Þjóðviljinn - 28.10.1983, Síða 16

Þjóðviljinn - 28.10.1983, Síða 16
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fðstudagur 28. október 1983 BLAÐAUKI GQÐIR S10LAR MED FÍNAR STILUNGAR LABOMATIC Danskur stóll í sérflokki sem hægt er að stilla á marga vegu. Bak, setu og arma má hækka og lækka og halla fram eða aftur. LABOMATIC stillir þú á ótal mismunandi hátt þér til þæginda. Verð frá: 9.950 kr. LAOFA515 Léttur og lipur með stillanlega sethæð og dýpt, breytilega stöðu á baki og mismunandi áklæði. Verð aðeins: 3.430 kr. KRISTJfin SIGGEIRSSOn HF. LAUGAVEG! 13 REYKJAVIK. SÍMI 2S870 skrifstofuhúsgagnadeild 27760 M I \ M M. \ H > J •»s> I' H ÍSI.KN/K ii\K M l*S 1» I sk;fls sk;iikhj vk i vkson Minninj’urkortin ern nlsölu ú eftirtöldurn slöðuni: Bókabúd Múls og menningar Skrifstofu Alþýðubandalagsins Skrifstofu PjóðvHjuns Munið söfnunarálak í Sigfúsarsjóð vegna flokksmiðstöðvar A Iþýðubandalugsins Notkun tölva í íslenskum bönkum eykst stöðugt. Þessa mynd tók Ijósmyndari Þjóðviljans í Rafreikni Landsbanka Islandsen þær Jónína Haraldsdóttir og Erna Jónsdóttir voru önnum kafnar er blaðamann bar að garði. - Ljósm. Magnús. Þurfum að vera vel á varðbergi segir framkvæmdastjóri Sam- bands íslenskra bankamanna „Stóra spurningin sem við stöndum frammi fyrir er með hvaða hætti á að þróa örtölvutæknina á vinnustöðum okkar. Á þessi stórkostlega tækni að nýtast vinnandi fólki til góðs eða einungis út frá hagsmunum atvinnurekenda? Eg er þeirrar skoðunar að verkalýðshreyfingin verði að láta tölvumálin meira til sín taka og tryggjaað hagsmunir verkafólks verði ekki fyrir borð bornir,“ sagði Vilhelm G. Kristinsson framkvæmdastjóri Sambands íslenskra banka- manna. Örtölvutæknin hefur mjög sett svip sinn á bankastörf hér á landi síðustu árin og hefur SÍB urn alllangt skeið ályktað um þau mál og lagt áherslu á að fram fari um- ræða um það hvers konar þjóðfélag tölvutæknin eigi að færa okkur. Við spurðum Vilhelnr hver væri reynsla nágrannaþjóðanna af örri tæknivæðingu í bönkum. „Tölvunotkunin í bönkum hefur verið mjög mikil undanfarna ára- tugi og margar tækninýjungar sem byggjast á örtölvutækninni hafa því miður dregið úr fjölgun banka- starfa og sums staðar, t.d. í V- Þýskalandi, orsakað atvirinuleysi. Hér á landi er ekkert sem bendir til atvinnuleysis á allra næstu árum en auðvitað þurfum við að vera á varðbergi og hafa meðákvörðun- arrétt um það hvernig tæknin verð- ur notuð á okkar vinnustöðum." Nú hefur átt sér stað mikil fjölg- un bankastarfsmanna hér á landi síðustu ár á sama tíma og örtölvu- tæknin hefur breiðst út. Hvað veld- nr*> „Ástæðurnar eru margar en ein sú helsta að þróunin hér í tænimálun- um hefur verið um áratug á eftir miðað við önnur ríki. Sama má segja um aðrar þjónustugreinar og margar iðngreinar. Þá má einnig nefna verðbólguna. Með vaxandi verðbólgu hafa umsvifin aukist, allar færslur í bönkunum verða fleiri. Hlutverk bankanna hefur einnig breyst mjög á síðustu árum. Þeir eru orðnir langstærstu við- skiptastofnanir landsins með til- komu tölvukeyrðra gíró- og bank- aseðla. Síðast en ekki síst hefur verið unnið mjög að uppbyggingu bankakerfisins víða um landið sem út af fyrir sig hefur kallað á fleira starfsfólk að vonurn." Hvað eru bankastarfsmenn á Is- landi margir í dag? „Þeir eru 2600 talsins, en þá eru ekki meðtaldir bankastjórar og að- stoðarbankastjórar. Inni í þeirri tölu eru hins vegar starfsmenn allra banka og sparisjóða svo og fólk í Þjóðhags- og Framkvæmdastofn- un“. Nú er tækniþróunin mun lengra á veg komin erlendis. Fylgist þið með og lærið af þeirri reynslu? „Við höfum mjög náið samstarf við kollega okkar erlendis, sérstak- lega á Norðurlöndunum og erum virkir í Norræna bankamanna- sambandinu, NBUj í starfsáætlun sambandsins urn tækniþróun segir að NBU líti í vissum tilvikum já- kvætt á tækniþróun í bankakerfinu og í samfélaginu í heild. Því miður hafi allt of mikið borið á því að notkun hinnar nýju tækni hafi að miklu leyti orðið án áhrifa starfs- manna, með slæmum afleiðingum. I ályktun 33. þings Sambands ís- lenskra bankamanna segir m.a. á þá leið að tækniþróun og vélrænar vinnuaðferðir megi ekki hafa í för með sér uppsagnir, valda atvinnu- Vilhelm G. Kristinsson: Við leggjum mikla áherslu á að fá að fylgjast vel með þróuninni og hafa um það að segja hvaða skref verða áfram stigin inn í tölvuöldina. - Ljósm. Magnús. sjúkdómum né sálrænum og félags- Iegum vandamálum. Þær megi ekki heldur valda þverrandi áhrifum einstaklingsins á eigin vinnuað- stæður. Þess vegna höfum við átt aðild að hugmyndum Norræna bankamannasambandsins um tæknivæðinguna í bankakerfinu, sem ganga út á það að tækni- breytingar níunda áratugarins verði ekki án samráðs við starfs- menn bankanna og samtök þeirra“. Hefur íslenskum bankamönnum orðið eitthvað ágengt í þeim efn- um? „Já, þar má nefna að í síðustu kjarasamningum fengum við full- trúa í stjórn Reiknistofu bankanna með málfrelsi og tillögurétti, en við teljum ákaflega mikilvægt að hafa mann í stjórn stofunnar til að miðla upplýsingum jafnóðum um þær breytingar sem verið er að ákveða hverju sinni. Bankamenn hafa um alllangt árabil verið með ákvæði í sínum kjarasamningum um önnur atriði eins og t.d. umgengni við tölvuskjái og þess háttar, en þar er einmitt um hollustuþátt að ræða sem gefa verður góðan gaum og sjálfsagt aldrei of varlega farið“. En ertu sæmilega bjartsýnn á að verkalýðshreyfingunni takist að tryggja að hin nýja tækni þróist með hag verkafólks að leiðarljósi? „Ætli maður verði ekki að vera það. Vísindamennirnir þróa tækn- ina en það er annarra að nota hana og skipuleggja. Þarna verða menn að hugsa út frá hagsmunum heildarinnar því tæknibreytingar, hverju nafni sem þær nefnast, eru einskis virði nema þær komi samfé- laginu til góða. Víða erlendis hefur verið farið offari í þessum efnum með slæmum afleiðingum en ef verkafólk og atvinnurekendur bera gæfu til að starfa saman að þessum málum hér er engin hætta á að illa fari. Hið opinbera gefur þessum málum einnig gaum og niá nefna stofnun starfshóps á vegum fé- lagsmálaráðuneytisins í sumar, en ætlunin er að kanna áhrif nýrrar tækni á mannafla og fleira. Þarna er aðilum vinnumarkaðarins ætlað að starfa saman að athugun á tölvu- byltingunni. Það er vel.“ JJ Vísindamennirnir þróa tæknina, það erannarra að nota hana og skipuleggja. Þarna verðamennað hugsa út frá hagsmunum heildarinnar því tæknibreytingar, hverju nafni sem þærnefnast, erueinskis virðinema þær komi samfelaginu tilgoða' ,í(

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.