Þjóðviljinn - 14.09.1983, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 14.09.1983, Qupperneq 4
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 14. september 1983 IBLAÐAUKI Hef flekamót, byggingakrana, 30 tonna bílkrana, vörubíla, gröfur og loftpressu. Fullkomiö verkstæði. — Góöur mannskapur. SIGFÚS KRISTINSSON Byggingameistari — Bankavegi 3, Sellossi — Sími 1275 Verkstæði Austurvegi 42-44 — Sími 1550 „Glerbúrið“ séð að innan. Hillurnar eru úr stáli og allar efri hillur opnar. Svart og hvítt er allsráðandi. Múrsteinn er mikið í tísku í eldhúsinu, á veggjum eða í kringum ofna, en gleymið því ekki að það sest í hann ryk og óhreinindi og hann þarf að mála ansi oft. Fallegt eldhús með hvítum flísum og furulofti og öll áhöld sýnileg. Flísar eru ofan á skápnum og á veggnum, furulistar, og kústskaft sem hangir í keðju, sem hægt er að hengja á. Veggurinn er veggfóðraður með gömlum dagblöðum og stíflakkað yflr. Hvers konar eld BYGGI STÓRT OG SMÁTT Hér á eftir eru nokkrar almennar leiðbeiningar fyrir þá sem eru að hugsa um að fá sér eldhúsinnréttingu. Áður en að þeim er komið ætlum við að reyna að gefa nokkrar ráðleggingar um þá þætti, sem þrátt fyrir allt verða oft erfiðastir þegar veljaskal eldhúsinnréttingu, en það er útlitið sjálft, - efnið, viðurinn og liturinn. í fyrsta lagi skaltu skoða vel húsnæðið sem eldhúsinnréttingin á að fara í. Ef þetta er ný íbúð, þ.e. ný fyrir þig, húsnæði sem þú þekkir ekki sem íverustað og vinnustað, er full ástæða til að taka sér góðan tíma áður en ákveðið er hvers kon- ar eldhúsinnrétting er keypt. Hugs- aðu einnig um húsnæðið að öðru leyti. Er það nýbyggt eða gamalt? Jafnvel þótt eldhúsið sé lokað, þ.e. ekki opið yfir í stofu eða „miðstöð" (alrúm) er samt sem áður æskilegt að eitthvert samræmi sé í innréttingum og húsgögnum. Hér er ekki átt við það að fólk fari að „mublera" allt upp á nýtt, þótt flutt sé í nýja íbúð, heldur að reynt sé að raða hlutum smekklega saman og það sem keypt er. nýtt falli inn í einhvers konar heildarmynd og tengi saman það sem fyrir er. Sannleikurinn er sá að við ís- lendingar erum almennt ákaflega illa menntuð til augnanna ef svo má orða það. Almenn myndræn skynjun fólks er oft ákaflega lítið þroskuð og fólk lætur plata inn á sig ótrúlegustu samsetningum og smekkleysu, af því að það heldur að svona eigi maður að hafa það á heimili sínu. Heimilin verða eins og lélegir útstillingabásar, eitt her- bergið er með viðarklæðingu, ann- að flísum, það þriðja með vegg- fóðri og það fjórða hraunmálað. Og stundum sér maður allar þessar útgáfur í einu og sama herberginu. Auðvitað líður fólki ekki vel inni í þessum ósköpum og eftir stuttan tíma fer það að rífa niður og ryðja út fyrir eitthvað ennþá nýrra og dýrara, sem síðan fellur engan veg- inn að því sem fyrir er. Svona gengur þetta koll af kolli, vegna þess að viðkomandi hefur ekki gert sér grein fyrir því hvernig hann sjálfur vill hafa sitt umhverfi, hefur ekki áttað sig á að það eru oft smáatriðin og einfaldleikinn sem gera gæfumuninn, - fyrir utan að látlaust umhverfi er oftast ódýrara og þægilegra í allri umgengni. Þegar keypt er eldhúsinnrétting er margt sem þarf að hafa í huga. A hún að vera til bráðabirgða, þar til fjárhagurinn batnar, eða til fram- búðar? Þegar búið er að gera þetta upp við sig, sem oft getur tekið tíma, er hægt að fara ítð skoða sig um. Lítil ábending til þeirra sem ætla að fá sér bráðabirgðaeldhús: Það er dýrt að vera blankur. Mundu hvað það kostar að setja eina innréttingu upp - rífa hana niður - og hugsaðu aðeins um ástandið á heimilinu þegar þú eftir fimm eða tíu ár þarft að rífa allt út úr eldhús- inu, vaska upp í baðherberginu, elda á ganginum o.s.frv. á meðan> verið er að skipta um eldhús. Sem sagt, ef þessar hugsanir hrella þig ekki og þú ákveður að fá þér aðeins bráðabirgðaeldhús, hafðu það þá til bráðabrigða. Fáðu þér ódýrar hillur, sem auðvelt er að ná niður (skrúfaðar en ekki negldar fastar) góða eldavél og góðan vask. Gam- all skenkur eða gamall bókaskápur getur dugað, ef hann er lakkaður upp. Ætlirðu hins vegar að eiga þitt eldhús fram á elliár þarftu fyrst og fremst að hugsa um þrennt: Hag- kvæmni, þrif, útlit. Hagkvæmnin er númer eitt. Eldhús er vinnustað- ur og þarf helst að vera skemmti- legur vinnustaður, þar sem þú get- ur hugsað þér að dunda tímunum saman við að búa til spennandi rétti. En einnig þarftu að geta verið snögg(ur) að skella þar fram ein- földum morgunmat og koma eld- húsinu fljótt í snyrtilegt form aftur. Sumir elda þannig að það er alltaf eins og það hafi verið gerð loftárás á staðinn. Fyrir svoleiðis fólk er betra að hafa hentugt eldhús sem ekki er seinlegt að þrífa. Reyndu að átta þig á því hvernig þú vinnur í eldhúsi, - frá vinstri til hægri, eða öfugt? Hafðu ekki of langt á milli eldavélar og vasks og reyndu að hafa svæðin sem þú vinnur mest við næst glugganum. Það er gott að horfa út um glugga á meðan maður hrærir í pottunum eða vaskar upp. Þrifin eru líka geysilega þýðingarmikil. Viðarteg- undin eða málningin er aðalat- riðið. Innréttingar með pílárum, glerrúðum, útskornum hillum o.s.frv. eru líka seinlegar í þrifum. Einfaldar innréttingar með sléttum flötum (að ekki sé talað um plast) eru lang auðveldastar í þrifum. Og þá er það útlitið. Það skiptir nefni- lega miklu máli hvernig þér líður við þrifin, hvernig eldhúsið lítur út. Og ef innréttingin á að endast lengi, er betra að hún sé ekki bara samkvæmt nýjustu tískustraumum heldur á einhvern hátt sígild. Það er líka þýðingarmikið að efnið í innréttingunni sé það sterkt að það sé líklegt til að vera fallegt lengi, ekki bara í dag. Og mundu, þegar þú skoðar glansandi eldhús í útstill- ingaglugga eða í bæklingi, að reyna að ímynda þér hvernig þetta glans- andi fína eldhús lítur út á venju- legum mánudagsmorgni, þegar öll fjölskyldan er búin að fá sér morg- unmatinn og enginn má vera að ganga frá eftir sig. Mikið af opnurn hillum og glerskápum krefjast þess nefnilega að í hillunum sé allt í röð og reglu. Látum þetta duga og snú- um okkur að tæknilegu hliðinni: Hvernig er skápafyrirkomulagið? • Skáparinir skulu vera nægjan- '. .. EINU EININGAHÚSIN Á ÍSLANDI SEM HAFA VIÐURKENNINGU RANNSÓKNASTOFNUNAR BYGGINGARIÐNAÐARINS. Þar með talin bæði íslensk og erlend einingahús. MckMÍAu 1,600 Alaur.yrt. Símí 86-22251. Smiðjuv«gi 28, 260 Kópa- v«fi. Sími 61-79277. Hosby hefur 25 óra reynslu i byggingu vandaðra einbýlishúsa. Þau eru byggð um mestalla Evrópu og uppfylla alls staðar ströngustu kröfur. Þau hafa ótvíræða kosti, sem eru meðal annars: • Einu einingahúsin hór ó landi sem hafa viður- kenningu Rannsóknarstofnunar byggingar- iðnaðarins. • Byggingartiminn er aðeins 3—4 mánuðir frá pöntun þar til þú getur flutt inn í fullbúið hús. • 200 mm steinullareinangrun í loftum og gólfum, gluggum. • Hurðir og gluggar úr mahóni. • Allar innróttingar og búnaður fylgir með — mikl- ir valmöguleikar. • Teiknistofa HOSBY-húsa, Smiðjuvegi, býður einnig almenna teikniþjónustu fyrir alla húsbyggj- endur. Það «ru möguleikar á að skoða Hosby hús í Reykjavík, Akureyri og á ísafirði. Hafið samband við okkur og fáið allar nánari upplýsingar eða biðjið um ókeyp- is litmyndabækling.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.