Þjóðviljinn - 28.10.1983, Qupperneq 19

Þjóðviljinn - 28.10.1983, Qupperneq 19
Föstudagur 28. október 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19 íþróttir Umsjón: Víðir Sigurðsson Akurnesingurinn ungi sífellt í fréttum í Bretlandi: Átti Sigurður að taka stöðu Strachan? Sigurður Jónsson, lands- liðsmaðurinn ungi frá Akran- esi, er sífellt í fréttunum hjá Match knattspyrnutímaritinu breska. Gordon Strachan, Michel Platini. Platini í deilu Michel Platini, fyrirliði franska landsliðsins í knatt- spyrnu, heldur að öllum lík- indum heim til Frakklands nœsta sumar og gengur til liðs við Paris St. Germain. Platini leikur nú sitt annað keppnis- tímabil með ítalska stórliðinu Juventus. Hann varð marka- hœsti leikmaður 1. deildarinn- ar þar í fyrra og hefur leikið mjög vel, en nú hefurhann lent í miðri deilu Juventus við franska landsliðið. Forseti Juventus, Giampi- ero Boniperti, krefst þess að Platini leggi alla orku sína í að gera liðið að ítölskum meistara í vetur og haldi sig þar með á ítalíu allt til enda keppnistíma- bilsins, í maí. Platini er hins vegar með hugann við úrslit Evrópukeppni landsliða sem fram fara í Frakklandi næsta sumar og efst á hans óskalista er að stjórna franska liðinu til sigurs í þeirri keppni. - KS Stórleikur Barcelona Barcelona sýndi snilldar- takta í gœr og sigraði Atletico Bilbao 3-1 í Bilbao. Petta var fyrri leikur liðanna í Stórbikar Spánar, viðureignar meistar- anna og bikarmeistaranna. - VS. Nicholl tU Rangers Jimmy Nicholl, norður- írski landsliðsbakvörðurinn sem áður lék með Manchester LJnited, hefur skrifað undir samning við skoska úrvals- deildarliðið Rangers og spilar með því til 24. apríl 1984. Þá snýr hann aftur til félags síns í Kanada, Toronto Blizzard. - VS. Tap Tékka Tveir vináttulandsleikir fóru fram í Evrópu í fyrra- kvöld. Búlgarir sigruðu Tékka 2-1 í Prag og Sviss vann Júgó- slavíu 2-0. stjörnuleikmaður Aberdeen, skrifar reglulega í blað- ið en taisverðar líkur eru nú á að hann verði seldur frá fé- lagi sínu. Arsenal, Newcastle og vestur-þýska liðið Núrn- berg eru talin líklegust til að hremma Strachan sem var besti leikmaður Skota í heimsmeistarakeppninni á Spáni í fyrra. Fyrir skömmu ritaði Strachan: „Ég áttaði mig enn betur á því að Aberdeen væri reiðubúið að láta mig fara þegar Alec Ferguson framkvæmdastjóri ræddi við mót- herjaokkarí 1. umferð Evrópubik- arkeppninnar, Akranesfrá íslandi, um hinn 17 ára gamla miðvallar- spilara Sigurð Jónsson (Sigi Jons- son).“ í nýjasta hefti Match er stór fyr- irsögn: „Sigi stays at School“, eða Siggi heldur áfram námi. Þar er haft eftir Sigurði að hann hyggist stunda nám í vetur og hann stefni að því að útskrifast síðar meir sem íþróttakennari. Síðan orðrétt: „Það væri gaman að vita til þess að mörg félög sækist eftir mér. Þau vita að ég ætla að halda áfram í námi og munu bíða. Vonandi verð ég orðinn betri leikmaður að ári.“ Síðan eru talin upp félögin sem helst vilja ná í Sigurð, Rangers, Celtic, Aberdeen, Liverpool, Ajax, Bayern Múnchen og Barce- lona. Strachan gefur í skyn að Sigurð- ur eigi að vera arftaki sinn hjá Aberdeen. Samningur Strachan við félagið rennur út næsta sumar en Aberdeen vill selja hann áður til að fá fyrir hann hærri upphæð. Fé- lagið ætlar ekki að taka áhættu á að kaupverðið verði lækkað með því að væntanlegir kaupendur láti þar til gerðan dómstól úrskurða um verðgildi kappans. Slíkt er hægt þegar santningur er útrunninn og í nánast öllum tilvikum fæst kaupverðið lækkað til muna. Hvað sem því líður, er ljóst að Sigurður fer hvergi í vetur, hvorki til Aberdeen eða annað. - VS lÆ'M ðfcJS Sigurður Jónsson (t.v.) er cftirsóttur af mörgum frægum fclögum, sömu- leiðis Gordon Strachan (t.h.). T ottenham gegn Arsenal! Gömlu erkifjendurnir og ná- grannarnir í London, Tottenham og Arsenal, drógust saman þegar dregið var tií 3. umferðar ensku deildabikarkeppninnar í knatt- spyrnu í gær. Leikurinn fer fram í White Hart Lane, heimavelli Tott- enham. Þá datt 4. deildarliðið Colchester í lukkupottinn, fékk heimaleik gegn Manchester Unit- ed. Eftirtalin lið mætast í 3. umferð- inni sem fram fer dagana 7.-9. nóv- ember: Aston Villa-Manchester City Birmingham-Notts County Chelsea-W.B.A. Colchester-Manch. United Everton-Coventry Fulham-Liverpool Ipswich-Q.P.R. Leeds-Oxford Norwich-Sunderland Preston-Sheff. Wednesday Gústaf með ÍR Gústaf Björnsson, markahæsti leikmaður 3. deildarinnar sl. sumar með Tindastóii, hefur verið ráðin þjálfari 4. deiidarliðs ÍR í knattspyrnu. Hann mun jafnframt leika með liðinu næsta sumar, við hlið markahæsta leikmanns deildakeppninnar í sumar, frænda síns, Tryggva Gunnarssonar. - VS. Zebec til Dortmund? Branko Zebec, hinn frægi júgóslav- neski, drykkfelldi knattspyrnuþjálfari, sem var rekinn frá Eintracht Frankfurt fyrir stuttu, tekur líklega við öðru vestur-þýsku Bundesliguliði, Borussia Dortmund. Við Frankfurt tekur senni- lega Dietrich Weise sem rekinn var frá Kaiserslautern nú í vikunni. - VS. Rotherham-Southampton Stoke-Huddersfield T ottenham-Arsenal Walsall-Shrewsbury West Ham-Brighton Wimbledon-Oidham. Gunnar eini íramherjinn! Gunnar Gíslason, landsliðsmaður í knattspyrnu frá Akureyri, hefur fcngið að kynnast nýrri hlið á íþróttinni að undanförnu. Hann byrjaði fyrir stuttu að leika með Osnabriick í vestur-þýsku 2. deildinni og á útivöllum lcikur liðið stífa varnarknattspyrnu með einungis einn framherja. N Frá því Gunnar hóf að leika, hafa allir þrír leikirnir verið á útivöllum. Gunnar hefur verið þessi eini framherji sem hefur mátt berjast uppá eigin spýtur við vörn undstæðinganna og hann hefur enn ekki fengið tækifæri til að leika sína vanaiegu stöðu sem ntið- vallarspilari. Hann gerði þriggja rnánaða santning við félagið og rennur hann út um áramót. - vs Einn efnilegasti borðtennismaður heims í Höllinni: „Tekur þá á núlli sem berjast ekki! ••n Einn efnilegasti borðtennis- leikari í heimi, Svíinn Jan-Ove Waldner, verður meðal þátttak- enda á Norðurlandamótinu í borð- tennis sem haldið verður í Laugar- dalshöllinni dagana 4.-6. nóvem- bcr. Waldner er 18 ára gamall og á Evrópumeistaramótinu í fyrra hafnaði hann í öðru sæti, á eftir landa sínum, Appelgren. Hann er einn af fáum borðtennismönnum Evrópu sem Kínverjar hræðast og hann hefur orðið Evrópumeistari unglinga síðustu þrjú árin í röð sem er einstakt afrek. „Waldner er mikill keppnismað- ur og gefur andstæðingum sínum aldrei tækifæri. Hann leikur alla leiki á fullu og tekur menn „á núlli" ef þeir berjast ekki gegn honum,“ segir Stefán Konráðsson, lands- liðsmaður í borðtennis, um Svíann unga. Norðurlandamótið er geysi- sterkt, Svíar, Danir og Finnar eru meðal bestu þjóða Evrópu, og Norðmenn eru á stöðugri uppleið. Svíar leika í úrvalsdeild Evrópu- keppninnar, Danir og Finnar í 1. deild og Norðmenn eru meðal þeirra bestu í 2. deild. ísland hefur hins vegar ávallt verið við botn 3. deildar. Það verður því borðtennis á heimsmælikvarða í Höllinni eftir viku. - VS Blakið fer á fullt „Bara tveir í byrÍa sölur ' ' A tvinnnmanncl/on or nAnn stað þriggja Pólverjar að á morgutl Knattspyrnusnillingurinn brasil- íski, Zico, gerir ekki mikið úr hin- um geysiháum launum sem hann fær hjá ítalska félaginu Udinese. „Það eru mest ýkjur að ég fái svim- andi upphæðir hér á Ítalíu. Heima í Brasilíu átti ég þrjá bíla en nú á ég aðeins tvo,“ sagði hann í gaman- sömum tóni við fréttamann fyrir stuttu. - VS Atvinnumennskan er óðum að koma upp á yfirborðið í austur- evrópskri knattspyrnu. Ungverjar taka upp atvinnumennsku um ára- mótin og nú í haust voru í fyrsta skipti leyfðar sölur milli félaga í Póllandi. Hæsta kaupverðlð til þessa er rúmlega 2,2 miljónir ís- lenskra króna sem Legia frá Varsjá greiddi fyrir landsliðsmanninn Andrzej Buncol frá Ruch Chorzow. Þrátt fyrir þetta eru pólskir knatt- spyrnumenn áfram taldir til áhuga- manna. - VS íslandsmótið í blaki hefur göngu sína um helgina. Á morgun, laugar- dag verða leiknir fyrstu fjórir leikirnir, þrír í Hagaskóla í Reykja- vík og einn í Glerárskóla á Akur- eyri. Opnunarleikurinn er viðureign Víkings og ÍS í Hagaskólanum kl. 14, í 1. deild karla. Kl. 15.20 mæta svo íslandsmeistarar Þróttar nýlið- um HK sem stóðu sig mjög vel í haustmótinu um síðustu helgi. Kl. 16.40 hefst svo leikur Þróttar og ÍS í 1. deild kvenna. Norðurlandsliðin í 1. deild kvenna mætast á Akureyri kl. 15, KA tekur á móti Völsungi frá Húsavík.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.