Þjóðviljinn - 20.05.1983, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 20.05.1983, Blaðsíða 5
Nýbreytni hjá Ferðamálaráði: Menn í ferjunum Ferðamálaráð hefur ákveðið að hafa sérstaka starfsmenn sína um borð í ferjunum Smyrli og Eddu, sem verða í förum til landsins í sumar. Sagði Lúðvík Hjálmtýsson, formaður Ferðamálaráðs á fundi með áhugamönnum um ferðaiðnað á miðvikudag að þessir starfsmenn yrðu fulltrúar ráðsins um borð, veittu upplýsingar og hefðu eftirlit með höndum. Reglugerð samgönguráðu- neytisins frá 25. mars sl. um eftirlit með ferðum erlendra ferðamanna um landið hefur vakið nokkrar deilur. Með reglugerðinni var Ferðamálaráði m.a. falið að kynna útlendum ferðamönnum og ferða- skrifstofum þessar nýju reglur, sem m.a. kveða á um að leiðsögumaður skuli hafa atvinnuleyfi á íslandi og sérstakt leyfi þurfi til hópferða út- lendinga um landið. Lúðvík Hjálmtýsson sagði á fundinum á miðvikudag að nú væri verið að undirbúa kynningu á reglugerðinni, hún hefur þegar verið þýdd á 4 tungumál, ensku, þýsku, frönsku og dönsku og verð- ur öllum þeim sem vitað er til að stunda erlenda ferðaútgerð á ís- landi send hún til kynningar. Þá hefur Félag leiðsögumanna tekið að sér að kynna reglugerðina og á fundinum voru ræddar ýmsar aðrar leiðir til að koma henni á framfæri við þá sem hún snertir helst. -ÁI ✓ Ahugamenn um ferðamálin: Samtök um ferðamál Áhugafólk um ferðamál hefur stofnað mcð scr samtök sem hafa það að markmiði að stuðla að eflingu og úrbótum í ferðantálum innanlands. Pessi áhugamannahópur boðaði fulltrúa helstu hagsmunaaðila í ferðaþjónustu til fundar s.l. miðvikudag. Þar voru mættir m.a. fulltrúar Stéttarsambands bænda, Náttúruverndarráðs, Félags ísl. ferðaskrifstofa, Siglingamálastofn- unar, Bílaleiga, Slysavarnafélags, Landmælinga, BSÍ, Flugleiða, Landvarðafélagsins, Leiðsögu- mannafélgsins, Félags starfsmanna í veitingahúsum, Ferðaskrifstofa, Hópferðamiðstöðvar og fleiri. Á fundinum var fjallað um hin ýmsu mál, tengd ferðaþjónust- unni, og úrbætur í þeim. Þar kom m.a. fram að nokkuð hefur áunnist s.l. mánuði, m.a. með setningu reglugerðar um hópferðir útlend- inga um landið og annarrar um tak- markanir á innfluttum varningi út- lendinga. Ennfremur að ýmislegt er í undirbúningi, svo sem kynning á þessum reglugerðum, talning gistinátta á landinu sem talin er gefa gleggri upplýsingar en talning ferðamanna, o.fl. Hópurinn hyggst halda starfi sínu áfram á svipaðan hátt og koma ábendingu um bætta þjónustu og gestrisni við móttöku ferðamanna á framfæri m.a. til nefndar sem stofnað hefur verið til á vegum fimm ráðuneyta til samstarfs um úrbætur í ferðamálum. -ÁI Reglugerð um farangur ferðamanna: Eldsneyti og matvæli takmörkunum háð Fjármálaráðuncytið hefur í reglugerð sett takmarkanir við inn- flutningi erlendra ferðamanna á bensíni og matvælum, líkt því og gildir t.d. í Svíþjóð. Mega erlendir ferðamenn hafa með sér allt að 10 kg af matvælum sem þó fari ekki yfir 1200 krónur að andvirði og cldsneyti allt að 200 lítrum í elds- neytisgeymum bifrciða sinna. Hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu hafa ítrekað bent á nauðsyn þess að slíkar takmarkanir verði settar eftir að Smyrill hóf siglingar til landsins. Hefur verið fullyrt að erlendir ferðamenn flytji hingað með sér yfrin matvæli og vistir auk þess sem þeir flytji með sér bensín á lausum ílátum. Á fundi sem áhugamenn í ferðaþjónustu héldu s.l. miðviku- dag var nýju reglugerðinni fagnað. I gömlu reglugerðinni, sem þar með er úr gildi fallin, segir að er- lendir ferðamenn megi hafa með sér ferðabúnað, þar meðtalin mat- væli og aðrar vistir, að því til- skyldu að varningurinn geti talist hæfilegur og eðlilegur miðað við tilgang ferðalagsins, dvalartíma og hagi ferðamannsins og ef hann eyðist ekki skal flytja hann úr landi við brottför. í nýju reglugerðinni er magni matvæla hins vegar tak- mörk sett. Þau mega að hámarki nema 10 kg að þyngd og andvirði má aldrei nema hærri fjárhæð en 1200 krónum. Einnig er innflutn- ingur annars eldsneytis en er í inn- byggðum eldsneytistönkum bann- aður. Eldsneytið í tanknum má að hámarki vera 200 lítrar. Sem kunnugt er hefur varningur innlendra ferðamanna við komu til landsins verið háður takmörkun- um. Hann má nú nema 2.400 krón- um að andvirði, en matvæli, þ.m.t. sælgæti má nema 600 kr. Matvæla- innflutningur til landsins er ekki heimill, innlendum ferðamonnum. -ÁI Lista- og skemmti- vika í Æfinga- og tilrauna- skólanum Prófum lauk í Æfinga- og til- raunaskóla Kcnnaraháskólans í sl. viku og í þessari viku, sem er síð- asta skólavikan, hcfur staðið yfir lista- og skemmtidagur í skólanum. í fyrradag var efnt til útihátíðar í góða veðrinu á Klambratúni (Miklatúni), og var þar flutt ýmis- legt efni sem nemendur höfðu undirbúið. í gær var farið í mikla og litskrúðuga skrúðgöngu um nág- renni skólans og tóku þátt í henni um 300 börn og kennarar. -Ljósm. Atli. Föstudagur 20. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5 H JÓLREIÐ AD AGU RINN ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ TIL STYRKTAR ' FÖTLUÐUM Söfnun er hafinB0RNUM Öllum ágóða varið til uppbyggingar dvalar- heimilis fyrir fötluð börn. Við heitum á alla um stuðning. Takið vel á móti söfnunarfólki. Margt smátt gerir eitt stórt. Söfnunargögn má ná í á skrifstofu Styrktarfé- lags lamaðra og fatlaðra að Háaleitisbraut Vv11 - 13. Öh: -- HJOLREIÐADAGURINN 28. MAI 1983 ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ STYRKTARFElAG m LAMAÐRA OG FATLAÐRA Söluskattur Viðurlög falla á söluskatt fyrir apríl mánuð 1983, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 25. þ.m. Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20%, en síðan eru viður- lögin 5% til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, taliðfrá og með 16. júní. Fjármálaráðuneytið, 17. maí 1983. Afmælistilbod: 10% afsláttur! Kond’í STUÐ Þar færð þú nefnilega: — 10% afslátt á öllum plötum út mai. STUÐ er nefnilega eins árs um þessar mundir. —• Nýju piötuna með: Comsat Angels • Robinson • Work • Marianne Faithful • Pink Floyd • og öllum hinum. — Gamlar sjaldgæfar plötur með: Yardbirds • Woody Guthrie • Pete Seeger • og öllum hinum. — Vinsælustu skandinavísku — Gott úrval af reggíplötum. — Vinsælu „new wave“-sólgleraugun. — Klukkur sem skrifa. — Reglustikur með innbyggöri reiknitölvu og klukku. — Klistraðar köngulær sem skríða. — Ódýrirsilfureyrnalokkar(ekta)með kannabisformi o.m.fl. — Músikvídeóspólur (VHS) leigðar með: Sex Pistols • Genesis • Bob Marley • Grace Jones • Roxy Music • Doors • Madness • Kate Bush • Blach Uhuru • o.m.fl. STUÐ Laugavegi20 Sími27670 Já, kond'í STUÐ. Þar er stuöiö!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.