Þjóðviljinn - 19.03.1983, Side 31
Helgin 19.-20. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 31
Frambjóðendur G-LISTANS í Reykjavík koma saman
Siya Aðalsteinsdóttir, Ragna Ólafsdóttir, Guðrún Helgadóttir og Álfheiður Ingadóttir.
Ljósm. - eik. .
Þráinn Bertelsson, Huida S. Ólafsdóttir, Esther Jónsdóttir, Þorsteinn Blöndal og Ólafur R.
Grímsson. Ljósm. - eik.
Miðstjórn
afgreiðir
kosninga-
stefnuskrá
Nú um helgina mun miðstjórn
Alþýðubandalagsins ganga frá
kosningastefnuskrá G-listans, sem
hefur fengið umfjöllun í öðrum
flokksstofnunum að undanförnu.
Kosningaslagurinn er hafinn, - og á
fimmtudag hittust flestir þeir sem
skipa G-listann í Reykjavík í Lækj-
arbrekku til að bera saman bækur
sínar. Voru myndirnar sem hér
fylgja teknar við það tækifæri.
G-listinn í Reykjavík
Á félagsfundi ABR s.l. miðviku-
dag var framboðslistinn í Reykja-
vík samþykktur einróma. Hann er
svo skipaður:
1. Svavar Gestsson, alþingis-
maður og formaður Alþýðubanda-
lagsins 2. Guðmundur J. Guð-
mundsson, alþingismaður og for-
maður Verkamannasambands ís-
lands 3. Guðrún Helgadóttir, al-
þingismaður og rithöfundur 4.
Ólafur Ragnar Grímsson, alþingis-
maður og stjórnmálafræðingur 5.
Grétar Þorsteinsson, formaður
Trésmiðafélags Reykjavíkur 6.
Guðrún Hallgrímsdóttir, matvæla-
verkfræðingur 7. Margrét S.
Björnsdóttir, kennari 8. Alfheiður
Ingadóttir, blaðamaður 9. Arnór
Pétursson, fulltrúi, formaður í-
þróttafélags fatlaðra 10. Ragna Ól-
afsdóttir, formaður Kennarafélags
Reykjavíkur 11. Hallgrímur G.
Magnússon, formaður Sveinafé-
Flokksmiðstöðin sýnd
í dag og á morgun:
Allir
velkomnir
Nú um helgina verður hin nýja
flokksmiðstöð Alþýðubandalagsins
til sýnis, laugardag og sunnudag
milli kl. 14 og 16. Mun Sigurjón
Pétursson og fleiri sem vinna að
framkvæmdum og fjársöfnun
vegna flokksmiðstöðvarinnar sýna
húsið og boðið verður upp á kaffi.
Allir eru velkomnir og eru menn
hvattir til að nota sér þetta tæki-
færi.
lags húsgagnasmiða 12. Margrét
Pála Ólafsdóttir, varaformaður
Fóstrufélags íslands 13. Sigrún
Valbergsdóttir, leikari 14. Þráinn
Bertelsson, kvikmyndagerðar-
maður 15. Jón Reykdal myndlistar-
maður 15. Hulda Sigríður Einars-
dóttir, sjúkraliði 17. Ragnar A.
Þórsson, verkamaður 18. Esther
Jónsdóttir, varaformaður Starfs-
mannafélagsins Sóknar 19. Þor-
steinn Blöndal, læknir 20. Þor-
leifur Einarsson, jarðfræðingur,
formaður Landverndar 21. Silja
Aðalsteinsdóttir, bókmennta-
fræðingur 22. Hallgrímur Guð-
mundsson, stjórnmálafræðingur
23. Steinn Halldórsson, verslun-
armaður og 24. Einar Olgeirsson,
fyrrverandi alþingismaður.
G-listinn í Reykjavík samþykktur einróma:
__
Urslit kosninganna
ráðast í Reykjavík
Ætlum okkur að ná fjórum mönnum inn,
sagði Svavar Gestsson, fyrsti maður á G-listanum
„Með samþykkt þessa lista hefur Alþýðubandalagið í
Reykjavík hafíð kosningabaráttuna. Reykjavík er
auðvitað aðeins eitt af kjördæmunum átta, en þó ráða
úrslitin hér niðurstöðum kosninganna að langstærstum
hluta“, sagði Svavar Gestsson, formaður Alþýðu-
bandalagsins og efsti maður á lista þess á félagsfundi
ABR, þar sem G-listinn var samþykktur einróma og
með dynjandi lófaklappi.
„Þessi framboðslisti Alþýðu-
bandalagsins er til marks um það
að flokkurinn e'r í sókn og stöðugri
endurnýjun“, sagði Svavar enn-
fremur. „Á listanum er hópur for-
ystumanna samtaka launafólks og
annarra almannasamtaka sem sýn-
ir að flokkurinn skírskotar víða. List-
inn ber vitni um þá áherslu sem
við leggjum á einingu í þessari
kosningabaráttu og er gott dæmi
um þann hljómgrunn sem sá mál-
flutningur hefur þegar haft.“
Síðar í ræðu sinni sagði Svavar:
„f kosningunum 1978 unnum við
4rða þingmanninn í Reykjavík og
héldum þeirri stöðu 1979 þrátt fyrir
erfiðar aðstæður. Ég heiti á alla
stuðningsmenn Alþýðubandalags-
ins að tryggja nú með starfi sínu
fram á kjördag að við höldum
þessu 4rða sæti. Ég er sannfærður
um að ef við göngum vígreif og
bjartsýn til kosningabaráttunnar
þá getum við tryggt 4rða sætið og
það ætlum við að gera. Þegar er
hafið víðtækt kosningastarf á veg-
um Alþýðubandalagsins, - lotan
verður stutt og snörp, en vonandi
árangursrík." - ÁI
Borginni, - nýju blaði um borgarmál var dreift til Reykvíkinga á Hlemmi í gær. Útgefandi er borgarmálaráð
ABRog hér sjást þær Kristín Olafsdóttir og Adda Bára Sigfúsdóttir við dreifínguna. Blaðinu verður dreift í
borgarhverfín nú um helgina. Ljósm. -eik.
Þetta verður stutt lota og snörp en
vonandi árangursrík, sagði Svavar
Gestsson um kosningabaráttuna.
Ljósm. - eik.
Febrúarblaö Æskunnar
er komið!
- Frískt og skemmtilegt efni.
M.a.:
★ Viötöl viö Ragnhildi Gísla og
Bubba.
★ Áskrifendagetraun '83 kynnt
- glæsilegir vinningar: reiðhjól,
húsgagna- og
hljómtækjasamstæður.
★ Úrslit vinsældavals Æskunnar.
★ Bráðsmellnar sögur eftir Astrid
Lindgren og Mark Twain.
★ Og fjölmargt annað, girnilegt
og spennandi.
ÆSKAN
eitthvað fyrir alia.
Áskrifendasími 17336