Þjóðviljinn - 28.10.1983, Síða 1
Þjóðviljinn heldur
//////
vhhnn
áfram að fjalla um
tölvubyltinguna.
Sérstakt fylgiblað í
dag.
Sjá 9—18
október 1983
föstudagur
246. tölublað
48. árgangur
Sérkennilegt ástand
í Hraðfrystihúsinu Kirkjusandi hf.
Stimpla
sig inn
og fara
heim!
Mjög sérkennilegt ástand hefur ríkt undanfarna daga í
Hraðfrystihúsi Kirkjusands hf. í Reykjavík. Tugir starfs-
manna koma á sinn vinnustað á hverjum morgni kl. 7.30 og
stimpla sig inn og fara síðan til síns heima strax aftur. Ástæð-
an er verkefnaskortur í húsinu. Þeir togarar sem frystihúsið
hefur skipt við hafa í haust selt afla sinn í V-Þýskalandi.
Engum starfsmanni hefur verið sagt upp störfum af þessum
sökum, en þeir eru í dag 98 talsins. Hluti þeirra, aðallega
karlmenn, hefur unnið við eitt og annað í frystihúsinu.
„Höfuðástæðan fyrir þessu er
einfaldlega sú að togarar Ögurvík-
ur hf., Ögri og Vigri, en af þeim
höfum við keypt fisk, hafa einungis
veitt karfa sem fullt er af hér í
frystigeymslum og því orðið að
selja aflann í V-Þýskalandi“, sagði
Hrafn Benediktsson forstjóri
Kirkjusands í samtali við Þjóðvilj-
ann. „Það er allt óvíst hvað verður
framhaldið á þessu ástandi en ég á
ekki von á að neinar ákvarðanir
verði teknar fyrr en stjórn fyrirtæk-
isins kemur saman til fundar næst,
sem yrði í fyrsta lagi kringum 10.
nóvember“.
Gísli Hermannsson forstjóri
Ögurvíkur hf., en það fyrirtæki á
þriðjung í Kirkjusandi hf., sagði að
togarinn Vigri hefði farið í tvær
söluferðir til Þýskalands og Ögri
einu sinni. Þeir hefðu selt ágætlega
og meðalverðið verið um 100
pfenningar pundið. Aflinn hefði
einungis verið karfi. Þessi leið
hefði verið valin enda þótt það or-
sakaði verkefnaskort hjá starfs-
fólki hússins, einkum konunum, en
engum þeirra hefði verið sagt upp
ennþá.
Trúnaðarmaður Verkakvenna-
félagsins Framsóknar á Kirkju-
sandi, Ása Pálsdóttir, sagði að
þetta væri vissulega sérkennilegt
ástand. „Við vitum ekki til þess að
uppsagnir séu neitt yfirvofandi og
Fiskverkunarfólkið í Hraðfrystihúsinu Kirkjusandi hf. mætti til vinnu kl. 7.30 í gærmorgun eins og aðra
morgna. Það er allt á fullu kaupi en hefur engin verkefni haft undanfarna daga. Ljósm. eik.
! ihi« t ini
m««imm
allir vona að húsið fari sem fyrst að
fá afla til verkunar. Það hefur verið
reynt að ná í löngu og ufsa til næstu
hafna, m.a. Keflavíkur, þannig að
við höfum getað unnið dagparta
öðru hverju", sagði Ása Pálsdóttir
ennfremur. Hún kvaðst búast við
að um væri að ræða 50-60 konur
sem kæmu í frystihúsið á morgnana
og flesta daga að undanförnu væru
engin verkefni þannig að þær hefðu
strax farið heim aftur. -v.
Ragnar Arnalds um fjárlagafrumvarpið:
Flugstöð í stað samhjálpar
• Feluleikur með 480 miljón
króna erlent lán
• Aukin skattabyrði almennings
• Skuldasöfnun hafin á ný
Ragnar Arnalds gagnrýnir fjár-
lagafrumvarpið á Alþingi í gær.
„Einmitt þeir þættir sem
fráfarandi ríkisstjórn lagði
þunga áherslu á, - félags-
legar úrbætur og efling
menningar og listastarfsemi
- eru áberandi vanræktir í
þessu frumvarpi. „Á sama
tíma eru reiddar fram 104,5
miljónir króna í stóra hernað-
arflugstöð í Keflavík“, sagði
Ragnar Arnalds fyrrverandi
fjármálaráðherra á alþingi í
gær. „Þetta er nákvæmlega
sama fjárhæð sem þyrfti að
bæta við framlag til lista,
dagheimila, sjúkrahúsa,
grunnskóla, flugvalla og
framkvæmdasjóða aldraða
og öryrkja til þess að þessir
málaflokkar fengju eðlilega
og nauðsynlega 35% hækk-
un á milli ára í stað 8% eins
og frumvarpið gerir ráð
fyrir“.
Ragnar fór hörðum orðum um
frumvarpið og sagði það óljóst og í
mörgum atriðum villandi. „Er-
lendar lántökur á næsta ári eru ekki
1103 miljónir eins og stendur í
frumvarpinu“, sagði hann, „heldur
1620 miljónir króna eins og segir í
lánsfjáráætlun. Er skýringin á þess-
um feluleik með 480 rniljón króna
erlent lán kannski sú að ef það
hefði verið inni í fjárlagafrumvarp-
inu hefði það komið út með 470
miljón króna halla í stað þess að
sýna 9 miljönir í afgang?“
„Tekjuskattur stórhækkar sem
hlutfall af tekjum þessa árs“, sagði
hann ennfremur. „Frumvarpið
gerir ráð fyrir 15% hækkun launa
milli ára og þá er rökrétt að tekju
skattshækkunin að óbreyttu nemi
15,6%. Hins vegar hækka beinir
skattar um 26% samkvæmt frum-
varpinu, eignaskattur um 25,9%
og tekjuskattur um 26,4%.
Ragnar benti á að ekki er ætlun-
in að greiða niður um eina krónu
skuld ríkissjóðs við Seðlabankann
á næsta ári. „Nú þegar Sjálfstæðis-
flokkurinn fær stjórn ríkisfjármála
aftur í hendur þá er niðurgreiðslum
á skuldum ríkisins hætt og aftur
stefnt í gömlu skuldasöfnunina".
Sjánánar ábls.3.
-ÁI
Striðshreyfmgin
boðar einhliða
vígvæðingu
„Nato-ríkin eru
ekki á þeim buxun-
umað leggjaútíá-
hrifamikla einhliða
afvopnun. Þvert á
móti. Við erum nú
með banda-
mönnum okkarí
Nato á kafi íhinum
furðulegustu ein-
hliða vígvæðingar-
aðgerðum. Þetta er
stríðshreyfingin“.