjármál-
aráðherra, Ragnar Arnalds, gaf Satt
eftir skatt af hluta hvers aðgöngu-
miða (þ.e. því sem var fyrir ofan
rúllugjaldið), sem nam tæplega 70
þúsund krónum.
Sjónvarpið er hins vegar ekki eins
hlynnt lifandi músík og ráðherra AI-
þýðubandalagsins, en það hefur ekki
enn gert sig líklegt til að kaupa Mús-
íktilraunaþáttinn sem Satt lét taka í
Tónabæ, né heldur sallafínan þátt
með Bubba og Egóinu. Það má segja
að nýjasta innheimtuauglýsing sjón-
varpsins túlki vel þann hug sem rokk-
áhugafólk ber til sjónvarpsins: að það
sé að fleygja peningum með því að
borga afnotagjöld til stofnunar sem
gerir lítið sem ekkert í þágu íslenskrar
rokktónlistar... en snúum okkur að
gleðitíðindum, þ.e.a.s. fyrir suma,
vinningsnúmerum í Byggingarhapp-
drætti Satt (við byrjum á 1. vinningi
o.s.frv.):
10309, 24549, 48847, 9125, 1559,
44357, 37984, 8494, 9359, 6739, 493,
4893, 4565, 2352, 6545, 4913, 27790,
22704,- 22990, 17839, 21492, 19312,
7180, 43985, 24501, 8958, 3349.
Birt án ábyrgðar.. A
Pretenders: Pete Farnaon, Martln
Chambers, Crissie og James
Honeyman-Scott.
Gamli Kinksarinn Ray Davis (t.v.) f. 21.
6. 1944, og Crissie Hynde í Pretenders
eignuöust eitt stykki döttur í janúar. Á
innfelldu myndinni sjáum við (a. m. k.
m/stækkunargleri) hina upprunalegu
Pretenders
hugsa sér til
hreyfings
Ýmislegt hefur drifið á daga hljóm-
sveitarinnar Pretenders, allt frá
dauðsfalli til fæðingar: í fyrra lést gít-
arleikari þeirra, James Honeyman-
Scott, úr hjartaslagi - afrakstur sam-
neytis hans við Bakkus; þann 22. jan-
úar sl. eignaðist Crissie Hynde,
söngvari, gítarleikari og lagasmiður
Pretenders, 14 marka dóttur, afrakst-
ur samneytis þeirra Crissiear og Rays
Davis í Kinks. Fjölskyldan kvað búa í
lukkunnar velstandi í London. Kynni
þeirra hófust eftir að Pretenders
höfðu gefið út á plötum tvö lög eftir
Ray Stop Your Sobbing og I Go
Sleep. Pretenders hugsa sér til
hreyfings í apríl og stefna á nýja plötu
(sína 3.), vídeóupptökur og hljóm-
leikaferð. Um þessar mundir er ofar-
lega á amrískum vinsældarlistum lag
þeirra Back On The Chain Gang sem
gefið var út á lítilli plötu sl. haust, en
lagið er í kvikmyndinni The King Of
Comedy (Jerry Lewis o.fl., var sýnd í
Bíóhöllinni) og líka að finna á plöt-
unni með músíkinni úr þeirri kvik-
mynd.
Crissie Hynde og trommarinn
Martin Chambers eru ein eftir af hin-
um upprunalega Pretenders en til liðs
við þau koma nú bassaleikarinn
Malcolm Foster (úr Foster Brothers)
og vinur hans gítarleikarinn Robbie
Mclntosh (úr Knights, og fyrrum vin-
ur James Honeyman-Scott).
A.
Jón Viðar
Andrea