Þjóðviljinn - 14.04.1983, Síða 5
ÞJOÐVILJINN - SÍÐA 5
Afram
í stjórnar-
andstöðu
- Ekki minnst
á viðreisn
Alþýðuflokkurinn hefur staðið
sig svo vel á undanförnum árum í
stjórnarandstöðunni að það væri
nánast syndsamlegt af hæstvirt-
um kjósendum ef þeir veittu hon-
um brautargengi til að ganga í
rfldsstjórn. Oðruvísi var erfitt að
skilja kratana í kynningarþættin-
um í gærkveldi.
Þáttur þeirra rann ljúflega af
stað - og til voru augnablik sem
hrærðu kratahjörtun í okkur öll-
um. Þannig var t.d. um þau atriði
í byrjun sem bentu á misskiptingu
auðsins í veröldinni, hlutskipti
hinna hungruðu heimshluta and-
spænis gegndarlausu vopnaskaki
í hinum svokallaða þróaða heimi.
En fljótlega tók flugið að dapr-
ast eftir að komið var inn fyrir
íslenska landhelgi. Þá upphófst
snakkið gamalkunna. Kvartað
var réttiiega undan kaupráni og
óáran ýmissi. Það er býsna hvim-
leitt að kratarnir geta einsog Vil-
mundur fyrr og síðar bent á ýmis-
legt sem fer aflaga, - en þeim er
gersamlega fyrirmunað að benda
á einhverjar trúverðugar leiðir til
úrbóta. Eða máske öllu heldur;
þá brestur kjark til að benda á
leiðir. Þannig þarf að taka frá
þeim sem eru efnaðir og miðla tif
þeirra sem ekki hafa það eins
gott. Hvernig á að gera þetta?
Svarið þóttist Kjartan Jóhanns-
son hafa í bæklingnum „Betri
leiðir bjóðast", sem hann hélt um
tíma á hvoifi. Og ekki komst til
skila hvaða leiðir þetta væru (sem
von er).
Það var heldur ekki trúverðugt
að tala um að létta undir með
„atvinnurekstrinum" - um leið
og átti að bæta kjör fjölda þjóðfé-
lagsþegna.
Kynningarlið kratanna var
fremur stirt, t.d. var yfirleitt lesið
upp af blöðum. Þeir hafa ekki
lært þuluna ennþá.
Meira að segja efsti níaður
A-listans í Reykjavík, sem hefur
verið kallaður Jónkíkóti, eftir að
hann skoraði vindmylluna í
Grímsey á hólm, virtist ekki
kunna boðskapinn. En hann
reyndist hraðlæs - og bunaði
þessu útúr sér á miklum hraða -
væntanlega til að áheyrendum
gæfist ekki tími til að taka málið
alvarlega.
Aldrei þessu vant bar Kjartan
Jóhannsson af í þessum þætti og
sýndi nokkur leikræn tilþrif. Ála-
fossteppið í baksýn var einnig
hlýlegt. Það þarf að finna nýjar
og betri leiðir, sagði Kjartan í
lokin, en þátturinn benti ekki til
þess að Alþýðuflokkurinn hefði
fundið þær.
óg.
Marsblað Æskunnar
er komið!
Frískt og skemmtilegt efni.
M.a.:
Viötöl við unga afreksmenn í
íþróttum.
Bókaklúbbur Æskunnar
kynntur.
Dýraspítalinn í Víöidal.
Spurningar í 1. hluta áskrif-
endagetraunar. — Vinningar
eru 3 reiðhjól: Peugeot,
Kalkhoff og Winter.
Viðtal viö Línu langsokk. —
Nóg af litmyndum.
Fjölmargt annaö forvitnilegt
og spennandi.
Allir eiga samleiö
meö Æskunni
Askriftarsími 17336
Þáttur Vilmundar Gylfasonar
er óneitanlega stórt spurningar-
merki. Tókst honum að telja ein-
hverjum trú um að eitthvað væri
á bak við orðagjálfrið? I þeiiti til-
gangi voru sýnd skipurit af a)
verðbólgu, b) betri kjörum, c)
þingræði, d) þjóðræði. Þannig
átti þátturinn væntanlega að fá
vísindalegt yfirbragð. Nokkuð
klókt hjá Vilmundi, en fjanda-
kornið að margir hafi fallið fyrir
því?
Það var óneitanlega dálítið
skrítið að sjá fullt af nýju fólki
flytja textann hans Vilmundar
sem allir gjörþekkja svo - frá
honum. Manni finnst þessi texti
vera öðrunt en honum óeigin-
legur. En nýja fólið kunni text-
ann sant mun betur en kratar tex-
tann sinn.
Þetta var semsagt einsog fyrri
daginn að réttilega var bent á ým-
islegt sem betur og öðruvísi mætti
fara. En í stað þess að mæta
vandamálunum með einhverjum
líklegum valkostum bjóða Vil-
mundarmenn upp á langa röð af
fiffum og trixum, sem eru annað
Brögð og
brellur
með
vísindalegu
yfírbragði
hvort einsog úr forneskju ellegar
þá hrollvekjandi. Nema hvort-
tveggja sé. Þannig var haldið
áfram með „frjálsa samninga”,
aðskilnað löggjafar- og frant-
kvæmdavalds og afnám þing-
ræðis sem það sem hann kallar
þjóðræði á að leysa af hólrni.
Skipuritin, töflurnar af spilling-
unni, verðbólgunni og því öllu
saman sögðu ekki neitt! En oft
var minnst á „faglega umfjöllun”.
Máske skipuritin heyri undir það
fyrirbæri.
Það var einnig talað unt sér-
stakt kjör- forsætisráðherra en
þess ekki látið getið að sá ntaður
á samkvæmt stjórnarbót Vil-
mundar að skipa sjálfur alla ráð-
herra og nteira til. Vilmundur
lætur áfram einsog sérhagsmunir
og sterk öfl (peningaöfl) verði
ekki til ef hann nær hinni nterku
stjórnbót sinni frarn.
í lokin kont svo sjálfur höfund-
ur handrits og texta einsog frels-
arinn frá 1978 og sagði ósvinnu að
kjósendur vissu ekki frá flokk-
unum hvers konar ríkisstjórn þeir
fengju yfir sig. Sjálfur sagði hann
heldur ekkert af létta um það
mál. Hann ítrekaði gagnrýni sína
frá 1978 um nauðsyn þess að upp-
ræta spillingu.
Það væri ntikil ógæfa ef Vil-
mundur væri ekki húmoristi eins-
og hann er. Það er ægileg tilhugs-
un að þessi hugmyndafræði fengi
fylgi vegna sjalfrar sín og skelfi-
legt ef „leiðtoginn” tæki sig alltof
hátíðlega. Ég ,tel líklegt að Vil-
mundur sé í enn einurn blekking-
aleiknum. Óg hann trúir sem
betur fer ekki orði af því sem
hann segir. En það gæti orðið
grátt gaman...
—óg tók saman
Auglýsing um áburðarverð
sumarið 1983
Heildsöluverð fyrir hverja smálest eftirtalinna
áburðartegunda er ákveðið þannig:
Viö skipshliö á
ýmsum höfnum
umhverfis landiö
Afgreitt á
bíla í
Gufunesi
Ammonium nitrat 34,5% Kr. 5.440 Kr. 5.540
Kjarni 33% N >> 5.160 ” 5.260
Magni 1 26% N+ 9%Ca ” 4.260 » 4.360
Magni 2 20%N+15%Ca >> 3.700 ” 3.800
Græöir 1 samsvarar i4%N-i8%p2o6 -is^ico+e^s 14%N- 8% P-15% K+6%S >> 6.260 » 6.360
Græöir 1A samsvarar 12%N-19%P20s -19%K>0+6%S 12%N- 8,4%P-15,8%K+6%S >> 6.160 >> 6.260
Græöir 2 samsvarar 23%N-11 %P2Os -11 %K.O 23% N- 4,8%P-9,2%K 5.880 » 5.980
Græöir 3 samsvarar 20%N-14%P2Os -14%K20 20%N- 6%P-11,7%K » 5.920 ” 6.020
Græðir 4 samsvarar 23%N-14%P2Os - 9%K.O 23% N- 6%P- 7,5% K >> 6.160 ” 6.260
Græöir 4A samsvarar 23%N-14%P20s- 9%K20+2%S 23%N- 6%P- 7,5%K+2%S » 6.260 ” 6.360
Græöir 5 samsvarar 17%N-17%P20s -17%K20 17%N- 7,4%P-14%K » 6.060 6.160
Græöir 6 samsvarar 20%N-10%P2Os -10%K2O+4%Ca+1 %S 2 0 % N - 4,3 % P - 8,2 % K+4 % C a+1 % S » 5.780 ” 5.880
Græðir 7 samsvarar 20%N-12%P2Os - 8%K20+4%Ca+1 %S 20% N-5,2% P-6,6% K+4% Ca+1 % S 5.880 » 5.980
Græöir 8 samsvarar 18%N- 9%P20s-14%K20+4%Ca +1 %S 18%N-3,9%P-11,7%K+4%Ca+1 %S ” 5.640 >> 5.740
NP 26-14 samsvarar 26%N-14%P20s • 26%N-6,1 %P » 6.060 » 6.160
NP 23-23 samsvarar 23% N-23% P2Os 23%N-10%P » 6.740 ” 6.840
Þrífosfat samsvarar 45%P20a 19,6%P » 5.280 >> 5.380
Kalíklóríð " samsvarar 60%K2O 50% K » 3.640 ” 3.740
Kalísúlfat samsvarar 50%K2O 41,7%K+17,5%S >> 4.520 >> 4.620
Uppskipunar- og afhendingargjald er ekki innifalið í ofangreindu verði
fyrir áburð kominn á ýmsar hafnir. Uppskipunar- og afhendingargjald er
hinsvegar innifalið í ofangreindu verði fyrir áburð, sem afgreiddur er á bíla
í Gufunesi.
ÁBURÐARVERKSMIÐJA RÍKISINS