Þjóðviljinn - 05.06.1983, Síða 3
Helgin 4. - 5. júní 1983. ÞJOÐVILJINN - SÍÐA 3
Helðar Jónsson og Arnfrið Björnsson, tveir af starfsmönnum skipalyftunnar.
Rúmlega eitt skip á viku
Yfir 80 manns vinna við lyftuna á annatímum
27. júní n.k. er liðið eitt ár frá því
að skipaiyftan í Vestmannaeyjum
var tekin í notkun. Fyrsta skipið
sem tekið var upp, var BV Sindri og
siðan hafa 60 skip verið tekin upp
eða rúmlega eitt fyrir hverja viku
ársins. Lyftan getur tekið upp allan
Vestmannaeyjaflotann og Herjólf
að auki en það eru ekki aðeins
Eyjamenn sem njóta þjónustu
hennar heldur allt landið. Þegar
Þjóðviljamenn voru á ferð í Vest-
mannaeyjum fyrir skemmstu,
lögðum við leið okkar á fund ann-
ars tveggja framkvæmdastjóra
Skipalyftunnar hf, Kristjáns Ólafs-
sonar, til að kynnast rekstrinum
nánar. Þá stóð Suðurey uppi en
daginn áður höfðu þrjú skip verið
uppi í einu.
Erkifjendur
sameinuðust
„Það sem er sérstakt við þetta
hlutafélag, Skipalyftuna hf“, sagði
Kristján, „er að hér tókst það sem
hefur reynst erfitt annars staðar, -
tvö gamalgróin fyrirtæki í vélsmíði,
sem keppt höfðu hvort við annað í
áratugi sameinuðust um það mark-
mið að leigja skipalyftuna af Vest-
mannaeyjabæ og Hafnarsjóði.
Þetta eru fyrirtækin Vélsmiðjan
Magni og Vélsmiðjan Völundur,
og þau eru hluthafar í nýja fyrir-
tækinu. Eftir að það var komið á
hreint gekk þetta hratt fyrir sig,
skóflustunga vartekin20. nóvemb-
er 1981 og við byrjuðum að flytja
inn í húsin í apní 1982.“
- Hvað starfa margir hjá fyrir-
tækinu?
„Nú eru starfsmenn 64, en á
mestu annatímum í fyrrasumar
voru þeir yfir 80. Við erum bara
fjögur á skrifstofunni, tveir fram-
kvæmdastjórar, sem koma sinn frá
hvorri verksmiðjunni, ég og Gunn-
laugur Axelsson og tveir skrifstofú-
menn, Alda Harðardóttir og Anna
Karlsdóttir."
Hvernig hefur lyftan reynst?
„Frá 27. júní s.l. árs erum við
búnir að taka upp 60 skip og það
verður að segjast eins og er að lyft-
an hefur reynst mjög vel og ekkert
bilað í henni. Auðvitað urðum við
fyrir nokkrum byrjunarörðug-
leikum sem vissulega sýndust stórir
á þeim augnablikum, en við hlæj-
um að þeim núna“, sagði Kristján.
„Mannskapurinn hafði ekki starf-
að við upptöku skipa áður, svo allt
hlaut þetta að taka sinn tíma.“
Víðförul lyfta
„Þessi lyfta á sér annars nokkuð
sérstaka sögu, sagði Kristján.
„Hún var upphaflega keypt árið
1968 til Hafnarfjarðar, en þar
framhald á 5.
Þeir voru að hreinsa málningarbakka, - skólinn búinn og
sumarvinnan tekin við. Til vinstri: Gunnar Hreinsson og
Bjartmar Jónsson til hægri. Ljósm. -eik.
»rr i
v* í- —
Þó sjálf lyftan sé á fimmtánda ári er stýribúnaðurinn nýr og einn sá fullkomnasti sem völ
er á. Lyftustjórinn heitir Jón dlafur. Ljósm! -eik.