Þjóðviljinn - 06.04.1983, Side 5
Miðvikudagur 6. apríl 1983 WÓÐVILJINN ■-> SÍÐA 5
„Ef álið fer.
Hr. ritstjóri.
Mitt í kosningabaráttunni er
nú komið upp mikið álitamál sem
orðið gæti sannkallað álhitamál.
Stofnun enn einna samtaka, sem
að þessu sinni nefna sig Ný
sjónarmið. En þótt þetta mál sé
algjörlega ópólitískt, vonum við
að rúm finnist í biaði yðar fyrir
eftirfarandi lítil vers, sem snerta
kjarna málsins og gætu ef til vill
veitt glænýjum sjónarmiðum
brautargengi.
Hér stöndum við með stjarfa hönd á kvið,
það stefnir allt til fjandans hreint með álið.
Svo gefist lausn þarf glæný sjónarmið,
vort gírónúmer leysir vandamálið.
Ef álið fer þá fer vort eina traust,
firrum ísal gjöldum, tollum, sköttum,
uns geislum stafar höfuð háralaust
af hundrað þúsund milljón kílówöttum.
Kristinn Einarsson
Þórarinn Eldjárn
V erkalýðssinnar vilja
ekki viðreisnarstjórn
„Ég tel ekki að Alþýðuflokkur-
inn og Alþýðubandalagið séu höf-
uðandstæðingar kosningabarátt-
unnar, þó að þú hafir nú hug á að
mynda viðreisnarstjórn með íhald-
inu“, segir Svavar Gestsson í svar-
bréfi tii efsta manns á A-listanum í
Reykjavík. Efsti maður á A-
listanum lýsti því nú nýlega yfir að
hann hefði sérstakan áhuga á að
Alþýðuflokkurinn og Sjálfstæðis-
flokkurinn mynduðu nýja
viðreisnarstjórn. Bréf Svavars er
svar við beiðni efsta manns á lista
Alþýðuflokksins um „einvígi“, og
bendir Svavar á að hann hafl full-
setna dagskrá fram að kosningum,
auk þess sem fjölmargir fundir
verði með frambjóðendum flokk-
anna fram að kosningunum.
Svavar lýkur bréfi sínu með þess-
um orðum: „Dagskráin er einfald-
lega fullsetin. Bréf þittkomof seint
- því miður. Bestu kveðjur til Jó-
hönnu".
Svavar Gestsson
Segir Svavar
Gestsson og
afþakkar boð
frá manni sem
vill nýja
viðreisnarstjórn
V erkalýðssinnar
á móti viðreisn
f bréfinu bendir Svavar á, að
verkalýðssinnar muni aldrei geta
stutt nýja viðreisnarstjórn. Þeir
minnist afleiðinga viðreisnarinnar
sálugu:
1) Alverksmiðja sem fær hundruð
miljóna í meðlag frá íslenskum
raforkunotendum.
2) Landflótti, þegar þúsundir ís-
lenskra launamanna flýðu land.
Þetta fólk er nú að koma aftur
heim á flótta frá kreppu grann-
landa okkar.
3) Atvinnuleysi, þegar sjötti til sjö-
undi hver félagsmaður verka-
lýðssamtakanna var atvinnu-
laus um hríð.
4) Neyðarástand hjá öldruðum og
öryrkjum þegar lágmarkslíf-
eyrir var helmingur þess sem
hann er í dag.
5) Nauðungarsamningar við Breta
og Vestur-Þjóðverja um að ís-
lendingar mættu ekki færa
landhelgina út úr 12 sjómilum
nema þessar þjóðir samþykktu.
Alþýðuflokkurinn sendi frá sér
fréttatilkynningar um þessa
„áskorun“ efsta manns A-listans til
Svavars í gær. Þar segir „fundurinn
var ákveðinn fimmtudaginn 7. apr-
íl kl. 20.30“, en Svavari barst
beiðnin á kveldi skírdags. Og
virðist svo sem fyrst hafi fundurinn
verið ákveðinn - og síðan haft
samband við Svavar.
-óg
Kortsnoj í banastuð!
Viktor Kortsnoj hefur, þegar
aðeins er lokið fjórum skákum af
tíu í einvíginu við Ungverjann La-
jos Portisch, nær tryggt sér sigur.
Hann hefur hlotið 3'h vinning gegn
'h vinningi Ungverjans og þarf
aðcins tvo vinninga til viðbótar í
þeim sex skákum sem eftir eru til að
innsigla sigurinn. Kortsnoj vann
fjórðu skákina sem var til lykta
leidd á sunnudaginn eftir að Port-
isch hafði leikið niður miklum yfir-
burðum í biðstöðu. Kortsnoj vann
fyrstu skák einvígisins, en 2. skák
lauk með jafntefli. Hann vann síð-
an þriðju og fjórðu skák.
Fyrrum heimsmeistari Vasily
Smyslov, sem nú er á sjötugsaldri,
hefur vinnings forskot á hinn 34 ára
gamla Robert Hubner. Sex
skákum er lokið og hefur Smyslov
náð 3‘/2 vinningi gegn 2'h. Smyslov
f
Viktor Kortsnoj.
vann þriöju skákina, en hinum hef-
ur lokið með jafntefli.
Báðir skákmennirnir eru þekktir
fyrir prúðmennsku við skákborðið
en upphaf einvígisins virðist hafa
orðið til þess að hleypa illu blóði í
keppendur. Smyslov bað um
veikindafrí í tveim fyrstu skákun-
um og því mótmælti Hubner ákaft.
Hann svaraði svo fyrir sig með því
að mæta með nuddara til leiks, sem
Smyslov þótti ekki tilheyra keppn-
inni. Fyrir vikið slettist upp á vin-
skapinn og í síðustu skákum hafa
þeir látið handabönd lönd og leið.
Allar líkur eru á því að Kortsnoj
og Kasparov mætist í næstu umferð
áskorendakeppninnar, en sigur-
vegarinn úr einvígi Smyslovs og
Húbners mætir sigurvegaranum úr
einvígi Torre og Riblis sem átti að
hefjast í gær í Alicante á Spáni.
- hól.
Klukkur
sem skrifa!
— fermingargjöfin í ár
Jáj þú færð margt skemmtilegt i STUÐ-búðinni.
Þar færö þú t.d.:
★ Klístraðar köngulær sem skríða.
★ LAST-vökvann sem gerir piötuna betri en nýja.
★ Leigðar videospólur (VHS) með Bob Marley,
Black Uhuru, Grace Jones, Joy Division, Ca-
baret Voltaire, Kid Creola, Doors, Madness,
Kate Bush, Siouxie & The Banshees og mörg-
um mörgum fleiri.
★ Flestar — ef ekki bara allar plöturnar með:
Stranglers • Doors • Tangerine Dream •
D.A.F. • Art Bears • David Bowie • P.I.L. •
Pere Ubu • John Lennon • Beatles • Rotling
Stones • Brian Eno • Kím • Mike Oldfield f
Iron Maiden • Mississippi Delta Blues'Band •
Work • Killing Joke • Misty • Defunht •
★ Vinsælustu plöturnar frá Skandinavíu.
DAVEVANRONK:
Sunday Street
Virtasti blússöngvari heims
meö sina allra bestu plötu.
RAR’s Greatest Hits
Safnplatan vinsæla meö
Clash, Tom Robinson, Stiff
Little Fingers, Elvis Costello,
Gang of 4 o.m.fl.
TIL HVERS?
fyrir hvern?
urTh^b<Jrlnn er P'ðtuKlúbb-
v«i bæn Wónusta
Þt aem aóhyllast framsæKlð
rokk.
*að .ístr
nar roKKtónllstar.
Félaaar f STUOKIÚbbnum té
reBlulega heimsendar upplýs-
Ingar um hvaða plötur eá, 4
M STUOI ' h'iómP'ótuverslun-
helstu hr- væntan,eðar plðtur,
helstu hræringar f bransanum
o.s.frv.
Aö auki fá félagar í STUDklúbbn
um afsiétt á öllum Váantum
vðrumiSTUOHþeimgetstS
S,a,dflæ,ar plötur;
pelr margvislegar plðtur á
me,fm4ttar tHboösverðl, svo
»ó®lns fátt eitt sé nefnt.
VelKomin/nl
Laugavegi 20 Sími27670
fil Áskorun til greiðenda
fasteignagjalda
í Kópavogi
Hér meö er skorað á alla þá sem eigi hafa
lokiö greiöslu fyrrihluta fasteignagjalda fyrir
áriö 1983, aö gera skil innan 30 daga frá
birtingu áskorunar þessarar.
Hinn 6. maí n.k. verður krafist nauöungar-
uppboös samkvæmt lögum nr. 49 1951 á
fasteignum þeirra er þá hafa eigi gert full skil.
Innheimta Kópavogskaupstaðar