Þjóðviljinn - 19.03.1983, Page 24
24 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 19.-20. mars 1983
Ég tel mig stundum vera menn-
ingarmann þó að líklega sé það of
djúpt í árinni tekið. Þegar ég fer á
málverkasýningar horfi ég með
spekingssvip þess sem vitið hef-
ur, þegar ég fer á tónleika hlusta
ég með andakt hins upphafna og
þegar ég hlýði á ljóð set ég upp
pókersvipinn.
í erlendum stórborgum þeysist
ég á milli safna, sýningarsala og
samkomuhúsa og segi svo óspart
frá þegar ég kem heim. Já, ég sá
nú þetta leikrit í New York, fór á
þessa tónleika í París og leit inn á
þessa málverkasýningu í Amster-
dam. Svona er ég nú mikill menn-
ingarkarl, fullgildur í kúltúrklík-
unum og þykir jafnvel upphefð í
því að vera kailaður mennta-
snobb.
Samt er það nú svo að um flest-
ar helgar ligg ég í leti, flatmaga
fyrir framan sjónvarpið eða
drekk brennivín. Þegar állt kem-
ur til alls er ég líklega jafn mikill
plebbi og mig grunar undir niðri.
Um síðustu helgi hefði ég t.d.
getað séð Fröken Júlíu hjá Grán-
ufjelaginu, Forsetaheimsóknina í
Iðnó, Oresteiu í Þjóðleikhúsinu,
Sjúka æsku í Nemendaleikhús-
inu, Galdra-Loft í MS, Bubba
kóng í Hafnarfirði og Mikadó í
óperunni. Ég hefði getað horft á
myndir Jóhönnu Bogadóttur í
Norræna húsinu, Erlu B. Axels-
dóttur í Ásmundarsal, Sigrid
Valtengojer í Gallerí Langbrók,
Margrétar Guðmundsdóttur í
Listmunahúsinu, Erlu Ólafsdótt-
ur í Gallerí Lækjartorgi, Felix
Rozen í Nýlistasafninu og þeirra
Kristjáns og Ólafs í Listasafni
ASÍ. Ég hefði líka getað farið á
djass í Stúdentakjallaranum eða
Lúðrasveit verkalýðsiris í Há-
skólabíói. Ég hefði getað farið
á uppbyggilega kvikmynd og
margt annað. En ég fór hvergi.
Þess í stað fór ég á árshátíð í
félagsheimili Hestamannafélags-
ins Fáks, dansaði þar og djöfl-
aðist og man aðeins óljóst eftir
heimferðinni. Á sunnudag svaf
ég til hálf-fjögur og húkti svo til
kvölds. Ég hafði varla kraft í mér
til að flatmaga fyrir framan sjón-
varpið og er þá Bleik brugðið.
Já, ayona er ég. Annars er það
nú einhvern veginn svo, að oft
leita menn langt yfir skammt. Ég
ólst t.d. upp í Skólavörðuholtinu,
í næsta húsi við Listasafn Einars
Jónssonar, en ekki kom ég inn
fyrir dyr í því húsi fyrr en ég var
orðinn fullorðinn. Ef þetta safn
hefði hins vegar verið í Osló hefði
ég vafalaust látið verða mitt
fyrsta verk að fara skoða það í
vikuheimsókn í þá borg.
í nokkur ár átti ég heima úti á
landi. Þá gerði ég mér sérstaka
ferð til Reykjavíkur þegar lista-
hátíð stóð yfir og sá bókstaflega
allt sem þar fór fram. Einu sinni
fór ég m.a.s. tvö kvöld í röð til að
hlýða á Lundúnasinfóníuna. En
nú eftir að ég er sestur um kyrrt á
ný f höfuðborginni rétt dregst ég
kannski á eina tónleika og eina
sýningu á listahátíð.
Ég er þó líklega ekki sérfyrir-
bæri, heldur sannkallað alheims-
fyrirbæri. Ég hef nefnilega oft
tekið eftir því, að þegar ég er
e.t.v. búinn að kemba öll söfnin í
einhverri erlendri borginni og
hitti svo heimamann, hefur hann
aldrei stigið fæti sínum inn fyrir
þröskulda þessara safna. „Það er
skömm að þessu“, segir hann
kannski, „en ég hef þó tímann
fyrir mér. Ég fer einhvern ttma
við tækifæri".
Já, svona hugsar maður. En
um þessa helgi dríf ég mig
eitthvað.
-Guðjón
Oger
pá
Bleik
brugðið
sunnudagskrossgátan
Nr. 363
1 Z 3 5j iP 7~~ 9 3 /o 1/ 12. 7
9 JS )¥■ lso !(p /7 12 !Z T~ 02 2 12 /9 2d
3 U? 17- t/ 'b 8 9 (~Y~ V ¥ T~ 22 23 >9 ' y Sz
ZJ V isr 5? 21 12 22 12 l(p 11* V 9 /4 H
22 18 J2 22 V )(> zU- /9 JS 2T 2( *. > y1 V
n )sr £ 2/ 2(t> 21 21 20 5? 22 7 2Ú ¥ 20 Up
// 12 7 12 2 Z V 9 2k> 7 12 rt 02 Xl 3
/9 V 9 2 3 7 52 U ZO ) (p 21 20 V ?9
sr V W~ V (? )(? /(f 8 V H !& 3o 12
Zo £ 30 V 7- T~ 7ö~ 9 & 21 8 V
Nr V zo zs ■ 52 + 12 7 8 21 Zo v Z! 1Z 2 3V
/o 8 22 jZ 2o 'V 12 19 Td~ 52 17 /2 22 é
3 9 io 52 9 2S 9 52 22 6“ 3 52 + 9 3/
AÁBDOEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá nafn á
fuglategund sem eipkum heldur sig í sunnanverðri Évrópu. Sendið
þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla 6,
Reykjavík, merkt „Krossgáta nr. 363“. Skilafrestur er þrjár vikur.
Verðlaunin verða send til vinningshafa.
28 22 Z? 11 Z 2/ 2 7
Stafirnir mynda íslensk orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort
sem lesið er lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnr er sá að
finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp, því
með því eru gefnir stafir í allmörgur orðum. Það eru því eðlilegustu
vinnubrögðin að setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir því sem
tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, að í þessari
krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sérhljóða og
breiðum, t.d. getur-aldrei a komið í stað á og öfugt.
Verðlaunin
Verðlaunin fyrir krossgátu
nr. 359 hlaut Sjöfn Gunnars-
dóttir, Sogavegi 38, 108
Rvík. Þau eru bókin Freud
fyrir byrjendur.
. Verðiaunin að þessu sinni er
bókin íslandsráðherrann í
tugthúsið eftir Jón Sigurðs-
son.
ÍSIANDS-
RÁÐHERRANN
1TUGTHÚSH)
jóN sscimyssoN
Sa&ím af Alberli ogævmtyrum hans