Þjóðviljinn - 30.09.1983, Page 10

Þjóðviljinn - 30.09.1983, Page 10
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 30. september 1983 Utboð Tilboð óskast í byggingu undirstaða og kjall- ara fyrri byggingu Fjölbrautaskóla Suður- lands við Tryggvagötu á Selfossi. Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Suðurlands hf. Heimahaga 11, Selfossi og Fjölhönnunar hf. Grensásvegi 8, Reykjavík frá föstudeginum 30. september 1983, gegn 3000 kr. skilatryggingu. Tilboðum skal skilað á skrifstofu Fjölbrauta- skóla Suðurlands, Austurvegi 10 Selfossi, fyrir kl. 16.00 6. október 1983, og verða opn- uð þar að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Skólanefnd Fjölbrautaskóla Suðurlands AUGLÝSING samkvæmt 7. gr. laga nr. 14/1965 um launaskatt með áorðnum breytingum, sbr. ákvæði 1. mgr. 98. gr. laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignarskatt, um að álagningu launaskatts á árinu 1983 sé lokið. Tilkynningar (álagningarseðlar) er sýna launaskatt sem skattstjóra ber að ákvarða hafa verið póstlagðar. Hér er annars vegar um að ræða launaskatt skv. 4. gr. fyrrnefndra laga, þ.e. á reiknuð laun manna við eigin atvinnurekstur eða sjlalfstæða starfsemi og á hlunnindi sem ekki eru greidd í peningum og hins vegar launaskatt skv. 3. gr. sömu laga sem greiða ber af greiddum launum á árinu 1982. Kærur vegna álagðs launaskatts sem skatt- aðilum hefur verið tilkynnt um með launa- skattsseðli 1983 þurfa að hafa borist skatt- stjóra eða umboðsmanni hans eigi síðar en 29. október nk. 30. september 1983 Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson. Skattstjóri Vesturlandsumdæmis, Jón Eiríksson. Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi, Hreinn Sveins- son. Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra, Bogi Sigurbjörnsson. Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra, Hall- ur Sigurbjörnsson. Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi, Bjarni G. Björgvinsson. Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi, Hálfdán Guð- mundsson. Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi T. Björns- son. Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi, Sveinn Þórð- arson. frá Ráðherranefnd Norðurlanda NORRÆNA MENNINGARMÁLASKRIF- STOFAN í Norrænu menningarmálaskrifstofunni i Kaupmannahöfn er laus staöa fulltrúa á sviöi stjórnsýslu. Auglýsing meö nánari upplýsing- um um stöðuna veröur birt í Lögbirtingablaðinu föstudaginn 7. október. Umsóknir skulu hafa borist fyrir 18. október 1983 til Nordisk Min- isterrád, Sekretariatet for nordisk kulturelt samarbejde, Snarega- de 10, DK-1205 Kobenhavn K. Menntamálaráuneytiö 26. september 1983. Vegna útfarar GUNNARS THORODDSEN, fyrrv. borgarstjóra, verða skrifstofur Reykja- víkurborgar og stofnana hennar lokaðar kl. 13.00 - 15.00 föstudaginn 30. september. Borgarstjórinn í Reykjavík. Minning Hans Guðnason bóndi á Eyjum og Hjalla í Kjósarhreppi Fœddur 27.8. 1911 Dáinn 22.9.1983 „Það lifi sem best var í sálu mín sjálfs i að sólskinið verður þó til. “ St.G.St. Hans var fæddur að Eyjum í Kjós, vesturbæ, sonur hjónanna Guðna Guðnasonar og Guðrúnar Hansdóttur, er þar bjuggu saman nær 46 ár, en Guðni í rúm 60 ár. Hans bjó á Eyjum með afnot af hluta af jörðinni frá 1940 til 1953 eða þar til þau hjónin, Hans og Unnur Hermannsdóttir, kennari, stofnuðu nýbýli á hluta úr landi Eyja árið 1950. Býlið nefndu þau Hjalla, og bjuggu þar til ársins * 1980, að Hans missti svo heilsu að ’ þau urðu að bregða búi og flytja til i Reykjavíkur. i Hansvarvelbúinnundirsittaðal j starf sem bóndi. Hafði unnið I sveitastörf frá barnæsku og i menntast til búnaðarstarfa sem bú- í fræðingur frá Hvanneyri. Hann ■ starfaði einnig mikið utan heimilis, j aðallega við jarðræktarstörf fyrir : Búnaðarsamband Kjalarnesþings l með skurðgröfum og jarðýtum. ! Þettavarhonumknýjandinauðsyn ] vegna tekjuöflunar fyrir j mannmargt heimili og mikils i kostnaðar við stofnun nýbýlis, þar I sem byggja þurfti allt upp frá i grunni, íbúðarhús og öll útihús, ! rækta land svo hægt væri að fram- j fleyta nægilegum bústofni fyrir 11 i manna fjölskyldu. Það kom sér því vel, að Hans var vel verki farinn og hafði af miklum manni að má bæði um skapgerð og líkamsburði. Þetta hefði þó ekki nægt til að leggja grundvöll að því myndar býli sem j Hjalli var, hefði húsmóðirin ekki I verið vakin yfir velferð heimilisins I með sínum miklu hæfileikum og j dugnaði. Hans var bóndi og málefni bænda voru honum hugstæð, en hann vann mikið utan heimilis og kynntist snemma kjörum dag- launamannsins, og kjör hans sem einyrkja stóðu nær kjörum verka- manna en nokkurra annara. Hann taldi því samstöðu íslenskra smá- bænda og verkamanna eðlilega, og hagsmuni þeirra gagnkvæma. Þetta leiddi til þess að hann fylgdi Sósíalistaflokknum að málum og síðan Alþýðubandalginu og starf- aði nokkuð að málefnum á þess vegum. Þetta féll einnig að áhuga hans á almennum málum, og þeim viðhorfum hans, að framtíðin byggðist á velgengni hins almenna manns, en ekki á fjárplógsstarf- semi einstakra stétta. Fjölskyldan og velferð heimilis- ins átti þó hug hans allan, og gat hann þar tileinkað sér viðhorf Stepans G.: „Landið sem mín vígð er vinna vöggustöðin barna minna“. Erfiði og starf var hlutskipti Hans eins og nærri má geta um ein- yrkja með stóra fjölskyldu á ný- býli. En laun erfiðisins létu heldur ekki á sér standa. Níu börnum sín- um komu þau hjónin til mikils þroska og menntunar, en sam- heldni fjölskyldunnar bar gott vitni ánægjulegum heimilisháttum. Hans var félagslyndur og hafði yndi af mannfagnaði og ferða- lögum. Hann ferðaðist all-mikið, bæði hér heima og til annarra landa, sérstaklega hin seinni árin. Eina ferð held ég að hann hafi tekið fram yfir aðrar ferðir. Það var ferð til Kanada. Hjónin fóru þá í bændaför vestur til Kanada og komu þá m.a. til Albertafylkis á fyrrverandi heimili Stephens G. Stephanssonar, skálds og bónda, og var það vafalaust hápunktur ævintýrisins. Hans var léttur í máli og skraf- hreifinn svo þægilegt var að um- gangast hann. Var því hægt að segja um hann eins og sagt var um afa hans og nafna, að manni liði vel í návist hans. Að sjálfsögðu er margs að minn- ast frá langri vegferð, og því ærin ástæða til að þakka samfylgdina og ylja sér við minningarnar. Við Guðrún þökkum órofa vináttu og hlýja samfundi og óskum Unni og fjölskyldunni velfarnaðar, þar sem andi manndóms og menningar mun vaka yfir vötnum eins og jafn- an áður. Guðni Guðnason ! Aðsókn að Amtsbókasafninu á Akureyri aldrei meiri Guðrún og Snjólaug með flest útlánin Aðsókn að Amtsbókasafninu á Akureyri hefur aldrei verið meiri en það sem af er þessu ári. í ágústlok síðastliðinn voru útlánin orðin jafn mikil og ársútlánin voru fyrir 10 árum. Það sem fyrst og fremst hefur breyst í notkun fólks á bókasafninu er að aðsóknin yfir sumarmánuð- ina hefur stóraukist. Það eru ekki mörg ár síðan útlán bóka á sumrin voru þriðjungi-og allt að helmingi minni en yfir vetrarmánuðina, en nú munar oftast sáralitlu á sumar og vetrarútlánum. Hin mikla útbreiðsla mynd- banda sem orðið hefur á síðustu árum virðist ekki hafa haft nein á- hrif á bóklesturinn því útlánin hafa aukist jafnt og þétt. Þó má ef til vill merkj a áhrif myndbandanna á einu sviði, en það eru útlán á bóka- kössum í skip, þau hafa dregist saman um meir en helming á síð- ustu tveim árum. Fyrir skömmu var gerð lausleg könnun á útlánum bóka íslenskra höfunda í Amtsbókasafninu. Talið var af örfilmu af útlánum dagana 3.-16. febrúar sl., alls 5520 binda útlán, þar af voru 1402 bindi ein- stakra íslenskra höfunda, safnrit ekki meðtalin. Guðrún frá Lundi og Snólaug Bragadóttir áttu flest útlánin 37 bindi hvor, í þriðja sæti var Ingi- björg Sigurðardóttir með 32 bindi, í fjórða sæti var Ármann Kr. Ein- arsson með 27 bindi og Guðmund- ur Hagalín var fimmti með 20 bindi. Síðan komu Guðbjörg Hermannsdóttir og Vésteinn Lúð- víksson með 19 bindi, Aðalheiður Karlsdóttir og Stefán Júlíusson með 15 bindi, Indriði Úlfsson og Stefán Jónsson með 14 bindi og Guðmundur Daníelsson og Hall- dór Laxness með 12 bindi hvor. Með 10 binda útlán voru: ' Auður Haralds, Guðrún Helga- dóttir, Gunnar Gunnarsson yngri, Gunnar M. Magnúss, Hafliði Vil- helmsson, Magnea frá Kleifum og Pétur Gunnarsson. 9 binda útlán: Andrés Indriðason, Einar Krist- jánsson, Elínborg Lárusdóttir, Guðbergur Bergsson, Jón Thorar- ensen, Magnea Matthíasdóttir, Ólafur Jóh. Sigurðsson, Steinunn Þ. Guðmundsdóttir, Viktor Arnar Ingólfsson, Þorsteinn Antonsson, Þórunn Elfa Magnúsdóttir. 8 binda útlán: Eðvarð Ingólfsson, Guðlaugur Guðmundsson, Guðjón Sveins- son, Hannes Pétursson, Hreiðar Stefánsson, Jón Óttar Ragnarsson, Þor$teinn Matthíasson. 7 binda útlán: Egill Egilsson, Erlingur Davíðs- son, Gunnar Bjarnason, Hugrún, Ingólfur Margeirsson, íslensk fornrit, Jóhannes Helgi, Krist- mann Guðmundsson, Olga Guð- rún Árnadóttir, Óskar Aðalsteinn Guðjónsson, Þorsteinn Marelsson. 6 binda útlán: Davíð Stefánsson, Einar Jóns- son á Hofi, Einar H. Kvaran, Fríða Sigurðardóttir, Guðmundur Frí- pmann, Heiðdís Norðfjörð, Herdís Egilsdóttir, Iðunn Steinsdóttir, Jakobína Sigurðardóttir, Jenna og »Hreiðar, Jón Dan, Jón H. Guð- mundsson, Jökull Jakobsson, Ólafur Ormsson, Þórir S. Guð- bergsson. 5 binda útlán: Ásgeir Jakobsson, Áslaug Ragn- ars, Benjamín Kristjánsson, Björn Th. Björnsson, Eiríkur Sigurðs- son, Flosi Ólafsson, Gunnar Dal, Gunnar Gunnarsson eldri, Indriði G. Þorsteinsson, Jón Bjarnason frá Garðsvík, Jón Birgir Pétursson, Karvel Ögmundsson, Matthías Jo- hannessen, Njörður P. Njarðvík, Ólafur Ragnarsson, Ragnar Þor- steinsson, Sigurður A. Magnús- son, Sigurður Sverrisson, Stefán Aðalsteinsson frá Vaðbrekku, Svava Jakobsdóttir, Sverrir Krist- jánsson, Vigfús Björnsson, Þór- bergur Þórðarson, Þorgils gjall- andi, Þuríður Guðmundsdóttir. 28 höfundar voru með 4 útlán, 46 með 3 útlán, 87 með 2 útlán og 180 höfundar voru með eitt útlán. Bókasöfnin í Keflavík og Kópa- vogi hafa fyrir skömmu birt niður- stöður úr samskonar könnunum hjá sér og voru útkomur þar mjög svipaðar þessari.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.