Þjóðviljinn - 30.09.1983, Page 4

Þjóðviljinn - 30.09.1983, Page 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 30. september 1983 NOWIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyf- ingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Jptitstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson. Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson, Auglýsingastjóri: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir. Afgreiðsiustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúðvik Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson. íþróttafréttaritari: Víðir Sigurðsson. Utlit og hönnun: Guðjón Sveinbjörnsson, Þröstur Haraldsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Magnús Bergmann. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson. Skrifstofa: Guörún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Margrét Guðmundsd. Húsmóðir: Bergljót GuðjónsdOttir. Bílstjóri: Oiöf Sigurðardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6, Reykjavik-, sími 81333. Umbrot og setning: Prent. Prentun: Blaöaprent h.f. Gunnar Thoroddsen Sjálfstæðið er lífsforsenda íslenskrar þjóðar. Sagan skráir langvinna baráttu fyrir óskoruðum fullveldisrétti íslendinga í samfélagi þjóðanna. Tungan og bók- menntirnar, menningin og hin lærðu fræði voru eðal- kostir sem gáfu íslendingum réttinn til að reisa kröfur til sjálfstæðis. Öldin sem senn er á enda gaf þjóðinni marga glæsta syni sem mótuðu fullveldisbraut og treystu burðarveggi þess samfélags mannúðar, samhjálpar og velferðar sem Islendingar búa við á okkar tímum. Fáir forystumenn tóku jafn lengi og jafn stórbrotinn þátt í sköpun þessara sögu og Gunnar Thoroddsen. í föðurhúsum var barátta Thoroddsen bræðranna - Skúla, Pórðar og Sigurðar - fyrir frelsi og framförum umræðuefni á hverjum degi. Á námsárum flutti Gunn- j ar í Kaupmannahöfn fræga ræðu um sjálfstæðisrétt; þjóðar sinnar. Ungur mótaði hann framar öðrum! mannúðarstrengina í stefnu stærsta '< stjórnmálaflokksins í landinu. Menntun, menning og j umhyggja um velferð fólksins urðu aðalsmerki borg- ! arstjórnar þegar forystan í höfuðborginni var í höndum Gunnars. Oll þessi verk sem unnin voru fyrir röskum aldarfjórðungi síðan hefðu nægt til að skipa Gunnari Thoroddsen á virðingarsess í sögu íslendinga. Samt voru merkustu kaflarnir í æfibókinni enn óskráðir. Gunnar Thoroddsen var maður lærdóms og lista. j Lögfræðin og tónlistin voru honum í senn vettvangur j nautnar og sköpunar. Prófessorinn og hæstaréttardóm- | arinn, stjórnlagafræðingurinn og tónskáldið urðu í ein- j um manni endurspeglun margs hins besta úr menning- j ararfleifð íslenskrar þjóðar - eiginleikar sem löngum ! hafa gert íslendinga sterka þegar að þeim er sótt. Það blésu oft naprir vindar um Gunnar Thoroddsen ; þótt maðurinn sjálfur nyti sín best í hlýjum andvara á j sólskinsdegi. Með storminn í fangið varð Gunnar stær- i stur. Síðustu ár munu um aldir verða forvitnilegustu ; kaflarnir í stjórnmálasögu síðari áratuga. Á örlagastund vogaði Gunnar öllu sem nokkur for- : ystumaður getur lagt á mæliskálar baráttunnar og sigr- 1 aði svo glæsilega að þjóðin fagnaði foringja á einstæðan , hátt. Hann leysti flækjur í stjórnarmyndun sem allir ; aðrir forystumenn höfðu árangurslaust glímt við í i margar vikur. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hafnaði ; lausninni en klukkustund síðar kom Gunnar á öldum sjónvarpsins inn á hvert heimili í landinu - öruggur, leiftrandi, snjall-og allir nema þeirsem hatrið blindaði j skyldu á samri stundu að þar fór bjargvættur þingræðis, ; lýðræðis og þjóðarheillar. Næstu ár urðu litríkur tími. Glæsilegt lokaskeið á j löngum ferli. Með unga menn við hlið sér var Gunnar ; samt oftast yngstur okkar allra. Fjörið og kímnin, j dugnaðurinn og einbeitnin, hafsjór fróðleiks um menn j og málefni. Allt þetta gerði dagsstund með Gunnari ! Thoroddsen að dýrmætum skóla. Hann var snillingur í embætti forsætisráðherra. Enginn annar hefur á síðari tímum kunnað jafnvel þá list að laða ólík öfl til sam- starfs. í völundarhúsi íslenskra stjórnmála er slíkur eiginleiki nauðsynleg en sjaldgæf gáfa. Þjóðviljinn og hreyfing íslenskra sósíalista voru oft á öndverðum meiði við Gunnar Thoroddsen. Samt flutti hann þá ræðu sem lengi verður andstæðingum erlends valds uppspretta hugsjónakrafts. Orðin sem Gunnar flutti á svölum Alþingishússins 1945 eru leiðarljós í ævarandi sjálfstæðisbaráttu íslendinga. ór klippt Allir í vörn Einu sinni var strákalið uppá Skaga sem gerði garðinn frægan í knattspyrnunni. Það hét því frumlega nafni Stefanía og að sjálfsögðu var áherslan lögð á sóknarleikinn. Afleiðingin varð sú að stundum fataðist Stefaníu vörnin, og því var það eitt sinn þegar staðan í leik var 11-0 fyrir andstæðingana að fyrirliðinn í Stefaníu kallaði upp: „Allir í vörn í Stefaníu“. Ekki var seinna vænna, og þetta kemur upp í hugann þegar morgunblöðin eru lesin. Staðan orðin svo hrikaleg að allir eru komnir í vörn í stjórnarliðinu. Spilltasti flokkurinn Tíminn snýst til varnar Steingrími Hermannssyni og bílafríðindum hans. Enda þótt forsætisráðherra sé eini ráðher- rann sem notað hefur sér, meðan hann er enn í embætti, heimild til niðurfellingar á aðflutningsgjöld- um á bifreið til eigin nota frá 1978 er reynt að klóra í bakkann. Og það er hin gullvæga regla Megas- ar sem notuð er, að svo skuli böl bæta að benda á annað verra. Vilmundur heitinn Gylfason hélt því fram að Framsóknar- flokkurinn væri spilltastur ís- lenskra stjórnmálaflokka. Það er ekki nóg með að pólitískt siðferði sé í ólagi meðal forystumanna Framsóknarflokksins, eins og best kemur fram í tvískinnungi þeirra í hermálunum, heldur virðast þeir gegnsýrðir af þeim hugsunarhætti að nota skuli hverja smugu í ábataskyni fyrir sjálfa sig. Ráðherrafríðindi voru mjög til umræðu á sl. áratug og eftir lotuna 1977 og 1978 í þeim efnum voru víst flestir á þeirri skoðun, að ráðherrum þætti sá pólitíski kostur vænstur að gleyma fríðindunum. Almenn- ingsálitið hafði breyst og það þótti hreinlega ekki við hæfi lengur að ráðherrar sem prédik- uðu aðhaldssemi yfir landslýð veltu sér upp úr allskyns fríð- indum, eins og t.d. hagstæðum lánum og niðurfellingu aðflutn- ingsgjalda í tengslum við bíla- kaup. Blindfullur bindindispostuli Stejngrímur Hermannsson hefur verið í fararbroddi leiftur- sóknar ríkisstjórnarinnar og var- ið það að setja úr sambandi lýð- ræðislegar leikreglur til þess að kveða verðbólgudrauginn í kút- inn með gífurlegri kauplækkun. Hann hefur ekki sparað hvatn- ingarorðin um sparnað og að- haldssemi alþýðuheimilanna í landinu. En hver trúir blindfull- um bindindispostula? Hver leggur við eyrun þegar í ljós kem- ur að sá sem hefur á torgum pré- dikað strangt bindindi er sjálfur á blindafylleríi bak við tjöldin? Forsætisráðherra er líkt farið og stórstúkumanni sem drekkur á laun. Eftir að hafa prédikað hátt og snjallt um aðhald og sparsemi snuðar hann ríkiskassann um hvorki meira né minna en 700 þúsund krónur í bílakaupum. Hver var að tala um nauðsyn þess að grynna á skuldum ríkisins? Reynir á Matthías Og það eru fleiri í vörninni. Svo skal böl bæta að benda á ann- að verra, segja þeir í heilbrigðis- ráðuneytinu og reyna að koma því á Stefán Jónsson formann Tryggingarráðs að ekki skyldi hafa verið greidd út lögboðin hækkun á vasapeningum til fólks á dvalarstofnunum eftir 1. j úní sl. Stefán hefur sjálfur lýst yfir því í Þjóðviljanum að Tryggingarráð hafi ekki heimild til þess að breyta lögum og hafi fyrir sitt leyti verið búið að samþykkja og undirbúa áfangahækkunina. En eftir stendur sú stóra spurning hvort heilbrigðisráðherra Matt- hías Bjarnason ætlar að sjá sóma sinn í því að láta frekari áfanga- hækkanir á vasapeningunum, sem áttu að verða 1. september sl. og 1. desember nk. koma til framkvæmda. Þar reynir á stjórn- arstefnuna fyrir alvöru. Ókristilegt hugarfar Og loks má ekki gleyma garm- inum honum Katli. Ríkisstjórnin hefur eignast stuðningsmann í bæjarstjóranum í Garðabæ. Hann geysist fram á ritvöllinn í DV og segir ekkert vera til skipta, og biður verkalýðs- hreyfinguna að hafa hægt um sig, ef ekki með góðu þá með illu. Sjálfur hefur maðurinn eins og Þjóðviljinn upplýsti margfalt verkamannakaup og mætti vel jafna því í fleiri staði til að byrja með. Tekjuskiptingu í þjóðfé- laginu má breyta með ýmsum hætti og hvort sem það er gert með Hróa-hattar-aðferðum eða kristilegum kærleik þá er hægt að skipta jafnara því sem fyrir er þó að kakan hafi eitthvað rýrnað. Samkvæmt útvarpsviðtali við téðan bæjarstjóra þá er það hel- sta viðfangsefni margra í Garða- bæ um þessar mundir að bæta við bílskúrum yfir báta, bíla, tjald- vagna og snjósleða og önnur þau þægindi sem fylgja „bjargálna fólki á miðjum aldri“ um þessar mundir. Skyldi ekki mega bæta böl einhverra í þjóðfélaginu með því að sækja fé til þess fólks sem á tvo kyrtla og gæti svo vel gefið annan þeirra. - ekh. og skorið Hundalíf í Reykjavík Hundahald er helsta umræðu- efni Morgunblaðsins og DV þessa dagana. Það er gott að hafa eitthvað að tala um og ekki er að efa að deilur um hundahald gætu komið íhaldinu vel í borginni og landsstjórninni. Það er þá ekki rætt um kjaraskerðingu og kreppu á meðan. Þetta er nefni- lega eitt af þeim málum sem aldrei fær neinn endi. Hundahald verður í borgum og bæjum hvort sem það er leyft eða ekki. Hund- urinn fylgir manninum og alltaf eru einhverjir sem vilja hafa I M#f: hund hvað sem tautar og raular og hvað sem lög og reglur segja. Sumum þykir æ vænna um hund- inn sinn eftir því sem þeir kynnast mannfólkinu betur. Svona er lífið: Hundalíf. Stjórnmála- mönnum væri best að viðurkenna að hundurinn verður ekki skilinn frá manneskjunni við borgar- mörkin. Nema menn ætli að koma hér upp lögregluríki með aflífunarsveitum á stöðugri vakt sjálfum sér og mannfólki til jafn- mikils voða og hundunum. Skráning, skattlagning, strangar reglur og eftirlit ættu að geta haldið hundahaldi í viðunandi horfi eins og t.d. á Akureyri og á Seltjarnarnesi. - ekh.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.