Þjóðviljinn - 28.10.1983, Síða 4

Þjóðviljinn - 28.10.1983, Síða 4
4 SÍÐA - 'ÞJÓÐVILJINN Föstudágur 28: öktóber 1983 UOBVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyf- ingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Guörún Guðmundsdóttir. flitstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson. Úmsjónarmaöur Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson. Augiysingastjóri: Sigríöur H. Sigurbjörnsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Siguröardóttir, Kristín Pétursdóttir. Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiöur Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúövík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlööversson. íþróttafréttaritari: Víöir Sigurösson. Utlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Þröstur Haraldsson, Ljósmyndir: Einar Karlsson, Magnús Bergmann. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Auglvsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir. Jóharjnes Haröarcnn, Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Margret Guörnundsd. Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir _ Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síöumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prent. Prentun: Blaöaprent h.f. Pennastrikið i Yfirlýsing Alberts Guömundssonar um að réttast ! væri að slá pennastriki yfir skuldir sjávarútvegsins hef- | ur vakið þjóðarathygli. Pað er rétt hjá Ólafi Jóhannes- i syni alþingismanni að þegar ráðherra kemur með hug- j mynd um að slá striki yfir skuldir sjávarútvegsins, sér-’j staklega þegar um er að ræða fjármálaráðherra, þá j verður að ganga útfrá því að það sé þaulhugsað. „Ráð- j herrar verða alltaf að vita hvað þeir eru að segja og eiga j ekki að gefa yfirlýsingar nema að hafa þaulhugsað þær ; áður“. ; Ólafur og aðrir þingmenn áttu í erfiðleikum með að ! skilja hugmynd fjármálaráðherrans, en hann svaraði ! ótrauður fyrir sig og kvað menn hvorki vilja né geta ; skilið nýjar hugmyndir. Hann klykkti svo út með því að j segj aað ríkissjóðurværi aðkomast ívanda einsog sj ávar-; útvegurinn. Ríkissjóður þarf semsagt líka á pennastrik- j inu að halda. En hjá öllum þeim sem ekki láta sig svo i miklu skipta flóknar útskýringar, heldur meta gott hjartalag og snöfurlegar aðgerðir, hefur pennastriksað- ferð fjármálaráðherra mælst vel fyrir. Húsbyggjendur og íbúðakaupendur hugsa til þess með tilhlökkun að ofan á loforð um stórhækkun húsnæðislána bætist nú , útstrikun á vaxtabyrði og skuldum þeirra. Og ef til vill hefur Albert veriö að semja um útstrikun á skuldum ríkisins erlendis þegar hann sat fund Alþjóðabankans um daginn. Ef svo er, þá sjá allir að dæmið gengur upp, ríkissjóður tekur á sig byrðar innlendra skuldara, og Alþjóðabankinn slær striki yfir allt saman. Skuldaverðlaun Til eru þeir sem ekki trúa á patentlausnir þó snjallar ! sýnist. Ólafur Jóhannesson alþingismaður hélt því til að ; mynda fram á Alþingi að það væri góður siður að menn hugsuðu áður en þeir töluðu. Hann hélt að þegar um skuldir væri aö ræða þyrfti alltaf að greiða þær. Ef ekki væri greitt, þá lenti tjónið og tapið á lánardrottnum, eða þeim mönnum sem gerst hefðu ábyrgðarmenn skuldara. Ef fjármálaráðherra ætti við að slá mætti striki yfir erlendar skuldir, þá yrði það ríkið sem greiddi. Ef um væri að ræða skuldir við innlenda fjár-1 festingarsjóði þá færuþeir áhausinn, eðaríkiðtæki ásig tap þeirra sem ábyrgðaraðili. Sum útgerðarfyrirtæki skulda meira á pappírnum en nemur andvirði skipa sinna. Önnur hafa safnað á sig ofgnótt skulda vegna slælegs reksturs eða áfalla. Hjá fjármálaráðherra virtist hugmyndin vera sú að strika út skuldirnar yfir alla línuna hvernig sem þær væru til- komnar. Enda þótt pennastrikið hljómi vel þá er hér að sjálfsögðu um að ræða beina styrki til sjávarútvegsins ef hugmyndin kæmist í framkvæmd, og ekki annað sýnna en ráðherrann vilji deila út almennum skuldaverð- launum. Skattafjall „Að sjálfsögðu verður þjóðfélagið að borga“, sagði fjármálaráðherra þegar Þjóðviljinn innti hann eftir út- færslu pennastriks-aðferðarinnar. „Pjóðfélagið er búið að taka það mikið frá sjávarútveginum og þessvegna er ! hann fjárvana. Pessir peningar sem sjávarútvegurinn ; skuldar koma aldrei inn. Það er staðareynd. Eeir geta j staðið eins lengi og hver vill sem tala í bók. Skuldirnar | gera ekki annað en hlaðast upp.“ Þjóðfélagið á að borga. Eað þýðir hæstvirtir skatt- j greiðendur. Ragnar Arnalds alþingismaður sagði á | þingi að ef hugmynd fjármálaráðherra næði fram að ganga yrði það mesta millifærsla fjármagns í efnahags- i lífi þjóðarinnar fyrr eða síðar, og lenti hún öll á ríkis-1 sjóði, og þar með á skattgreiðendum. En Albert hefur j hótað að hætta frekar en að hækka skatta. Skiljið þér enn, eða hvað? - ekh klippt Góð innrás Morgunblaðið fjallar í gær í leiðara sínum um innrásina í Grenada og er langt síðan jafn ömurleg ritsmíð hefur birst í því blaði. Upphafið er undarlegt en þar segir: „Innrás Argentínuhers á Falklandseyjar í fyrra sýndi, að nauðsynlegt er að búa þannig um hnúta að hugsanlegum árásarað- ila sé augljóst að hann geti ekki mótstöðulaust lagt eyjuna undir sig.“ Hvað er að heyra? gæti les- andi spurt, ætlar Morgunblaðið kannski að halda því fram, að eyríkið Grenada hafi því miður látið sér sjást yfir að koma sér upp öflugum vörnum gegn „hugs- anlegum árásaraðila“ - m.ö.o. Bandaríkjamönnum, sem nú hafa hertekið eyna? Vitanlega ekki: Morgunblaðið er fyllilega sátt við innrásina, enda þótt blaðið viðurkenni á einum stað að „innrásin brýtur í bága við alþjóðalög." En það gerir barasta ekkert til að dómi blaðsins - því það eru réttir menn, Reagansliðið, sem brjóta lög - og nú á smáþjóð sem er helmingi smærri en sú íslenska. Það er m.ö.o. ekki sama hver drepur hvern. Auðmýkt Og Morgunblaðið er eitt blaða ekki í minnsta vafa um réttlæt- ingu innrásarinnar. Það segir: „Augljóst er af fréttum að Sovét- menn unnu að þvf ‘að breyta eyjunni í lendingarstað fyrir hér- flutningavélar á leið til Mið- og Suður-Ameríku." Þetta er bull. Þetta er ekki „augljóst af frétt- um“ heldur blátt áfram túlkun Reagans, sem gengur út frá því sem vísu, að hver sú þjóð sem ekki fylgir Bandaríkjunum að málum í Vesturálfu sé á snærum Rússa og athæfi hennar undan þeirra rifjum runnið. Eða eins og Morgunblaðsleiðarinn segir - Bandaríkjamenn „ganga langt“ til að „sporna gegn því að heimsbyltingin breiðist til fleiri ríkja á þessum slóðum". Enn og aftur skrifar Morgunblaðið í fulkominni auðmýkt undir þá heimsmynd Reagans og hans nóta að menn geri byltingar til að þóknast Rússum - en ekki vegna þjóðfélagsaðstæðna í viðkom- andi löndum. Ekki vegna þess, svo dæmi Grenada sé tekið, að landsmenn voru orðnir þreyttir á yfirgangi Eric Gairys, forsætis- ráðherra, þess sem trúði á Fljúg- andi furðuhluti, en kom sér upp glæpasveitum til að berja niður andstöðu - að hætti ótal annarra harðstjóra í álfunni, sem Banda- ríkjastjórn eys í fé, af því að þeir „makka rétt“ um auðhringa bandaríska og annað. (Vel á minnst: flugbrautin fyrr- nefnd í fréttum: Hér var ekki alls fyrir löngu sýnd fréttamynd, bresk líklega, frá Grenada, sem minnti á, að á annan tug þjóða stóðu að því verki, þ.á m. Bretar - þar var og ítrekað að Grenada þyrfti stóran flugvöll vegna vax- andi túristafjölda). Einum má treysta En sem sagt: Morgunblaðið á sér ekki vott af efasemdum um innrásina á Grenada. Það eina sem er að er það, að ríkisstjórn- um í Vesur-Evrópu líst ekki á blikuna. Leiðarinn segir: „Deilurnar milli Bandaríkja- stjórnar og ríkisstjórna í Evrópu um innrásina sýna, að ráðamenn í lýðræðisríkjunum hafa ekki mótað sameiginlega stefnu um hæfileg viðbrögð gagnvart ítökum kommúnista". Með öðrum orðum: þeir sem eru sekir að dómi Morgunblaðs- ins eru annarsvegar Grenada- menn, sem gerðu uppreisn gegn trufluðum harðstjóra fyrir nokkr- um árum, og hinsvegar banda- menn USA í Nató, sem trúa ekki lengur á þá fallbyssubátapólitík sem Reaganstjórnin gerir að sinni! Ríkisstjórnir í Vestur-Evrópu láta uppi vanþóknun eða for- dæmingu á innrásina í Grenada. Meira að segja elskuleg vinkona, Margaret Thatcher, er dálítið súr út í Reagan. Um 40% Banda- ríkjamanna sjálfra eru andvígir þessum yfirgangi nú þegar, og þeim á sjálfsagt eftir að fjölga. En einn er sá aðili sem aldrei bregst bandarískum stjórnvöldum, einn er sá sem ávallt hlýðir þegar kall- ið kemur - og það er „The Little Big Man“, Litla Flykkið í Aðal- stræti. ÁB. og skorið Pungbœrt áfall Þorsteinn Pálsson hefur orðið fyrir umtalsverðu áfalli í baráttu sinni fyrir því að ná kjöri sem for- maður Sjálfstæðisflokksins. Ind- riði G. Þorsteinsson hefur lýst yfir stuðningi við hann í grein í Morgunblaðinu og fylgja með „góðar óskir úr gömlu horni". Hornið er Svarthöfði. Því í leiðinni lætur Indriði G. Þorsteinsson þess getið, að Svart- höfði, sem hann sjálfur hefur kallað The Syndicate (sem er am- rískt heiti á Mafíunni), hafi til orðið í samvinnu þeirra Þor- steins. Indriði segir í grein sinni: „Kynni okkar (Þorsteins Páls- sonar) hófust um það leyti (að hann var ritstjóri Vísis) og veitti hann undirrituðum frjálsræði til að stríða hinum mikillátu í þjóðfélaginu". Eða með öðrum orðum: þegar Svarthöfða var hleypt af stað, mestan part til að viðra hatur Indriða G. Þorsteins- sonar á kommum og Svíum, sem og öfund hans magnaða í garð ýmissa listamanna. Og allt gekk það með besta móti: „Samstarf okkar Þorsteins var með slíkri prýði að blaðamaður getur ekki á betra kosið“. Það var og. Indriði G. Þorsteinsson hefur reyndar komið nálægt kosning- um áður. Hann var einhver helst- ur kosningabaráttustjóri Alberts Guðmundsonar forsetaefnis - og allir vita hvernig það fór. Og nú verður aumingja Þorsteinn Páls- son fyrir þeim ósköpum, að Svarthöfðinn gerist hans áróðurs- maður í Sjálfstæðisflokknum. Birgir ísleifur og Friðrik Sófus- son mega hrósa happi. Því eins og stendur í merkri bók: Sá maður sem Jón Marteins- son hjálpar - hann er glataður. ÁB.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.