Þjóðviljinn - 28.10.1983, Síða 13
Föstudagur 28. oktéber 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 28. októbcr 1983 _
—■—.AflAlJKI
Haukur Sigurðsson prentari í Odda að störfum. — Ljósm. Magnús.
Heimsókn
í Prentsmiðjuna
Odda
Prentum tölvueyöublöð
í sjö stórvirkum vélum
„Með tölvustýringunni fuku
mistök í prentun inn á síður
sagnfræðiritanna. Rafeinda-
skynjari sér til þess að þéttleiki
prentlitarins er ávallt réttur og
með hárnákvæmum tölvubún-
aði má laga litagjöfina að ýtrustu
óskum viðskiptavinarins. Allar
slíkar fyrirskipanir varðveitir
minni tölvunnar og viku, ári eða
áratugum síðar er hægt að
endurtaka þær með fullkominni
nákvæmni".
Stór orö, en þeir hjá Prentsmiðjunni
Odda í Reykjavík segjast geta staöið viö
þau. Við gengum á fund forstjóra fyrirtæk-
isins, Þorgeirs Baldurssonar, og báðum
hann um að segja okkur frá gangi mála í
þessu stærsta fyrirtæki sinnar tegundar hér
á landi. Fyrst var hann spurður að því hve-
nær Oddi fór fyrst að verða var við tölvuna í
rekstrinum.
Strax 1958
„Það ér svo snemma sem árið 1958 sem
prentsmiðjan fór að prenta tölvupappír og
var það í tengslum við það sem þá var kallað
skýrsluvinnsla fyrir Skýrsluvélar ríkisins.
Áður höfðu þessi samhangandi eyðublöð
verið flutt inn, en með þeirri framsýni sem
forráðamenn Odda sýndu þá, var hægt að
vinna verkið hér heima. Þegar svo tölvurn-
ar fóru að stinga sér hér niður í auknum
mæli eftir 1960 jukust viðskiptin og hafa
vaxið jafnt og þétt æ síðan. Með aukinni
eftirspurn viðskiptavina okkar eftir tölvu-
eyðublöðum hefur okkar tækni þróast
gífurlega illt frá hæggengum vélum til 7
stórvirkra prentvéla í dag“.
Hvenær fer svo Oddi að tileinka sér tölv-
urnar við eigin rekstur?
„Það eru nokkur ár síðan. Fyrst byrjuð-
um við í prentsmiðjunni sjálfri með notkun
innskriftaborða í setningunni. Síðan teygði
þessi tækni sig yfir að prentvélunum sjálf-
um og bókbandinu. Þegar við fluttum í okk-
segir Þorgeir
Baldursson
forstjóri Odda
„Þessi nýja tækni
sparar gífuriega
vinnu, til dæmis
viö launaútreikn-
inga og þess
háttar.
Þorgeir Baldursson við eina af prentvélum
Odda haf. sem vinna nótt og dag vlð að
prenta eyðublöð fyrir tölvur. - Ljósm. Magn-
ús.
ar nýja húsnæði hér uppi á Höfða hófum við
tölvunotkun í bókhaldi og síðar við
launaútreikninga, birgðahald og þess hátt-
ar“.
Gífurlegur munur
„Þessi nýja tækni sparar gífurlega vinnu,
til dæmis við launaútreikninga og þess hátt-
ar en hér eru um 130 manns á launaskrá og
fá vikulega borgað þannig að þar þyrfti að
vinna mörg handtök ef þessarar tækni nyti
ekki við. Það mikilvægasta er þó eflaust í
sambandi við bókhaldið, en nútíma rekstur
krefst þess að hafa á hverjum tíma gott
yfirlit yfir rekstrarstöðuna. Við gerum upp
mánaðarlega og fáum um leið mun ýtarlegri
upplýsingar um einstaka þætti með hjálp
tölvunnar.“
Hvernig fínnst þér starfsf'ólkið undir
tæknibreýtingarnar búið?
„Það kontu ekki upp nein vandkvæði.
Starfsmenn hafa farið á námskeið í tölvu-
notkun og lært ný handbrögð þannig að
engum hefur þurft að segja upp störfum
þess vegna.“
Prentun í 40 ár
Prentsmiðjan Oddi er 40 ára um þessar
mundir og þið eruð nýfluttir í stórt og glæsi-
legra húsnæði. Er ekki mikill munur að
starfa hér en á gamla staðnum?
„Prentsmiðjan varð 40 ára 9. október sl.
en stofnendur voru þeir Baldur Eyþórsspn,
Björgvin Benediktsson og Ellert Ág.
Magnússon. Starfsemin hófst í Ásmundar-
sal við Freyjugötu og flutti eftir tvö ár á
Grettisgötu 16, þar sem fyrirtækið hefur
lengst af starfað. 1968 var flutt á Bræðra-
borgarstíginn og fljótlega var ráðist í miklar
tæknibreytingar, offsetprentun og tölvu-
setningu. Á nokkrum árum kom í ljós að
óhagræði var að því að reka fyrirtækið á 5
hæðum eins og háttar til á Bræðraborgar-
stígnum og því var hafist handa við nýbygg-
inguna sem við erum í núna og flutt inn á
5300 fermetra gólfflöt hér við Höfðabakk-
ann snemma vors árið 1981. Vinnuaðstað-
an hér er öll önnur og betri.“
Þið hafíð möguleika á að taka við texta
frá öðrum tölvum í gegnum símalínur eða af
segulmiðli?
,Já, það er ein af nýjungunum sem við
höfum ráðist í og eigum eflaust eftir að nýta
meir þegar fram líða stundir. Við setjum
ýmiss konar texta sem aldrei hefur í raun
verið unninn í handriti. Rithöfundur til
dæmis getur unnið sitt verk beint á tölvu
sem hann hefur hjá sér og kemur í stað
ritvélar. Af diskettunni hans er svo hægt að
senda textann annað hvort eftir símalínu
beint í tölvustýrða setningarvél okkar eða
hann kemur með diskettuna á staðinn. Ef
verkið hefur verið unnið á annars konar
tölvu en við höfum, notum við smátölvur
sem breyta textanum á það mál sem setn-
ingartölvan okkar notar. Þessi notkun
tækninnar fer vaxandi, og égget nefnt dæmi
um símaskrána og ýmiss konar þýddan
texta. Öll símaskráin er til á diskum og
breytingarnar eru unnar beint á tölvu þann-
ig að þær eru aldrei unnar á ritvél eða þess
háttar gamaldags tæki. Svipuð vinnsla fer í
vöxt á dagblöðunum þar sem blaðamenn
skrifa sinn texta beint á tölvuna og handrit
Helga Hallsdóttir við innskriftarborðið.
Steinunn Hansdóttir sér um að allt sé í lagí þegar samhangandi tölvueyðublöðin koma úr
vélinni. - Ljósm. Magnús.
af gömlu gerðinni verða því brátt úr sög-
unni“.
Ný og gömul verkefni
Að lokum, Þorgeir. Eru íslcnsk prentiðn-
aðarfyrirtæki að vinna á og fá aftur verk-
efni sem leituðu út úr landinu áður?
„Já, sem betur fer hefur tekist að snúa
þeirri óheillaþróun að nokkru við. Þar
kemur m.a. til sú staðreynd að framsækn-
ustu fyrirtækin hér heima hafa á síðustu
árum fjárfest í fullkomnum prentvélum
sem gera þau samkeppnisfær við það besta
sem gert er í heiminum í dag á því sviði. Við
höfum nú um tveggja ára skeið haft hjá
okkur fjögurra lita prentvél með fullkom-
inni tölvustýringu, en það mun vera sú eina
sinnar tegundar hér á landi. Það hefur
ásamt öðru gert það að verkum að við höf-
um á ný fengið til okkar flókin verkefni sem
fyrir nokkrum árum voru komin til erlendra
fyrirtækja. Sem dæmi um mjög vandasamt
verk get ég nefnt bók sem við unnum fyrir
færeyskt forlag og er hún um færeyska
myndlist og gefin út á 8 tungumálum. Ég get
fuliyrt að sú bók stenst samanburð, hvað
frágang varðar, við það besta í heiminum í
dag og það sýnir að íslensk prentiðnaðar-
fyrirtæki hafa með tilkomu og hagnýtingu
fullkominnar tölvuvinnslu gerst fær um að
takast á hendur erfið og flókin verkefni.“
Við þökkum Þorgeiri Baldurssyni fyrir
spjallið, fullvissir um að íslenskur prentiðn-
aður á framtíð fyrir sér á tölvuöld. - v.
TÖLVUBÆKUR
í meira úrvali en þig
getur grunað
yfir
300
bókatitlar
Lítið inn og biðjið um bókalista.
Við sendum í póstköfu.
Bókabúð Máls og menningar
Laugavegi 18 - sími24242
CPT útskýrir hvaða breytingar
ritvinnsla hefur í för með sér
Nýr bæklingur útskýrir við hverju má búast þegar fyrirtæki
taka upp ritvinnslu - eftir hverj u er að sækjast og hvað ber að
varast.
Hringið eða
skrifið
eftir eintaki.
S. Arnason&Co.
Vatnagarðar 4
104 Reykjavík
Sími 85044.