Þjóðviljinn - 17.10.1983, Side 3

Þjóðviljinn - 17.10.1983, Side 3
NY SOKN • Stórseiðin, sem þannig eru til orðin, yrðu svo flutt í sjóvkíar (suðvesturströndin er heppi- legust, frá hitafarssjónarmiði væru Vestmannaeyjar langsam- lega heppilegasti staðurinn) í maí- byrjun og alin uns sláturstærð er náð á hausti komandi. Fljótt, fljótt Hinn séríslenski eldisferill byggist með öðrum orðum á því að við notum vísindamenn til að búa til aðferð sem flýtir klaki laxahrogna. Sú flýting vinnur tíma, þannig að með aðstoð ís- lenskra auðlinda í formi jarðhita verður mögulegt að búa til stór- seiði sem hægt er að setja í sjókví- ar í maí á öðru lífári sínu. í haust- lok þess árs ættu þessi stórseiði að hafa náð sláturstærð. Með þessu móti gaetum við nýtt séríslenskar auðlindir (jarðhit- ann) til að framleiða sláturlax á um tveimur árum, eða á einu til tveimur árum skemmri tíma en Norðmenn!!! Vinna Sigurðar St. Helgasonar í Húsatóftum við Grindavík, en þó einkum starf Jóns Gunnlaugs- sonar fiskeldismanns í Höfnum á Reykjanesi, bendir til að þessi eldisaðferð sé fullgild. Hún hefur hins vegar ekki verið fullreynd. Það hlýtur hins vegar að vera verkefni númer eitt fyrir laxeldi á íslandi. Það verður einfaldlega að leggja allt kapp á að sannreyna og fullþróa þessa séríslensku eldisaðferð, því þrátt fyrir efa- semdir margra -líka úr hópi fisk- eldismanna - um gildi hennar, þá mun tíminn leiða í Ijós að hún er hin eiginlega gullnáma íslensks fiskeldis. Takist mönnum ekki að skapa arðbæra atvinnugrein með henni, þá geta þeir eins gleymt fiskeldi og kastað sér í slorið aftur. Össur Skarphéðinsson Laxeldi Staðan í dag Útflutningurálaxi litlu meiri en ásíöustu öld Eldisframleiðsla á íslandi er enn næsta smá að vöxtum. í fyrra voru þannig framleidd 790 þúsund gönguseiði, 116 tonn af laxi voru alin í kvíum, 24 tonn komu úr hafbeit, og um 30 tonn af regnbogasilungi voru framleidd. Nákvæmlega 23 eldisstöðvar störfuðu árið 1984 að seiðafram- leiðslu bg ólu bæði suntaralin og gönguseiði. Tíu hafbeitarstöðvar voru starfandi, þrjár floteldisstöðvar, og tvær strandeldisstöðvar, þar sem fiskur er alinn í tönkum á landi. í ár eru fjölmargir aðilar byrj- aðir á rekstri í viðbót, og alls munu um 70 slíkir hafa fengið leyfi til fiskeldis til þessa. Þess má geta, að stærsta stöðin sem fyrir- huguð er mun vera íslandslax hf á Reykjanesi, en ætlað er að hún verði ein stærsta laxeldisstöðin í heimi. 19. öldin Það er fróðlegt að bera saman laxútflutning síðustu ára og fyrir réttum hundrað árum. Milli áranna 1970 og 1983 var mest flutt út árið 1972, þegar 61,7 tonn voru seld úr landi, en minnst árið 1982, þegar aðeins 2,6 tonn voru flutt út. En um hundrað árum áður, árið 1872 var flutt út ósköp svipað magn, eða 50 tonn, svo ekki hafa framfarimar á þessu sviði orðið miklar fram á allra síð- ustu ár, þó flest bendi til, að gíf- urleg breyting verði þar á, á næstu árum. -ÖS ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Markaður fyrir lax Verðið enn á uppleið 950 þúsund tonna árleg neysla. Mest Kyrrahafstegundir sem eru gæðaminni. Japan mikilvægasti markaðurinn Norðmenn áætla gífurlega aukningu i fiskeldi fram að aldamótum og við íslendingar, ásamt Færeyingum og raunar Skotum, hyggjumst líka hefja umfangsmikið eidi. Margir eru því uggandi um hvort unnt verði að selja allt þetta magn. í dag er árleg neysla á laxi ná- lægt 900 þúsund tonnum í öllum heiminum. Hins vegar er langmestur hluti þess magns Kyrrahafslax af ýmsum teg- undum, sem þykir standa okk- ar laxi, Atlantshafslaxinum, langt að baki hvað varðar bragðgæði. En af Atlantshafs- laxinum eru árlega ekki föl nema um 50 þúsund tonn, þar af eru 20 þúsund tonn veidd með hefðbundnum aðferðum í náttúrunni, en um 30 þúsund tonn framleidd í eldi. Norðmenn eru sannfærðir um, að sökum yfirburðagæða Atl- antshafslaxins megi vinna mikið af þeim mörkuðum sem í dag eru hallir undir seljendur Kyrrahafs- tegundanna. Þeir telja, að árið 1990 verði markaðurinn fyrir Atl- antshafslaxinn nægur til að taka 120 þúsund tonn, og byggja það á ítarlegum markaðsrannsóknum. Þetta kemur fram í spánnýjum skýrsludrögum, sem norskir eld- isfrömuðir eru að koma út um þessar mundir í samvinnu við norska ríkið. Japan Mikilvægasti markaðurinn fyrir lax er Japan. Þar er árlega neytt um 350 þúsund tonna af laxi, og af því flytja Japanir inn 100 þúsund tonn, og Norðmenn hafa átt um 70 prósent af þeim innflutningi. Markaðurinn þar er í miklum vexti, og það er gleði- legt að íslendingar hafa þegar gert sér grein fyrir því og hafið laxútflutning til Japans þótt í smáu sé ennþá. Skilaverð þaðan hefur verið hærra en víða annars staðar. Bandaríkin eru líka mikilvæg- ur markaður. Þar er árleg neysla 50 þúsund tonn, og fer vaxandi. Talið er að á næstu tveimur ára- tugum opnist miklir markaðir í Bandaríkjunum fyrir ferskan Atlantshafslax. f öðrum löndum eru markaðir að opnast líka, einkum V-Þýskalandi, Bretlandi og Frakklandi. Verðlækkun? Að sjálfsögðu óttast menn að verðið fari senn að lækka. En það hafa menn raunar gert árum sam- an, en verðið þess í stað farið hækkandi. Þannig jókst fram- leiðslan um 70 af hundraði milli áranna 1982 og 1983, en verðið hækkði um 3 af hundraði. Milli 1983 og 1984 var enn 35 af hundr- aði aukning í eldisframleiðslu, en verðið jókst enn um þrjá af hundraði. í ár bendir flest til að verðið sé enn á uppleið. Vísir markaðssérfræðingar telja þó, að verðið fari að lækka upp úr 1990, jafnvel um 2-6 af hundraði á ári. -ÖS NORÐDEKK munstriö er sérhannaö fyrir íslenskar aö- stæöur aö vetrarlagi — meö áherslu á gott grip. Viö full- yröum aö NORÐDEKK munstriö taki öörum fram og auki öryggi í akstri — einkum þegar akstursskilyröi eru slæm. Léttu af þér óþarfa kvíöa, kauptu NORÐDEKK undir bílinn — og þú kemur brosandi á áfangastaö! NORÐDEKK — íslensk gæöaframleiösla, heilsóluö radíal dekk á veröi sem fær þig líka til aö brosal Gúmmívinnustofan er nú tll húsa á tveimur stööum í Reykjavík. Þú getur komiö til okkar á gamla góöa staöinn í Skipholti 35 eöa í nýju húsakynnin aö Rétt- arhálsi 2 þar sem viö höfum reist staersta og taskni- lega fullkomnasta dekkjaverkstæöi landsins. Nú þarf enginn aö norpa úti því nóg er plássiö og þú slaþþar af í setustofunni meöan viö skiþtum um fyrir þig. Sendum gegn póstkröfu — samdægurs GUMMI VINNU STOFAN Umboösmenn um land allt SKIPHOLTI 35 RÉTTARHÁLSI 2 s. 31055 s. 84008/84009

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.