Þjóðviljinn - 01.07.1983, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 01.07.1983, Qupperneq 10
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 1. júlí 1983 ■ í stuttu máli Samúel velur þátttakanda í milljón dollara fegurðarsamkeppni Tímaritið Samúel leitar nú að þátttakanda íslands í glæsilegustu alþjóða fegurðarsamkeppni sem haldin hefur verið. I fyrstu verðlaun eru ein milljón dollara,eða sem svarar 28 milljónum íslenskra króna. Keppni þessi fer fram í Róm í nóvember næstkomandi, á vegum bandaríska tímaritsins Penthouse. Til að fyrirbyggja misskilning skal þess getið að þótt ritið birti myndir af fáklæddum stúlkum. þá hefur það ekki áhrif á það hvernig stúlkurnar koma fram í keppninni í Róm. Pær munu koma þar fram á hinn hefðbundna hátt í fegurðarsamkeppnum, ísundbolum og kvöldkjólum. V eitingastofan Ársei á Selfossi Kaupfélag Árnesinga hefur opnað veitingastofu í Vðruhúsi K.Á. á Selfossi. Veitingastofan nefnist Ársel og verður opin til kl. 22.00 alla daga fyrst um sinn. Glerveggur skilur veitingastofuna frá afgreiðslusal vöruhússins. Lögð verðursérstök áhersla á grillrétti, brauð og tertur. Verslun verður einnig í veitingastofunni með algengar ferðamannavörurogkæliborð meðdagvörursem hugsaðer m.a. sem þjónusta við sumarbústaðafólk í nágrenni Selfoss. Minjagripaverslun er staðsett í veitingastofunni í sal með hreyfanlegum veggjum sem verður einnig notaður til vörukynninga o.fl. Félagsráðgjafar mótmæla efnahagsaðgerðunum Almennur félagsfundur Stéttarfélags íslenskra félagsráðgjafa, haldinn þann 22.06. ’83, mótmælir harðlega nýgerðum efnahagsráðstöfunum ríkisstjórnarinnar. Efnahagsráðstafanirnar beinast alfarið að því að skerða tekjur launafólks með ófyrirsjáanlegum afleiöingum fyrir rekstrargrundvöll heimilanna og atvinnuöryggið í landinu. Á meðan launafólki er gert að taka alfarið á sig efnahagsvanda þjóðarinnar, fá framleiðendur og milliliðir sinn hlut óskertan. Fyrirheit um félagslegarúrbætur til þeirra semvið þrengst kjör búa eru enn óljós og þær sem séð hafa dagsins ljós eru svo takmarkaðar að fjarstæða er að meta þær sem raunhæfar úrbætur. „Blanda fyrir alla“ Úterkomin hljómplatan .,Blandafyriralla“. Á þessari hæggengu plötu flytur Ólafur Ragnarsson, ásamt vinum ogvandamönnum, sex lögeftirsjálfansigogKristóferBogason. Eru sum þeirra líkleg til vinsælda. Upptakafór fram í StúdíóStemmu fyrir nokkru síðan, undir stjórn Ríkharðs H. Friðrikssonar og Sigurðar Rúnars Jónssonar. Útgefandi er fyrirtækið Kviksjá ogsér það einnig um dreifingu. 278 nemendur útskrifaðir úr Iðnskólanum í Reykjavík Iðnskólanum í Reykjavík var slitið þriðjudaginn 31. maí s.l. og var þetta 79. starfsár skólans. Á vorönn voru 944 nemendur en alls stunduðu 1492 nemendur nám við skólann í vetur þar af 330 nýir nemendur á vorönn. Skólastjórinn, Ingvar Ásmundsson drap m.a. á framtíðarverkefni skólans í ræðu sinni þegar hann sagði frá bréfi menntamálaráðuneytisins, þar sem ráðuneytið stefnir að tölvufræðibraut og braut til stúdentsprófs við skólann. Að þessu sinni voru útskrifaðir 278 nentendur. 18 verðlaun voru veitt fyrirgóða frammistöðu. Landsfundur Esperanto sambandsins íslenska Esperanto sambandið hélt landsfund sinn 1983, fyrir skömmu á Akureyri. Sambandið heldur landsfundi annað hvert ár og var þess sá sjötti í röðinni. Innan sambandsinseru nú tvöfélög, Auroro í Reykjavík og Norda Stelo á Akureyri. Útgáfa safns úrvalsrita úr íslenskum bókmenntum, þýtt á esperanto, er nú í undirbúningi og verður sennilega hafin setning ritsins á hausti komandaeðaíbyrjun næstaárs. Stefnt er að því að Esperanto-hreyfingin á íslandi geti eignast sitt eigið húsnæði eigi síðar en 1987, en á því ári verður esperanto 100 ára. Er nú þegar hafin untfangsmikil fjársöfnun innan hreyfingarinnar til þess að ná því takmarki. 1 stjórn voru kosin: Hallgrímur Sæmundsson, Garðabæ, formaður, ÓlafurS. Magnússon, Reykjavík, varaformaður,ÁrniBöðvarsson, Reykjavík, ritari, Bjarni Jónsson, Selfossi, gjaldkeri, og meðstjórnendur Jón Hafsteinn Jónsson, Akureyri, Steinunn Sigurðardóttir, Akureyri og Pórarinn Magnússon, Vestmannaeyjum. Fjölbreyttur Hússtjórnarskóli Hússtjórnarskóla Reykjavíkur varslitið 20. maís.l. Skólinn starfaði með svipuðu móti og síðastliðin ár. Fyrri hluta vetrar voru starfrækt fjöldi námskeiða, mismunandi að lengd og með margvíslegu námsefni. Síðari hluta vetrar var starfræktur 5 mánaða hússtjórnarskóli með heimavist svo og dag- og kvöldnámskeið eftir því sem húsnæðið leyfði. Næsta vetur er í ráði að taka upp þá nýbreytni, að nemendum 5 mánaða hússtjórnarskólans verður gefinn kostur á hagnýtum undirbúningi í meðferð líns. ræstingu á herbergjum, framreiðslu í sal og í gestamóttöku. Þetta nám verður skipulagt í samráði við Samband veitinga- og gistihúsa. Vegna fyrirspurna skal tekið fram að öll námskeið næsta vetrar verða auglýst í byrjun september n.k. Æskilegt er að umsóknir berist sem fyrst um 5 mánaða hússtjórnarskólann sem hefst í byrjun janúar næstkomandi. Konur að störfum á námskeiðinu í kvennasögu. Námskeið í kvennasögu Dagana 10.-12. júní sl. var hald- ið almennt námskeið í kvennasögu fyrir konur, hið fyrsta sinnar teg- undar hér á landi. Var það haldið á Eiðurn, á vegum Kvennahreyfing- arinnar á Héraði, jafnréttisnefnda í Neskaupstað og Nesjum. Konur hafa lært sögu, bæði mannkynssögu og Islandssögu, árum saman í skyldunámsskólum og framhaldsskólum. Þessi saga hefur verið saga karlmanna, sagt hefur veri frá verkum þeirra, af- rekum og stríðum. Sagan hefur aft- ur á móti þagað yfir verkum og af- rekum kvenna. Þessi þögn hefur án efa haft djúptæk áhrif á sjálfsvit- und kvcnna og nært minnimáttar- kennd þeirra. Þessu námskeiði í kvennasögu var ætlað að bæta hér örlítið um. Það var hugsað fyrir konur í leit að dýpri sjálfsvitund og auknu sjálfs- trausti. Námskeiðið var byggt upp af fræðsluerindum og margskonar hópstarfi sem miðaði að því að styrkja samstöðu og traust og var almenn þáttaka í umræðum ekki síður mikilvægur þáttur þess. Helga Sigurjónsdóttir kennari í Kópavogi flutti erindi sem hún kallar Mæðraveldi - Bræðraveldi - Feðraveldi. Þar sagði hún frá rann- sóknum og könnunum sem gerðar hafa verið á hinum ýmsu þjóð- skipulögum, allt frá steinöld að ný- öld. Kom fram í máli hennar að allar líkur eru á að staða kvenna frá steinöld og fram á miðja bronsöld hafi verið gerólík stöðu kvenna í dag, þar sem þá muni að öllum lík- indum hafa ríkt hið svokallaða mæðraveldi. Einnig fjallaði hún um lækningar kvenna á fyrri öldum, en eins og allir vita voru lækningar í höndum kvenna allt fram að sextándu til sautjándu ald- ar, eða þar til galdraofsóknirnar hófust, en margt bendir til þess að með þeim hafi glatast mest öll þekking kvenna á fornunt læknis- dómum. Anna Sigurðardóttir forstöðu- kona Kvennasögusafnsins las kafla úr óútkominni bók sinni sem fjallar um vinnu kvenna á íslandi á fyrri öldum. Þar segir hún frá kjörunt kvenna í ólaunaðri og launaðri vinnu um aldaraðir. Sýndu konur því mikinn áhuga að bókin yrði gef- in út sem fyrst, þar sem mikill skortur er á góðu fræðsluefni um vinnu kvenna, svo og um galla sögu kvenna. Einn liður í námskeiðinu var að konur störfuðu í stuðningshópum og ræddu þar um ýmis mál er varðar líf kvenna og stöðu. Einnig sagði hver þátttakandi frá lífi ömmu sinnar. Sagt var frá störfum eldri kven- réttindahreyfinga (Kvenréttindaf- él. ísl. Rauðsokkahreyfingunni) kvennahópa á Austurlandi og frá aðdragandanum að stofnun kvennalistanna í Reykjavík og Reykjanesi og starfsemi þeirra. 30 konur komu á námskeiðið og mik- ill hugur var í þeim. Var samdóma álit þeirra að námskeiðið hefði tek- ist með eindæmum vel og horfa nú björtum augum til áframhaldandi starfa innan kvennahreyfinga. Til gamans má geta þess að sameigin- lega áttu þær konur er námskeiðið sóttu u.þ.b. 70 börn og þar af voru 40 undir 16 ára aldri. Egilsstöðum Hansína ' Bryndís Anna Sigurðardóttir og Helga Sig urjónsdóttir. Hluti þátttakenda í námskeiðinu í kvennasögu, sem haldið var á Eiðum 10.-12. júní síðastliðinn.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.