Þjóðviljinn - 05.06.1983, Blaðsíða 5
*
reyndist erfitt að finna aðila sem
vaeri nógu stór til að ráða við rekst-
urinn. Það tókst ekki að sameina
mannskapinn þar um rekstur lyft-
unnar og það endaði á því að hún
var keypt til Vestmannaeyja árið
1970. Það var þegar búið að flytja
hluta hennar hingað þegar gosið
byrjaði og þá var hún flutt aftur
upp á land og geymd á ýmsum stöð-
um í Kópavogi og Reykjavík. Þetta
er áreiðanlega víðförlasta skipa-
lyfta á landinu og þótt víðar væri
leitað“.
- En er lyftan þá ekki orðin úr-
elt, tæknilega séð?
„Nei, sjálf lyftan, þ.e. spilin og
pallurinn hafa ekkert breyst á þess-
um árum. Hins vegar hefur stýri-
búnaðurinn breyst verulega og það
má segja að hinn landlægi trassa-
skapur hafi komið sér vel í því efni,
því stýribúnaðurinn var ekki
keyptur fyrr en á síðasta ári þegar
séð var framá að lyftan yrði sett
upp. Hann er því eins fullkominn
og verið getur og sem dæmi um það
get ég nefnt að nú munu vera um
150 lyftur af þessari gerð í notkun í
heiminum, þar af aðeins fjórðung-
ur með vigtarmælum á öll spil.
Þessi er ein af þeim.“
Þriðja
stœrsta lyftan
- Geturðu sagt mér betur frá
lyftunni sjálfri?
„Þetta er bandarískt patent en
stálið í pallinum er pólskt. Þetta er
þriðja stærsta lyftan á landinu,
aðeins lyftumar á Akureyri og í
Reykjavík hafa meiri upptöku-
möguleika. Lyftigetan er 1000
þungatonn, lyftupallurinn 12 metr-
ar á breidd og 50 m á lengd.“
- Þið standið enn í framkvæmd-
um hér á svæðinu?
„Já, þetta er mjög gott athafna-
svæði og rúmt sem við fengum hér
og býður upp á marga möguleika.
Nú er t.d. verið að lengja viðlegu-
kantinn auk þess sem við emm að
ljúka við að leggja nýja braut hér í
næsta nágrenni við vinnslusalinn
sjálfan. Við munum jafnvel ein-
hvem tímann byggja yfir þá braut
þannig að hægt verði að hafa skipin
undir þaki.
Það er álit allra að þegar frágangi
lóðarinnar hér verður lokið þá
verði þetta ein besta aðstaðan sem
völ er á í landinu. Lóðin er öll í
sléttu plani og allar lagnir svo sem
gas, súr og olía neðanjarðar, þann-
ig að ekki þarf að standa í eilífum
flutningum á gashylkjum og öðm
um lóðina milli skipa.“
- Hvaðan koma svo skipin 60?
„Þau hafa komið bæði af
Norðurlandi og Austurlandi og
nánast alls staðar að af landinu
nema reyndar af Vestfjörðum, en
við eigum áreiðanlega eftir að sjá
framan í þá fyrr en varir", sagði
Kristján Ólafsson að lokum.
„Við eigum áreiðanlega eftir að sjá framan í Vestfirðingana
líka“, sagði Kristján Ólafsson framkvæmdastjóri, en allir
landshlutar aðrir hafa notið þjónustu Skipalyftunnar á því
tæpa ári sem hún hefur starfað. Ljósm. - eik.
Helgin 4. - 5. júni 1983. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Flutningur er okkar fag
EIMSKIP
Sími 27100
Sendum öllum íslenskum
sjómönnum og fjölskyldum
þeirra bestu kveðjur og
hamingjuóskir í tilefni dagsins.
Guðmundur Runólfsson h.f. b/v Runólfur S.H. 135 Grundarfirði Seglagerðin Ægir Fiskverkunarstöð Karls Njálssonar Garði
Dráttarbraut Keflavíkur h.f. Netasalan h.f. Klapparstíg 29 Eyjaflug Bjarna Jónassonar