Þjóðviljinn - 14.04.1983, Page 3

Þjóðviljinn - 14.04.1983, Page 3
Fimmtudagur 14. apríl 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍt)A 3 Niðurgreiðslur á raforku til húshitunar Framsókn tilbúin að „/ nefndarálitinu kemur fram að til að ná því marki að hús- hitunarkostnaður með raforku verði eigi hærrien semsvarar um 62% af húshitunarkostnaði með óniðurgreiddri olíu þarf að tryggja á þessu ári um 100 miljónir króna í niðurgreiðslur. Nefndin lagði til að helming þessa fjár yrði aflað með sérstökum orkuskatti, sem m.a. fæli í sér um 5% hækkun á hitakostnaði á svæði Hitaveitu Reykjavíkur en um helmingur væri greiddur úr ríkissjóði án sér- stakrar tekjuöflunar", sagði Kjartan Olafsson ritstjóri í samtali við Þjóðviljann. Kjartan var formaður þeirrar nefndar þingflokkanna sem skipuð var á síðasta hausti til að fjalla um tekjuöflun í því skyni að greiða nið- ur raforku til húshitunar, en niður- greiðslur þessar hófust strax á síð- asta hausti. í áliti nefndarinnar segir m.a. að hún telji eðlilegt að raforkuverð til stóriðju verði hækkað verulega og að stjórnvöld beiti öllum tiltækum ráðum í því skyni að tryggja fram- gang þeirrar kröfu nú hið allra fyrsta. Nefndin telur að veruleg hækkun raforkuverðs til stóriðju sé æskilegasta leiðin í því skyni að tryggja fjármagn til jöfnunar hús- hitunarkostnaðar. Meðan ekki hafi náðst árangur í þeim efnum verði til bráðabirgða að grípa til annara úrræða. Engin trygging hjá Framsókn „Rétt er að taka fram að Guð- og íhald ekkí leysa vandann segir Kjartan Olafsson formaður nefndar sem ræddi leiðir til tekjujöfnunar tekjuöflunar til að greiða niður raforku til húshitunar mundur Bjarnason fulltrúi Fram- sóknarflokksins í nefndinni skrif- aði að vísu undir nefndarálitið en hann tók hins vegar fram að hann hefði enga tryggingu fyrir því, að þingflokkur Framsóknarflokksins fengist til að standa að þessari eða nokkurri annarri tekjuöflun í því skyni að jafna húshitunarkostnað. Það er sú alvarlega staðreynd sem fyrir liggur með afstöðu Framsókn- arflokksins í þessum efnum. Fram- sóknarflokkurinn er sem sagt hvorki tilbúin að leita réttar okkar íslendinga gagnvart Alusuisse né heldur til innlendrar tekjuöflunar í því skyni að leysa þann ógnvænlega vanda sem kallaður hefur verið yfir það fólk sem út á landsbyggðinni býr með því að láta það borga fyrir auðhringinn Alusuisse 2h af allri þeirri miklu orku sem Landsvirjun selur Álverinu. Alger andstaða Sjálfstæðis- flokks Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í þessari nefnd, Þorvaldur Garðar Kristjánsson, skrifaði undir um- rætt nefndarálit með fyrirvara. í fyrirvara hans kemur fram að hann einn nefndarmanna var ekki tilþú- inn til að fallast á að því fjármagni sem hugsanlega fengist með hækk- un orkuverðs til stóriðju yrði af- dráttarlaust varið til lækkunar hús- hitunarkostnaðar út um landið. Hann vildi stjórn Landsvirkjunar sjálfráða um allar ákvarðanir í þeim efnum og í fyrirvara sínum lýsir hann einnig algerri andstöðu sinni og Sjálfstæðisflokksins gegn nokkurri tekjuöflun í því skyni að iækka húshiturnarkostnað út um landið. Ég vil á, að með þeirri einföldu aðgerð að hækka orkuverð til álv- ersins upp í framleiðslukostnaðar- verð gæti Landsvirkjun á samri stundu lækkað verðið til almenn- ingsrafveitnanna í landinu um nær helming og staðið sjálf jafnrétt eftir fjárhagslega“, sagði Kjartan Ólafs- son að lokum. -lg. Ráðstefna BHM hefst á morgun: Á að takmarka aðgang að háskóla? Á að takmarka aðgang að há- skóla? Þetta er ein þeirra spurn- inga, sem fjallað verður um á op- inni ráðstefnu, sem Bandalag há- skólamanna og Háskóli íslands efna til sameiginlega á föstudag og laugardag, 15. og 16. apríl, á Hótei Sögu. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Markmið og skipulag háskóla- náms“. Ráðstefnan er öllum opin. Hún hefst kl. 13:30 á Hótel Sögu, hliðarsal, föstudaginn 15. apríl. Kennarar og foreldrar í Selja- hverfi Breiðholti: Smíði flýtt Þjóðviljanum hefur borist álykt- un um húsnæðismál Scljaskóla sem samþykkt var á kennarafundi í skólanum og síðar í stjórn foreldra- félags skólans. Ályktunin hljóðar svo: „Fyrirsjáanlegt er að Seljaskóli verður einn fjölmennasti grunn- skóli landsins næsta vetur, og að nemendum fjölgar um 150-200 frá því sem er á þessu skólaári. Vegna húsnæðisskorts í vetur hafa margar bekkjardeildir verið allt of fjölmennar og er því ljóst aö verði hætt við byggingu húss nr. 7 verður einungis um neyðarúrræði að ræða til að mæta væntanlegri nemendafjölgun. Mikil óánægja ríkir meðal foreldra, kennara og annarra starfsmanna skólans yfir þeim úrræðum sem blasa við en þau eru: 1. Þrísetning, sem þýðir skólahald til kl. 18.00 og að kennsla verð- ur í hádeginu. 2. Að kennt verði á göngum. 3. Að börnum úr hverfinu verði vísað í aðra skóla. Við viljum því skora á Mennta- málaráðuneytið að leggja fram sinn skerf þar sem ljóst er að Reykjavíkurborg muni standa við sínar skuldbindingar svo hús nr. 7 verði tilbúið til notkunar 1. sept- ember í haust.“ Hjúkrunar- fræðingur tíl Thailands Hópur á vegum íslensku óperunnar er að leggja upp í leik og söngför um landið með barnaóperuna vLitli sótarinn“ eftir Benjamin Britten. I kvöld verður sýnt að Varmalandi í Borgarfirði og síðan verða uppsveitir Arnessýslu heimsóttar. Þá er ráðgerð vikuferð norður í land til Skagafjarðar, Akureyrar og í Þingeyjarsýslu. Alls eru í hópnum 20 manns, og meðal f jölda barna eru þau Halldór Örn Ólafsson 9 ára og jafnaldra hans Sólveig Arnarsdóttir, sem sjást hér á myndinni syngja fulium hálsi í barnaóperunni. Geimstríði Reagans stýrt frá Grænlandi? Bandaríska tímaritið „Aviation Week & Space Technology“ hefur nýlega skýrt frá því að Bandaríkja- stjórn hafi ákveðið að fjárfesta um 80 miljónir dollara (1700 miljónir ísl. kr.) í nýjum búnaði á her- stöðinni í Thule a Grænlandi. Er þessi búnaður liður í kjarnorku- vopnabúnaði Bandaríkjanna, og á meðal annars að gera það mögulegt að heyja stríð utan úr himin- geimnum að sögn blaðsins. Fréttir þessar hafa síðan verið staðfestar af Hans Engell varnar- málaráðherra Danmerkur, en hann segir að framkvæmdirnar eigi aðeins að varða endurnýjun tækja- búnaðar en ekki að breyta hlut- verki herstöðvanna. Einn af þingmönnum vinstrisós- íalista hefur lagt fram fyrirspurn til varnarmálaráðherrans um hvaða upplýsingar hann hafi fengið um fyrirhugaða uppbyggingu í Thule og minnir í því sambandi á að ráð- herrann minntist ekkert á þessa fyrirhuguðu aukningu hernaðar- umsvifa í fyrirspurnartíma þingsins í febrúar sl., þar sem ráðherrann lofaði aukinni upplýsingamiðlun um hernaðarframkvæmdir í Thule. Svar við þessari fyrirspurn var væntanlegt á danska þinginu í viku- lokin. ólg. Mánudaginn 11. apríl hélt Hörður Högnason hjúkrunar- fræðingur áleiðis til Thailands á vegum Rauða kross íslands þar sem hann tekur við hjúkrunarstarfi sem Hildur Nielsen hefur gegnt undanfarna þrjá mánuði. Eins og greint hefur verið frá í fréttum hefur að undanförnu verið mjög róstusamt á landamærum Thailands og Kampútseu. Sjúkra- stöðin í Khao-l-Dang í Thailandi, þar sem Islendingarnir starfa ásamt öðrum Norðurlandabúum, er tæpa 50 km frá landamærunum. Þangað koma daglega tugir og stundum hundruð særðra til að fá gert að meiðslum sínum. Á sjúkrastöðinni heyrast skot- hvellir og sprengingar frá víg- stöðvunum en stöðin sjálf er ekki talin í hættu. Fyrirhugað er að Hörður Högnason starfi a.nt.k. þrjá mán- uði í Khao-I-Dang en Hildur Niels- en er væntanleg heim til íslands í byrjun maímánaðar. Hörður Högnason, hjúkrunar- fræðingur. Framboðsfundir á Yesturland i Sameiginlegir framboðsfundir stjórnmálaflokkanna sem bjóða.fram í Vesturlandskjördæmi hafa verið ákveðnir sem hér segir: Fimmtudaginn 14. apríl kl. 14.00 í Breiðabliki. Fimmtudaginn 14. apríl kl. 21.00 í Búðardal. Föstudaginn 15. aprfl kl. 14.00 í Stykkishólmi. Föstudaginn 15. apríl kl. 21.00 í Grundarfirði. Laugardaginn 16. apríl kl. 14.00 á Hellissandi. Laugardaginn 16. apríl kl. 21.00 í Ólafsvík. Sunnudaginn 17. apríl kl. 15.00 í Borgarnesi. Sunnudaginn 17. apríl kl. 21.00 að Logalandi. Þriðjudaginn 19. aprfl kl. 21.00 á Akranesi. Eins og fram hefur komið í fréttum mun ekki reynast unnt að útvarpa frá framboðsfundum svo sem venja hefur verið.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.