Þjóðviljinn - 28.10.1983, Side 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 28. október 1983
Bretland er ekki á þeim
buxunum að leggja út í
áhrifamiklaeinhliða
afvopnun. Þvert á móti. Við
og Nato-bandamenn okkar
eru um þessar mundir á kafi í
t hinum furðulegustu einhliða
vígvæðingaraðgerðum.
Þetta er stríðshreyfingin. Ég
á ekki við að hægt sé að
benda á þá sem hafa t hyggju
að hefja kjarnorkustyrjöld
ekki á morgun heldur hinn.
Ég á hins vegar við það að
undirbúningnum undir
þessa styrjöld, bæði
efnislegum og andlegum,
hefurfleygtfram. Síðara
Kalda stríðið (sem hefur
staðið í 4 ár) verður stöðugt
heitara. Hitastigið er nú að
nálgast það sem gæti orðiö
forleikurinn að Þriðju
heimsstyrjöldinni.
Þannig kemst breski
sagnfræðingurinn Edward
P. Thompson að orði í
nýlegri grein í breska blaðinu
Guardian. Greinin ber
yfirskriftina „The Deadly
farce that puts the world
in peril“ sem kalla mætti á
íslensku Hinn djöfullegi
skrípaleikur sem ógnar
heiminum.
Hinn djöfullegi grínleikur. „Fall uppreisnarenglanna" eftir hollenska málarann Pieter Bruegel.
Hinn dj öfullegi grínleikur
Lögmál
gagnkvæmninnar
í greininni talar Thompson tæp-
itungulaust um þá fáránlegu rök-
semdafærslu, sem fólgin er í kalda-
stríðs-hugsunarhættinum og því
„lögmáli gagnkvæmninnar" sem
hann segir að ráði nú samskiptum
austurs og vesturs. Þetta lögmál
lýsir sér í því að ógnun frá öörum
aðilanum kallar á ógnun frá hinum.
Flugskeyti á aðra vogarskálina
kalla á fleiri flugskeyti á hina.
Þannig mata haukarnir í báðum
herbúðunum hver annan. ekki
bara á vopnum, heldur líka á hug-
myndafræðilegri forherðingu.
Thompson segir einnig að dúfurnar
mati hver aðra á nrylsnu, séu þær
ekki skotnar niður yfir víglínunni á
milli austurs og vesturs. Þegar frið-
arhreyfingin á Vesturlöndum er
sterk, eins og gerðist 1981, þá
hjálpar hún til að skapa svigrúm
fyrir raunverulega friðarhreyfingu
í austri. Ef friðarhreyfingin gefst
upp, þá má guð vita hvert stríðs-
hreyfingin mun leiða okkur, segir
Thompson.
Sú röksemdafærsla sem leiðir
okkur til stríðsins byggist ekki á
vopnum einum. Á öllu yfirstand-
andi ári hefur Nato stýrt margrödd-
uðum kór sem hefur lagt kapp á að
yfirgnæfa friðarhreyfinguna,
beggja vegna Atlantshafsins, og
beitt í þeim söng hinum lymskuieg-
ustu brögðum auglýsingatækninn-
ar.
„Megintilgangur „samninga-
viðræðnanna" í Genf hefur verið
að stýra almenningsálitinu á Vest-
urlöndum með því að spila sitt á
hvað á Rússagrýlunótuna („heims-
veldi hins illa“) og nótu hinar stór-
kostlegu „eftirgjafar".
Hið gagnkvæma neikvæða ands-
var úr austri hefur komið fram í
kæfingu á Solidarnosc og í stöðugri
ítrekun á „forystuhlutverki flokks-
ins“. Það er ekki síður hugmynda-
fræði en hernaðarlegur þrýstingur
sem nú er driffjöðurin í Síðara
Kalda stríðinu. Það sem gerir þetta
ógnvekjandi er fáránleikinn - og
vaxandi taugaveiklun - sem stjórn-
ar þessu gangvirki ef tekið er tillit
Breski sagnfrœðingurinn Edward P. Thompsonsegir
aðEvrópueldflaugarnar séu tákn umforræði Bandaríkjanna
í Evrópu og að þeim sé fyrst ogfremst beintgegn
friðarhreyfingunum hérog í Bandaríkjunum á táknrœnan
hátt. Stríðshreyfingin óttastþá tilhugsun að röksemdafœrsla
Kaldastríðsins verði lögð á hilluna ogstefnirþvíblint íátt til
sjálfstortímingar. Effriðarhreyfingin gefst upp, þá máguð
vita hvertstríðshreyfingin mun leiða okkur, segir Thompson.
Myndin er tekin þegar Thompson var á íslandi á síðasta ári í
boði Samtaka herstöðvaandstæðinga.
Um lögmál gagnkvœmn-
innar innan ramma
Síðara Kaldastríðsins
eftir Edward P. Thompson
Edward P. Thompson
til raunverulegra hagsmuna þeirra
ríkja sem málið varðar.
Hugmyndafræðiiegur
ruglingur
Engu er líkara en hugmynda-
fræðin hafi slitið sig lausa úr þeim
félagslega ramma sem hún er
sprottin úr, rétt eins og gerðist á
hátindi heimsvaldastefnunnar með
Fyrri heimsstyrjöldinni eða á þeim
tíma þega nasisminn sigraði í
Þýskalandi. Hugmyndafræðin
virðist nu leika lausum hala án þess
að þurfa að sæta gagnrýnu eftirliti
raunverulegra eiginhagsmuna.
Síðara Kalda stríðið er endurtekn-
ing á því fyrra, en í þetta skipti sem
djöfullegur grínleikur: hér er ekki
deilt um raunverulega eigin-
hagsmuni stórveldanna nema að
litlu leyti, hins vegar fjallar leikur-
inn þeim mun meira um hug-
myndafræðilegan rugling og pólit-
íska andlitslyftingu. Og enginn hef-
ur lyft fésinu hærra en forsætisráð-
herra okkar, sú óábyrgasta og her-
skáasta í flokki Nato-leiðtoganna.
Hana dreymir um að endurupplifa
Falklandseyjastríðið. Hún sér
Galteri hershöfðingja í mynd And-
ropovs.
Ef sagan myndi grípa í taumana í
samræmi við þjóðlega eigin-
hagsmuni eða eiginhagsmuni ríkj-
andi afla, þá gætum við hætt að
óttast kjarnorkustríðið. Engri yfir-
stétt getur verið hagur í að brenna
auðlindir sínar og vinnuafl á báli,
og markaðinn og sjálfa sig með. En
hugmyndafræðin útilokar slíkar
viðbárur. Við núverandi aðstæður,
þar sem hinar gagnkvæmu við-
bragðsstöður virðast vera stöðugt
tilgangslausari og vopnahlé í hinu
kalda stríði eini skynsamlegi
leikurinn fyrir báða aðila, - þá
tekur hugmyndafræðin við stjórn-
inni og stýrir blint á sín þoku-
kenndu markmið.
Ólík afbrigði
heimsvaldastefnu
Við getum vel kallað þessa hug-
myndafræði „heimsvaldasinnaða"
(og þá af beggja hálfu), en með
slíkri nafngift verðum við að vara
okkur á að einfalda ekki vandamál-
ið niður í fyrirfram gefnar skil-
greiningar (t.d. lenínískar) á hug-
takinu heimsvaldastefna.
Engar tvær heimsvaldastefnur
hafa verið nákvæmlega eins, og
ekki er hægt að segja um neina
þeirra að hún eigi sér eina orsök og
driffjöður - t.d. leit að mörkum
eða auðlindum undir stjórn ein-
hverrar alviturrar nefndar ríkjandi
stéttar. Jafnvel á hápunkti evr-
ópskrar heimsvaldastefnu og land-
vinninga voru margþætt markmið
að baki: markaðir, herbækistöðv-
ar, innbyrðis samkeppni heims-
velda, hugmyndafræðilegar hvatir,
vinsældaveiðar meðal kjósenda
o.s.frv. „Heimsvaldastefna“
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna
eru einnig einstök fyrirbæri íklædd
dulargervi algildra hugsjóna um
mannkynsfrelsun: Sigur Alheims-
sósíalismans og Sigur hins Frjálsa
heims. Og af þessum tvennum er
það sú sovéska sem á í vök að verj-
ast og hin bandaríska sem belgir sig
út.
Bandaríska fyrirbærið er flétta
margvíslegra hagsmuna: fjárhags-
legir hagsmunir og hagsmunir stór-
fyrirtækja og þörf fyrir nauðsynleg
jarðefni og málma, hernaðarlegir
hagsmunir, flotahagsmunir, hags-
munir á hinum mikla vopnamark-
aði í heiminum, pólitískir forræðis-
hagsmunir og hugmyndafræðilegir
hagsmunir. Þessi margþætti
hagsmunavefur er ekki undir
stjórn eða eftirliti neinnar alvit-
urrar nefndar eða heilsteyptrar yf-
irstéttar. Hvítahúsið snýst eins og
vindhani eftir því hvaða hagsmuna-
þáttur togar í hvert skiptið.
Nauðsyn Kalda
stríðsins
Við slíkt óreiðuástand verður
það hugmyndafræðin - persónu-