Þjóðviljinn - 01.07.1983, Page 5
Föstudagur 1. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin samþykkir ályktun gegn kjarnorkuvopnum:
Island sat njá
Þrítugasta og sjötta þing sem víðast og ályktun þingsins fylgi
Alþjóðarheilbrigðisstofnunarinnar þeirri breytingu. ast
(WHO) var haldið í Genf í maí
síðastliðnum. Þar var m.a. lögð
fram skýrsla sérfræðinganefndar,
sem starfað hefur síðastliðið ár
samkvæmt samþykkt
stofnunarinnar 1981 til að gera
athuganir á áhrifum
kjarnorkustyrjaldar á heilbrigði og
heilbrigðisþjónustu.
1 framhaldi af umræðum um
skýrslu sérfræðinganefndarinnar
var samþykkt sérstök ályktun um
hlutverk lækna og heilbrigðisþjón-
ustufólks í varðveislu friðarins, eða
„mikilvægasta heilsuverndarþátt-
arins“, eins og segir í ályktuninni.
Ályktunina samþykktu 97 fulltrú-
ar, 12 greiddu atkvæði á móti og 10
sátu hjá. ísland var eitt þeirra
ríkja, sem sat hjá.
I ályktun Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar um þessi mál segir
m.a., að ógjörningur sé að gera
heilbrigðiskerfi nokkurs lands
þannig úr garði, að það verði þeim
vanda vaxið að fást við afleiðingar
kjarnorkuvopnastyrjaldir og að
kjarnorkuvopn séu grimmasta
ógnunin við líf og heilsu mann-
kynsins. Jafnframt er hvatt til þess,
að skýrsla nefndarinnar verði birt
When the Bomb falls,;
don’t phonefor j
the doctor
v
Not all of my patients will die quickly when the
Bornb falls. Many will be hurt by flying glass. Many
will have broken bones. Some will be badly burnt,-
If l'm well enough l'd want to help, but without
medicines and hospitais it will be very difficult.
I might not even be able to help you with your paín >
at the very end. I can only give you the medical
facts, and you'll have to do the best you can on
your own.
Better still, we could try to do something now to
make the world safer.
Bresku læknasamtökin hafa gefið
út skýrslu um líklegar læknisfræði-
legar afleiðingar kjarnorkuárásar
á Bretland. Samtökin hafa
gefið út þetta plakat en á því
stendur:
ÞEGAR SPRENGJAN FELLUR
HRINGDU ÞÁ EKKII LÆKNINN
Ekki munu allir sjúklingar mínir
deyja snögglega þegar Sprengjan
fellur. Fljúgandi glerbrot munu
særa marga. Margir munu
beinbrotna. Sumirsærastillilega.
Mig mun langa til þess að hjálpa
þeim öllum - ef ég hef heilsu til
þess, en það verður mjög erfitt án
lyfja og án sjúkrahúsa. Það er ekki
einu sinni víst, að ég geti hjálpað
þér í lok dauðastríðsins. Ég get
aðeins gefið þér læknisfræðilegar
staðreyndir og þú verður að
bjargast af eigin rammleik.
Það væri þóenn betra ef við
reyndum að gera eitthvað núna til
þess að gera þessa jörð öruggari.
íþrótta-
félag á
Kópavogs-
hæli
Þann 14. júní var stofnað íþrótt-
afélag þroskaheftra á
Kópavogshælinu og hlaut það nafn-
ið Hlynur. Rösklega 50 manns sátu
stofnfundinn og voru þeir bæði úr
röðum vistmanna, starfsmanna og
foreldra- og vinafélagsins. Einnig
sátu stofnfundinn fulltrúar frá I-
þróttasambandi fatlaðra og Ung-
mennasambandi Kjalarncsþings.
Það var ekki síst fyrir hvatningu
Sonju Helgason, íþróttakennara
og félagsráðgjafanna Láru Björns-
dóttur og Rannveigar Gunnars-
dóttur og áhuga fleiri starfsmanna,
að félagið var stofnað.
Tilgangur félagsins er að efla úti-
vist og íþróttaiðkanir fyrir þroska-
hefta með æfingum, námskeiðum
og keppni. Er tilkoma þess einn
þáttur í vaxandi íþróttastarfsemi
fatlaðra.
í fyrstu stjórn félagsins voru
kjörin: Kristján Sigurmundsson,
formaður, Hansína Jónsdóttir, rit-
ari, og Elísa Þorsteinsdóttir, gjald-
keri. í varastjórn: Guðmundur
Jensson, Halldór Jónsson og Elísa-
bet Ólafsdóttir.
Þetta reisulega hús á að brjóta niður fyrir annað nýrra.
Samvinnubankinn:
Brýtur hús
á Akranesi
Nýverið heimilaði bæjarstjórn
Akraness Samvinnubankanum að
brjóta niður eldra húsnæði Sam-
vinnubankans á Akranesi, sem er
reisulegt steinhús. Er ætlunin að
gera þar bflastæði í staðinn.
Húsið sem brjóta á niður var
aðsetur Samvinnubankans og Sam-
vinnutrygginga á Akranesi þar til
síðasta vetur.
Hús þetta er þekkt undir nafninu
Brú, og þar verslaði lengi Oddur í
Brú, sem landsmenn munu líklega
Yfir-
iýsing
Að gefnu tilefni skal það
tekið fram að Kirkjustjórnin
hefur engin afskipti haft af
ákæru þeirri sem fram er
komin á hendur útgefanda
Spegilsins.
Frá biskupsstofu.
þekkja sem Odd, hinn skemmti-
lega fréttaritara Morgunblaðsins.
Við hlið hins nýja bankahúss
Samvinnubankans er eldra húsið
þó smátt. í nýbyggingunni eru til
húsa auk bankans og Samvinnu-
trygginga, bæjarskrifstofurnar á
Akranesi og skrifstofur Skattstjóra
Vesturlandsumdæmis.
Við umræður í bæjarstjórn á
Akranesi lagði bæjarfulltrúi Al-
þýðubandalagsins Engilbert Guð-
mundsson fram tillögu þess efnis,
að niðurbrotsbeiðni bankans yrði
vísað til afgreiðslu á deiliskipulagi
fyrir hverfið. Tillagan var felld.
1 samtali við Þjóðviljann sagði
Engilbert að þótt húsið hefði í
sjálfu sér ekki varðveislugildi,
þætti honum það bruðl úr hófi fram
að brjóta niður ágætis hús, og eng-
an veginn í takt við þann áróður
banka að menn ættu að fara vel
með verðmætin og vera sparsamir.
Ekkert vandamál væri að nýta
þetta hús til margra hluta, og ef
bankinn hefði viljað vera rausnar-
legur, hefði hann getað fært bæjar-
búum það aðgjöf, t.d. undirfélags-
og menningarstarfsemi. Þess utan
ætti bankinn þess allan kost að
selja húsið fyrir töluvert fé.
Landsbanki íslands hefur opnað nýtt útibú á Patreksfirði,
Aðalstræti 75, sími: 94-1314.
Útibúið veitir alla almenna bankaþjónustu, innlenda og erlenda.
Afgreiðslutími:
Mánudaga til föstudaga kl. 9.15 til 12.30 og kl. 13.30 til 16.00.
LANDSRANK3NN
Banki allm landsmanna