Þjóðviljinn - 19.03.1983, Side 29
Helgin 19.-20. mars 19831 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 29
sjonvarp
Sjónvarp sunnudag:
Gluggað
í ýmislegt
Sveinbjörn I. Baldvinsson er
umsjónarmaður Gluggans á sunnu-
'daginn. f þættinum verður nýja
menningarmiðstöðin við Gerðu-
berg í Breiðholti III skoðuð, og
rætt verður við Markús Örn Ant-
onsson, borgarfulltrúa, Elfu Björk
Gunnarsdóttur og Elísabetu Þóris-
dóttur um miðstöðina og notkun
og þýðingu hennar.
Sýnd verða atriði úr nýjustu ís-
lensku kvikmyndinni, sem hlotið
hefur mjög góða dóma í blöðum.
Myndir heitir Húsið, og aðstand-
endur hennar eru Egill Éðvarðsson
og Snorri Þórisson, og munu þeir
spjalla um myndina.
Fjallað verður um sýningu
Þjóðleikhússins á Óristeiu eftir
gríska harmleikjaskáldið Eskýlos.
Sýnt verður atriði úr leiknum og
rætt við Svein Einarsson.
Þá flytja djasstónlist þeir Ernie
Wilkins, Rúnar Georgsson, Guð-
mundur Ingólfsson, Tómas R. Ein-
arsson, Guðmundur Steingrímsson
og Vernharður Linnet.
-ast
utvarp
laugardagur
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Tón-
leikar. Pulur velur og kynnir.
7.25 Leikfimi
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgun-
orö: Pétur Jósefsson talar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Lóa Guðjóns-
dóttir kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10 Veö-
urfregnir).
11.20 Hrímgrund - Útvarp barnanna.
Blandaður þáttur fyrir krakka. Stjórn-
andi: Sólveig Halldórsdóttir.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veöurfregnir. Til-
kynningar. íþróttaþáttur Umsjónar-
maður: Hermann Gunnarsson. Helg-
arvaktin Umsjónarmenn: Arnþrúður
Karlsdóttir og Hróbjartur Jónatansson.
15.10 í dægurlandi Svavar Gests rifjar upp
tónlist áranna 1930-60.
16.20 Þá, nú og á næstunni Fjallað um sitt-
hvað af því sem er á boðstólum til af-
þreyingar fyrir börn ogunglinga. Stjórn-
andi: Hildur Hermóðsdóttir.
16.40 íslenskt mál Margrét Jónsdóttir sér
um þáttinn.
17.00 Frá kammertónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar íslands í Menntaskólanum
við Hamrahlíð 17. þ.m. Stjórnandi:
Mark Reedman Leikin verða verk eftir
Mozart, Dvorák, Stravinsky og Elgar. -
Kynnir Jón Múli Árnason.
19.35 Á tali Umsjón: Helga Thorberg og
Edda Björgvinsdóttir.
20.00 HarmonikuþátturUmsjón: Sigurður
Alfonsson.
20.30 Kvöldvaka a. „í heiðadalnum var
heimabyggð mín“ Þorsteinn Matthías-
son segir frá Sigurði Rósmundssyni frá
Gilsstöðum í Selárdal og les Ijóð eftir
hann. b. „Eldur og eldamennska“ Hall-
gerður Gísladóttir lýkur frásögn sinni.
c. „Halldóra á Þverá“ Rósa Gísladóttir
frá Krossgerði les ljóð um konu Víga-
Glúms eftir Helgu Halldórsdóttur frá
Dagverðará. d. „Dagbók úr strandferð“
Guðmundur Sæmundsson byrjar lestur
ferðalýsingar sinnar.
21.30 Gamlar plötur og góðir tónar Har-
aldur Sigurðsson sér um tónlistarþátt
(RÚVAK).
22.40 „Svikin“, smásaga eftir Per Gunnar
Evander Jón Daníelsson þýðir og les
fyrri hluta.
23.05 Laugardagssyrpa - Páll Þorsteinsson
og Porgeir Ástvaldsson.
sunnudagur
8:00 Morgunandakt Séra Robert Jack
prófastur, Tjöm Vatnsnesi, flytur ritn-
ingarorð og bæn.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
8.35 Morguntónleikar.
10.25 Út og suður Þáttur Friðriks Páls
Jónssonar.
11.00 Messa þjá Hjálpræðishernum Ingi-
björg Jónsdóttir, brigader, predikar.
Kapteinn Daníel Óskarsson stjórnar.
Hádegistónleikar
12.10 Dagskrá. Tónleikar. Frá liðinni viku
Umsjónarmaður: Páll Heiðar Jónsson.
14.00 Leikrit: „Ótrúleg saga“ eftir Claude
Aveline. (Áður útv. 1958). Þýðandi og
leikstjóri: Þorsteinn Ö. Stephensen.
Leikendur: Lárus Pálsson, Þorsteinn Ö.
Stephensen og Helga Valtýsdóttir.
15.00 Richard Wagner- V. þáttur 'Nift-
ungahringurinn - Ragnarðk Umsjón:
Haraldur G. Blöndal.
16.20 Um kór og skip. íslensk kirkjulist.
Bjöm Th. Björnsson listfræðingur flytur
sunnudagserindi.
17.00 Síðdegistónleikar
18.00 „Andandi“ Höfundur: Kristján
Hreinsmögur. Andri Örn Clausen les
nokkur ljóð úr samnefndri bók
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.25 Veistu svarið? - Spurningaþáttur út-
varpsins á sunnudagskvöldi Stjórnandi:
Guðmundur Heiðar Frímannsson.
Dómari: Gísli Jónsson menntaskóla-
kennari. Til aðstoðar: Þórey Aðal-
steinsdóttir (RÚVAK.)
20.00 Sunnudagsstúdíóið - Útvarp unga
fólksins Guðrún Birgisdóttir stjórnar.
20.45 Nútímatónlist Þorkell Sigurbjörns-
son kynnir.
22.05 Tónleikar
22.35 „Svikin“, smásaga eftir Per Gunnar
Evander Jón Daníelsson les síðari hluta
þýðingar sinnar.
23.00 Kvöldstrengir Umsjón: Helga Alice
Jóhanns. Aðstoðarmaður: Snorri
Guðvarðsson (RÚVAK).
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
21.30 Kynni mín af Kína Ragnar Baldurs-
son segir frá.
mánudagur
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Séra
Sigurður Helgi Guðmundsson flytur
(a.v.d.v.9. Gull í mund - Stefán Jón
Hafstein - Sigríður Árnadóttir - Hildur
Eiríksdóttir. 7.25 Leikfimi. Umsjón:
Jónína Benediktsdóttir.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgun-
orð: Rut Magnúsdóttir talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Vefurinn
hennar Karlottu“ eftir E. B. White
Ragnar Þorsteinsson þýddi. Geirlaug
Þorvaldsdóttir lýkur lestrinum (22).
9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Landbúnaðarmál Umsjónarmaður:
Óttar Geirsson.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forust-
' ugr. landsmálabl. (útdr.).
11.00 „Ég man þá tíð“ Lög frá liðnum
árum. Umsjón: Hermann Ragnar Stef-
ánsson.
11.30 Lystauki Þáttur um lífið og tilveruna
í umsjá Hermanns Arasonar
(RÚVAK).
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
Mánudagssyrpa - Ólafur Þórðarson.
14.30 „Vegurinn að brúnni44 eftir Stefán
Jónsson Þórhallur Sigurðsson les (26.)
15.00 Miðdegistónleikar Dieter Klöcker
og Waldemar Wandel leika Sónötu
fyrir tvær klarinettur eftir Gaetano
Donizetti/Melos-kvartettinn leikur
Strengjakvartett í f-moll op. 80 eftir Fel-
ix Mendelssohn.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.20 Miðdegistónleikar
17.40 Hildur - Dönskukennsla 9. kafli -
„Velfærdssamfundet“; fyrri hluti.
17.55 Skákþáttur Umsjón: Guðmundur
Arnlaugsson.
18.20 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
,19.35 Daglegt mál Árni Böðvarsson flytur
þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn Jónas Guð-
mundsson rithöfundur talar.
20.00 Lög unga fólksins. Þórður Magnús-
son kynnir.
,20.40 Anton Webern - 3. þáttur Atli
' Heimir Sveinsson ræðir um tónskáldið
og verk hans.
21.10 Einsöngur: Jussi Björling syngur Iög
eftir Henry Geehl, Stephen Foster,
, D’Hardelot, Francesco Tosti o.fl. með
hljómsveitarundirleik; Nils j Grevilhus
stj.
21.00 Útvarpssagan: ,JMárus á Vaksftuumri
og meistari Jón“ eftir Guðmund G. Hag-
alín Höfundur les. (7).
122.15 Lestur Passáusáhna (43) Lesari: Krist-
inn Hallsson.
.22.40 „Gönguferðin“ smásaga eftir Normu
E. Samúelsdóttur Höfundur les.
23.00 Franskar flugur Maurice Chevalier,
Nina Simone, Jo Basile og hljómsveit og
Jacques Brel syngja og leika.
23.20 „Lýðveldi þagnarinnar“ og „Stríðs-
lok“, erindi eftir Jean Paul Sartre Sig-
urður A. Friðþjófsson les þýðingu sína
og flytur formálsorð.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
sjonvarp
laugardagur_______________________
16.00 íþróttir Umsjónarmaður Bjarni Fel-
ixson.
18.00 Hildur Níundi þáttur dönsku-
kennsiu.
18.25 Steini og Olli Skopmyndasyrpa með
Stan Laurel og Oliver Hardy.
18.45 Enska knattspyrnan
19.45 Frcttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Þriggjamannavist Fjórði þáttur.
Breskur gamanmyndaflokkur um
þrenninguna Tom, Dick og Harriet.
Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir.
21.00 Seðlar (Dollars) Bandarísk bíómynd
frá 1971. Leikstjóri Richard Brooks.
Aðalhlutverk: Warren Beatty, Goldíe
Hawn og Gert Frobe. Öryggissér-
fræðingurog vinkona hans skipuleggja
óvenjulegt rán úr bankahólfum manna
sem hafa auðgast á glæpastarfsemi. Þýð-
andi Dóra Hafsteinsdóttir.
23.00 Hud Endursýning - Bandarísk bíó-
mynd frá 1963. Leikstjóri Martin Ritt.
Aðalhlutvcrk: Paul Newman, Patricia
Neai og Melvyn Douglas. Hud er sonur
nautgripabónda í Texas. Þeir feðgar
eiga ekki skap saman enda er gamli
maðurinn mesti heiðursmaður en sonur-
inn ónytjungur, drykkfelldur og laus í
rásinni. Þó dregur fyrst til tíðinda þegar
gin- og klaufaveiki gýs upp í hjörðinni.
Þýðandí Björn Baldursson. Áður á dag-
skrá Sjónvarpsins vorið 1975.
00.40 Dagskrárlok
sunnudagur
16.10 Húsið á sléttunni Lokaþáttur. Seiður
hafsins Þýðandi Óskar Ingimarsson.
17.00 „O, mín flaskan fríða“ Endursýning
-Síðari þáttur um áfengissýki. Umsjón-
armenn: Helga Ágústsdóttir og Magnús
Bjarnfreðsson.
18.00 Stundin okkar Umsjónarmaður
Bryndís Schram Upptöku stjórnar Við-
ar Víkingsson.
18.50 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Sjónvarp næstu viku Umsjónarmað-
ur Magnús Bjarnfreðsson.
16.00 Sunnudagshugvekja Séra Þórhallur
Höskuldsson flytur.
20.50 Glugginn Þáttur um listir, menning-
armál og fleira. Umsjónarmaður
Sveinbjörn I. Baldvinsson.
21.35 Kvöldstund með Agöthu Christie
Lokaþáttur. í óljósri mynd Aðalhlut-
verk: Nichoias Clay og Emma Piper.
Ástarsaga úr fyrri heimsstyrjöld um vá-
legan fyrirboða sem seint fæst rétt
ráðning á. Þýðandi Dóra Haf-
steinsdóttir.
22.25 Að yúka upp ritningunum Fyrsti
þáttur af fjórum um Biblíuna. Séra
Guðmundur Þorsteinsson, prestur í Ár-
bæjarsókn, fjallar um Biblíuna frá ýms-
um hliðum og rætt verður við Sigurbjörn
Einarsson, fyrrum biskup, um áhrif
hennar hér á landi fyrr og nú. Upptöku
stjórnar Maríanna Friðjónsdóttir.
(Annar þáttur verður á dagskrá 29.
mars).
22.50 Dagskrárlok
mánudagur
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 íþróttir Umsjónarmaður Bjami Fel-
ixson.
21.20 Já, ráðherra 6. Engan varðar allt að
vita Breskur gamanmyndaflokkur. Þýð-
andi Guðni Kolbeinsson.
21.50 Móna Ný bresk sjónvarpsmynd.
Leikstjóri Robert Knights. Aðalhlut-
verk: Frank Finlay og Deborah Stokes.
Myndin lýsir vináttu einmana, roskins
liðsforingja úr fýrra stríði og unglings-
stelpu. Þýðandi Kristmann Eiðsson.
22.45 Dagskrárlok
Útvarp á
fimmtudögum
Anna Kristín Arngrímsdóttir og Róbert Arnfinnsson í hlutverkum sínum í
.Óristeiu, en gluggað verður í það leikrit í Glugganum á sunnudaginn.
Neytenda-
mál
Neytendamál heitir vikulegur
þáttur, sem hóf göngu sína í vetur í
umsjá Önnu Bjarnason, Jóhannes-
ar Gunnarssonar og Jóns Ásgeirs
Sigurðssonar. Hann er á útvarps-
dagskránni á fimmtudögum kl.
18.00 og stendur í 10 mínútur ná-
kvæmlega.
Anna Bjarnason verður umsjón-
armaður þáttarins n.k. fimmtudag.
Hún kvaðst að öllum líkindum taka |
fyrir merkingar á lyfjum hér á landi
og ræða við lyfsala um málið. Það
getur þó breyst - en hvað sem verð-
ur er hitt víst að fróðlegur verðuri
þátturinn, það getum við dæmt
sem hlustað höfum.
Núna stendur yfir söfnun nýrra
félaga í Neytendasamtökin í
landinu en þau eiga 30 ára afmæli
um þessar mundir. Misjafnlega
hefur starfið gengið, en Anna segir
það allt á uppleið nú. Það gerist æ
oftar að samtökunum eru send mál
til umsagnar, m.a. frá Alþingi ís-
lendinga.
Þeir sem áhuga hafa á félags-
skapnum geta snúið sér til skrif-
stofu Neytendasamtakanna að
Austurstræti 6 og síminn er 21666.
„Við erum núna um 4 þúsund
um allt land,“ segir Anna Bjarna-
ison. „En við þyrftum að vera 40
þúsund - þá væri þetta fínt.“
Og við hvetjum hér með alla til
að leggja hönd á plóginn í þágu 'r
neytendamála - því ef þetta eru
ekki þörf samtök þá veit ég ekki
hvaða samtök eru þörf í þessu
landi. - ast
Goldie Hawn leikur vinkonu örygg-
issérfræðings í myndinni Seðlar, og
skipuleggja þau bankarán með við-
eigandi spennu og eltingaleikjum.
Sjónvarp á
laugardag:
Tvœr
bíómyndir
í kvöld
Sjónvarpið sýnir í kvöld, laugar-
daginn 19. mars, tvær þokkalegar
bíómyndir. Sú fyrri heitir Seðlar og
er bandarísk frá árinu 1971. Sú síð-
ari ber nafnið Hud og er endur-
sýnd, en hún er einnig bandarísk,
árgerð 1963.
I Seðlum leika þau Warren Be-
atty og Goldie Hawn öryggissér-
fræðingog vinkonu hans.og skipu-
leggja þau rán úr bankahólfum
manna, sem hafa auðgast á glæp-
astarfsemi. Handbókin gefur henni
eina stjörnu og segir kvikmynda-
töku og leikstjórn mjög ábótavant,
en handritið sosum lala.
í Hud leikur hinn ægifagri Paul
Newman son nautgripabónda í
Texas. Þeir feðgar eiga ekki skap
saman - faðirinn er heiðursmaður
hinn mesti, en sonurinn hálfgerður
ónytjungur og æði laus í rásinni.
Handbókin gefur henni þrjár
stjörnur fyrir frábæra myndatöku
og enn frábærari leik, og segir hana
vanta lítið upp á meistarastykki.
-ast