Þjóðviljinn - 28.10.1983, Side 5
Föstudagur 28: október 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Finnbjörn Gíslason formaður K-dagsnefndar og Jón K. Ólafsson umdæmisstjóri Kiwanis á íslandi afhenda
forseta íslands Vigdísi Finnbogadóttur fyrsta K-lykilinn sem upphaf helgarsöfnunarinnar.
K-dagurinn er á morgun
„Gleymið ekki
geðsjúkum”
K-Iykillinn verður seldur um
helgina á vegum Kiwanishreyfmg-
arinnar undir kjörorðinu „gleymið
ekki geðsjúkum“. Ágóðinn rennur
til endurhæfingarheimilis fyrir
geðsjúka í Reykjavík, en eipnig til
ýmissa verkefna í þágu geðsjúkra
víðs vegar um land.
Þetta er í fjórða skiptið sem K-
lykillinn er seldur. Endurhæfinga-
heimilið sem nú á að styrkja er
nokkurskonar „áfangastaður“ þar
sem sjúklingar geta hjálpast að um
heimilshald með stuðningi starfs-
fólks geðdeilda eða félags-
málastofnana, án þess að það sé
bundið staðnum. Heimili þessi eru
einkum ætluð sjúklingum sem
koma utanaf landi og ekki geta
horfið til síns heima strax. Miðar
endurhæfingin að því að gera sjúkl-
ingana félagslega sjálfstæða þannig
að þeir geti sjálfir fundið sér bústað
og annast um sig sjálfir. Heimilið
rúrnar 6-8 einstaklinga ásamt hús-
bændum sem hafa stjórn á heimils-
haldinu. í fyrsta sinn sem K-
lykillinn var seldur rann ágóðinn til
tækjakaupa fyrir Bergiðjuna sem
er verndaður vinnustaður Klepps-
spítala. Bergiðjan hefur nú fram-
leitt að mestu leyti einingar þær
sem endurhæfingarheimilið er
byggt úr.
K-lykillinn er lítið barmmerki,
sem kostar 50 kr.
-ekh
Félagsmenn KRON
6^- 1 -- -2 mA eru nú 14.600. Hvert afsláttarkort
Lfl I Cl ■ B ■ ■ ■ lllf veitir 8% afslátt vöruúttekt. Eru
1 I I 1 1 þau stíluð á verslanir Kron þannig,
^ að tvö gilda í hinum almennu
hverfabúðum, tvö í Stórmarkaðn-
Þessa dagana fá félagsmenn Send hafa verið út afsláttarkort til um, tvö í Dómus og eitt í verslun
Kron enn einu sinni smá glaðning. hvers félagsmanna Kron, en þeir Kron að eigin vali.
Afsláttarform þetta var fyrst
reynt fyrir 14 árum og hefur eftir-
spurn eftir kortunum aldrei verið
meiri en nú. Afsláttartímabilið
stendur til 19. des. og nýtist því
félagsmönnum fram í jólainnkaup.
Um verulegar upphæðir getur ver-
ið að ræða í afslátt, ef vörukaup eru
vel skipulögð.
Að sjálfsögðu fá nýir félagsmenn
einnig að njóta þessara viðskipta-
kjara, en hægt er að ganga í félagið
í öllum verslúnum þess og í skrif-
stofu Kron, Laugavegi 91.
-mhg
Gífurleg sala á
Daihatsubílum
3000.
Karvel um Lánasjóð ísl. námsmanna:
Engin þörf á
harmagráti!
„Ég sé ekki neina ástæðu til þess að vera uppi með neinn
sérstakan harmagrát þó framlag til námsmanna sé skert í
fjárlagafrumvarpinu", sagði Karvel Pálmason, talsmaður Al-
þýðuflokksins í umræðum um fjárlagafrumvarpið í gær.
„Þetta er ekki sagt af illgirni í taka á sig byrðar. Það hafa verið
garð skólafólks", bætti þingmaður- lagðar miklar byrðar á launþega í
inn við. „Þetta eru háar upphæðir landinu og það verður að leggja
og auðvitað verður skólafólk að þær á alla!“ -ÁI.
afhentur
Nýlega afhenti Daihatsu-
umboðið á íslandi, Brimborg hf.,
Daihatsubifreið númer 3000 og var
hinn heppni Inga Eiríksdóttir úr
Reykjavík. Vegna þessa komu þrír
fulltrúar verksmiðjanna frá Japan
og voru viðstaddir er Ingu voru af-
hent blóm.
Nú eru liðin rúm 6 ár síðan fyrstu
Daihatsubílarnir komu til íslands
en Daihatsu Charade var mest
seldi einstaki bíllinn á íslandi fyrstu
9 mánuði þessa árs einsog mörg
undanfarin ár. Alls hafa nú verið
seldir um 188 Charade bflar á
landinu.
Nám i sjávar-
útvegsfræðum
Framleiðni sf. og Samvinnu-
skólinn hafa nú sameinast um
kennslu í sjávarútvegsfræðum.
Fer hún fram á námskeið utan
vinnutíma og mun standa til
aprílloka næsta vor. Kennslan
hófst 5. okt. og eru þátttakend-
ur 15. Kennt er í húsnæði
Framhaldsdeildar Samvinnu-
skólans að Suðurlandsbraut 32
í Reykjavík en einnig verða
ýmsar fiskvinnslustöðvar heim-
sóttar.
Námið er ætlað þeim, sem hyggj-
ast taka að sér stjórnunarstörf í sjá-
varútvegi eða sinna þegar slíkum
störfum hjá útgerðarfyrirtækjum,
fiskvinnslufyrirtækjum eða þjón-
Austurland:
ustufyrirtækjum sjávarútvegsins.
Fluttir verða 80-90 fyrirlestrar um
alla þætti sjávarútvegsmála og
verða fyrirlesarar viðurkenndir
sérfræðingar hver á sínu sviði. Þá
verður og mikið kennt með sýni-
kennslu og verklegum æfingum.
Að sögn Arna Benediktssonar,
framkvæmdastjóra Framleiðni sf.
er meginmarkmið að kynna
mönnum þau vandamál, sem upp
geta komið í þessum störfum og
gefa leiðbeiningar um hvernig eigi
að leysa þau og hvert sé hægt að
leita eftir aðstoð í slíkum málum.
Að námi loknu munu nemendur fá
skírteini frá Samvinnuskólanum
um að þeir hafi iokið þessum
áfanga.
-mhg
Skrifstofa opnuð í
þágu þroskaheftra
Hinn 1. sept. sl. opnaði
Svæðisstjórn um málefni
þroskaheftra á Austurlandi
skrifstofu í húsakynnuin Vist-
heimilisins Vonarlands á Egils-
stöðum. Starfsmaður á
skrifstofunni er Sigríður Þor-
valdsdóttir, iðjuþjálfl. Skrif-
stofusíminn er 1833.
Markmiðið með skrifstofunni er
að veita fötluðum og aðstandend-
um þeirra upplýsingar um rétt
þeirra og aðstoða þá eins og frekast
er unnt. Eru hlutaðeigendur hvatt-
ir til að notfæra sér þessa þjónustu
eftir því, sem þörf krefur.
Með drengilegri aðstoð Styrkt-
arfélags vangefinna á Austurlandi
hafa verið fest kaup á húsi í Egils-
staðakauptúni fyrir sambýli, sem
hugsanlega tekur til starfa á næsta
ári. Félagið keypti húsið með
nokkrum tilstyrk ríkisins. Gert er
ráð fyrir að ríkið endurgreiði húsið
að fullu á næstu árum og eignist
það þannig í áföngum. Reksturinn
mun hinsvegar verða á vegum
félagsmálaráðuneytisins í samræmi
við gildandi lög og reglugerðir. Fer
vel á því að frjáls félög áhuga-
manna og opinberir aðilar taki
þannig höndum saman til að vinna
að framgangi málefna fatlaðra.
Athygli skal vakin á því að um
næstu áramót taka ný lög gildi og
nefnast: Lög um málefni fatlaðra. I
2. gr. þeirra segir: „Orðið fatlaðir í
þessum lögum merkir þá, sem eru
andlega eða líkamlega hamlaðir".
Ný svæðisstjórn verður sett á
laggirnar skipuð 7 mönnurn í sam-
ræmi við hin nýju lög. Svæðis-
stjórnin hvetur alla Austfirðinga til
að hugleiða þessi mál og stuðla að
markvissri þróun og framförum í
málefnum fatlaðra.
-mhg
Karlakór Reykjavíkur
Söngför um Norðurland
Dagana 27.-30. okt. verður
Karlakór Reykjavíkur á söngför
um Norðurland. Sungið veröur á
eftirtöldum stöðum:
Föstudaginn 28. okt. kl. 21.00 í
Húsavíkurkirkju.
Laugardaginn 29. okt. kl. 14.00
að Laugum og að kvöldi sama dags
að Miðgarði f Skagafirði kl. 21.30.
Sunnudaginn 30. okt. kl. 15.00 í
Borgarbíói á Akureyri.
Söngskráin er rnjög fjölbreytt og
á henni er að finna létt og sígild
karlakórslög, íslensk og erlend.
Söngstjóri er Páll P. Pálsson,
undirleikari Guðrún A. Kristins-
dóttir og einsöngvarar í ferðinni
verða: Einar Gunnarsson, Hreiðar
Pálmason og Óskar Pétursson.
_____________________________-mhg
Inga Eiríksdóttir tckur við 3000. bílnum. Með henni á myndinni eru
fulltrúar japönsku verksmiðjanna og Daihatsu-umboðsins á íslandi.
Ljósm. -eik.
Samhliða mikilli bílasölu hefur
Daihatsu-umboðið byggt upp
viðurkennda alhliða þjónustu í Ar-
múla 23 með varahluti, réttingar,
viðgerðir og þess háttar.
Auk blóma fékk Inga Eiríksdótt-
ir gefins allar tryggingar fyrir bíl
sinn næsta tryggingaár en 3000. bíll |
inn ertryggðurhjá Samvinnutrygg-|
ingum.