Þjóðviljinn - 20.05.1983, Page 1
DiomiuiNNl
rfiðlega gengur að
ná samkomulagi um
brottflutning
erlendra herja frá
Líbanon, og eins
víst að uppúr sjóði
innan skamms.
maí 1983
föstudagur
108. tölublað
| 48. árgangur
Alllr flokkar nema íhaldið
hefja í dag tilraun til stjórnarmyndunar undir forystu Svavars Gestssonar
Þessar viðræður hafa verið afskaplega liprar og
gagnlegar og þær hafa Ieitt til þess að í dag verður
fundur með fulltrúum allra flokkanna á Alþingi nema
Sjálfstæðisflokksins, þar sem gerð verður tilraun til
stjórnarmyndunar, sagði Svavar Gestsson formaður
Alþýðbandalagsins, en hann hefur nú á hendi forystu
um tilraun til stjórnarmyndunar.
Svavar ræddi í gær við fulltrúa kvennalista og Fram-
sóknarflokksins og hafði þar með rætt við fulltrúa allra
flokkanna frá því að hann fékk umboðið til stjórnar-
myndunar. Þessar viðræður hafa leitt til þess að í dag
klukkan 9.30 koma fulltrúar allra flokkanna nema
íhaldsins saman til fundar undir stjórn Svavars, og hefj-
ast þar með formlegar tilraunir til myndunar meiri-
hlutastjórnar.
Menn hafa almennt ekki verið trúaðir á að það tækist
að fá þessa fimm flokka til að koma saman og ræða
myndun meirihlutastjórnar, en nú hefur sú kenning
verið afsönnuð, hvernig svo sem til tekst.
í fréttum ríkisútvarpsins í gærkvöld var það haft eftir
Steingrími Hermannssyni, formanni Framsóknar-
flokksins og Magnúsi H. Magnússyni, varaformanni
Alþýðuflokksins að þeir væru sammála mörgum atr-
iðum í tillögum Alþýðubandalagsins, en teldu að öðru
þyrfti að breyta og fella sumt niður. S.-dór
Fulltrúar Alþýðubandalags og Framsóknarflokks ræddust við í gær undir stjórn Svavars Gestssonar
formanns Alþýðubandalagsins. Eftir þennan fund var ákveðið að aðilar frá öllum flokkum nema Sjálfstæð-
isflokknum kæmu saman til fundar í dag til viðræðna um myndun meirihlutastjórnar undir forystu Svavars
Gestssonar. (Ljósm-eik-)
í sérstökum
blaðauka um bíla og
umferð sem fylgir
blaðinu í dag er
m.a. rætt við Helga
Hallgrímsson
yfirverkfræðing
Vegágerðarinnar
um framkvæmdir
sumarsins í
vegamálum.
Því stífar sem
unglingar sækja
leiktækjasali, þeim
mun meiri líkur eru
áþvíað þaureyki,
drekki og sniffi. Sjá
frásögn af málþingi
Barnaverndarráðs
Islands um
leiktækjasali og
tölvuspil.
Get ekki myndað meiri-
hlutastjórn eins og er
sagði Geir Hallgrímsson formaður Sjálfstæðisflokksins
Geir Hallgrímsson formaður
Sjálfstæðisflokksins var spurður
að því í gær að loknum þingflokks-
fundi Sjálfstæðisflokksins, hvort
hann gæti farið til forseta á morgun
(í dag) og tjáð honum að hann gæti
myndað meirihlutastjórn, ef Svav-
ar Getsson formaður Alþýðu-
bandalagsins skilaði umboði sínu
til stjórnarmyndunar.
Nei, ég á ekki von á því að geta
það.
En þá á laugardag eða sunn-
udag?
Nei, ekki heldur, ekki eins og
málin standa í dag, sagði Geir Hall-
grímsson.
Hann sagði að á þingflokksfund-
inum hefðu menn verið að ræða
stöðuna og það hvaða kostir væru
fyrir hendi hjá Sjálfstæðisflokkn-
um að mynda stjórn. Hanrr var þá
spurður hvort Sjálfstæðisflokkur-
inn teldi einn kost betri en annan í
þeim efnum í Ijósi þess að hann er
eini flokkurinn sem formlega séð á
allra kosta völ í sambandi við
stjórnarmyndun.
Geir svaraði því til að svo væri í
raun ekki, það væri ekki hægt að
segja að einhver óskakostur væri
inní myndinni hjá Sjálfstæðisflokki
í þeim efnum.
-S.dór
Agreiningurmn í þingflokki Sjálfstæðisflokks:
Þora enn ekki í
atkvæðagreiðslu
Eins og skýrt hefur verið frá í
Þjóðviljanum er mjög mikill á-
greiningur innan þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins um flest það sem
viðkemur tilraunum til stjórnar-
myndunar. Enn er mikil andstaða
gegn stjórnarmyndun með Fram-
sóknarflokki og hefur staðið til að
skera úr um hann innan
þingflokksins með atkvæða-
greiðslu, eða skoðunarkönnun eins
og einn þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins orðaði það í gær.
Geir Hallgrímsson hefur enn
ekki lagt í að láta atkvæði ráða, þar
sem hann er alls ekki viss um að
hafa meirihluta til stjórnarmynd-
unar með Framsóknarflokki.
Geir Hallgrímsson og hluti þingflokks Sjálfstæðismanna. - Hvernig eiga 23
flokksbrot að koma sér saman?
Hann tók það til bragðs að bíða
átekta og sjá hvort öldurnar lægði
ekki, en ennþá er stormur í vatns-
glasinu og meðan svo er fer at-
kvæðagreiðsla ekki fram.
Að sögn Dagblaðsins í gær átti
þessi atkvæðagreiðsla að fara fram
í gær en af henni varð þó ekki og
spurningin er hvort hún verður
látin fara fram á morgun, laugar-
dag, en þá er þingflokksfundur.
Það bendir til þess að atkvæða-
greiðslan verði enn látin bíða að
Geir Hallgrímsson sagði í gær að
hann teldi sig ekki eiga möguleika
á myndun meirihlutastjórnar nú
um helgina.
-S.dór