Þjóðviljinn - 25.08.1983, Side 2

Þjóðviljinn - 25.08.1983, Side 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Bridge Er ekki alltaf verið að tuða um það.að allt geti gerst í bridge? Hér er skemmtilegt dæmi um það: Norður ÁK86542 D4 Austur Á64 83 KG108652 Norður gefur og oþnar á einum tígli. Þú segir fimm lauf i Austri og Suður segir fimm spaða, sem Norður hækkar i sex eftir pass frá félaga þín- um. Þú doblar til að félagi þinn sþili út tígli og allir segja pass. Þér léttir þeg- ar félagi þinn spilar út tíguldrottning- unni. Sagnhafi lætur kónginn og þú trompar en þá kemur fyrsta áfallið, því sagnhafi yfirtrompar. Næst er hjarta spilaö og blindur fær á drottn- inguna og tígulás er spilað. Þú tromp- ar, því líklegt er að annars láti sagn- hafi laufatapslag af hendinni, og sagnhafi yfirtrompar. Blindur á næsta slag á hjartaás og síðan kemur spaði og þú verður fyrir öðru áfalli því kóng- urinn kemur frá félaga þínum, undir ásinn þinn. Og nú rennur upp fyrir þér aö þú verður að spila laufi frá kóng- num (þriðja áfallið) og auðvitað átti sagnhafi ásinn í laufi og tvö smáspil með og náði að. trompa þriðja laufið með öðrum sþaðanum í blindum. Sanghafi átfi þessi spil: DG109732 K72-Á73 Verðlaunaspilið það árið? Kannski. Skák Karpov að tafli - 189 Tíu fyrstu skákunum í einvígi Karp- ovs og Kortsnojs lauk á þann veg að Karpov vann eina skák en níu skákum lauk meðjafntefli. Meðsama áframhaldi sáu menn fram á að 60 skákir þyrfti til að ná fram úrslitum í einvíginu. Einvígið hófst um miðjan júlí og gat þess vegna staðið fram að jólum. I þessum tíu fyrstu skákum var Kortsnoj afar nálægt því að vinna þriðju, fimmtu og níundu skák. í ní- undu skákinni kom þessi staða upp. Kortsnoj hefur byggt upp yfir burða- stöðu en var kominn í timahrak: Kortsnoj - Karpov 36. Hb5? (Nærtækur leikur en ekki góður. Með 36. He5! heldur hvítur miklum sókn- arfærum og valdar jafnframt mikil- vægan e3 - reit. Hann hótar þá m.a. 37. h5 og 37. f5.) 36. ..Dd2! 37. Kh2 De3! 36. Hxb6 Ha8 39. Dxe3 (Nú mátti reyna 39. Dg5. Tímahrakið átti stóran þátt í þessum leik sem leiðir til jafnteflis.) 39. ..dxe3 40. Hb2 Ha3 41. Be4 Hc3 - og hér sömdu keppendur um jafn- tefli. Af tal- meina- fræði Hér er í stuttu fríi Guðrún Sig- ríður Sigurðardóttir, seni er við nám í Padova á Ítalíu í nokkru seiti heitir talmeinafræði ojí er til- tölulega ný grein af ineiði vísind- anna. Hún vinnur nú í sumar á Reykjalundi og er búin með fyrsta árið af þremur í náminu úti. Við nörruðum hana til okkar og spurðum hana út í þetta: „Já þetta er ný færðigrein og tengist eiginlega „nýju línunni" innan læknavísinda þar sem aukin áhersla er lögð á sérhæf- ingu. Það má ekki rugla þessu saman við talkennslu, þetta fer meira fram á sjúkrahúsunum og felst í því að reyna að endurhæfa þá sem eru haldnir því sem er kallað „Afasia“ og þjálfa upp talfærin hjá þeim sem haldnireru ýmsum tallýtum af ýmsum ástæð- um - eru holgóma eða stama og þar koma oft inn í sálrænir sjúk- dómar. Af þessu að dæma er þetta ansi yfirgripsmikið. „Já þetta kemur inn á málvís- indi, anatómíu, lífeðlisfræði, sál- fræði, taugafræði, hljóðeölis- fræði: þetta eru grunnkúrsar og síðan lærum við sálfræðileg mál- vísindi, taugasálfræði, barnasál- fræði og margt fleira. Maður þarf að hafa grunn í málvísindum og læknisfræði áður en maður fer út í þetta nám. Þarna sem ég er hefur á seinni árum verið mikil áhersla lögð á eina grein málvísindanna sem er hljóðfræði en hana verður að kunna til að geta einbeitt sér að talgöllum eins og stami og klofnum gómi, annars eru skól- arnir nokkuð misjafnir." Er erfítt að komast í svona nám? „Það voru minnir mig 180 sem sóttu um að komast um leið og ég og 70 teknir. þannig að það eru fjöldatakmarkanir þarna. Það Rœtt við Guðrúnu Sigurðardóttur Gull- korn úr munni Banda- ríkja- forseta Viö rákumst á eftirfarandi gullkorn, sem hrotið hafa úr munni Bandaríkjaforseta, Ronalds Reagan, í gegnum tíðina, í bókinni The People’ s Almanac, 1981. - Við ættum að lýsa yfir stríði á hendur Víetnam. Við getum malbikað allt landið, málað á það bílastœði og náð heim fyrir jól. “ - 1966. - „Peir sem lifa á almannatrygg- ingum eru eins og andlitslaus - manngrúi bíðandi eftir ölm- usu. “ - 1966. - „Pað er kominn tími til að við hœttum að gœta bróður okk- ar.“ - Úr ræðu um niðurskurð til almannatrygginga í Kalif- orníu 1967. voru fjögur inntökupróf sem maður þurfti að fara í - það voru aðallega svona þekkingar-, greindar- og persónuleikapróf. Eg var eini útlendingurinn þarna, og þar að auki frá Islandi, og ég býst við að það hafi eitthvað haft áhrif á að ég komst inn. Námið er reyndar mjög stíft á þessum skóla. Öll próf eru munnleg og allir viðstaddir nteðan þau fara fram og þá er nú betra að kunna þetta allt saman.“ Og nú ertu á Reykjalundi... „Já ég vinn þarna hjá Sigríði Magnúsdóttur sem er talmeina- fræðingur og hefur lært í Banda- ríkjunum. Þarna eru sjúklingar sem þjást af „Afasia" sern ég nefndi áðan, en sá sjúkdómurlýs- ir sér í því að annað hvort tal- stöðvar eða málstöðvar sem hvorar tveggja eru í vinstra hveli heilans hafa skaddast, oftast vegna þess að viðkomandi hefur fengið slag. Það getur orðið nokkuð erfitt að eiga við þennan sjúkdóm því það er mjög ein- staklingsbundið hvernig hann lýs- ir sér. Við erum hins vegar fljótar að sjá hvort eitthvað sé hægt að gera fyrir sjúklinginn. Þarna á Reykjalundi erum við líka með krakka sem hafa ein- hverja talgalla sem stundum geta verið vegna þess að krakkarnir heyra illa og missa sum hljóð úr þegar þau eru að Iæra að tala með því að herma eftir þeim full- orðnu. Það vantar fólk nteð þessa menntun hér heima, þær eru bara tvær sem starfa hér, Sigríður og I Ebba Edwaldsdóttir á Grensás- deildipni. Helst vildi ég starfa á í íslenskri stofnun, en ég gæti líka ' mjög vel Itugsað mér að búa á Ítalíu því ég kann mjög vel við mig þar.“ -gat - „Efþeir vilja blóðbað þá skulu þeir fá það.“ - Um stúdentaó- eirðir, 1970. Hver segir að málarar séu bara naflarýnendur, hver segir að framsækin haráttulist sé dauð? Einn er allavega sá málari sem lcggur óhræddur til atlögu við skelfílegasta heimsveldi allra alda - bírókratíið. Sá heitir Werner Belmont og ætti að þekkja þetta: hann er fyrrum lögfræðingur og starfsmaður hjá því opinbera, sem er hættur þeirri vitleysu og farinn að mála. Hann hefur skorið upp herör gegn hvers kyns skriffinnsku og hér sjáum við hvernig hann beitir einu tákni með markvissum hætti-stimplinum sem hann setur í þjóðfána Bandaríkjanna og Sovétríkj- anna, og gengur hann, þ.e. stimpillinn í gegnum alla list Belmonts sem nokkurs konar leiðarstef. Nýi klúbburinn Árið 1850 var nýtt klúbbfélag stofnað í Reykjavík og nefndist Bræðrafélagið. Þetta var í raun- inni hlutafélag og voru aðstand- cndur þess kaupmenn, embættis- menn og borgarar. Tilgangur félagsins var að koma upp klúbbhúsi er betur hæfði kröfum tímans en gamli klúbburinn þótti gera. Sæmilega tókst að safna hlutafé og nam það bráðlega 5000 ríkisdölum. Runnu þeir til þess að koma upp tvílyftu húsi er nefnt var Nýi klúbburinn. Helstu forgöngumenn þessa fyrirtækis voru kaupmennirnir M.W'. Biering, C. Fr. Síemsen og R P. Tærgesen. Féiagið festi kaup á gömlu klúbbhúsunum og hugðist einnig feka starfsemi þar. En allur gekk þessi rekstur á tréfótum og varð ekki langær. í árslok 1850 voru íbúar Reykjavíkur 1149 en um 60 þús. manns á landinu öllu. -mhg.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.