Þjóðviljinn - 17.10.1983, Blaðsíða 1
Bjartsýni en
ekki bölmóð
Óteljandi möguleikar
Á tímum erfiöleika er nauðsynlegt að blása eldmóði í
fólk. Það þarf að vísa veginn til betra lífs, - benda á alla
þá möguleika sem eru alls staðar í kringum okkur. Þrátt
fyrir svartagallsraus stjórnvalda og eilífar úrtölur, þá er
það eigi að síður staðreynd að Island er í dag land
hinna miklu möguleika. Við þurfum hins vegar breytt
hugarfar til að virkja það ólgandi hugarflug og það
kraumandi hugvit sem býr með þjóðinni, þrátt fyrir allt.
Við þurfum NYJA SÓKN í atvinnulífinu, til að beisla alla
þá möguleika sem liggja fyrir.
í Þjóðviljanum höfum við í allt sumar bent markvisst
á ótal nýja möguleika sem hægt væri að gera að
veruleika með hnitmiðuðu átaki. Við höfum birt ótal
greinar undir samheitinu NÝ SÓKN þar sem hugvits-
menn og rannsóknarfólk úr heimi vísinda og atvinnulífs
hefur sett fram stórkostlegar hugmyndir, sem gætu
með réttum stuðningi fært þjóðinni ómældan auð.
Fiskeldi, loðdýrarækt, upplýsingatækni, nýjungar í
sjávarútvegi, tvífrysting, hugbúnaðarvinnsia, fram-
leiðsla á kísl og allt sem tjáir að nefna nýstárlegt,
höfum við matreitt hér á síðum Þjóðviljans undir
NÝRRI SÓKN. í kjölfar þess stóð svo Alþýðubanda-
lagið fyrir glæsilegri Námsstefnu um NYJA SÓKN,
þar sem fjölmargir athafnamenn úr veröld vísinda og
atvinnulífs létu hugarflugið gjósa fram. í þessu blaði er
að finna afrakstur úr sumum erindum á Námsstefnunni
og úrdrátt úr nokkrum greinum Þjóðviljans. Afgangur-
inn verður svo birtur síðar. Njóttu!
Ritstjórn Þjóðviljans.
Lífefnatækni -
þekkingariðnaður
„Lífefnaiönaöur ásamt
upplýsingatækni og efnistækni eru
nú forgangsverkefni í rannsókna-
og þróunarstarfsemi á
Norðurlöndum og mörgum öörum
nágrannalöndum okkar,“ segir
Jakob Kristjánsson.
Sjá síðu 10.
Tvífrysting -
nýsköpun
„ Flestar okkar fisktegundir verða
einnig aö teljast mjög haldgóðar í
baráttunni viö aukakílóin og geta
selst vel bara út áþaö,“ segir Alda
Möller.
Sjá síðu 4.
Upplýsinga-
iðnaður -
bætt lífskjör
„Menn gera sér vonir um að eftir
nokkra áratugi geti 15-20 þúsund
manns haft atvinnu af
upplýsingaiðnaði," segir Ingjaldur
Hannibalsson í viðtali.
Sjá síðu 12.
i