Þjóðviljinn - 12.05.1983, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 12.05.1983, Blaðsíða 3
BLAÐAUKI Miðvikudagur 11. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11 o L. « « v ••• — ,o Grind fyrir klifur- jurtina Nokkur dæmi má sjá hér á landi um velheppnaða ræktun klifurjurta við húsveggi og í Reykjavík er eitt besta dæmið bergfléttan við Sóleyjargötu, en öll suðurhlið húss þar er þakin sigrænni fléttunni. Til að koma slíkum gróðri af stað er nauðsynlegt að koma fyrir grind á vegginn ellegar þráðum sem plantan getur fikrað sig upp eftir. Hér fylgir með mynd af einni slíkri grind, sem auðvelt er að búa til heima. Efniviðurinn er furulistar, ca 15x20 mm. Nauðsynlegt er að bera fúavarnarefni á listana áður en grindin er sett saman. Einnig má málagrindina t.d. græna eða í lit veggjarins. Gott er að hafa 10-20 cm bil á milli rimlanna og hæðina geta menn ákveðið eftir aðstæðum. . Rctki w Mold Bókin 350 stofublóm er traustur vinur blómanna og blómaeigenda. til hlítar einkenni, rœktun og algengustu heimahúsum. sem auðvelda greina tegundir blómanna, eru í nókvœmar upplýsingar um hverja plöntu og í almennum leiðbeiningum um blómarœkt er víða komið við. M.a. er íjallað um hvemig koma md fyrir blómum í gluggum, kerjum og blómaskdlum, rœktun 1 flöskum, vatnsrœkt, gróðurvinjar d skriístofum o.s.írv. Góð bók fyrir sanna blómavini Mái og menning AÐ NYTA SVAURNAR Að flestra mati er garðurinn einn stærsti kosturinn við að búa í einbýlis- eða raðhúsi. Hvaðfjölbýlishúsin várðarer þó reynt að vega upp á móti þeirri vöntun með því að svalir eru við flestar íbúðirnar og þar eiga menn að geta komið sér upp smækkaðri mynd af einkagarði. Til þess að það verði að veruleika þurfa menn hins vegar að skipuleggja svalirnarvel meðþað fyrir augum að þær nýtist sem allra best. Hér erum við með teikningu og myndir af svölum sem aðeins eru 1.10 metrar á breidd og 2.85 metrar á lengd - semsagt stærð af svölum sem yfirleitt tíðkast hér á Meðal upplýsinga um hverja plöntu: 0t Birta J Hiti Vatn Besti vinur blómanna Litlar svalir en rúma þó mikið ef rétt er skipulagt. Fyrir endanum er kom- ið fyrir bekk með lausum púðum á. Borðið er hægt að leggja niður og stólarnir eru sk. fellistólar. Undir bekknum er sóldýnan geymd þegar ekki er sólbaðsveður. landi. I þessu tilfelli hefur verið komið fyrir trégólfi úr lausum flekum og sérstök „innrétting" smíðuð með afar einföldum hætti. Þess er gætt að húsgögnin séu fyrirferðarlítil þannig að sval- irnar nýtist til annarra hluta einn- ig- Það er ekki amalegt að borða úti á svölum ef aðstaðan er góð eins og hér er gefið dæmi um. Það er misskilningur að ekki sé hægt að borða utandyra á Islandi! Komið ykkur upp aðstöðu og sannið til, það er ekki alltaf nauðsyn- legt að kúldrast innan dyra við átið.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.