Þjóðviljinn - 14.04.1983, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 14.04.1983, Blaðsíða 12
DWÐVIIIINN Fimmtudagur 14. apríl 1983 Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiöjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663 Framsóknarmenn staðið á móti skuldbreytingum til lengri tíma Yfirgengileg ófyrirleitni Segir Grétar Þorsteinsson um áróður Framsóknar - Málflutningur Framsóknar- manna er yfirgengileg ófyrirleitni, sagði Grétar Þorsteinsson formað- ur Trésmiðafélagsins og flmmti maður G-listans í Rvík í viðtali við Þjv. í gær. Nú tala þeir um nauðsyn skuldbreytinga til tíu ára í kosning- aáróðri sínum. Þegar skuld- breytingin var gerð fyrir húsbyggj- endur árið 1981 lögðum við tii að skuldbreytingin yrði til 12 ára en fulltrúi bankamálaráðherrans lagði til að hún yrði til 5 ára í nefnd sem ríkisstjórnin skipaði til að gera tillögur um lengingu skulda. Til málamiðlunar var fallist á að gera tillögu um 8 ára skuldbreytingu sem fulltrúi bankamálaráðherrans féllst á um síðir. Það var meirihluti nefndarinnar sem lagði til þessa skuldbreytingu árið 1981 sem sam- þykkt var í ríkisstjórninni það ár. Fulltrúi Seðlabankans var á móti. - Meirihluta nefndarinnar skipaði auk mín Ólafur Jónsson frá Húsnæðisstofnun og Jón Sólnes formaður nefndarinnar sem var fulltrúi forsætisráðherra í nefnd- inni og um síðir fulltrúi banka- málaráðherrans Jón Júlíusson. Snauður vinur auðgum betri Nú hafa safnast 2.464,15 krónur í Alusuisse söfnuninni, en hún hef- ur staðið yfir í tvær vikur. I frétt frá söfnuninni segir að þessi upp- hæð jafngildi 18.955 kílóvatt- stundum handa Alusuisse en rúm- lega 1000 kílóvattstundum til heimilisnota á Islandi. Síðan segir: „Við viljum hér með þakka öllum þeim, sem þegar hafa brugðist vel við kalli okkar. Engu að síður hljótum við að harma það tómlæti, sem alltof margir hafa enn sýnt söfnuninni. Er þetta þeim mun furðulegra sem íslendingar hafa jafnan brugðist fljótt og vel við, þegar bágstaddir hafa átt í hlut og hafa raunar öðlast viðurkenningu á alþjóðavettvangi fyrir skarpan skilning á kjörum nauðstaddra. Við erum hins vegar bjartsýnis- menn og treystum því, að íslend- ingar eigi eftir að sýna bróðurhug sinn enn betur í verki.' Við minnum á, að ekki þarf að spara nema 1 kílóvattstund til eigin heimilisnota til að geta sér að skaðlausu gefið Alusuisse andvirði allt að 18 kíló- vattstunda. Greinargerð okkar erúm það bil að koma út myndskreytt og verður reynt að dreifa henni sem víðast án þess að það bitni mikið á söfnun- arfénu. Við minnum enn á póstgírónúmer okkar: 78300-5. Munum einnig orðskviðina: Margur á við raun að rjá. Oft ersnauður vinur auðgum betri. Kornið fyllir mœlinn. Hreinir reikningar gera góða vini. Ekkert er ofgert fyrir vin. “ Tvö létust Banaslys varð á mótum Ölfus- vegar og Þrengslavegar í gær er stór vöruflutningabifreið og fólksbíll rákust saman. Þrjú ungmenni voru í fólksbílnum og létust tvö þeirra samstundis. Stúlka sem var í fólks- bflnum var flutt á slysadeild Borg- arspítalans mikið slösuð. Öku- maður vöruflutningabifreiðarinnar slapp lítið meiddur. Fulltrúi Seðlabankans Sigurgeir Jónsson stóð á móti og skilaði sérá- liti. - Þessi skuldbreyting var svo lögð fyrir ríkisstjórnina og sam- þykkt. Hún náði aðeins til verðtryggðra skammtímalána hús- byggjenda frá 1978 til 1981. Þá varð skammtímalánum breytt í eitt langtímaián hjá þeim sem vildu. Bankamálaráð- herrann á móti - Það myndi létta mikið undir með íbúðabyggjendum ef gerð yrði hliðstæð skuldbreyting núna. En hún þyrfti að ná yfir lengri tíma, 12-15 ár teldi ég lágmark. Slík skuldbreyting myndi gerbreyta aðstöðu íbúðakaupenda. Það hef- ur líka verið knúið á um slíka skuldbreytingu. En bæði banka- málaráðherra Framsóknar og bankarnir virðast standa á móti slíkri skuldbreytingu. Þess vegna finnst mér líka ótrúleg ósvífni hjá Framsóknarmönnum í kosninga- bæklingnum og í áróðri að segjast endilega vilja skuldbreytingu nú og gefa í skyn að staðið hafi á Alþýðu- bandalaginu því efni. . - Bankarnir virðast vilja láta fólk hlaupa á milli peningastofnana til að greiða afborganir og víxla í mörgum stofnunum. Þessi hlaup og eltingar fara mjög illa með fólk. Með því að gera hliðstæða skuld- breytingu væri hægt að losa fólk út úr klemmu vegna fallandi víxla og afborgana af skammtímalánum og svo úr þeirri klemmu sem þrengir oft meir að fólki, en það er tauga- stressið sem fylgir þessum hlaupum nú, sagði Grétar að lokum. -6g KASKCXABIO/ 1AUGARCW3 KL2 KOSNINGAFUNDUR &OPÐHUS Kosningafundur G-listans í Reykjavík verður í Háskólabíói á laugardaginn kemur, 16. apríl. Húsið verður opnað kl. 13.30 en fundurinn hefst stundvíslega kl. 14. Dagskrá kosningafundarins: Lúðrasveit verkalýðsins leikur í aðdraganda fundar. Söngsveitin Raddbandið syngur baráttusöngva í sal Háskólabíós frá 13.50 til 14. Stutt ávörp: Arnór Pétursson Guðmundur J. Guðmundsson Guðrún Helgadóttir Ólafur Ragnar Grímsson. Flutt verður leikflétta í fimm þáttum um mál málanna. • Upplestur: Guðrún Hallgrímsdóttir. • Sigrún Valbergsdóttir, Silja Aðalsteinsdóttir, Margrét Pála Ólafsdóttir og Grétar Þorsteinsson taka lagið. • Bubbi Morthens syngur við gítarundirleik. • Fjöldasöngur • Lokaorð: Svavar Gestsson. Fundarstjórar eru Álfheiður Ingadóttir og Margrét Björnsdóttir. Að loknum kosningafundi munu frambjóðendur G-listans spjalla við fundarmenn í anddyri Háskólabíós og svara spurningum um atvinnu- og efnahagsmál, stjórnkerfismál, félagsmál, húsnæðismál, friðar- og utanríkismál, umhverfismál og álmáíið. Margrót Pála Grétar Bubbi Morthens Álfheiður Margrét Guðrún

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.