Þjóðviljinn - 29.07.1983, Blaðsíða 9
Föstudagur 29. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
GEFUR ^RÉTTA GRIPIÐ
ficeres, en góð við matrósa og sold-
áta, hvað fyrir að hennar officeres
eru henni stórlega undirgefnir og!
kannske hræddir fyrir henni, af því
að hennar sjófólk og soldater hafa
frí inngang til hennar, en generaler
mega vænta lengi eftir Ieyfi að að
koma henni í tal...“
Arni er þarna einkum með Dön-
um í herdeild og virðist það hafa
verið heldur ófélegur lýður:
„Mínir kammerater höfðu
slegizt um nóttina og einn þeirra
hafði brugt hníf. Voru þar fyrir
straffaðir, þegar um borð komu.
Þeir stálu tóbaki frá mér. Eg fékk
það aldrei síðan. Þeir dönsku eru
aldrei trúir sínum eigin lags-
mönnum, því síður oss íslenzkum,
sem þeir vilja gjarna hafa fyrir sína
þénara. Eru mikið ótrúir í orðum
og verkum, so eg hefi aldrei fengið
nokkurn trúskap hjá danskri nati-
on.. En danskir urðu oft straff-
aðir, bæði fyrir klammerí og þjófn-
að. Eg hitti mig vel á öllum stöð-
um. Rússar voru kvensamir, hvar
þeir sáu tækifæri..."
Hreysti og
hugprýði
1 stríðinu lendir Árni í nokkrum
mannraunum og orustum og segir
svo frá einni:
„/ ..../ Vér skutum nú á báðar
síður, þeir grísku á eina síðu, en vér
á aðra. Að síðustu komum vér
þeim so nær, að við köstuðum vor-
um litla dreka á skip þeirra og höl-
uðum það til okkar. En þegar þeir
tyrknesku soldater sáu þetta,
hlupu þeir allir í sjóinn og syndu
' sem selir. Vér slógum þá flesta, er
ná kunnum, í hel með vorum árum,
en þegar upp komum á skipið,
sáum vér þar dauða kroppa og blóð
á þilfarinu. Voru þá ei til baka
nema tveir menn, sem var faðir og
sonur, er voru skipseigendur.
Faðirinn var so stór og sterkur sem
risi. Hans handleggir voru so
þykkvir sem fullkomins manns lær,
og eftir því var heili kroppurinn.
Hann hafði tvö sverð, eitt í hverri
hendi, og slóst með báðum. En
einn Greker, er var af þeim Alban-
eser, sem eru hið grimmasta fólk,
hann kom á bak þessum tyrkneska
stóra manni og lagði hann á milli
herðanna, og kom oddurinn út
fyrir neðan bringspalirnar. Og þeg-
ar sá stóri, gamli maður fékk sitt
banasár, kastaði hann báðum
sverðunum upp í loftið, so það
söng í þeim, og féll á hrygginn,
meðan blóðið út rann af kroppn-
um. Þannig deyði hann með hreysti
og hugprýði. Sonurinn var fram á
skipinu. Og þegar sonurinn sá, að
faðirinn var nú dauður, varð hann
sorgfullur og varði sig ekkert, held-
ur gekk viljugur til síns dauða, og
Rússar hjuggu hans höfuð af, en
færðuhannfyrstúr klæðunum./... /
Þeim feðgum var í sjó varpað, og
voru talin á þeim gamla manni 18
fárleg sár og það nítjánda, er hann
af deyði. Þegar þeir komu í vatnið,
var höfuð og fætur í sjónum, en
mittið líkamans flaut so lengi sem
sáum, en vor doktor sagði, þeir
kynnu ómögulega sökkva, því allt
blóð væri af þeim...“
Garpskapur
í góðviðri
„/... / Einn dag var gott veður.
Skyldum vér nú fá eitthvað lífs
upphold. Komum vér upp á ey
nokkra, er Tyrkjar í bjuggu. Þegar
þeir sáu oss, hlupu þeir allir út í
skóginn, után tvær konur voru
heima. Sú eina var ólétt, en önnur
ei. Henni lágu þeir hjá. En þá
óléttu uppskáru þeir og tóku fóstr-
ið út af hennar lífi - og það gegn-
um stungið. Hrærðust bæði lærin
og handleggirnir á því, er þeim
þótti gaman upp á að sjá.“
Árni átti svo eftir að þvælast víð-
ar um; af og til kom hann til íslands
en eirði aldrei hér og var óðara
stokkinn á ný út í lönd. Hann samdi
ferðasögu sína á þeim árum sem
hann bjó hér á landi og dó einhvers
staðar við Limafjörð einhvern tíma
á árunum 1801-1820.
- gat.
Upplýsingaþjónusta
á Kirkjubæjarkláustri
Á Kirkjubæjarklaustri er nýlega
tekin til starfa Upplýsingaþjónusta
fyrir ferðamenn. Þetta er tilraun
sem er ætlað að veita ferða-
mönnum aukna og betri þjónustu
en áður hefur verið. Þessi stárfsemi
verður til húsa í félagsheimilinu
Kirkjuhvoli og verður þar opið alla
daga frá 8:30-10:30 á morgnana og
frá 20:00 til 21:00 á kvöldin. Að
auki er hægt að ná í framkvæmda-
stjóra Upplýsingaþjónustunnar í
síma 99-7645 á öðrum tímum.
Upplýsingaþjónustan hefur um-
sjón með:
1. Tjaldsvæði því sem nýlega
hefur risið við Kleifar skammt frá
Kirkjubæjarklaustri (ca 1 km).
2. Hestaleigu þar sem hópum
eða einstaklingum gefst kostur á
því að fá hesta leigða í stuttar eða
langar ferðir með leiðsögumanni.
Einnig bara rétt að skreppa á bak
og láta taka af sér mynd.
3. Sölu veiðileyfa í nokkrum
ám og vötnum á svæðinu milli
sanda.
4. Bílferðir inn á hálendið t.d.
að Laka og virða fyrir sér hinar 200
ára gömlu eldstöðvar.
5. Leigu á svefnpokaplássi í
Félagsheimilinu Kirkjuhvoli svo og
Systrastapi skammt frá Kirkjubæjarklaustri. Lengst til vinstri er
Eldmessutangi - þar stoppaði hraunið.
einnig sali til fundarhalda eða ann-
arra samkvæma.
6. Leigu á herbergjum til gist-
ingar á einkaheimilum.
Hér að framan eru talin nokkur
atriði sem Upplýsingaþjónustu
þessa varðar. Einnig mun þarna
vera að finna eitthvað af minjagrip-
um til sölu svo og einnig verða
veittar upplýsingar um ýmis önnur
atriði sem ferðamanni gætu að
gagni komið.
REYKJAVIK:
Gúmmlvinnustofan, Skipholti 35
Otti Sæmundsson, Skipholti, 5
Höfðadekk, sf, Tangarhöfða 15
Hjólbarðastöðin, Skeifunni 5
Hjólbarðahúsið, Skeifunni 11
Hjólbarðahöllin, Fellsmúla 24
AKRANES:
Hjólbarðaviðgerðin hf, Suðurgötu 41
Hjólbarðaþjónustan, Dalbraut 13
BORGARNES:
Kaupfélag Borgfirðinga
ÓLAFSVÍK:
Marls Gilsfjörð
Hermann Sigurðsson
BÚÐARDALUR:
Dalverk hf.
ÍSAFJÖRÐUR:
Hjólbarðaverkstæðið, Suðurgötu
BOLUNGARVÍK:
Vélsmiðja Bolungarvlkur
VÍÐIDALUR:
Vólaverkstæðið Vfðir
BLÖNDUÓS:
Bllaþjónustan, Iði
VARfl
Véla
SAUÐÁRKRÓKUR:
Kaupfélag Skagfirðinga
Vélsmiðjan Logi
HOFSÓS:
Bllaverkstæðið Pardus
DALVÍK:
Bllaverkstæði Dalvíkur
ÓLAFSFJÖROUR:
Bllaverkstæðið Múlatindur
SIGLUFJÖRÐUR:
Ragnar Guðmundsson
AKUREYRI:
Hjólbarðaþjónustan, Hvannarvöllum 14 B
Höldur sf, Tryggvagötu 14
HÚSAVÍK:
Vlkurbarðinn, Garðarsbr. 18 A
KELDUHVERFI:
Vólav. Har. Þórarinssonar, Kvistási
EGILSSTAÐIR:
Dagsverk sf.
Véltækni sf.
ESKIFJÖRÐUR:
Bifrv. Benna oi
REYOÁRI
Bi
STÖÐVARFJÖROUR:
Sveinn Ingimundarson
HÖFN:
Dekkja- og smurþjónustan, Hafnarbr.
KIRKJUBÆJARKLAUSTUR:
Gunnar Valdimarsson
FLÚÐIR, HRUNAMANNAHREPPI
Viðgerðarverkstæðið, Varmalandi
HVOLSVÖLLUR:
Erlingur Ólafsson
SELFOSS: ,
Kaupfélag Árnesinga
VESTMANNAEYJAR:
Hjólbarðastofa v/Strandv.
ÞORLÁKSHÖFN:
Bifreiðaþjónustan
HVERAGERÐI:
Bjarni Snæbjörnsson
GRINDAVÍK:
Hjólbarðaverkstæði Grindavlkur
KÓPAVOGUR: x
ðjuvegi 32
l’MII.MA
HEKLAHF
Laugavegi 170-172 Sími 21240