Þjóðviljinn - 30.09.1983, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 30.09.1983, Blaðsíða 5
Föstudagur 30. september 1^83 ÞJOÐVILJINN — SÍÐA 5 Gunnar Thoroddsen: Kaflar úrtveimur ræðum: 1945 og 1983 „Hið geigvæniega böl atvinnuleysisins“ „Á ungum aldri vann ég að því ásamt félögum mínum að flokkurinn yrði víð- sýnn frjálslyndur flokkur með hagsmuni allra stétta fyrir augum og með fullum skilningi á félagslegum þörfum fólksins. En ekki síður var okk- ur það hugleikið að flokkurinn yrði um- burðarlyndur flokkur í samrœmi við þann kjarna sjálfstœðisstefnunnar að sérhver maður œtti rétt á að vera sjálf- stceður í hugsun, orði og verki og hefði rétt til að fylgja samvisku sinni og sannfœringu eins ogstjórnarskráin býð- ur þar á meðal að gera. Nú í seinni tíð hefur syrt í álinn og blikur dregið á loft. Því er ekki að neita að nokkurt fráhvarf hefur orðið frá þeim hugmyndum og grundvallarhug- sjónum sem við á sínum tíma gerðum okkur og sem Sjálfstœðisflokkurinn hefur lengst af starfað eftir. Þar má til- nefna þröngsýni í stefnumótun og hug- myndir um harkalegt flokksræði. Þegar ég hóf afskipti af stjórnmálum var það hugsjón mín og annarra ungra sjálfstœðismanna að það vœri frum- skylda hvers stjórnmálamanns og hvers stjórnmálaflokks að gera allt sem í mannlegu valdi stœði til þess að allir menn hefðu atvinnu. Nú hrýs mér hugur við að heyra það kœruleysi sem oft kemur fram í tali sumra manna um þetta geigvœnlega böl atvinnuleysisins, eins og það snerti ekki einn einasta hjartastreng í brjóstum þeirra. Þetta birtist m.a. í ályktunum sumra samtaka. Það birtist í ódulinni aðdáun á efnahagsþróun og stefnu sumra grannríkja, þar sem tíundi eða jafnvel áttundi hver maður er atvinnu- laus árum saman. Það birtist í útvarps- erindum nýlega, þarsemfordœmd ersú tillaga stjórnarskrárnefndar að leggja til að í stjórnarskránni verði grundvallar- atriði að allir menn eigi rétt á vinnu eftir því sem lög kveða nánar á um. Þó er ekki síður alvarlegt það hugarfar sem beinist frá umburðarlyndinu og lýð- rœðinu yfir í aukið flokksrœði. “ Síðasta ræða Gunnars Thoroddsen á Alþingi 14. mars 1983. „Frelsi voru viljum vér ekki farga Landsréttindum viljum vér ekki afsala „Það hefur jafnan verið helgasta hug- sjón vor Islendinga að ráða landi voru einir, að stjórna sjálfir og óháðir málum vorum. Ekki fyrir tildurs sakir og hé- gómaskapar, ekki til þess að miklast af því í augum annarra, að vér værum menn með mönnum, fullvalda eins og aðrir. Sjálfstjórnarhugsjón vor er eðl- isnauðsyn. Uppruni vor og eðli, þjóð- erni og menning, krefja óskoraðs sjálfs- forræðis. Reynsla vorogsaga benda oss afdráttarlaustísömu átt. Hver fjötur um fót þjóð vorri hefur dregið úr viðgangi hennar og velmegun, hvert frelsisspor fœrt hana til meiri þroska og betri kjara. En hverju máli skiptir þetta um til- mœlin um herstöðvar? Getum vér ekki haldið óskertu frelsi voru og fullveldi, þjóðerni og menningu, þóttslík ítök séu veitt? Mér virðist, að ekki þurfi lengi að velta vöngum yfir því, að herstöðvar erlends ríkis í landi annarrar þjóðar höggvi stórt skarð í umráðarétt hennar yfir landi sínu. Vil ég leyfa mér að vitna því til stuðning fyrst í stað í herverndar- samninginn frá 1941. Þar segir að „strax og núverandi hættuástand í milliríkja- viðskiptum er lokið, skuli allur slíkur herafli og sjóher látinn hverfa á brott þaðan, svo að íslenzka þjóðin og ríkis- stjórn hennar ráði algerlega yfir sínu eigin landi.“ Með þessum orðum er ótvírœtt lýst yfir þeim skilningi, að til fulls geti þjóðin ekki ráðið yfir landi sínu, meðan erlendur her er í landinu. Þótt það veldi, er verndina tekst á hendur, sé vinveitt oss og heiti því að forðast íhlutun um stjórn landsins, \ liggja í leyni margvíslegar hœttur fyrir sjálfsforræði, þjóðerni, tungu, siðferð- isþrek, hugsunarhátt, álit þjóðarinnar út á við. Hersvœðin og þeir útlendu her- flokkar, er hefðu gœzlu stöðvanna á hendi, yrðu auðvitað utan við landslög og rétt vorn íslendinga. íslenzkyfirvöld gætu þar engum lögum fram komið, íslenzkir dómstólar ekki dæmt mál þessara manna, íslenzkir borgarar, er teldu á hlut sinn gengið, ekki náð rétti sínum nema eftir milliríkjaleiðum. ís- lendingar gætu ekki farið frjálsir ferða sinna á þessum slóðum, þeirþyrftu leyfi útlendinga til umferðar um sitt eigið land. Þegar hagsmunir verndarans og vilji íslands rœkjust á, eru allar líkur til, að herveldið réði, en vilji íslandsyrði að víkja. Þjóðerni vortyrði í hættu, tungan fyrir erlendum áhrifum frekar en hollt mætti teljast. Siðferðið í valtara lagi, eins og jafnan þar sem erlendir stríðs- menn eiga stundardvöl. Ófyrirsjáanleg eru þau áhrif sem sjálfsvitund, sjálf- stæðiskennd þjóðarinnar yrði fyrir. Vit- und þjóðar um, að hún ráði sjálfog ein landi sínu og málum öllum, blæs henni í brjóst sjálfsvirðingu árœði, framfara- hug, örvar hana til stórra átaka. Með- vitundþjóðar um, að hún ráði ekki sjálf málum sínum, sé háð að einhverju leyti valdboði annarra, verkarsem deyfilyf á þessar fornu og nýju dyggðir. Áhrifin út á við yrðu ekki eftirsóknarverð. Erlend ríki mundu tœplega telja það land fullvalda nema að nafni til, sem lyti á friðartímum herstjórn annars ríkis, með erlenda herstöð í sjálfri höfuðborg sinni. Utanríkisstefna vor hlyti að verða háð vilja verndarans. Mörg ríki, smá og stór, verða að vísu að sætta sig við allt þetta um skamma stund í styrjöld. En hitt er frágangssök að semja sig undir slíkar varanlegar búsifjar á friðartím- um. Ef til orða œtti að koma, að íslend- ingar semdu um herstöðvar hér til handa öðru ríki, þyrfti að benda á ein- hverja knýjandi, ómótstœðilega nauð- syn. Manni verðurnú spurn: Hverersú hin knýjandi nauðsyn? Þegar litið er á hagsmuni lslands, kunna einhverjir að halda því fram, að vér munum geta haft hag af slíkum ívilnunum, fjárhagslegan og viðskipta- legan, og hinsvegar gæti neitun valdið oss tjóni og örðugleikum á því sviði. Við því vil ég segja: Vér Islendingar höfum aldrei metið sjálfstætt vort til peninga. Þótt oss vœri boðin öll ríki veraldaritmar og þeirra dýrð, megum vér aldrei láta fallast í þá freistni, að afsala landsréttindum fyrir silfurpen- ing. Aðrir munu segja: Ef vér neitum, verða stöðvarnar teknar með valdi gegn vilja vorum, vegna þess, hver stórveldið j telur sérþœr nauðsynlegar, og þá stönd- um vérsýnu verr að vígi, en ef samning- ar væru upp teknir. Slíkar getsakir eru móðgun í garð þeirrar þjóðar sem 14 ágúst 1941 lýsti því yfir í Atlanzhafs- yfirlýsingunni að allar þjóðir veraldar yrðu að afneita allri beitingu ojbeldis. Við Bandaríkin viljum vér að sjálf- sögðu eiga vinsamlega sambúð. Vér kunnum þeim þakkir fyrir drengileg viðskipti á styrjaldarárunum. Þau hafa sýnt oss mikla velvild og er vafasamt, hvort nokkur þjóð önnur hefði komið fram af meiri lipurð, sanngirni og rausn, sem herverndari í styrjöld en þau. Þeirra vináttu viljum vér sízt missa. Vér erum engir einangrunarsinnar. Vér hpfum sýnt í verki vilja vorn til hluttöku í alþjóðlegu samstarfi undan- farin ár á margvíslegan hátt. Á þeirri braut munum vérhalda áfram. En frelsi voru viljum vér ekki farga. Landsrétt- indum viljum vér ekki afsala. “ Ræða Gunnars Thoroddsen af svölum Alþingishússins 1. desember 1945.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.