Þjóðviljinn - 06.04.1983, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 06.04.1983, Blaðsíða 16
DWÐVIUINN Miðvikudagur 6. aprfl 1983 Fransmaður átti kalda vöku- nótt í turni Hallgrímskirkju aðfaranótt föstudagsins langa. Hrakfarir um bænadagana:_______ Lokaðist uppi í Haligríms- kirkjuturni aðfaranótt föstudagsins langa Á meðan sannkristnir vöktu næturlangt í sumum kirkjum landsins aðfaranótt fóstu- dagsins langa til þess að minn- ast pínu frelsarans, þá varð ungur fransmaður sem búsett- ur er hér í Reykjavík fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að vera lokaður uppi í Hallgrímskirkjuturni natur- langt í nístingskulda af mis- skilningi einum sarnan. Frakkinn, sem heitir Fre- deríc Tabutieux, kom hingað til lands í janúarmánuði og hefur starfao við Landspítal- ann sem sjúkraþjálfari. í viðtali við Þjóðviljann sagðist hann hafa skroppið frá vinnunni um kvöldmatar- léytið á skírdag og farið upp í turninn til þess að taka myndir því skyggni hefði verið gott. í turninum voru 5 manns fyrir þegar hann bar að, og voru þau einnig að njóta hins fagra útsýnis. Þegar Frederic ætlaði að snúatil baka voru gestirnir á burt og þegar hann ýtti á lyftuhnappinn kom í Ijós að lyftan hafði verið tekin úr sambandi. Ekki er önnur opin útgönguleið úr turninum en með lyftunni, og var hún ekki ^settT samband aftur fyrr en klukkan 10 að morgni föstu- dagsins langa. Tvflyft er uppi í turninum, og er efri hæðin óvarin af 1 gnauðandi vindum, en sú neðri er með glerjuðum gluggum óupphituð. Nístings- kuldi var um nóttina og sagðist Frederic hafa haldið á sér hita með látlausum lík- amsæfingum. Þá hefði hann eínnig notið þess að hafa inn- byrt staðgóða máltíð á Land- spítalanum áður en hann fór upp í tuminn. Frederic sagði að lokum að hann hefði tekið mikið af ljós- myndum yfir Reykjavík þessa eftirminnilegu föstunótt f hæsta kirkjuturni á íslandi. ólg. Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag tll föstudags. Utan þess tima er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aöalsími Kvöldsími Helgarsími 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 -12 er hægt að ná í algreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663 Tvennt féll í jökulsprungu á Vatnajökli: Hröpuðu 25 metra - Þetta er óneitanlega nokkur lífsreynsla en ég býst nú samt sem áður ekki við því að ég hætti að taka þátt í svona ferðalögum. Svo mælti Þorsteinn Sigurbergsson, vélstjóri á Höfn í Horna- firði, en hann varð fyrir því, ásamt Nönnu Gunnarsdóttur, að hrapa í sprungu á Vatnajökli sl. fimmtudag. mátt við. Nanna marðist töluvert og ég fékk skurð á höfuðið. En óbrotin sluppum við bæði úr þessu ferðalagi. - mhg - Við vorum þarna á ferð á jökl- inum nokkrir félagar úr slysavarna- deildinni á Höfn, eða 6 alls á fjór- um snjósleðum. Þetta átti að vera svona jöfnum höndum skemmti- og æfingaferðalag hjá okkur. - Hvar voruð þið staddir þegar óhappið vildi til? - Við vorum norðvestur af Esju- fjöllum, uppi undir Snæhettu. - Veðrið? - Það var bjart og gott veður en dugði þó ekki til, því ekkert sást móta fyrir sprungunni, hún var al- gjörlega hulin snjó. Snjór er hins- vegar óvenju lítill á jöklinum nú og þá er hætt við að yfir sprungunum sé bara örþunn hula. Samferða- menn okkar sáu þegar hvað orðið var. Þrír þeirra brugðu við og sóttu nauðsynlegan björgunarútbúnað niður í skálann við Esjufjöll en einn beið á sprungubarminum og fylgdist með okkur. - Hvað telurðu að þið hafið hrapað djúpt? - Svona 25 metra, gæti ég trúað. Þar stöðvuðumst við á snjótappa, sem vitanlega var eins og hver önn- ur tilviljun. Við losnuðum strax við sleðann, sem fór um 5 m. lengrá niður. - Hvað var dvölin í sprungunni löng? - Ég hygg að það hafi liðið svona 2 klst. frá því við hröpuðum og þar til við vorum komin aftur upp á yfirborðið. — Varla hafið þið með öllu slopp- ið við meiðsli? - Nei, ekki var það nú alveg en þó eru þau minni en búast hefði Ekkert spyrst til franska mannsins Enn hefur ekkert spurst til franska fjallgöngumannsins sem lagði í ferð yfir Vatnajök- ul þveran fyrir páskahelgina og hugðist koma til byggða í síðasta lagi á páskadag. Síðast er vitað um ferðir hans á föstudaginn langa en þá nótt gisti hann í Sigurðar- skála. Flogið var yfir jökulinn í fyrradag en engin merki sáust um ferðir Frakkans. Ekki var hægt að fljúga yfir jökulinn í gær vegna dimmviðris. Að sögn Hannesar Hafstein hjá Slysavarnafélagi íslands hefur sendiráð Frakka hér- lendis ekki óskað þess ennþá að hafin verði skipulögð leit að göngumanninum. - lg. Framsóknarmenn kynna stefnuna „Skynsamlegast að mynda verið algjört óráð og atvinnuveg- irnir hefðu ekki staðið undir þess- um kauphækkunum. í kosningaplaggi þeirra Fram- sóknarmanna er m.a. lagt til að op- inberar fjárfestingar minnki „til að skapa aukið svigrúm fyrir atvinnu- embættismannastjóm” sagði Steingrímur, Tómas Ámason mótmælti! - Ef ríkisstjórnin segir af sér og ekki tekst að mynda nýja ríkisstjórn að kosningum afstöðnum, tel ég skynsamlegt að mynda embættismannastjórn, sagði Steingrímur Hermannsson á blaðamannafundi er kosn- ingastefnuskrá Framsóknarflokksins var kynnt í gær. Tómas Árnason sagði hins vegar að hann teldi að það ætti alls ekki að mynda embættismannastjórn. Tómas Árnason sagði m.a. á blaðamannafundinum að hann teldi að samningar verkalýðs- hreyfingarinnar og atvinnurek- enda hefðu verið mjög óskynsam- legir; að samningamir hefðu hljóðað upp á 12-14% hækkanir á sama tíma og þjóðarframleiðslan dróst saman um 9%. Þetta hefði vegi“. I kósningabæklingnum sem ber heitið „festa, sókn - framtíð", er lagt til að orka landsins verði virkj- uð en ekki er orð að finna þar um raforkusölu né heldur minnst á Alusuisse-hringinn. Þá er heldur ekki minnst á herinn eða Nató í þessu plaggi. -óg Síðasta umferð í landsliðsflokki í kvöld Dan Hansson með pálmann í höndunum — en Ágúst, Hilmar, Sævar og Elvar berjast um titilinn sjálfan Þegar aðeins einni umferð er ó- lokið í landsiiðsflokki á Skákþingi íslands stendur Dan Hanson með pálmann í höndunum, hefur 1 vinning framyfir hclstu keppinauta sína eftir sigur yfir Ágúst Karissyni í biðskák sem tefld var í gærkvöldi. Sú skák var tefld í 10. umferð, en fyrir hana voru þeir Ágúst jafnir og efstir með 7 vinninga. Önnur úrslit í 10. umferð urðu þau að Sævar Bjarnason vann Halldór G. Ein- arsson, Elvar Guðmundsson vann Áskel Örn Kárason, Hilmar Karls- son vann Björn Sigurjónsson, Hrafn Loftsson vann Sigurð Daní- elsson og Magnús Sólmundarson vann Gylfa Þórhallsson. Fyrir 11. og síðustu umferð sem tefld verður í kvöld er röð efstu manna þessi: Dan 8 v., Ágúst, Hilmar, Sævar 7 v., Elvar ó'ö v. í kvöld eigast m.a. við Dan og Magnús, Ágúst og Áskell, Hilmar og Gylfi, Sævar og Elvar. Það hefur vakið nokkra athygli að samkvæmt skilgreiningu Skák- sambandsins getur Dan Hanson að vísu unnið mótið, en ekki orðið ís- landsmeistari. Hann er sænskur ríkisborgari. í Áskorendaflokki sigraði Pálmi Pétursson frá Akureyri með l'h v. af 9 mögulegum, en í opna flokkn- um sigraði Haraldur Baldurs- son,Kópavogi,fékk8v. af9mögu- legum. -hól. Úrslitaskákin? Ágúst Karlsson (til vinstri) og Dan Hansson tefia skák sína í gærkvöldi. Ljósm. -eik. Könnun hjá Vegagerölnnl Skoðanakönnun sem gerð var hjá starfsmönnum Vegagerðarinnar í Reykjavík í fyrradag leiddi í Ijós að ef kosið væri nú myndu 10 styðja Alþýðuflokkinn, 5 Framsóknarflokkinn, 5 Bandalag jafnaðarmanna, 31 Sjálfstæðisflokkinn, 13 Alþýðubandalagið og 8 kvennalistann. 27 skiluðu auðu og ógildir seðlar voru tveir. Ef aðeins er tekið tillit til þeirra sem gáfu upp afstöðu cr prósentuhlutfall framboða sem hér segir A: 14%, B: 7%, C: 7%, D: 43%, G: 18% og V: 11%. - ekh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.