Þjóðviljinn - 17.10.1983, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 17.10.1983, Blaðsíða 2
NY SOKN Nýsókn Laxeldi - íslenska leiðin Með því að nota Séríslenskar aðstæður væri hægtað framleiðasláturlax ámunskemmri tíma en Norðmenngera Margir eiga erfitt meö að skilja, hví íslendingum gengur jafn illa cg raun ber vitni, að hrinda laxeldi af stað. Fyrst það gengur svona vel hjá Norð- mönnum, getum við þá ekki einfaldlega notað sömu að- ferðir og þeir? - spyrja margir. Svarið er nei. Við getum það ekki. Aðstæður hérlendis og í Nor- egi eru gjörólíkar, og það er því mjög erfitt að yfirfæra norskar eldisaðferðir óbreyttar hingað til lands. f Noregi eru seiði látin í flotkvíar í sjó, um leið og þau hafa byggt upp nægilegt þol gagnvart sjávarseltunni. í flotkví- unum eru þau stríðalin upp í slát- urstærð, sem þau ná á þremur til fjórum árum. Hinar sérnorsku aðstæður sem gera þetta kleift eru skjólið, varið, sem er að finna í hinum þröngu og djúpu fjörðum Noregs og sums staðar í skjóli við eyjar og sker við ströndina. Hér á íslandi er skjólinu ekki til að dreifa nema á örfáum stöð- um. Þessi skortur á vari ásamt ofsafengnum vetrarveðrum gerir að verkum að hér við land er ekki hægt að vera með kvíar nema ein- ungis part úr ári. Þess vegna er ekki hægt að nota hina norsku aðferð, því venjulegum smá- seiðum er að sjálfsögðu ekki hægt að ná upp í sláturstærð á einu sumri, áður en vetrarveður ganga í garð. Flotkvíar einsog þær ger- ast í dag standast einfaldlega ekki vetraraftökur. íslenskar ógöngur Þess vegna hafa margir fisk- eldisfrömuðir hér á landi valið þá leið að ala fisk í strandkvíum, og mjög stór hluti þeirra eldisstöðva sem nú eru í burðarliðnum hyggja á þannig eldi. Með þeirri aðferð er sjó dælt upp í kvíar á landi. Hins vegar þarf mjög mikið sjávarflæði í gegnum kerf- ið, og dælingin er afar orkufrek. Miðað við hið háa orkuverð á ís- landi (til annarra en Alusuiss og slíkra fyrirtækja) er því afskap- lega erfitt að ætla að hægt verði að stunda arðbært laxeldi á ís- landi með strandkvíaaðferðinni. Vert er að leggja ríka áherslu á þá staðreynd, að Norðmenn reyndu hana, en gerðust henni afhuga einmitt sökum nefndrar orku- frekju. Séríslenska leiðin Vænlegasta leiðin til laxeldis væri því að nota hinn náttúrlega sjávarhita að sumarlagi. En mjög víða við ísland er meðalhiti sjáv- ar yfir sumarið ágætlega fallinn til laxeldis (íslenski laxinn hefur sennilega lægra kjörþitastig en frændur hans sunnar í álfunni). Við alla suðurströndina, suðvest- urhornið og mestallt vesturlandið er hitastig sjávar ákjósanlegt til laxeldis upp úr byrjun maí og allt fram í nóvember. A þessum tíma er heldur ekki að vænta stórviðra og skortur á nægilegu vari því ekki til trafala að öllu jöfnu. Vandamálið er hins vegar þetta: Á þessum stutta tíma er ekki hægt að ala venjuleg sjósleppi- seiði upp í sláturgerð. Þessi leið er því ekki fær með seiðum af venjulegri stærð. Hjá ýmsum aðilum hér á landi hefur því komið fram hugmynd um að Jón Stefánsson stöðvarstjóri Hólalax frjóvgar laxahrogn. Noregur 300 þúsund tonn um aldamót Norömenn fremstir í laxeldi en þaö er erfitt aö yfirfæra velgengni þeirra á íslandi. Framleiöa 27 þúsund tonn í ár Norðmenn hófu sitt fiskeldi í strandkvíum, fyrir einum 20-30 árum, þar sem sjó er dælt - með ærnum tilkostnaði - upp í kvíará landi þar sem fiskurinn er svo alinn. Þett reyndist hins- vegar illa og var feikna dýrt, og tilraunum með strandeldi var því hætt. Þetta ætti að vera okkur hér á landi íhugunarefni, því sumar eldisstöðvarnar sem verið er að reisa hérlendis eru einmitt byggðar á strand- kvíunum, sem Norðmenn gáfu upp á bátinn. Eftir tilraunirnar með strand- kvíarnar hófu Norðmenn eldi í flotkvíum, og að lokinni nokkuð erfiðri fæðingu þróaðist flotkvía- eldið hratt í Noregi. Eldisferillinn hjá þeim í dag er þannig, að eins árs gönguseiði eru sett í flotkvíar í sjó, og alin þar í 2 til 2Vz ár, þegar þeim er slátrað. Meðalþunginn er þá um 4 kíló. Árið 1970 voru ekki framleidd nema 100 tonn af eldislaxi í Nor- egi. f ár er gert ráð fyrir að fram- leiðslan nemi hvorki meira né minna en 27 þúsund tonnum, að viðbættum 4-6 þúsund tonnurn af regnbogasilungi. En Norðmenn eru stórhuga, þeir áætla að 1990, eftir aðeins fimm ár, muni þeir framleiða 90 þúsund tonn, og samkvæmt glænýjum áætlunum hyggjast þeir framleiða hvorki meira né minna en 300-350 tonn af ýmsum fisk- og sjávardýrateg- undum um aldamótin, þar af 200 þúsund tonn af laxi einum. Það er hins vegar vert að undir- strika rækilega, að það er engin leið að yfirfæra beint þær aðferðir og eldistækni - og þar með vel- gengni - sem fiskeldið í Noregi byggist á. Aðstæður eru þar ein- faldlega allt aðrar. Laxeldi þeirra byggist á flotkvíaeldi í sjó, þar sem nóg er af vari í hinum djúpu fjörðum og við eyjar og sker. Við Island er hins vegar víðast skortur á nægilegu vari, þar sem varið er til staðar, þar er sjórinn of kaldur til að laxeldi sé fram- kvæmanlegt. Við þurfum því að nýta hinar séríslensku aðstæður til að þróa okkar eigin eldisferil, en fram hjá þessu horfa menn gjarnan þegar þeir ætla að færa velgengni Norðmanna yfir á fs- land. framieiða það sem ég hefi kallað stórseiði. Hér er um að ræða seiði sem eru hraðalin á 12 til 18 mán- uðum upp í 300 til 800 grömm. Með því að sleppa þeim í sjókvíar í maíbyrjun myndu þau ná 2 til 4 kflóa stærð fyrir lok eldistímans í sjónum og vera því meir en slátur- hæf. Stórseiða- framleiðslan Til að hægt sé að framleiða stórseiði þarf heitt vatn. Erlendis er hitaorkan of dýr til að þetta borgi sig. Við höfum hins vegar nóg af jarðhita. Það sem við þurf- um að gera er því þetta. • Flýta hrognaklaki þannig að kviðpokaseiði komi úr hrognum ekki síðar en á tímabilinu nóvember til áramóta. Þetta er mögulegt á þrennan hátt. 1. Finna með tilraunum hvernig hægt er að nota stjórnun dag- lengdar (sem ræður allra um- hverfisþátta mestu um hvenær laxinn hrygnir) til að flýta sjálfri hrygningunni. Þetta er auðvelt með regnbogasilung og ætti að vera jafnauðvelt með lax. 2. Finna með tilraunum hvernig má stýra klakhitastigi til að tímasetja klak seiðanna úr hrognum. Hér er um mjög einfaldar tilraunir að ræða. 3. Með kynbótum eða vali á sérlega snemmhrygnandi laxa- stofnum mætti jafnframt fá upp klakfisk sem hrygnir nógu snemma.af sjálfsdáðum til að klakið verði á æskilegum tíma. Þess má geta að þetta hefur verið gert erlendis fyrir aðrar laxfiska- tegundir, og hjá Sigurði St. Helgasyni fiskalífeðlisfræðingi og eldisfrömuði að Húsatóftum við Grindavík er til vísir að snemm- hrygnandi laxastofni. • Hin snemmklöktu seiði þarf svo að ala í hæfilegu heitu vatni, sem fæst á viðráðanlegu verði. f maí á öðru lífári þeirra ættu þau hæglega að gera verið orðin 300 til 800 grömm að stærð. Þetta seiðaeldi gæti sem best farið fram hvarvetna á landinu þar sem heitt vatn er til staðar. 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 17. október 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.