Þjóðviljinn - 29.07.1983, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 29.07.1983, Blaðsíða 12
MQÐVIUINN Föstudagur 29. júlí 1983 Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná i blaðamenn og aðra starlsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 -12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent heiur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663 „ Það eru akkúrat tíu ár síðan núna, þettavareinmittvikuna fyrir verslunarhelgina og ég var að fara einn á puttanum austur meðsvefnpokaogtjald." Það er Þröstur Haraldsson sem er að segja frá, en hann lenti á sínum tíma í nokkru basli á Skeiðarársandi og í Morsárdal þótt þær raunir megi teljast smámunirhjáþeim hrakningum sem menn lentu í fyrrátímum. En þessar raunir Þrastar mega engu að síður teljast nokkuð dæmigerðar þegar nútímamenn fara einir með staf og mal inn í ríki náttúrunnar. Aleinn íheiminum í Morsárdal „Ég ætlaði á Hornafjörð á putt- anum. Þar átti ég kunningja og ætl- aði með þeim upp á Hérað. Fyrsta daginn gisti ég á Skógum í góðu yfirlæti hjá þeim Arnari Jónssyni og Þórhildi Þorieifsdóttur sem þá sáu um þann stað og næsta dag er ég kominn á Mýrdalssand þar sem ég sest niður og bíð eftir bíl. Ég beið dágóða stund, og enginn bíll - hins vegar kemur loks rúta sem stoppar og þar er kominn Árni Björnsson þjóðháttafræðingur með fulla rútu af þýskum túristum sem hann stjórnaði af mikilli rögg- semi. Með honum kemst ég í Skaft- ártungur og þaðan að Núpsvötn- um. f þann tíð var enn verið að byggja stóru brúna yfir Skeiðará, en ekki búið að leggja veginn sem er núna. Vegurinn sem var þá beygði strax upp að jöklinum og lá nær honum en núna. Ég þramma af stað, það var orðið nokkuð áliðið, en ekki tekið að skyggja að ráði. Mér til halds og trausts hafði ég göngustaf sem átti eftir að koma sér vel, því þarna er skúmavarp sem ég varð allóþyrmilega var við. Sandurinn er kolsvartur og jök- ullinn líka og yfir gnæfir ógnvæn- legur Lómagnúpur og ég aleinn. Og nú taka einir sex skúmar að voma yfir mér og sýna ýmsa til- burði í þá átt að fara að ráðast á mig. Það fóru að rifjast upp fyrir mér sögur sem ég hafði heyrt um árás- artækni þeirra - þeir gættu þess að koma úr sólarátt svo maður sæi þá ekki og ættu það líka til að ráðast að manni tveir í einu - ég var orð- inn skíthræddur. En þá var það prikið góða sem bjargaði mér í þetta sinn: ég hélt því yfir höfðinu og þeir létu mig í friði... Þröstur Haraldsson segir frá 10 ára ferðalagi Um kvöldið hitti ég nokkra brú- argerðarmenn sem bjóða mér gist- ingu í skála sem þeir höfðu þarna og daginn eftir fer ég af stað og ætla að komast yfir Skeiðará. Til þess þurfti ég að fara með jökli og kom- ast fyrir upptökin og það tekst mér án teljandi hrakfalla. Áin er þarna mjög tilkomumikil og ógnarleg, hún brýst öll fram á einum stað og á móti er klettaveggur þar sem hún hefur grafið mikinn helli. Jæja, ég kem nú inn í Bæjar- staðarskóg og nú er komin glamp- andi sól, ég sest niður og ríf í mig nesti - ég er aleinn í heiminum. Nú þarf að komast yfir Morsá og á leiðinni að ánni kveða við ógnandi drunur í Morsárjökli, þar sem meg- injökullinn ryður fram af honum efst og það rauk upp þegar stykkin duttu. Þarna í ánni eru margar smákvíslar og ég finn vað og fer út í - ég er kominn upp í nára og bak- pokinn var þungur þannig að ég fer að rugga og missa jafnvægið. Ég er aleinn, það drynur í jöklinum og ég held að nú muni ég sennilegast enda lífdagana... Einhvern veginn klöngrast ég þó yfir og kemst í Skaftafell þar sem ég fæ kaffi og kleinur og aftur er ver- öldin farin að brosa. Um nóttina er ég kominn að Fagurhólsmýri þar sem ég tjalda og sú nótt var mér erfið. Það rigndi stanslaust og blés og ég var alla nóttina að reyna aði hemja tjaldið. Þegar birti tók ég svo saman tjaldið og fór inn í kaupfélagið þar sem ég ætlaði að bíða eftir einhverjum bíl. Ég bíð og bíð. Loks kemur rúta á leið upp í Skaftafell um hádegið og með henni önnur rúta full að Mennta- málanefnd Norðurlandaráðs með Gylfa Þ. í fararbroddi með höndina í fatla af einhverjum orsökum. Þarna eru líka Erlendur Patursson og Per Olof Sundman og önnur stórmenni og með þessari sveit fæ ég svo far á bakaleiðinni, þegar þeir koma úr Skaftafelli, ákaflega kátir. Við komumst klakklaust til Hornafjarðar, nema hvað einhvers staðar á leiðinni sprakk svo liðið var drifið út og koníakspeli látinn ganga... A Héraðinu rigndi svo og rigndi - á tveim dögum kom álíka úrkoma og annars er á einum mánuði. Það var svo sem eftir öðru í þessari ferð.“ Öræfakyrrðln ge*ur orðið ógurleg þegar dunar í jöklinum og skúmarnir náJgast í úfnum ham. Nú fást fjórar tegundir: Appelsín, Cola, Límonaði og Ginger Ale. Þér er óhætt að drekka sykurlaust Soda Stream eftir æfingar því það er minna en ein kaloría í glasi. , Þúdiekkur sykurlaust soda Stieam Sól hf. ÞVERHOLTI 19 SÍMI26300 REYKJAVÍK - gat

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.